Tíminn - 26.05.1957, Page 8
8
Þeir lækna s
(Framhald af 5. síðu).
gengur upp stiga. Hún er oroin
þreytt, þegar hún er rétt byrjuð
á heimilisstörfunum. Öklarnir
geta bólgnað. Þegar veikin áger-
ist, verður þrýstingurinn til baka
í lungnaslagæðinni, sem liggur frá
lungum og inn í hjartað, svo mik-
ill, að blóð getur síazt inn í loft-
blöðrur lungnanna. Þetta kalla
læknar pulmonary edema eða blóð
sókn til lungnanna. Sjúkdómurinn
lýsir sér oft þannig, að sjúkling-
urinn fær alvarlegt kast — hann
tekur andköf, verður móður og
hóstar upp blóði. Oft er það, að
óvenjuleg líkamleg eða andleg á-
reynsla veldur þessum hræðilegu
köstum.
Áður en læknirinn ákveður,
hvort gera skuli uppskurð á sjúk
lingnum, er hann sendur í ná-
kvæma rannsókn til þess að ganga
úr skugga um, að sjúkdómurinn
sé á því stigi, að miklir möguleik
ar séu á því, að hægt sé að lækna
hann. Þá er fyrst tekin röntgen-
mynd og síðan rafeindaafrit af
hjartanu. Því næst er í mörgum
tilfellum sett smágerð nlastþvag-
pípa inn í hjartað eftir blóðæðum
í handlegg eða gegnum hola nál
í baki til þess að mæla þrýsting-
inn báðum megin við hina sködd-
uðu hjartaloku. Áhöld, sem mæla
þrýstinginn, gefa síðan nokkurn
veginn nákvæmlega upp, hvert
stælrð lokuopsins er. Auk aðal-
skurðlæknis eru viðstaddir skurð-
aðgerðina þrír aðrir skurðlæknar,
tveir svæfingalæknar og þrjár út-
lærðar hjúkrunarkonur.
Dr. Harken hefir uppskurðinn á
því að marka skurðlínuna; hann
dregur langa bogadregna línu frá
bringunni að framan, kringum og
undir vinstra brjóst og vinstra
herðablað. Því næst sker hann með
snörum og ákveðnum hreyfingum
gegnum skinnið, fitulagið og vöðv
ann, en aðstoðarmenn hans binda
jafnóðum um og stöðva blóðið, þar
sem það vætlar út.
Hjartaaðgerð
Skurðlæknarnir komast beint að
hjartanu með því að ýta lungun-
um til hliðar, kljúfa gollurshúsið,
sem er utanum hjartað, og halda
því opnu með sáraklemmum. Nú
sést hjartað greinilega, bleikt á
lit, gljáandi og lyftist og sígur af
reglubundnum hjartaslögunum.
Þá rannsakar dr. Harken hjartað
og stóru blóðæðarnar, sem liggja
út frá því. Hann fer að öllu var-
lega og gætir þess að hreyfa ekki
hjartað úr eðlilegri stöðu þess.
Til þess að ryðja sér braut inn
i' hjartað og rannsaka það og gera
uppskurð á hjartalokunni, verður
skurðlæknirinn að fara með vísi-
fingur gegnum nokkurs konar for-
dyri, sem á læknamáli nefnist app
éndage, en það er þunnt vöðva-
typpi efst í vinstra forhólfi. Þá er
fyrst hafinn undirbúningur að
þeirri úrslitaathöfn, þegar lækn-
írinn fer með vísifingur inn í
hjartað. Hann er fólginn í því,
að þetta vöðvatyppi — appendage
— er klemmt saman neðst með
tveimur bogadregnum klemmum.
Því næst er gert fingurbreitt op
efst á vöðvatyppinu og þráður
dreginn kringum það. Þegar svo
dr. Harken rennir vísifingri gegn-
um opið, toga aðstoðarmenn hans
í þráðinn, þannig að opið lokast,
þétt að fingrinum, og losa síðan
émám saman um klemmurnar
neðst á vöðvatyppinu. Með því að
toga þannig í þráðinn, sem dreg-
Inn er umhverfis opið, er komið í
veg fyrir, að blóð seitli út með
fingrinum, og skurðlæknirinn get
tir rannsakað hjartaopið með fing-
úrgómnum.
Það kemur fyrir, þótt sjaldgæft
sé, að hjartað stöðvast, meðan á
iippskurðinum stendur. Ef svo fer,
leggur læknirinn hendurnar í
skyndi á hjartað og tekur til við
að þrýsta á það og dælir þannig
með handafli blóðinu út um lík-
amann, í líkingu við slög hjart-
ans. Svo getur farið, að hann verði
að halda þessu áfram í heila
klukkustund eða lengur, áður en
ósýnileg stjórnarmiðstöð, sem kall
ast „pacemaker“, tekur til starfa
á ný. Þá má líka nota rafmagns-
hjartadælu, sem dr. Paul M. Zoll
frá Boston hefir fundið upp, en
júk hjörtu
þó mun ekkert gefa betri árang-
ur í svona tilfelli en mannshönd-
in.
í mörgum tilfellum tekst skurð-
lækninum að vikka út op hjarta-
lokanna með fingrinum einum. Dr.
Harken framkvæmir slíka aðgerð
þannig, að hann opnar fyrst hluta
af hjartaopinu með fingrinum, en
notar síðan sérstaka gerð af hníf
til þess að ljúka verkinu. Hnífur
þessi hefir þunnt, sveigjanlegt
blað, fjórðung úr þumli á breidd,
eggin er bylgjótt, en skaftið slétt.
Það er ekki alltaf sem hjarta-
skurðaðgerðir ganga árekstralaust
fyrir sig. í mörgum tilfellum hefir
kalk setzt á brúnir hjartalokanna.
Verður þá að viðhafa fyllstu var-
úð, ella gætu kalkbrot losnað, runn
ið út úr hjartanu og inn í æðar,
sem flytja blóð til heilans. Þar
geta þau orsakað blóðtappa og
skammvinna eða jafnvel ævarandi
lömun. Þegar skurðlæknirinn finn
ur fyrir því með fingrinum, að
kölkun hefir átt sér slað, gefur
hann aðstoðarmönnum sínum fyrir
mæli um að „loka fyrir aðalslag-
æðina“ þegar í stað. Með því að
loka henni í örfáar sekúndur, er
venjulega hægt að beina kalk-
rennslinu inn í aðrar æðar, þar
sem slík hætta er ekki fyrir hendi.
Mitral-leki heitir önnur tegund
hjartabilunar, sem læknuð er með
uppskurði. Þá leggjast hjartalok-
urnar ekki nógu þétt aftur og mik
ið af blóðinu rennur meðfram
þeim til baka við hvert hjartaslag
— þ. e. úr afturhólfi inn í for-
hólf. — Sjúklingurinn þjáist af
kraftleysi, hann getur varla geng-
ið hjálparlaust og er við rúmið,
en samtímis koma í ljós ýmis ein-
kenni lungnasjúkdóma.
Dr. Harken framkvæmir slíkan
hjartauppskurð á þann hátt, að
hann tekur plasttappa, í laginu
eins og mjó flaska og tveir þum-
lungar að lengd, og festir hann lá-
rétt í opinu. Hjartalokurnar, scm
áður lögðust ekki nógu þétt aft-
ur, lokast nú um þetta „flöskulok",
og þannig er komið í veg fyrir,
að blóðið renni til baka úr aftur-
hólfi í forhólf, sem er mjög hættu
legt.
Dr. Bailey frá Fíladelfíu notaði
svipaða aðferð til þess að Iækna
mitral-leka. í stað þess að nota
plast, skar hann smástykki úr
geislunga og þakti það með ræmu
sem skorin var af gollurshúsinu.
Hann notaði þessa aðferð ekki að-
eins við uppskurð á mitral-Iokun-
um, heldur einnig á tricuspid —
sem er samsvarandi loka í hægra
helmingi hiartans — og á lokunni
við hjartaslagæðina.
Ekki ánægðir með
árangurinn
Samt sem áður eru hvorki dr.
Bailey né dr. Harken ánægðir með
þann árangur sem þeir hafa náð
með þessum , aðferðum. Til þess
að komast að betri árangri hafa
þeir og aðrir skurðlæknar gert sér
mikið far um að rannsaka líf-
fræðilega byggingu hjartalokanna
og komizt m. a. að þeirri niður-
stöðu, að vissir hlutar þeirra geta
ekki lokazt nógu vel, sökum þess
að hið trefjótta hringop eða und-
irstaða lokanna, sem blöðkurnar
vaxa út úr, hafa tognað og þanizt
út. Með öðrum orðum, opið er
svo vítt, að blöðkurnar ná ekki
saman fyrir miðjunni til þess að
loka því. Dr. Glover og dr. Julio
C. Davila við Presbyterian-sjúkra-
húsið í Fíladelfíu gerðu tilraun til
þess að minnka hið útþanda mitr-
al-op með því að draga þráð gegn-
um það og herða síðan á honum,
þangað til lokurnar féllu vel sam-
an.
Dr. Henry T. Nichols, sem var
skólabróðir dr. Bailey í læknaskól
anum og samstarfsmaður hans við
Hahnemansjúkrahúsið, hefir kom-
ið fram með nýjustu aðferðina við
að minnka mitral-op. f stað þess
að draga þráð umhverfis allt op-
ið, þrýstir hann því saman á tveim
stöðum, sitt hvorum megin ops-
ins, og saumar svo með sterkum
nælonþræði nokkur spor til beggja
hliða. Þessari aðferð má líkja við
það, er víð hnappagöt eru minnk-
uð með því að sauma nokkur spor
báðum megin þess.
Eins og sagt var í upphafi þess-
arar greinar, er varla til sú teg-
und hjartabilunar, sem hjarta-
skurðlæknar nú á dögum geta
ekki læknað. Iljartasjúkdómar eru 1
auðvitað misjafnlega erfiðir við-!
fangs, en einna erfiðast er að
lækna bilun á opunum við hjarta-
slagæðina. í gegnum það rennur
blóðið af fullum krafti út úr hinu 1
aflmikla vinstra afturhólfi í upp-!
hafi hringrásarinnar út um líkam-!
ann. Hérna rennur blóðið hraðar J
og blóðþrýstingurinn er meiri held 1
ur en annars staðar í líkamanum. |
Skurðlæknirinn getur ekk: rekið
finguiinn i gegnum örliíla rifu í
slagæðinni áa þess að eiga það á
iiættu, að líf»i;ættuleg og óstöðv-
andi blæðing eig sér sta) ííér er
hcldur ekkerl hentugt vöðva-
t-’ppj — app age — eins og í
jorhólfi hjartans, sem hægt er að
nota sem eins l;r>iihr forlyri Skurð
j-rknar hafa bó íeyst þetia vanda-
r.’iál með því að sauma nokkurs
k.. ar appendage eða fortíyri vjg
slagæðina. Með tessu móti er ó-
hætt að fara með fingur eða
skurðhníf inn í slagæðina, þegar
gerður er aortis-stenosis uppskurð-
ur. Dr. Bailey kýs helzt að nota í
slíkt fordyri hluta úr gollurshús-
inu, sem tekinn hefir verið við
krufningu og geymdur í frysti.
Annað vandamál, sem erfitt er
að leysa, er leki meðfram slagæða
lokum, sem stafar af því að þær
lokast ekki nógu þétt. Plastkúlu-
lokan, sem dr. Charles A. Hufnag-*
el frá Washington fann upp, er ein
lausn á þessu vandamáli, en það
er margt, sem mælir á móti því,
að hún sé notuð, og stöðugt er
verið að reyna nýjar aðferðir.
Skurðaðgerðir utan á
hjartanu
Þar eð þessi grein hefir ein-
göngu fjallað um aðgerðir inn-
vortis í hjartanu, hefir ekkert ver-
ið minnzt á skurðaðgerðir utan
á hjartanu, sem miða að því að
auka blóðsóknina til hjartavöðva,
þegar sjúkdómur í hjartaæðunum
veldur blóðskorti þar. Undanfarin
20 ár hafa læknar staðið óslitið
fyrir rannsóknum og tilraunum
með lækningu á hinum ýmsu
hjartasjúkdómum, og er þar
fremstan að telja dr. Claude S.
Beck frá Cleveland. Framfarir á
þessu sviði hafa verið ótrúlega
miklar hin síðustu ár, og ástæða
er til að vona, að öruggar aðferð-
ir verði fundnar til þess að lækna
jafnvel illkynjuðustu hiartabilan-
ir.
Hjartaskurðlæknar bíða einnig
með óþreyju þess tíma, er þeir
þurfa ekki lengur að byggja marg
ar þær skurðaðgerðir, sem þeir
gera innan í hjartanu, á tilfinn-
ingarnæmi vísifingurs án þess að
geta séð, hvað þeir eru að gera.
Vonir standa til, að svo geti orð-
ið, þegar teknar verða í notkun
við uppskurði hjarta- og lungna-
vélar, sem eiga að geta tekið við
starfi hjarta og lungna um stund,
en nú er verið að gera tilraunir
með notkun slíkra véla. Á meðan
blóði sjúklingsins er veitt í gegn-
um slíka vél, sem dælir því áfram
og gefur því súrefni, getur skurð-
læknirinn framkvæmt aðgerðina í
opnu og þurru '•hjarta í eina
klukkustund eða svo, vegna þess
að nú rennur blóðið ekki í gegn-
um það. Við slíkar aðstæður verða
möguleikarnir á því að lækna
hjartabilanir næstum óendanlegir.
Hollywood
(Framhald af 6. síðu).
einnig dramatískar og spennandi,
enda hafa margar góðar myndir
um unga afbrotamenn og önnur
skyld efni hlotið hinar beztu við-
tökur, og ungir leikarar eins og
Marlon Brando eða James Dean
hlotið mikla hylli.
Hin listræna kvikmyndagerð,
sem nú er að vinna fullnaðarsigur
í Hollywood á sér athyglisverða
forsögu. Stóru kvikmyndafélögin
hafa lengi haft þann sið að gera
eina verulega góða mynd á ári.
Þetta var ekki gert í fjárafla-
skyni, því að á þeirri tíð syntu
kyikmyndáframleiðendur í milljón
um og aftur milljónum. Ástæðan
var einfaldlega sú, að með ein-
hverju móti þurfti að halda aftur
af befctu leikstjórunum og leikur-
unum, sem voru að örvinglazt yfir
því, að þurfa stöðugt að sóa hæfi-
leikum sínum í þrautómeikilegan
hégóma.
T í MIN N, sunnudaginn 261' ináí TT)57.
(REYPLAST-EINANGRUN I
1 Einargrun búin til úr plastefnum hefir nú rutt sér mjög |
| til rúms sökum ótvíræðra kosta fram yfir önnur ein- |
| angrunarefni.
| REYPLAST
1 hefir mun meira einangrunargildi en flest i
1 önnur einangrunarefni, sem hingað til hafa i
| verið notuð.
| REYPLAST |
i tekur nálega ekkert vatn í sig og heldur ein- =j
| angrunargildi sínu, þó svo að raki eða vatn i
| komist að því.
j REYPLAST |
1 fúnar ekki né tærist, og inniheldur enga nær- =
I ingu fyrir skoráýr eða bakteríugróður.
| REYPLAST |
er léttast einangrunarefni og hefir mestan j§
Í styrkleika miðað við þyngd sína.
| REYPLAST |
1 er hreinlegt, auðvelt og ódýrt í uppsetningu. j§
| Það má líma á steinveggi með steinsteypu og i
| múrhúðast án þess að nota vírnet. 1
| REYPLAST |
er venjulega til í mörgum þykktum og hægt =
er að framleiða það af mismunandi styrk- §
| leika eftir ósk kaupenda. i
| REYPLAST |
hefir það mikið einangrunargildi fram yfir §
| önnur einangrunarefni, að þar sem þörf er i
i fyrir mjög mikla einangrun, svo sem í frysti- 1
| húsum, kæliklefum og víðar, má komast af i
með verulega þynnri einangrun og vinnst |
| þannig aukið rúm. |
| REYPLAST-EINANGRUNARPLÖTUR eru framleiddar |
| af REYPLAST. |
I Söluumboð i
= =
| J. Þorláksson & Norðmann (
1 Bankastræti 11. — Skúlagötu 30.
jituuiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiniiiw
= =r
| TRÉSMIÐIR TRÉSMIÐIR |
| Trésmiðafélag Reykjavíkur j
= heldur félagsfund í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu §§
1 mánudaginn 27. maí kl. 8,30 e. h. i
1 Dagskrá: 1
| Samningarnir. i
Í Stjórnin. j§
ÍiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimmmiiiimiiiiiiiimnmTmimiiiimiiiiri
Fylgist með tímanum. Kaupið Tímann
aiHummmiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiimn.mmimiiiiiiiiimiiiiimmmiimiiiiiiiiiiimiimmimDna
Þá gerðist það, að ein þessara
vönduðu — en ódýru — kvik-
mynda, From Here to Eternity frá
Columbia, hlaut hreina metaðsókn,
miklar vinsældir og afbragðs dóma
— og það meðan kreppan var sem
hatrömust í Hollywood. Sama sag-
an gerðist með aðrar kvikmyndir,
sem voru svipaðar undantekningar
frá hinni venjulegu framleiðslu,
On the Waterfront og Marty.
Þarna fengu framleiðendur dálíciö
að hugsa um. Og árangurinn af
þeim heilabrotum varð sá, að Hol-
lywood tók upp nýja stefnu, er í
rauninni engin Hollywood lengur,
að minnsta kosti ekki í hinum
gamla skilningi þess orðs.