Tíminn - 18.04.1957, Síða 12
VeSria I dag:
Suðvestan kaldi og stundum
stinningskaldi og éljaveður.
Þ&r ták tvo brezka togara í landhelgi
ét aí Hvitmgum í íyrrakvöld
TalitS a$ fíeiri togarar hafi verið þarna í land-
helgi, en sloppift. Rétíarhöld á Seyðisfirtfi í
allan gærdag.
Frá fréttaritara Tímans á Sayðisfirði í gaer.
Varðskipið Þór kom hingað með tvo brezka togara seint í
gærkveldi, og hafði hann tekið þá að veiðum í landhelgi út
af Hvítingum, sem eru út af Hvalsnesi austan Hornafjarðar.
Réttarhöld hófust í morgun og stóðu í allan dag, en dómur
xnun væntanlegur á morgun.
Þór kom að togurunum þarna í
dumbungsveðri og reyndust þeir
vera um eina sjómílu innan fisk-!,
veiðitakmarkanna. Munu fleiri
Þrezkir togarar hafa verið þarna
að veiðum og er talið, að Þór eða
flugvél landheleisgæzlunnar, sem
var þarna einnig á fiugi til eftir-
lits fram undir miðnætti, hafi náð
einkennistölum og nöfnum þeirra
skipa.
Togararnir, sem Þór tók, heita
■Willard frá Grímsby og Kingstone
Andaluside frá Huil. Þeir voru
með lítinn afla og nýbyrjaðir veið-
ar. Enginn vafi mun leika á um
sekt togaranna enda viðurkennt
fyrir rétti í dag, að þeir hafi verið
að veiðum í landhelgi.
Víðkunnur danskur
vísindamaður láiinn
Kaupmannahöfn í gær. — Stofn
andi og forstöðumaður dönsku
sermistofnunarinnar, dr. med.
Thorvald Madsen, lézt í gærkveldi
87 ára að aldri. Thorvald Madsen
var heimsþekktur fyrir vísinda
störf sín í bakteríufræðum og for
Þrennir hljómleikar
St. Ólafskórsins
Dr. Olaf C. Christiansen, stjórn
andi hins heimskunna St. Ólafs-
kórs, sem halda mun þrjá hljóm-
leika hér næstu helgi, er ekki að-
eins frábær tónlistarmaður, heldur
er hann einnig ágætur málari og
sker í tré af miklum hagleik.
Enda þótt hann liafi helgað líf
sitt tónlistinni og lagt drjúgan
skerf af mörkum til kórtónlistar
í Bandaríkjunum, stundar hann
þessar listgreinar í tómstundum
sínum sér til hvíldar og hressing
ar. Á heimili sínu í Northfield,
Þrír kórfélagar í St. Ólafs-kórnum, frá vinstri Janet Bye, Charlotte
howe og Jerome Narveson, öll frá Northfield í Minnesota.
■Don-
ystumaður á sviði alþjóðlegs sam
starfs í baráttunni við sjúkdóma
hin síðus-u ár og áratugi. Aðils
Fligskálar heimsækja Reyk javíkur-
flugvöll og veSurstofcna
Flugmálastióri tók á móti [xeim' laiÖbeiudi
fjcim og bauí í flugíer^
Síðastliðinn sunnudag heimsóttu rúmlega 20 flugskátar
Reykjavíkurílugvöll í boði flugmálastjóra, Agnars Kofoed-
Hansen.
J Minnesota, hefur hann komið sér
| upp fullkominni virinustofu, og
: þar unir hann sér löngum við
; þessa iðju sína að loknu erfiðu
dagsverki við kóræfingar.
Híngað til lands kemur dr.
Christiansen þó eingöngu sem
Of VÓV-
Fyrst fór flugmálastjóri með
flugskátahópinn upp í stjórnturn-
inn á Reykjavíkurflugvelli, þar
eem Valdimar Ólafsson, vaktstjóri,
skýrði fyrir drengjunum starfsemi
flugumferðastjóranna þar, jafnt í
innanlandsfluginu, millilandaflug-
inu sem alþjóðaþjónustunni.
Eftir hálftíma dvöl í stjórnturn-
inum fór flugmálastjóri með flug-
skátana í veðurstofuna, þar sem
Jón Eyþórsson, yfirveðurfræðingur
fræddi drengina, sem flestir eru
á aldrinum 12—-16 ára, um starf-
eemi veðurstofunnar, veðurathug-
anir, veðurkortagerð, flugspár o.
fl. Var fræðsluerindi Jóns hið
skemmtilegasta.
Loks flaug Agnar Kofoed-Han-
sen fíugmálastjóri, með allan hóp-
inn í 7 flugferðum í flugvél flug-
málastjórnarinnar, en hún tekur 3
farþega auk ílugmanna.
Var flogið í nágrenni B.eykja-
víkur og fengu drengirnir almenn-
ar leiðbeiningar um mælitæki í
fiugvélum og jafnframt fengu þeir
sem frammí sátu, að fljúga sjálfir,
en flugvélin hefir tvöfaldan stýris-
útbúnað.
10 ára drengur vann hæsíu verðlaun í
spurningaþætti sjónvarpsins í New York
ur. i-nrisiiansen
i in mun halda samtals þrjá hljóm
I leika iiér um næs.u helgi. Þeir
j fyrstu veröa haldnir í Dómkirkj
! unni, laugardaginn, 20. apríl, kl.
! 4 e. h. Aðgönguiniðar eru seldir
I í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds
sonar. Annan páskadag mun kór
inn halda tvenna hljóinleika í
Þjóðleikhúsinu, kl. 1.30 og kl. 3.
45. Aðgöngumiðar að þessum
hljómleikum verða seldir í miða-
sölu Þjóðleikhússins.
New York, 17. apríl. 10 ára gam
all drengur Roberí Strong hefir
unnið 68 þús sterlingspunda verð
laun í spurningahætti sjónvarps
stöðvar þar. Eru þetta hæstu
Bardagar
á Iedónesm
Jagakarta, 17. apríl. Fregnir berast
frá Celebeseyju í Indónesíu, að
þar séu nú háðir allharðir bardag
ar milli stjórnarhersveita og liðs
manna úr leynisamtökum múham
eðstrúarmanna, en þau eru bönn
uð í Indónesíu. Samtök þessi hafa
það að markmiði, að koma á fót
ríki múhameðstrúarmanna í Indó
nesíu.
verðlaun, sem nokkur einstak-
lingur hefir unnið í siíkum spurn
ingaþáttum og þykir mikið af-
rek og furðulegt af svo ungum
dreng. Hann á þess nú kost að
freista enn gæfunnar og hækka
verðlaunaupphæðina í allt að
90 þúsund sterliugspund, en
ekki er vitað, hvort liann iegg
ur í þá raun.
Spurningar þær, sem Iagðar
voru fyrir drenginn fjölluðu um
þrjú svið: Vísindamenn, efna-
fræði og stjörnufræði. Voru
spurningarnar mjög erfiðar og
kröfuðst sérþekkingar. Er frétta
menn spurðu drenginn hvernig
hann hefði getað leyst þessar
þrautir af hendi sagði hann að-
eins: „Ég heí lesið mikið í mörg
mörg ár.‘‘
Slofnað bændafé-
lag á Héraði
Egilstöðum í gær.
í kvöld verður haldinn hér
bændafundur, og er búizí við f jöl
menni. Á að ræða um stofnun
bændafélags, og einnig um stofn
un mjólkursamlags, sem ákveðið
er að setja á stofn hér í Egils
staðakauptúni.
Færð er orðin góð um héraðið
og vegurinn yfir Fagradal hefir
verið ruddur og er fær flestum
bílum. Hins vegar er enn mikil
fönn á Fjarðarheiði, en snjóbíll
gengur yfir hana eftir þörfum og
er gott færi fyrir hann. ES
Hitinn kl. 12 í gær:
Reykjavík 3 stig, Akureyri 5,
London 12, París 15, Berlía 11.
Fimmtudagur 18. aprfl 1957.
»^-?3 vina“ fékk fyrsíu verglaan
í dægurlagakeppni Fél. ísl dægurlagahöf.
Abeyrendur og domnefnd sammála um valiX
Blaðinu hefir borizt fréttatilkynning frá Félagi íslenzkra
dæguí-lagahöfunda varðandi úrslit í dægurlagakeppni þeirri,
er félagiS efndi til og nú er lokið. Síðastliðinn þriðjudag fór
fram verðlaunaafhending í Þórskaffi, en fyrstu verðlaun hlaut
lagið „Ljúfa vina“. Höfundur reyndist vera Þórir Roff og
samdi hann bæði lag og ljóð. Þórir Roff er seytján ára gamall.
Fyrstu verðlaun eru þau, að
hljómj lotudeild Fálkans mun gefa
lagið út á His Masters Voice
hljómplötu Önnur verðlaun, þrjú
hundruð krónur, hlaut lagið „Ég
sakna þín“, eftir frú Þórunni
Franz, ljóð eftir Valgerði Ólafs
dóttur. Þriðju verðlaun, tvö hundr
uð krónur hlaut lagið „Vegna
minninganna” höfundur Valdimar
Auðunsson lag efti Núma.
32 lög í keppninni.
Alls bárust í keppnina 944 lög,
en af þeim var aðeins hægt að
taka þrjátíu og tvö, sextán í nýju
dansana og sextán í gömlu dans
ana. Það var þriggja manna dóm
nefnd sem valdi þau lög er komust
í keppnina. Dómnefndin hafði þó
ekki atkvæðisréit í sjálfri keppn
inhi, en var gefinn kostur á að
láta í ljósi álit sitt um bezta lagið
í hvorum flokki. Að hennar dómi
var lagið „Ljúfa vina“ númer eitt
í flokki nýju dansanna, og eru því
úrslit hennar í samræmi við val
dansgesta er keppnina sóttu. K.K
sextettinn, ásamt söngvurunum
Sigrúnu Jónsdóttur og Ragnari
Bjarnasyni, sá um flutning nýju
dansanna. Er það von þeirra, er
hlýddu á keppnina, að sömu aðilar
verði látnir flytja lagið „Ljúfa
vina“ á hljómplötu Fálkans, þar
sem flatningur á því þótti takast
sérlega vel.
Urslit í gömlu dönsunum.
Úrslit í gömlu dönsunum urðu
þau, að lögin „Stungið af“ eftir
Skugga fékk fyrstu verðlaun. „Ást
við fyrstu sýn“ eftir Ö., fékk önn
ur verðlaun og „Sigguv,alsinn“ eft
ir Iljartagosa fékk þriðju verð-
laun. Ekki verður tilkynnt hverj
ir höfundar þessara laga eru fyrr
en á sumardaginn fyrsta, en þá
fer fram verðlaunaafhending í
gömlu dönsunum í Þórscafé.
• •
Ongþveiti í sam-
göngumálum
Frakklands
París, 17. apríl. Á miðnæitj s. L
gerðu járnbrautarstarfsmenn,
strætisvagnastjórar og starfs-
menn á neðanjarðarbrautum i
Frakklandi tveggja sólarhringa
verkfall til að herða á kaupkröf
um sínuin. Hefir verkfallið skap
að hina mestu ringulreið í sam
göngumálum Frakklands og
kemur enu verr við sökum páska
frísins og aukinna ferðalaga
fólks í því sarabandi. Parísarút-
varpið segir, að milli 60—90%
áðurnefndra starfsmanna hafi
hlýtt verkfallsboðinu. I París er
verkfallið nær algert, en nokkr
ar járnbrautir á langieiðum
ganga eðlilega.
Skemmdir á túnum
af flóðum á Álftanesi
Eins og skýrt var frá hér í blað
inu í gær kom mikið sjávarflóS
yfir Álftanes á háflóðinu í fyrra
kvöld, þegar stórbrim gerði af
verstu átt fyrir nesið. Ekki varS
þó um ágang að ræða nema á
þessu flóði, því að átt breyttist
og brim lægði, og gekk sjór ekki
á land í gærmorgun. Allmiklar
skemmdir hafa þó orðið, ekks
urðu þó teljandi nýjar skemmdir
á varnargörðunum enda vorirt
þeir svo illa leiknir áður. Hins
vegar hafa landskemmdir enni
orðið talsverðar og grjót og möi!
borizt á tún, einkum í Akrakoti,
að því er Sveinn Erlendsson á
Grund sagði blaðinu í gær. Einn)
ig eru skemmdir á veginum.
Páskavaka kirkjukórs Langholtssóknar
í Laugarueskirkju á skírdag
Flutt vertSa hátiöalög eftir innleuda og erlenda
höfunda' sum lítt þekkt
"i
Páskavaka, sem kirkjukór Langholtssóknar gengst fyrir,
verður haldin í Laugarneskirkiu á skírdagskvöld kl. 9. Þetta
er í þriðja sinn, sem kórinn heldur slíka kirkjusamkomu.
Hafa þær jafnan verið mjög vel sóttar og þótt takast vel.
Kórinn syngur að þessu sinni
tíu lög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Eins og áður vill kórinn
kynna nokkur ný eða lítt þekkt
lög m. a. eftir Björgvin Filippus
son, Jónas Tómasson og sr. Sig-
trygg Guðlaugsson. Þá flytur hann
nokkur alkunn snilldarverk svo
sem Kvöldbæn éftir Björgvin Guð
mundsson, Á föstudaginn langa
eftir dr. Pál ísólfsson, Ave verum
Corpus eftir Mozart og kór úr
óratoríinu Júdas Makkebeus eft
ir Handel. Undirleik í sumum
þessara laga annast Kristinn Ing
varsson, en söngstjóri er Helgi Þor
láksson. Nokkur laganna verða
sungin án undirleiks.
Þá flytur Þórir Kr. Þórðarson,
dósent, stutt erindi, er hann nefnir
Musterið í fortíð og nútíð.
Eins og áður á unga ’fólkið í
söfnuðinum sinn hluta í þessari
Páskavöku, en tveir ungir piltar
lesa upp ljóð eftir Davíð Stefáns
son og Einar M. Jónsson.
Væntanlega verður þessi Páska
vaka fjölsótt af bæjarbúum eins
og hinar fyrra. Aðgangur er ó-
keypis og öllum heimill. Framlög
um til byggingar Langholtkirkju
sem nú er hafin, verður veitt mót
taka í anddyri kirkjunnar að sam
komunni lokinni.
Námskeið á vegum
sameinuðu þjóðanna
Dagana 5. júlí til 29. ágúst n. k.
verður haldið námskeið í New
York á vegum Sameinuðu þjóð
anna, til þess að kynna starfsemi
stofnunarinnar. Námskeiðið er
ætlað stúdentum og verða þátttak
endur 30 að tölu.
Umsóknir þurfa að berast Sam
einuðu þjóðunum fyrir 1. maí
n. k. Utanríkisráðuneytið veitir
nánari upplýsingar.