Tíminn - 02.04.1957, Síða 7

Tíminn - 02.04.1957, Síða 7
‘TÍMINN, þriðjudaginn 2. aprfl 1957. IZ 30 ár liðin síðan konur hrundu af stað umferðakennslu í Frú HalIJéra Bjarnadóttir rif jar npp sögu, sem nú er mörgum gleymd, og hvetur til aS „litlu garSyrkjukonurn= aru hefji starf að nýju, við breyttar og hættar aðstæður Á þessu ári eru það rétt 30 ár síðan fyrstu konurnar voru sendar út um landið til þess að leiðbeina almenningi í sveitum og kauptúnum í garðyrkju. Það er nógu gam- an að rifja upp svolítið um ferðaEag þessara stúlkna þau 13 ár, sem þær störfuðu. Annar Land'futidur kvenna, sem haldinn var á Akureyri 8.—14. júní 1926, kaus nefnd tii þess að hrinda málinu í framkvæmd, en þarna voru samankomnir kosnir fulltrúar af öllu iandinu. Þessar konur hlutu kosningu: Sigurborg Kristjánsdóttir, Kristín Guðmundsdótt:r, Margrót Sölva- dóttir, Halldóra Bjarnadóttir og Guðrún Þ. Björnsdóttir. (Nefndar- störfin lentu, að vonum, mest á Reykjavíkurkonunum, Kristínu og Halldóru). Áskorurt til Búnaðarfélagsins Landsfundurinn skoraði á Bún- aðarfélag íslands að styrkja þetta mál. Nenfdin leitaði líka þegar til Búnaðarfélags;ns, og fékk vorið 1927 lofun L'rir 1000 kr. styrk hvert árið á fjárhagstímabilinu. — (Tveir þriðju hlutar kostnaðar áttu að greiðast annars staðar frá). — Búnaðarsamböndin, ungmenna- samböndin og kvenfélögin lögðu fram fé á móti loforði B. í. Umferðaleiðbeiningar í garð- yrkju fyrir al-->enning voru nvtt fyrirbrigði á þessum árum og þurfti því góoan undirbúning og margar athuganir. Reyndust þau hjón í Gróðarstöð Reykjavíkur, Einar Helgason og Kristín Guðmundsdóttir, mestu hjálparhellurnar, enda höfðu þau árum saman unnið fyrir garðyrkj- una af mikilli elju, og voru allra manna kunnugust þeim málum um land allt. Tvær spurningar hlutu að koma fram um málið: 1. Var þessi tiiraun tímabær? 2. Voru nokkrar konur til, sem ráðnar yrðu til starfsins og vildu taka það að sér? 1. Fulltrúafundurinn á Akur- eyri sýni það ljóslega, að 'þörf var á hjálp og leiðbeiningum, svo ein drægnar óskir komu þar fram. 2. Undanfarin ár höfðu fjölmarg ar stúlkur fengið haldgóða fræðslu í garðyrkju, sumar erlendis, en flestar í gróðrarstöðvunum í Rvík og Akureyri, sem þau stjórnuðu Einar Helgason og Guðrún Þ. Björnsdóttir. — Aðrar hofðu margra ára reynslu á að byggja. (í Garðyrkjustöðinni á Akuréyri jókst garðyrkjukennslan þannig. eftir ósk Sambands norðlenzkra kvenna 1917, að 3 nemendur fengu þar kennslu vorið, sumarið og haustið (1. maí til 1. okt.). Hótst ! sú kennsla vorið 1917, svo þegar farið var að senda garðyrkjukon-l urnar út, voru þegar margar stúlk- ur tilbúnar til starfa). | l Sfarfið hefst | Þegar farið var að leita fyrir sér i um kennara, reyndist það þegar í j byrjun hægt að fá tvær góðari stúlkur, og var þeim falið að faral um Suðurnes og Borgarfjörð, því | ' hægast var að komast þar ferðaj | sinna. — Þær voru ráðnar frá 1. j I maí til 1. okt. og kaupið var 500 í j kr. fyrir allan tímann. Þær höfðu I allt frítt, þar sem þær unnu, fríar I ferðir og hálfsmánaðar súmarfrí. | 1 (Þeim var gert að skyldu að taka j I þátt í viku matjurtanámskeiði, sem j j Kvenréttindafélag íslands efndi til > í Reykjavík fyrst í sept. 1927). | Kennurunum var að sjálfsögðu | fengið erindisbréf og þeim var fal- i ið að halda dagbók eða vinnubók, j sem þær áttu að leggja fram. Starfið byrjaði 1. maí 1927. Nefndin bjó garðyrkjukonurnar j út sem bezt hún gat, með plöntur, j fræ og verkfæri. Svæðið, sem garðyrkjukonurnar | höfðu til yfirferðar var að sjálf-j sögðu of stórt, heil sýsla, En þetta | var tilrauna- og vakningarstarf. Og allt blessaðist vel. Halidóra Bjarnadóttir Það fór svo, að garðyrkjukon- unum fjölgaði ár frá ári, og árið 1934 voru þær 8 konurnar, sem fóru milli sýslnanna til leiðbein- inga. En 1939 var síðasta starfsár- ið. Umferðakennslan, sem veitt var þessi 13 ár, reyndist merkilegt fyr- irbrigði: Leiðbeiningar um garða- val, bæði matjurta- og skrúðgarða, lagfæring á gömlum görðum, hjálp með hirðingu garða, útvegun á plöntum og fræi, meðferð inni- blóma og síðast en ekki sízt, leið- beiningar um matreiðslu matjurta, sem þær önnuðust „litlu garðyrkju konurnar“ okkar. — Þær fóru fjór ar ferðir um svæðið, og seinasta umferðin var sérstaklega ætluð matreiðslunni og að búa garðana undir veturinn. Þessi umferðakennsla hefði aldr ei átt að leggjast niður. Það voru vel menntaðar og góð- ar stúlkur, sem völdust til starfs- ins, og þær höfðu hin beztu áhrif, ekki einungis vegna garðyrkjunn- ar, heldur einnig vegna þeirrar á- nægju, sem konurnar höfðu af heimsókn þeirra. Og áhrif höfðu þær einnig vegna umgegni inni og útivið. Góðar fillögur Það fór svo, að öll héruð lands- ins nutu kennslunnar meira og minna. Farartæki hins nýja tíma Flugvélin og snjóbíllinn eru farartæki hins nýja tima á íslandi. Þegar snjórinn lokar venjulegum samgöngu- leiðum, rjúfa þessi farartæki einangrunina. Myndin er tekin á flugvellinum á Akureyri fyrir nokkru. (Sn. Sn.). Garðyrkjukennslan hjá Ræktun- arfélagi Norðurlands á Akureyri hefði heldur aldrei átt að leggjast niður. — Það hefir ekki tekizt að endurvekja hana, þó það hafi ver- :ð reynt hvað eftir annað. Garðyrkjukonurnar komu oft til 'krafs og ráðagerða á fundi hjá nefndinni í Reykjavík og lögðu fram tillögur sínar. Það væri freist andi að birta eitthvað af skýrslun- um, sem garðyrkjukonurnar sendu íefndinni, vær voru bæði skemmti ’egar og fróðlegar, en það yrði of ’angt mál, enda birti ársritið Hlín margt um starfið á þessum árum. — Tillögur garðyrkjukvennanna voru um margt mjög athyglisverð- ar. Þær lögðu til, að nefnd væri Rarfandi í hverjum hreppi, sem byggi allt undir komu kennarans yg skipulegði ferðir hans. Að í hverjum hreppi væri miðstöð, þar sem kennarinn hefði heimili og bjónustu, og að þar væri vermireit ur og garður, sem kennarinn gæti miðlað úr og safnað þar að sér beim, sem sérstaklega vildu fá fræðslu. Kostnaðurinn við starf garðyrkju kvennanna reyndist smám saman vel viðráðanlegur: Búnaðarfélagið hækkaði sinn styrk allt upp í 3000 kr. Ungmennafélög og kvenfélög lögðu fram sinn skerf og búnaðar- samböndin voru hin liprustu í sam vinnunni og lögðu fram ríflega styrki. Kvenfélagasamband íslands styrkti ferðir stúlknanna að hálfu leyti eftir að það var stofnað 1930, og tók smám saman að sér alla um sjón starfsins. Kaup kennaranna smáhækkaði og umferðasvæðið var minnkað. Kaupið var lágt á þessum árum, þó stunduðu sumar garðyrkjukon- urnar starfið árum saman og létu vel yfir. Starf, sem þarf að hef ja á ný En hvað kom þá til að þetta góða og þarfa leiðbeiningarstarf féll niður? Ein ástæðan var eflaust sú, að um þetta leyti var Garðyrkjuskóli ríkisins stofnaður á Reykjum í Ölfusi (1939). — Menn bjuggust við, að ekki þyrfti að hafa um- ferðakennslu, þegar skólinn væri kominn á fót, hann sæi um allt. Skólinn hefir á þessum árum út- skrifað 102 nemendur. Reynslan hefir orðið sú, að þessir nemendur hafa ekki orðið umferðakennarar. Þeir hafa flestir lent í gróðurhús- um, enda er þar atvinna árið um | kring. Kvenfélagasamband íslands, sem samkvæmt lögum og venju hefir séð um umferðakennslu í verkleg- um fræðum fyrir konur þessi árin, hætti að styrkja garðyrkjuna, en hefir nær eingöngu styrkt sauma- námskeið. — Sem betur fer hefir Sambandið nú tekið garðyrkjuna upp að nýju, eins og til var ætlazt í upphafi vegna, og styrkir hana nú að jöfnu við aðra leiðbeiningar- starfsemi. Starf norðlenzkra kvenna Eftir að Kvenfélagasamband ís- lands hætti að hafa garðyrkjukon- ur í sinni þjónustu, réð Samband norðlenzkra kvenna til sín um- ferðakennara, sem veitti almenn- ingi fræðslu í garðyrkju og mat- reiðslu um fimm ára bil (1940— 45). i Það var Rannveig H. Líndal. Ferðaðist hún á þessum fimm ár- um um allar sýslur norðlenzka sambandsins. — Ekki þarf að efa það, að umferðakennsla þessarar ágætu konu hefir haft holl og góð áhrif. Búnaðarfélag íslands hefir einn garðyrkjuráðunaut í sinni þjón- ustu. En það er ekki nóg að hafa einn mann fyrir allt landið til garðyrkjuleiðbeininga. Þó hann sé allur af vilja gerður, er honum um megn að bæta úr þörfinni. Sumir álíta að bækur, blöð og útvarp geri sama gagn og umferða kennsla. En það kemur ekki að sömu notum. Ekkert jafnast á við hið talaða orð, persónulegar viðræð ur og áhrif og verklegar leiðbein- ingar. , Nei, við þurfum að fá umferða- jkennslu í garðyrkju í sem flest héruð. Umferðakennsla í hinum marg- víslegustu verklegum fræðum tíðk- ast hjá öllum menningarþjóðum, (Framhald á 10. síðu). Á víðavangi Öfgamenn og afmælisdagar Landsmenn hafa veitt athygli dálítið sérkennilegu afmælis- haldi í tveimur landsmálablöð- um. Morgunblaðið hélt upp á 28. marz með sínum hætti. Þá var ár liðið síðan Alþingi gerði álykt- un um utanríkis- og varnarmál. Sú ályktun gekk á móti vilja Sjálf stæðismanna, sem þá voru búnir að grafa í jörð yfirlýsingar sínar frá 1949. Þetta mótlæti verður Mbl. tilefni I afmælisgrein, þar sem andstæðingar íhaldsins eru bornir þungum sökum. Tveimur dögum seinna áttu kommúnistar sinn afmælisdag og héldu upp á hann í Þjóðviljanum. llinn 30. marz var óheilladagur í sögu þjóð arinnar, sagði Þjóðviljinn. Þá gekk fsland í Atlantshafsbanda- lagið. Það var mjög á móti vilja Moskvumanna, og þess vegna eru þeir að burðast með þetta afmæli í blaði sínu á hverju ári. Það er lærdómsríkt, að það skuli vera Morgunblaðsmenn og kommúnist ar, sem standa í þessu afmælis- haldi en aðrir landsmenn ekki. — Þar hittast öfgarnar og ofsinn. Afmælisgreinar Morgunblaðsins og Þjóðviljans sýna, hversu bar- dagaaðferðirnar eru stundum lík- ar. Þegar komið er út á svið póli- tísks ofstækis eru fleiri bræður í andanum en almennt er haldið. Hvað ætluðu þeir að gera? 1 í greinargerð framkvæmdastj. Landsbanka íslands, sem birt var í s. 1. viku, var m.a. svo til orða tekið, að „óbreytt þróun“, — og þá er verið að ræða uin gjald- eyrisaðstöðuna 1955—’56, „hlaut brátt að leiða til vandræða í gjalð eyrismálum, ef ekki kæmu til stórauknar tekjur í erlendum gjaldeyri ,eða verulegar lántökur til ýmissa stórframkvæmda ..." Þannig lýsir Landsbankinn m. a. horfunum um það leyti, sem MbL sagði að stjórnin tæki við „blónt- legu búi'*. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir í allan vetur hefur Mbl. aldrei fengizt til að segja landsfólkinu, hvernig Sjálfstæðis menn hafi ætlað að snúást við vandanum. Það vekur líka at- hygli, að skýrsla Landsbanka- stjórnar, sem var flutt á föstu- * dag, og send blöðunum samdæg- urs ,kom ekki í Mbl. á laugardag inn, og enn ekki á sunnudaginn. Er engu líkara en lýsing banka- stjórnarinnar á „búinu b!ómJega“ hafi farið í taugarnar á ritstjórn Mbl. og kannske ekki að ástæðu- lausu. Hér hefði orðið fram- leiðslustöðvun um ófyrirsjáanleg- an tíma og önnur vandræði, ef ekki hefði einmitt verið breytt um stefnu við stjórnarskiptin. „Stefnan er óbreytt" En þótt hvorki Mbl. né Vísir hafi treyst sér til að segja lands fólkinu, hver sé stefna ihaldsins í efnahagsmálum, mannaði í- haldsblaðið á Akureyri sig upp í það hér á dögunum og tilkynnti: „Stefnan er óbreytt“. Það hefði þýtt að bátaflotinn hefði legið við landfestar a.m.k. fram í febr., verðbólgan hefði haldið áfram að aukast liindrunarlaust í allt haust, stórátök mundu standa yfir í milli verkalýðs og atvinnu- rekenda og framleiðslukerfið væri lamað. f gildi mundu vera hin herfilegustu gjaldeyrishöft á öilum sviðum, þótt „frelsi“ héti í Mbl., eins og var á s. 1. vetri. f húsnæðis- og fjárfestingarmál- um mundi haldið áfram að reisa stórhýsi á borð við Morgunblaðs- höll og veita fésterkum ein- staklingum bróðurpartinn af opin beru lánsfé til þess að þeir gætu eignast fleiri íbúðir, meðan fá- tækir einstaklingar stæðu uppi allslausir með hálfgerð hús. Stefnan mundi hafa verið ó- breytt, segir þetta íhaldsblað, og gloprar úr sér því, sem Mbl. og Vísir hafa ekki þorað að nefna á nafn. ,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.