Tíminn - 23.03.1957, Blaðsíða 3
T f MIN N, laugardaginn 23. marz 1957.
3
ag''?'‘;r*T;Ty
TT^
{ s.*
Rúmenski píanóleikarinn M. Kalz
~-r:'■
• ■ ■" " >
ViSa um land hafa stór, samfalld svæði verið framræst.
Stórvirkar skurðgröfur hafa verið
að verki hér á landi síðan 1942
Fulltrúi frá Priestman Brothers Ltd. hefir
dvalið hér og Ieiíbeint um meíferíS og viíhald
Á s. 1. 15 árum hafa stórvirkar skurðgröfur með nokkrum
hætti brevtt ásýnd landsins. Fyrsta grafan hóf starf hér árið
1942, minnsta gerð af gröfu frá Priestman Brothers Ltd. í
Hull á Bretlandi. En síðan hefir þeim fjöigað ört og orðið
stórvirkari með hverju ári. Nú eru 50—60 Priestmangröfur
til í landinu, auk nokkurra af öðrum gerðum, en Priestman-
gerðin er í miklum meirihluta.
Þetta kom fram í viðtali sem
Tíminn átti nú í vikunni við
Kenneth Cliff, sendimann frá
Priestman fyrirtækinu, sem hér
hefur dvalið að undanförnu. Starf
hans hefur verið að ieiðbeina að |
ilum sem einkum hafa þessi verk I
færi með höndum, aðaliega Véla
sjóði og Vegagerð ríkisins, en hing
að kom hann á vegum Sambands
ísl. samvinnufélaga, sem hefur um
boð fyrir þessi mikilvirku tæki.
Kenneth Cliff taldi að reynsl
an liefði sýnt hér sem annars
staðar, að þessi verkfæri reynd
ust vel. og undir það tók Háráld
ur Árnason, forstjóri Vélasjóðs.
Væru afköst vanra stjórneuda
með þessum vélum hér ágæílega
sambærileg við það, sern annars
staðar gerist.
Gamal kunnugt fyrirtæki.
Cliff sagoi að Priestmanfyrir
tækin væru þekkt um allan heim ;
fyrir skurogröfur, krana og upp!
moksturspramma. Fvrirtækíð er
gamalt, stofnandinn Josef Priest;
man var samtimamaður Diesels;
hins þýzka, og vann um- skeið að
smiði dieselvela, en sneri sér sið
an að þessum stóru vinnutækjum
og heíur fyrirtækið síðan einvörð
ungu framleibt vinnuvélar.
Hér heíur Ciiff leiðbeint á
verkstæðum Vélasjóðs og Vega-
gerðar og taldi Haraldur Árna
son að mikið gagn væri af komu
hans. En Cliíf sagði hina íslenzku
vélamenn og skurðgröfustjóra á-
gællega hæfa starfsanenn, sem gott
nefði verið aó vmna með.
Nýtt verkstæðishús Vélasjóðs.
Þaö hefur auðveldað þessi sam
skipti, að Vélasjóóur hefur nú
nýtt verkstæðishús fyrir starfsemi
sína og er þar unn.ð að viðhaN
véianna. Vélasjóður á nú ki
Priestmangru-fu og eru 3 þeirra
nýjar og at íulikOihnustu gerð
Prie;t/nan framleiðlr 3 gerðir af
skurðgröfum: Cub, sem er sú teg
\inrt H‘ncr"v ko’n fvrst. Og
svo stærri 'gefSnia Wc-lf og loks
er ný gérð- crJ,in'j% mikilvirk, Tig
er. . :.
Þeir Haraldúr Arnason og Kenn
eth Cliix tölfiu báoir, að hér væru
mikll '.;erk áð; vínr.a á næstu árum
fyrir þe,Ssi„ verkfæri. að breýta á-
sýnd lrtndsins. þurrka og rækta
og væri þwíigott og nauðsynlegt
að sem bezt samvinna tækist með
notendúm og, framieiðanda, og að
því marki héfði verið stefnt með
þes=ari; t’erð, sem Véladeild SÍS
gekkst fvrir.
516 hafa keppt í
Landsgöngunni
á Sauðárkróki
RÚMENSKUR píanóleikari,
Mindru Katz, kom hér í vikunni
og efndi til tveggja tónleika á
vegum Tónlistarfélagsins. Þetta er
ungur maður og einkar geðþekk-
ur; í blaðfréttum af ferli hans
segir, að liann hafi víða haldið
hljómleika og hlotið frábæra
dóma. Margir þeir píanóleikarar,
sem viða fara, eiga líka vafalust
mikið safn af blaðaúrklippum, og
stundum hvarflar að áheyranda,
að til séu þeir, sem leggja mest
kapp á þá söfnun. En músíkin er
þó fyrir mestu og kunnáttan, og
af þessu hvort tveggja er þessi
gestur allvel haldinn og þarf ekki
mjög á úrklippum að halda. En
það kemur nú æ betur í ljós, að
helzta konserthljóðfæri höfuðstað
arins er orðið harla lélegt og á-
reiðanlega til trafala fyrir lista-
mennina, og nokkurs angurs fyrir
áheyrendur. Þessi rúmenski gest-
ur náði tæplega þeim hljóm úr
því, sem efni annars stóðu til, og
þeir tónar, sem höfðu vængi, kom
ust lítið á loft.
EFNISSKRÁIN var ekki
mjög nýstárleg nema fyrsta verk
ið, svíta eftir George Enescu,
tónameistara Rúmena á seinni tím
um, og var það verk mjög vel leikið
og um margt einna eftirminnileg
ast að loknum þessum tónleikum,
þótt seinna færu verk þeirra, sem
meira kunnu fyrir sér. Tilbrigði
um stef eftir Haydn tókust einnig
vel, og svo sónata í d-moll óp.
31 nr. 2 eftir Beethoven, sem Katz
lék af miklum myndugleik og
snurðulausri tækni.
EFTIR hlé voru Chopintón-
leikar, aðallega sónata í b-moll
óp. 35, verk, sem sjaldan heyrist,
en er slungið töfratónum meistar
ans, fagurt verk og rishátt. Katz
hefur til að bera mikla kunnáttu
á hljómborðið, og hristi Chopin
fyrirhafnarlítið fram úr erminni,
en maður varð minna var við temp
erament suðrænna landa en ætla
mátti þegar blóðheitur Rúmeni
leikur en ekki norrænn maður
með hálfvolgt í æðum.
LISTAMANNINUM var á-
gætlega tekið og lék hann að
lokum aukalag. Víst eru píanó-
tónleikarnir góðir, og nú hafa
þeir verið nokkrir í röð. Gaman
væri ef næstu hljómleikar hins
ágæta Tónlistarfélags —- eða
annarra aðila — yrðu á annað
hljófæri, t. d. fiðlustrengi eða
raddbönd. En kannske er ekki
margra kosta völ. —Ac.
Edinborgarhátíðin í ár hefst
18. ágúst - stendur til 7. sept.
Þar er tækifæri til alS kynnast mörgn kinu bezta í
tónlist, leiklist, listdansi og málaralist
Ein kunnasta listhátíð, sem haldin er um hinn menntaða
heim, Edinborgarhátíðin, hefst að þessu sinni 18. ágúst næst-
komandi og mun standa til 7. september. Eins og áður gefst
þar tækifæri til að kynnast mörgu hinu bezta, sem heimurinn
hefir upp á að bióða í f.iórum listgreinum, tónlist, leiklist, list-
dansi og málaralist.
Af hljómsveitum, er þarna koma
fram, má nefna Hallé hljómsveit-
ina, Concertgebouw frá Amster-
dam, sinfóníuhljómsveitina í Mun-
chen og Philharmóníu hljómsveit-
ina í London, en einnig verður
mikið um kammertónleika, hljóm-
leika einstakra sólista og kvart-
etta. Þá mun óperuflutningur skipa
veglegan sess á hátíðinni auk þess
sem nokkrir heimsfrægir ballett-
flokkar munu sýna.
Leiksýningaskrá hátíðarinnar
telur mörg höfuðverk leikbók-
menntanna, „La ltépétition“ eftir
Anouilh, „Nekrassov" eftir Sartre,
„Man of Distinction" eftir Hasen-
clever, „The hidden King“ eftir
Griffin o. fl. Þess utan eru alls
konar skrautsýningar.
Orlof h.f. sér um ferðir.
j Ferðaskrifstofan Orlof mun sjá
um ferðir héðan á hátíðina, gist-
ingu og aðgöngumiða að hljóm-
leikum eða leiksýningum, en ráð-
j legast mun að ákveða sem allra
fyrst um þátttöku, þar sem engar
líkur eru til þess, að hægt sé að
útvega gistingu á hótelum í allt að
70 km. hring um Edinborg eftir
| að kemur fram í apríl. Ennfremur
seljast venjulega aílir a jgéngu-
miðar að hljómleikum og íeiksýn-
ingum upp allt að 6 mánu'öúm fyr
ir hátíðina.
•n*«. R r j ch
Margt kadsgöngu-
Samúðarverkfall ! fólk í Skógaskóla
hafnarverkamanna
| Með skurðgröfunum hafa stórvirkl verið unnin
Gisli Ólsfsson
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Landsgangan hófst hér sunnu-
daginn 10. marz og hafa 516
manns þegar gengið hina tilskildu
vegalengd, fjóra kílómetra. Elztur
þátttakenda er Gísli Ólafsson,
skáld, sjötíu og tveggja ára. Mynd
in er af Gísla í Landsgöngunni.
— GÓ.
Lundúnum, 21. marz. Allar horfur
eru á, að hafnarverkamenn í sum
um borgum Bretlands að minnsta
kosti muni leggja niður vinnu
í samúðarskyni við verkfall skipa
smiða. í Southampton einni mestu
hafnarborg Bretlands hafði fag
samband hafnarverkamana tekið
málið til athugunar og talið er að
verkfall muni skella á innan fárra
klukkustunda. Ekkert þokar í sam
komulagsátt í deilu skipasmiða og
verkamálaráðherrann sagði á þingi
í dag, að engar horfur væru enn
á því að verkfalli vélvirkja yrði
hafnað, en það hefst í einstökum
iðngreinum á morgun.
HVOLSVELLI í gær; — Allir nem
endur Skógaskóla, nema einn, sem.
er fótbrotinn, hafa lokið lands-
göngu á skíðum, svo og allir kenn-
arar og fleiri, alls 118 manns á
staðnum. Snjór er þó enginn
heima við Skógaskóla, og hefir ver
ið svo lengi. Var fólkinu ekið aust
ur fyrir Jökulsá, þar sem finna
mátti nógu langar fannir til að
þreyta á gönguna.
Fyrir skömmu dvaldist í Skóga-
skóla Kristmann Guðmundsson, rit
höfundur og efndi hann til bók-
menntakynningar með nemendum.
Áður hafði Axel Andrésson dvalizt
þar þrjár vikur og kennt knatt-
spyrnu og svonefnt Axels-kerfi. í-
þróttaáhugi er mikill meðal nem-
enda skólans. — PE.