Tíminn - 08.03.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 08.03.1957, Blaðsíða 12
▼aðurátllt Norðaustan kaldi, víðast léttskýjað íkviknun í stóra verzknar- og íbúSarhúsi á Akureyri í fyrrinótt Skemmdir smávægiiegar, hætt vií stórbruna, eí eldur veríur laus þar Föstudagur 8. marz 1957. Hiti kl. 18: Reykjavík -4 stig, Akureyri -6, London 11, Kaupmannahöfn -1, París 11. Akureyri í gær: Um kl. 11,45 í gærkvAdi kviknaði í „París“, stóru verzlunar- og íbúðarhúsi við Hafnarstræti 96 hér í hæ en slökkviliði tókst fljótt að slökkva og urou ekki verulegar skemmd- ir af eldi og vatni en reykur mik ili og fór um efri hæðir hússins. Ekki urðu teljandi meiðsli á fólki en íbúar á efstu hæð björguðu sér út um glugga, út á þak skúrbygg ingar aujtan við, iiúsið. Eldurinn var í skáp í eldhúsi og breiddist ekki út. Ganiait stórhýsi. París er eitt hinna gömlu, stóru timburhúsa í bænum, orðið gamalt hús en enn hið veglegasta, stend ur við aðalgötu bæjarins og eru hin næstu hús einnig stór timbur hús. Er því hætta á ferðum ef eldur verður laus. í París eru verzl anir og verkstæði á neðri hæð, (Blómabúð KEA, Klæðaverzlun j Sigurðar Guðmundssonar og hús- I gagaa- og dívanaverkstæði), á efri i hæðum tveimur eru íbúðir og búa j þar fjölskyldu’r og einhleypt fólk. | Nýlega hafa orðið eigendaskipti j að miklum hluta hússins. Þar bjó ; áður Þorsteinn M. Jónsson skóla I stjóri, sem nú er fluttur til Reykja víkur. Eyfirzk skip bííast á tcgveiÖar Akureyri: — Þrjú eyfirzk skip búast nú á togveiðar fyrir Norður- landi eins og ætíð á þessari árstíð. Skipin eru „Snæfell“, „Súlan“ og „Kópur“. Venjulega eru líka á slík um veiðum skip frá Siglufirði, Ólafsfirð'i og fleiri stöðum. Vertið þessi stendur unz hefst undirbún- ingur að síldveiði. >> Aform Eisenhowers við Miðjar^ar- haf hljóta samþykki Bandaríkjáþings Framsóknarfélag Akraness heldur skemmtisamkomu Framsóknarfclag Akraness heldur skemmtisamkomu næst- komandi sunnudag í félagsheim- ili teinplara, og liefst hún kl. 8,30 Spiluð verður framsóknarvist og að því loknu dansað. Karl Krist- jánsson nmn flytja samkomunni skeinmtiþátt. Aðgöngumiðar seld ir í félagsheimilinu kl. 4—5 á sunnudag. Öllum er heimill að- gangur að samkomunni. Hollandsdrottning og ma'ður hennar heimsækja Svíbjóí Haag-NTB, 7. marz. —- Júlíana Hollandsdrottning og Bernharð prins munu fara í opinbera heim- sókn til Svíþjóðar dagana 21.—24. maí næstkomandi. Þau munu fara sjóleiðis til Stokkhólms og koma þangað árdegis 21. maí. Forselinn telnr ástandið í M-Anstnr- löndum bjartara en fyrr WASHINGTON-NTB, 7. marz. — Eisenhower forseti lýsti því yfir á blaðamannafundi í Washington í dag, að það væri skoð- un Bandaríkjastjórnar að siglingar um Akaba-flóa ættu að vera frjálsar öllum þjóðum heims eins og á hverri annarri alþjóðaleið. Þetta er skoðun Bandaríkja- stjórnar, sagði forsetinn, og þeirri Hann svaraði nokkuð gagnrýni, sem fram hefir komið á þessa að Bandaríkin treystu S. þ. um of í hinum erfiðari vandamálum. Bandaríkin beita ekki valdi. Eisenhower kvað það skoðun stefnu verður ekki breytt, nema slefnu stjórnarinnar, einkum það, því aðeins að alþjóðadómstóllinn kveði upp annan úrskurð. Eisenhower kvaðst vera á þeirri skoðun, að útlitið í M-Austurlönd um væri nú öllu bjartara en fyrr, þó að enn væri við ýmsa erfiðléika í sína- að Bandaríkin ættu ekki að ~ j þröngva stefnu sinni upp á heim inn í krafti valds og áhrifa, heldur yrði að vinna að lausn vandamál anna í samvinnu við aðrar þjóðir og þar væri vettvangur S. þ. á- kjósanlegasti grundvöllurinn. í S. þ. væru saman komnir fulltrúar flestra þjóða heims og meirihluti þeirrar alþjóðaráðstefnu yrði að ráða. að etja. Menn verða að gera sér það Ijóst, sagði forsetinn, að tilvera Ísraelsríkis er söguleg staðreynd og vandamál þess yrði að leysa. Eisenhower endurtók fyrri um- mæli sín, að Bandaríkin ættu og myndu beita sér fyrir lausn vanda málanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, jafnt stórra og smárra vandamála. Áraskip hefja róðra við suðurströnd- ina og hafa gæftir og góðan afla Frá fréttaritara Tímans í Vík í Mýrdal. Nú eru róðrar hafnir á áraskipum héðan af söndunum, því að fiskur er genginn að sandi og hæg landátt hefir verið síð- ustu daga. Menn fiska á handfæri og hefir aflinn verið um 40 fiskar í hlut. Fiskurinn er stór og fallegur. Mikið fuglager er við ströndina j Friðrlk Ólafs son skrif ar um 1. ein- yígisskákina við Hermann Piinik og virðist vera þar í miklu síli. Sýnist mönnum sem mikil fisk- gengd sé víð ströndina. Frá Jökulsá er róið á þremur skipum, tveimur frá Dyrhólaey og einu frá Vík. ÓJ. Frumvarp Eisenhowers samþykkt. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag við lokaatkvæða greiðslu frumvarp Eisenhowers um efnahags- og hernaðarað- stoð við löndin fyrir botni Mið jarðarhafsins. Samkvæmt frum- varpinu er Eisenhower nú lieim ilt að senda bandarískan lierafla til að stöðva árás kommúnista ríkja á sérhvert það land á þess um slóðum, sem kann að fara frain á slíka aðstoð. Einnig er gert ráð fyrir stórfelldri efna hagsaðstoð við þessi Iönd. Frum varpið gengur nú til forsetans og öðlast þegar lagagildi við und irskrift forsetans. FriSrik mnn skriía nm allar ein- vígisskákirnar jaínóSism í Tímann iiiiiiiiiniiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiMiinMiniiiiiiiHiiiiiiimm 1 Blaðið hefir samið um | | það við Friðrik Ólafsson, I 1 að hann skrifi jafnóðum um \ 1 einvígisskákirnar við Her-i | mann Pilnik, — skýri þær I | fyrir lesendum og setji sín-1 § ar athugasemdir við. Blaðið \ | vonast til, sem reyndar | | þarf vart að efa, að lesend-1 | ur muni hafa ánægju og i 1 gagn af þessum skýringum. | 1 Hinn mikli fjöldi áhorfenda i | á fyrstu einvígisskákina i | sýnir, að mikill áhugi er | | fyrir einvíginu meðal al- i | mennings. Fyrstu skákinni f | lauk sem kunnugt er með 1 | sigri Pilniks, og hér á eftir | 1 fara skýringar Friðriks við | § skákina. i UIIIIIMMMIMIIIIIMIIIMIIIIIMIIMMimiMIIIIIMIMIIIIMIIMMI *r 1. EINVÍGISSKÁK. — Spánskur leikur. — Hvítt: Herman Pilnik Svart: Friðrik Ólafsson. 1. e4—e5 2. Rf3—RcS 3. Bb5 —a6 4. Ba4—Rf6 5.0-0—d6 6. c3 (Bezta áframhaldið. 6. Hel leiðir til flóknari stöðu eftir 6. —b5 7. Bb3—Ra5 8. d4. Sama er að segja um 6. d3.) 6. — Bg4 (Þessi leikur og hinir næstu eru algjör hug- detta af minni hálfu. Gallinn er hins vegar sá, að Pilnik er öllum hnútum kunugur í þess- ari byrjun og hann lætur þetta nýjungapríl mitt ekki mikið á sig fá. Afleiðing: Vafasamt, að ég geri tilraun með þetta af- brigði niitt aftur.) 7. Hel—Rd7 8. h3—Bh5. (Gallinn á afbrigðinu er nefni- lega sá, að þessi biskup verð- ur algjörlega áhrifalaus maður (á g6)). 9. Bc2—Be7 (í upp- hafi hafði ég hugsað mér að leika 9. —Df6, en sá brátt að sá leikur strandar á 10. g4— Bg6 11. d4 með hótuninni —B g5 og —d5.) 10. d3—0-0 11. Rbd2—Rc5 12. Rfl—d5. (Hér fylgi ég uppskrift Keresar í bók hans „Theorie der Schach eröffnungen". Þar fær svartur betra tafl. Treytið ekki bókun- um um of!) 13. Rg3—Bg6 14. De2—d4? (Ég álít þennan leik upphafið á öllum mínum erfið- leikum. Bezt var að halda mið- borðsspennunni með 14. —H e8.) 15. Bd2!— (Nú hótar hvít- ur með 16. cxd4—Rxd4 17. Rx R—DxR 18. Bc3—Dd6 19. Rf5- —Bxf5 20. exf5—f6 21. Hadl.S Svartur er ekki öfundsverður af stöðu sinni.) 15. —He8? (Svartur á ekki margra kosta völ, en þessi leikur, bætir ekki úr. Betra var 15. —a5 til að koma í veg fyrir b2—b4 síðar meir. Við fáum brátt að sjá, hve geigvænleg áhrif sá leikur hefur á svörtu stöðuna.) 16. cxd4—exd4. (Afleiðingar — Rxd4 höfum þegar séð.) 17. b4 ~Re6 18. a3--Bd6 (Svörtum yfir sést algjörlega næsti leixur hvíts. Vænlegast úr því sem komið var virtist —a5.) 19. B a4!—b5 (Eiginlega þvingað. Tvípeð á c-línunni væri dauða- högg á svartan.) 20. Bb3—Re5 21. Rxe5—Bxe5 22. Dg4 (Hótar f2—f4—f5) 22. —Dc8 (Ef nú f2—f4 þá —Rxf4) 23. Rf5— Rf8 24. Bd5—Hb8 (24. —Ha7? 25. Re7t)25. Hacl (Svartur má sig nú hvergi hræra) 25. —Rd7 26. Rh4—Rb6 27. Bb3 (Ein- faldara vjrtist 27. Bc6 með á- framh, 28. f4) 27. —Bf6 28. Rxg6—fxg6 29. Hc6 (Eftir 29. Dxg6 fær svartur einhverja möguleika eftir —Rc4!) 29. — DxD 30. pxD—g5 (c-peðið er alla vegana dauðadæmt.) 31. Hxc7—He7 32. Hecl—Hbe8 ( —Hb7 var eitthvað skárra) 33. g3-HxH 34 HxH-He 35 Hc6 —Hb7 36. f4 (Eftir þennan leik á svartur sér ekki viðreisnar von)36. —Kf8 37.fxg—Be5 38. Bf4—Rd7 39. g6—f6 og svart- ur féll á tíma um leið. HagnaSur af brunatryggingum bæ jar ins aðeins eyðslueyrir í bæjarsjóði - Lög mæla þó svo fyrir, aí hann skuli mynda scrstakan sióÖ, er stuðli aÖ lækkun iÖgjalda og styrki byggingar í bænum Á bæjarstjórnarfundi í gær ræddi Þórður Björnsson nokk- uð um brunatryggingar bæjarins í tilefni þess, að getið var um það í fundargerð bæjarráðs, sem til umræðu var, að Fast- eignaeigendafélag Reykjavíkur hefði tilnefnt fulltrúa sinn til þess að fylgiast með því, hvernig fé er varið úr sjóði þeim, sem lögum samkvæmt skal mynda af hagnaði, sem verður af húsatryggingum þeim, sem bærinn hefir með höndum. Gat Þórður þess, að bærinn hefði sem kunnugt væri tekið í eigin hendur húsatryggingar í bæn um, samkvæmt heimildarlögum, er gera ráð fyrir, að hagnaður af starfsemi þessari renni í sérstak- an sjóð, er varið sé til að lækka ið- gjöld, efla brunavarnir og trygg- ingastarfsemi. Rann í bæjarsjóð. Hagnaður Reykjavíkurbæjar af tryggingunum varð fyrsta árið, 1954, 2,1 millj. kr. Það fé rann í bæjarsjóð sem lán, án þess að til kæmi samþykki bæjarstjórnar eða bæjarráðs. Næsta ár var hagnaður- inn 2,4 millj. kr. og fór sömu leið án ráðstöfunar. Sama máli virðist hafa gegnt um hagnað sl. árs. í stað þess að renna í sérstakan sjóð með fyrrgreindu markmiði varð fé þetta eyðslueyrir bæjar- yfirvaldanna. Borgarstjóri játar. Borgarstjóri brást illa við þess- um aðfinnslum, og kvað það firru eina, að féð hefði orðið eyðslueyr- ir bæjarins. Þetta væri sérstakur sjóður í bæjarsjóði, eins og reikn- ingar bæjarins bæru með sér, og það væri alls ekki eyðslueyrir. — Hins vegar viðurkenndi hann, að bæjarsjóður hefði heimildarlaust tekið fé þetta að láni, og rynni það til ýmissa framkvæmda, sem bærinn hefið með höndum, en aí því væru greiddir góðir vextir. Játaði hann því að enginn sjóð- ur hefði verið myndaður, eins og lögin gera ráð fyrir og fénu hefði því síður verið varið eins og lög- in ákveða, heldur hefði féð verið gert að eyðslueyri í bæjarsjóði. Benti Þórður á, hver játning liefði falizt í orðum borgarstjóra og minnti enn á, að lögin segðu, að liagnaðinum mætti aðeins verja á tvennan hátt, til þess að lækka iðgjöld eða efla brunavarn ir og tryggingar.Lögin segðu enn fremur, að bæjarstjórn ætti að ákveða, hvernig fé þessu væri varið. Ekkert af þessu hefði ver- ið gert. heldur væri nú játað, að féð hefði orðið eyðslueyrir bæj- arins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.