Tíminn - 03.04.1957, Side 3
3
TÍMINN, miðvikudaginn 3. apríl 1957.
' byggingu sóttvarnarstöðvar.
I Ennfremur beinir Búnaðarþing
' því til landbúnaðarráðherra að
leita eftir fræðilegri umsögn yfir-
i dýralæknis og Dýralæknafélags ís-
; lands varðandi smithættu af inn-
flutningi búfjár og búfjársæðis, og
óskar jafnframt að landbúnaðar-
; ráðuneytið afli upplýsinga um ráð-
stafanir annarra þjóða, þegar um
: innflutning búfjár er að ræða.
Áiitsgerðir þessar leggist fyrir
j næsta Búnaðarþing".
Landmælingar
Ioftmyndum
eftir
j Eftirfarandi ályktun um land-
mælingar var samþykkt frá fjár-
j hagsnefnd. Framsögumaður var
IGuðmundur Jónsson:
Þessi mynd var tekin á fundi Búnaðarþings. Á myndinni sjást nokkrir fulltrúar, talið frá vinstri: Jón Gisla-j „Búnaðarþing ályktar að fela
son Norðurhjáleigu, Helgi Kristjánsson, Leirhöfn, Benedikt Lindal, Efra Núpi, Ásgeir Bjarnason, Ásgarði,1 stjórn BÚnaðarfélagS Islands að
Ásgeir L. Jónsson ráðunautur og Ragnar Ásgeirsson rááunautur. (Ljósmynd.: Sveinn Sæmundsson). i San6ast fyrir því, að þeii aðilar,
1 sem unnið hafa að ljosmyndun ur
i lofti undanfarin ár, hafi framvegis
samvinnu um það og hagi svo verk
inu, að unnt verði einnig að nota
Nokkrar ályktanir samþykktar á
síSmsím fundum Eánaðarþings
Átímgiin á framleiðskaSsíöSu — SpjöII vegna vatns-
virkjana — Innflutningur landbónaðarvélae — Hrein-
ræktun holdanauta — Innfktningur sæðis úr skozkum
kynbótahrúium — landinælingar — Afurðasölumál
myndirnar við mælingu túna, skipu
lags ræklunarframkvæmda og land
skipta“.
Verð landbúna'Sarvara
Loks var samþykkt eftirfarandi
tillaga frá Hafsteini Péturssyni um
afurðasölumál og uppbætur á út-
fluttar landbúnaðarvörur:
„Þar sem það er undirstaða
undir búrekstri bænda og fram-
tíð landbúnaðarins að bændur fál
verðlagsgrundvallar verð fyrir
framleiðsluvörur sínar, þakkar
Búnaðarþing fyrrverandi og nú-
verandi ríkisstjórn, að þær hafa
lögfest að greiða skuli litflutn-
ingsuppbætur á útfluttar landbún
aðarvörur. Jafnframt beinir Bún-
aðarþing þeirri ósk til ríkisstjórn
arinnar, að hún geri í samráði við
Framleiðsluráð landbúnaðarins
þær ráðstafanir, sem nauðsynleg-
ar kunna að reynast til að tryggja
bændum áðurgreint verð fyrir
afurðir sínar“.
90 ára aldursmunur á elzta og yngsta
þátttakanda í skíðagöngunni í Dalvík
Dalvík í gær. — Um síðustu
helgi, bæði á laugardag og sunnu
dag, héldu Dalvíkingar lands-
göngunni á skíðunt áfram af
kappi, enda var veður gott og
snjór nægur enn. Hafa nú alls
283 Dalvíkingar lokið göngunni.
Elzti þátttakandinn, sem lauk
göngunni á sunnudaginn, er 92
ára, og verður 93 ára í júní í súm
ar. Er það Sigtryggur Markússon.
yngsti þátttakandinn hér er 2 ára
drengur, sem verður 3 ára í júní.
lleitir hann Indriði Helgason.
Eru því rétt 90 ára á milli elzta
og yngsta þátttakandans.
Þá hafa fjögur þriggja ára
börn lokið göngunni hér.
Búnaðarþing afgreiddi all-
mörg mál þrjá síðustu dag-
ana, sem það starfaði. Tím-
inn kom ekki út á þriðjudag-
inn næsta dag eftir að þing-
inu sleit, og hefir ekki verið
skýrt frá þeim máium, sem
afgreidd voru á síðustu fund-
um þingsins. Verða þau mál j
nú rakin og birtar þær álykt-j
anir, sem samþykktar voru í
þingiokin:
Framlei<SsIua<Sstafta,
verzlunarmöguleikar
og samgöngur
Tillaga til þingsályktunar frá
Gunnari Guðbjartssyni, Sigurði
Snorrasyni og Einari Ólafssyni um '
athugun á framleiðsluaðstöðu,
verzlunarmöguleikum, samgöngu-
aðstöðu o. fl. á þeim svæðum, sem
dregizt hafa aftur úr um búnað og
framkvæmdir, var samþykkt: i
„Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands í sam
vinnu við Landnám ríkisins, sam-
hliða þeim aðgerðum, sem gert er
ráð fyrir í frumvarpi því, er ligg-
ur fyrir Alþingi um „landnám,
ræktun og byggingar í sveitum“ í
VI. kafla 38.—41. gr., — ef að lög-
um verður, — að taka til athugun-
ar afkomumöguleika þeirra héraða
og sveita, sem dregizt hafa aftur
úr um búnað og framkvæmdir að
undanförnu, einkum með tilliti til
hvernig hægt er að bæta samgöng-;
ur þeirra, efla markaðsaðstöðu
þeirra og samstöðu í viðskiptamál- [
um og hverjum vinnslustöðvum
fyrir búsafurðir sé hagkvæmt og
nauðsynlegt að koma upp o. fl. ;
Niðurstöður rannsóknar þessar-
ar ásamt tillögum til úrbóta séu
lagðar fyrir næsta Búnaðarþing
eða svo fljótt sem unnt er“. |
Spjöll vegna
vatnsvirkjana
Þá var samþykkt eftirfarandi til-
laga varðandi spjöll á landi vegna
vatnsvirkjana. Framsögumaður
hennar var Baldur Baldvinsson:
„Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands að
beita sér fyrir því við Alþingi
og ríkisstjórn, að ekki verði ráð-
izt í nýjar eða auknar vatnsvirkj-
anir, sem leiða af sér landeyð-
ingu, nema öruggt sé, að einstak-
ir sveitarhlutar eða heilar sveit-
ir verði ekki eyðilagðar.
Telur Búnaðarþing ekki viðun-
andi, að verðmikil lönd og góð-
jarðir verði látnar hverfa í vatn
fyrr en allar aðrar leiðir eru lok-
aðar til úrlausnar í rafmagnsmál-
um á hverjum stað og á meðan
flest stórfljót landsins renna
óbeizluð til sjávar".
í greinargerð segir svo:
„í sambandi við virkjanir fall-
vatna hér á landi, hafa komið í
ljós nú í seinni tíð nokkur vand-
kvæði. Reynslan hefir sýnt, að ýms
orkuver hafa ekki getað veitt nægi-
legt rafmagn til þess að sinna þeim
kröfum, sem gerðar hafa verið um
aukningu. Fyrir því hafa verið
framkvæmdar ýmsar ráðstafanir til
orkuaukningar, eins og t. d. vatns-
jöfnun, sem fengin er með því að
hækka yfirborð vatna eða áa svo
mikið, að kostað hefir eyðingu nyt-
samra jarða eða sveitarhluta.
Fyrir þessum aðgerðum standa
sveitirnar berskjaldaðar, ef fast er
sótt á af þeim, sem nú hafa völd-
in í þessum efnum, en það virðast
vera þeir sérfræðingar, sem vinna
í þjónustu rafveitanna.
Það er alveg vafalaust, að sér-
fræðingar í rafmagnsmálum vilja
beita orku sinni til þess að raf-
magnsframkvæmdir ríkisins verði
sem öruggastar. Að því vilja líka
all:r styðja. Hitt er svo annað mál,
að hægt er að fórna of miklu, þó
að málefni séu góð.
Enn erum við ekki komnir nema
lítinn spöl af langri leið í virkjun-
armálum. Enn má gera ráð fyrir,
að ætia7t verði til mikilía fórna.
Undanfarin ár hefir mjög verið
rætt um, að hækka þyrfti yfirborð
Mývatns, til örvggis Laxárvirkjun.
Við það mundi, að miklu leyti eyði-
leggjast ein byggilegasta, sérkenni-
legasta og fegursta fjallabyggð
þessa lands. Nú heyrist um það
rætt, að nokkrar vild^sjarðir
Skorradals bíði máske svipaðra ör-
laga. Slík mistök mega aldrei
henda. Það væri allt of stór fórn
á altari hinna vinsælu og ágætu
rafmagnsframkvæmda.
Ályktun þessi er fram borin til
þess að gera tilraun til að koma í
veg fyrir óhappaverk. sem yrðu til
harms komandi kvnslóðum og flest
um þeírra, er nú lifa og ekki hafa
enn slitið tengslin við gróandi
jörð“.
Flutningsmenn till'jgunnar voru
Baldur Baldvinsson, Sigmundur
Sigurðsson. Sigurður Snorrason og
Jóhannes Davíðsson.
InnOutningur
IandbiínaSarvéla
Samþykkt var eftirfarandi tillaga
um innflutning landbúnaðarvéla.
Framsögumaður allsherjarnefndar
að henni var Jón Gíslason:
„Búnaðarþing skorar á innflutn
ingsyfirvöldin að veita nauðsyn-
leg leyfi fyrir landbúnaðarvélum
og tækjum þeim tilheyrandi.
Jafnfranit skorar þingið á Lands-
bankann að veita gjaldeyri fyrir
þeim landbúnaðarvélum og verk-
færum, sem eru á frílista“.
•DIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllllllllilliiiIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllllllllllllll
Kostakjör (
E Veljið að eigin vild úr neðantöldum úrvals skemmtibókum. É
E Afsláttur fer eftir því hversu pöntun er há, eða: 200 kr. 20% H
II afsl. 300 kr. 25% afsl. 4—500 krónur 30% afsláttur. a
| Útlaginn e. Pearl Buek, 246 bls. ób. 24,00, ib. 34,00
H Ættjarðarvinurinn, e. P. Buck, 385 bls. ób. kr. 37.00.
j§ Lögreglustjóri Napóleons, e. Stefan Zweig, 184 bls. ób. kr. 32,00
| ib. 50,00 og 75,00 skb.
j| Borg örlaganna, e. Bromfield, 202 bls. ób. kr. 23,00
= Nótt í Bonibay, e. L. Bromfield, 390 bls., ób. kr. 36.00.
§§ Dalur örlaganna, e. M. Davenport, 920 bls. ób. kr. 88,00, ib.
| kr. 115,00.
E Ævintýri í ókunnu Iandi, 202 bls. ib. 28,00.
§ Njósnarinn Císeró, 144 bls. ib. 38,00
§j Á valdi Rómverja, e. R. Fischer, 138 bls. ib. 25,00.
= Leyndarmál Grantleys, e. A. Rovland, 252 bls., ób. 25,00.
1 Á valdi örlaganna, e. A. Rovland, 132 bls. ób. kr. 10,00.
§§ UnaðshöII, e. B. Lancken, 130 bls. ób. 12,00.
§ Dularfulla stúlkan, e. Rowland, 162 bls. ób. 14,00.
= Örlaganóttin, e. J. E. Priestley, 208 bls. ób. 14.00.
§§ Við sólarlag, e. A. Maurois, 130 bls., ób. kr. 12,00.
1 Smyglararnir frá Singapore, e. M. Toft, 130 bls. ób. 12,00.
= Ástin sigrar allt, e. H Greville, 226 bls. ób. 15,00.
S Kafbátastöð N. Q. e. D. Dale, 140 bls. kr. 13,00.
= Hringur drottuingarinnar af Saba, e. R. Haggard, 330 bls. 20,00
§§ Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið með X við þær |
1 bækur sem þér viljið fá og setjið — strik undir bundið |
M eða óbundið.
S •imMiiiiiiiiiMiumiiiimiiiiiiniiiiimimiimiiuiniiimiminiiiiiiinnuiiiniiiiiiiiiiiiiiiini,5
Undirrit.... óskar að fá þær bækur, sem merkt er við
§j í auglýsingu þessari sendar gegn póstkröfu.
Hreinræktun holdanauta
i
! Um hreinræktun holdanauta var
samþykkt eftirfarandi tillaga frá
búfjárræktarnefnd. Framsögumað-
ur var Sigmundur Sigurðsson:
„Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands að
, hlutast til um, að haíin verði nú
þegar skipuleg ræktun á sunn-
lenzka holdanautastofninum, sam-
kvæmt ákvæðum búfjárræktarlag-
anna og telur eðlilegt, að fé það,
sem veitt er á fjárlögum 1957 (16.
gr„ 37. liður) til hreinræktar holda
I nauta, sé varið til þessarar starf-
! semi.
| Jafnframt felur Búnaðarþing
stjórn Búnaðarfélagsins að vinna
að því, að Tilraunaráð búfjárrækt-
ar hefji samanburðartilraunir á ís-
lenzkum nautgripum og blending-
um af Gallowaykyni, til kjötfram-
leiðslu og bendir á Laugardæli sem
hentugan stað til þess“.
Innílutningur sæíis
úr skozkum hrútum
Eftirfarandi ályktun um innflutn
ing sæðis úr skozkum hrútum og
innflutning holdanauta var sam-
þykkt frá búfjárræktarnefnd og
allsherjarnefnd. Framsögumaður
var Sigmundur Sigurðsson:
„Búnaðarþing lítur svo á, að
ekki sé unnt að taka neinar ákvarð-
anir um innflutning búfjár eða
sæðis úr erlendum búfjártegund-
um, meðan ekki er fullnægt ákvæð
um laga nr. 15 frá 8. marz 1948 um
........
Nafn
Heimili
| |
— Ii MMiiiiiiiiMninnimnniiiiiiiiiiiiiiiiiinnniiiiiiimimiiimiimiiiniiii,miin,i,,iiini,,1,1,11,|,||||,,||,|,||,| ~
Ódýra búksalan, Box 196, Reykjavík.
H>aimUIMIMMIIIMIMMlMIIIIMIIIIIMIIIIMMTTTTTmilllMIIMlMIMIIIIIIIIIMMIIIIMIUIimilllUinillllllMIIIIIIIIIIIuÍ
ÚÐUGLER
E
: p
3ja, 4ra, 5 og 6 mm þykktir fyrirliggjandi
EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F.
miMMMIIIMIIMIillMIMIIMMIIlllllllMIMMIIIIIIIIIIMIlIIIIIIMMIllllllllllIIUlUllIIIIIMUlIUIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMlllllllMIIIIIIIUmUllUMIIIIIIMIIIMIIIIIMmiMIMKlB