Tíminn - 23.05.1957, Blaðsíða 12
▼eðriB £ dag:
I Suðaustan kaldi eða stinnings-
: kaldi — riguing öðru hvoru.
Hitinn kl. 18:
Fimmtudagur 23. maí 195^.
Rvík 11 stig, Akureyri 10, Loa-
don 14, París 14, Kaupmanna*
höfn 12.
Laxagengd mikið
að aukast í Svartá
Frá fréttaritara Tímans,
Svartárdai.
Síðastliðið sumar veiddust eitt
liundrað níutíu og fimm laxar í
Svartá. Eru það rúmlega helm-
ingi fleiri laxar en veiddust sum-
arið 1954. Síðastliðið sumar veidd
iist 295 laxar í Blöndu. Unnið er
að byggingu laxastiga neðst í
JBlöndu til að auðvelda laxinum
uppgöngu um hindranir, sem þar
eru. Sprengt var fyrir stiganum á
síðastliðnu ári og mun sú fram-
kvæmd eiga sinn þátt í hinni
auknu laxagengd í Svartá. Reynt
verður að ljúka byggingu stigans
á þessu ári.
G.H.
AHakóngur í Hornafirði og bátur bans
M.b. Helgi SF 50 var3 aflahæsti báturinn á vetrarvertiðihni í Höfn í
Hornafirði. Fékk hann 1370 skippund í 75 róðrum. Lifrarmagn þess afla
varð 61 þús. lítrar. Skipstjóri á Helga er Tryggvi Sigurjónsson, og sjást
bátur og skipstjóri hér á myndinni.
rfitt mun reynast að mynda
nýja stjórn í Frakklandi
París, 22. maí. — Rene Coty Frakklandsforseti átti ann-
ríkt í dag við að finna lausn á stjórnarkreppunni eftir fall
ríkisstjórnar Guy Moliet, sem setið hefir að völdum í 15 mán
uði og er það óvenjulega langur tími fyrir franska ríkis-
stjórn. Stjórn Mollet féll á mjög óheppilegum tíma, þar e?S
Coty átti að koma í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í
byrjun júní. Einnig hafði franska ríkisstjórnin gengið frarn
fyrir skjöldu til þess að koma til vegar nýjum samninga-
umræðum um Súez-skurð.
Stjórnin féll á tillögum sínum
í fjárhagsmálum, er miðuðu að
Hverjir eru það, sem Sjálfstæðis-
menn bera mest fyrir brjósti?
AlagningarákvæíSin í frumvarpinu um skatt á
slóreignir svara þeirri spurningu
Sjálfstæðismenn berjast mjög gegn stóreignaskattinum og
telja hann muni koma þungt niður á mönnum, lama framleiðslu
og draga úr atvinnu, og sitthvað fleira telja þeir fram gegn þess-
ari skattlagningu. Þeir bera sem sagt mjög fyrir brjósti þá, sem
skattur þessi mun lenda á. Það er því fróðlegt að sjá, hverjir
það eru, sem Sjálfstæðismenn vilja verja skattaálögum af slík-
um ákafa.
Þetta sést með því að líta á 5. grein frumvarpsins, þar sem
sundurliðað er, hvernig skatturinn skuli á lagður. Sú grein
hljóðar svo:
„Skattur samkvæmt lögum þessum reiknast þannig:
Af 1 millj. kr. hreinni eign hjá hverjum einstaklingi
greiðist enginn skattur. Af 1—1,5 millj. kr. eign greið-
ist 15% af því, sem er umfram 1 milljón kr. Af 1,5—
3 miflj. kr. eign greiðist 75 þús. kr. af 1,5 millj. og
20% af afgangi. Af 3 millj. kr. eign og þar yfir greið-
ist 375 kr. af 3 millj. og 25% af afgangi".
Ef þessi grein er athuguð sést, hvaða einstaklingar það eru,
sem Sjálfstæðismenn bera fyrir brjósti og leggja slíkt ofurkapp
á að koma í veg fyrir að leggi réttmætan skerf fram í sambandi
við bær ráðstafanir, sem uú er verið að gera til viðreisnar at-
vinnulífinu og efuahagskerfinu.
Stækkun síldarverksmiðju á Seyðisf.
er hagsmunamál fyrir síldarflotann
Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra, fylgdi til-
lögu ríkisstj. um ríkisábyrgð úr hlafti
Á fundi í sameinuðu þingi í gær var til umræðu tillaga
ríkisstjórnarinnar um að ríkið ábyrgist allt að 3,8 millj. kr.
lán til Seyðisfjarðarkaupstaðar til þess að stækka síldarverk-
smiðjuna þar svo að hún geti unnið 2500 mál á sólarhring.
Eysteinn .Tónsson, fjármálaráðherra, fylgdi tillögunni úr
lilaði og lngði ríka áherzlu á það, hve brýn nauðsyn væri á
}>ví að auka bræðsluafköst í verstöðvum austan Langaness.
Síldarverksmiðjan á Seyðisfirði
er mjög lítil, og þar sem undan-
Landsliðið o g pressuliðið leika í kvöld
f kvöld fer fram knattspyrnu-
kappleikur milli landsliðsins,
sem landsliðsnefnd liefir valið,
og pressuliðs, sem íþróttafrétta-
ritarar blaðanna völdu, og verð-
ur það síðasti leikurinn hér fyrir
iandsleikina við Frakka og Belga
í næstu viku.
í blaðinu í gær var skýrt frá
niðurröðun í landsliðið, en
pressuliðið verður þannig skipað:
Björgvin Hermannsson (Val)
Kristinn Gunnlaugsson (Akr.) Magnús Snæbjörnsson fVal)
Reynir Karlsson (Fram) Einar Halldórss. (Val) Einar Sig. (Hafnf.)
Aibert Guðmundss. (Hafnf.), fyrirl. Pétur Georgsson (Akr.)
Ellert Schram (KR) Ilögni Gunnl. (Kf.) Skúli Nielsen ('Fram)
Forsalan aS
íþróttarevýunni
á Lækjartorgi
Forsala aðgöngumiða að
íþróttarevýunni á sunnudag-
inn kemur heldur áfram í
dag á milli kl. 5—7 á Lækj-
artorgi. Þar verður hópur
biaðamanna og leikara vi3
söiu miðanna. Mönnum er
ráðlagt að tryggja sér miða í
tíma, því að þeir fijúga út
og hætt er við, að margir
verði frá að hverfa. Stæði
kostar aðeins 15 krónur og
verður það að teljast mjög
sanngjarnt verð.
Svartdælir skemmta
með leiksýningum og
kórsöng
Frá fréttaritara Tímans,
Svartárdal.
Leikfélagið hér í Svartárdal hef
ur nú sýnt Hreppstjórann á Hraun
hamri þrisvar sinnum, siðast vest-
ur á Hvammstanga. Alltaf hefur
verið fullt hús. Það mun fyrir-
hugað að sýna leikinn í félags-
I heimilinu, er það hefur verið tek-
ið í notkun.
Karlakórinn hefur, auk þess að
syngja á Húnavökunni, haldið
söngskemmtanir á Skagaströnd og
Hvammstanga. Var hann þar með
kvöldvöku, eins og á Húnavök-
unni, er nokkrir meðlimir kórsins
flytja og hefur orðið vinsæl
H\l\ \\m%i |TV’ ^
Munið að synda 200 metrana!
íarin sumur hefir veiðzt svo mikil
£Íld austan Langaness, hefir hún
livergi nærri getað annað bræðslu
peirrar síldar, sem skip vilja
Jeggja þar upp. Að auka afköst
ÆÍldarbræðslna á þessu svæði er
nauðsynleg ráðstöfun fyrir allan
síldarflotann, sem verður að sigla
aneð veiðina langan veg til Norð-
urlandshafna, þegar síldin veið-
ist austan Langaness.
Fjármálaráðherra sagði, að und
anfarið hefðu verið athugaðir
möguleikar á því að stækka síld-
arverksmiðjuna á Seyðisfirði, og
mú stæði svo á, að Seyðisfjarðar-
hær gæti fengið keyptar með
sæmilegum kjörum góðar vélar úr
síldarbræðslunni í Ingólfsfirði, ef
Jiessi ríkisábyrgð væri íyrir hendi.
J>ess vegna væri þessi tillaga flutt,
«nda virtist hér um skynsamlega
xáðstöfun að ræða eins og nú
stæðu sakir. Ef fljótt væri við
brugðið mundi að líkindum tak-
ast að flytja vélarnar austur og
5koma þeim niður þar fyrir síldar-
vertíð, og væri það mikilsvert. —
JJmræðu um tillöguna var frestað
og henni vísað til fjárveitinga-
nefndar með 29 samhljóðá atkvæð
um.
Danski sjóliðinn hefir sézt í
bænum í borgaralegum klæðum
Það er nú vitað, að danski
sjóiiðinn Jörn Kanstrup Bönved,
sem mætti ekki til skips, þegar
eftirlitsskipið Niels Ebbesen lét
úr höfn í Reykjavík, er á lífi,
og að því er bezt er vitað, við
hina beztu heilsu. Bönved hefur
þó ekki enn gefið sig fram við
lögreglu, eða konsúl og fer sem
sagt huldu höfði. Hann átti að
vera kominn til skips klukkan
tvö á mánudag, en var ekki kom-
inn klukkan fimm, þegar Niels
Ebbensen iét úr liöfn.
Sást á bryggjunni skömmu
eftir fimm
Fyrst mun hafa spurzt til Bön-
veds sköminu eftir klukkan fimm
á mánudaginn. Kom hann þá
niður á bryggju, en þá var skip-
ið farið. Hefur hanu sýnilega
orðið óvart eftir af skipinu og
getur það alla hent, einkum sjó-
liða í erlendri höfn. Virðist sem
Bönved hafi átt í einhver hús að
venda, þótt honum byðist ekki
sigling að sinni, enda hvarf hann
af bryggjunni án þess að leita
til fulltrúa Danmerkur hér.
Skipt um föt
Bönved gerði nú „kort pro-
sess“, eins og það heitir á
dönsku, varð sér úti utn borgara
legan klæðnað á mánudagskvöld-
ið og hélt á ný út í borgina, sem
honuin, að hann týndi af skip-
Iiafði í upphafi glapið svo fyrir
inu. Segir síðan ekki meira af
því, nema livað Bönved láðist
að skila fötunum í fyrrakvöld, en
þau hafði hann fengið lánuð,
eins og hann hafði lofað.
Flókið mál
Mái Bönveds er nú orðið ákaf-
lega flókið. llann mun að líkind-
uin hafa gerzt liðhlaupi, þegar
liann skipti um föt. Hér á landi
getur hann dvalið nokkurn tima,
án þess að útlendingaeftirlitið
geti skipt sér af lionum, þar sem
hann þarf ekki vegabréf. Annað
tveggja verður að gerast, til að
Bönved verði ineinuð vist hér,
að danska hermálaráðuneytið
krefjist þess að hann verði fram
seldur, eða þá hitt, að útlendinga
eftirlitið telji dvöl hans hér
óæskilega. Nú getur verið að Bön
ved óski eftir að sækja um vist
hér á landi og fái fastan sama-
stað, áður en útlendingaeftirlit-
ið fer að skipta sér af lionum.
Þá er ekki gott að vita nema
hann ílengist hér.
Coty Frakklandsforseti
því að styrkja gengi frankans og
afla tekna fyrir ríkissjóð til að
standa undir útgjölduna af styrj-
öldinni í Alsír.
Erfitt verkefni
Fréttaritarar segja, að erfitt
muni reynast fyrir Coty að mynda
nýja stjórn. Gera þarf róttækar
aðgerðir í efnahagsmálum, sem
ekki munu reynast vinsælar, enda
var það einmitt á hin'úm nýju
skattaálögum sem stjórnin féll. —•
Ekki er auðvelt að sjá hvernig
meirihlutastjórn verður mynduð
án þátttöku jafnaðarmanná, sem
hafa 100 þingmenn, en aðild
þeirra virðist útiloka að ný stjórn,
verði mynduð undir forustu íhalds
foringja eins og til dæmis Anthony
Pinay. Enn hefir forsetinn ekki
viðurkennt formlega lausnar-
beiðni Mollet og fer stjórnin því
með völd áfram til bráðabirgða.
Frestar ekki för sinni.
Opinberlega hefir forsetinn af-
lýst heimsókn sinni til Banda-
ríkjanna, en þó hafa verið gerðar
allar nauðsynlegar ráðstafanir til
þess að forsetinn fari með flug-
vél vestur um haf. Áður hafði
verið ákveðið að hann færi með
skipi, er leggja átti af stað á
mánudag.
íhaldsflokkurinn franski gaf £
dag út yfirlýsingu og sagði aiS
Frakkland þyrfti nú sterka stjórn,
er þyrði að taka með djörfung
á vandamálunum, tryggja sigur
í Alsír og skapa traust fjármála-
ástand í landinu. Var deilt hart
á jafnaðarmenn, en lofsorði lok-
ið á Lacoste, sem farið hefir með
málefni Alsír í stjórn Mollet.
Köld tíð og sauðfé
átiúsi
Frá fréttaritara Tímans,
Svartárdal.
Tíð hefur verið köld undanfarria
daga og oftast næturfrost. Sá gróS
ur, sem kom fyrir þetta kulda-
kast, hefur verið að fölna upp.
Sauðfé er víða enn á húsi og sauð
burður er víðasthvar að hefjast
um þessar mundir. G.H.