Tíminn - 12.06.1957, Síða 8
8
T í MIN N, miðvikudaginn 12. júní 1957»
Minning: Hallur Sigurðsson, Stapa
Þann 26. apríl síðast liðinn and
aðist Hallur Sigurðsson á Stapa,
eftir all-langa vanheilsu. Er með
honum horfinn af sjónarsviði, einn
af mætustu mönnum aldamótakyn
slóðarinnar hér, og sem mótuðu
svo mjög framfaratímabil þessarar
sveitar. Hallur var fæddur á Stapa
28. júlí 1881, sonur þeirra merku
hjóna Sigurðar Jónssonar og Rann
veigar Hallsdóttur. Þau áttu kyn
sitt að rekja til merkra og þekktra
presta- og bændaætta hér í sýslu,
og hér verður stuttlega greint
frá:
Jón faðir Sigurðar á Stapa bjó
um skeið á Háhól í Bjarnarnes-
hverfi .Hann var sonur Jóns bónda
á Horni 1816, Einarssonar bónda
þar 1801 Jónssonar bónda í Árna-
nesi, Sigurðssonar lögréttumanns
á Meðalfelli (f.um 1681), Ketils-
sonar bónda í Árnanesi Jónssonar
bónda á Felli í Suðursveit Ketils-
sonar prests á Kálfafellsstað Óiafs
sonar prests og skálds á Sauða-
nesi Guðmundssonar. Kona séra
Ketils var Anna dóttir Einars
prests og skálds í Heydölum Sig-
urðssonar — Rannveig kona Sig-
urðar á Stapa — móðir Halls —
var Guðbjörg dóttir Magnúsar
prests í Bjarnarnesi (1746—1834)
Ólafssonar sýslumanns í Haga á
Barðaströnd Árnasonar. Móðir
Guðbjargar og seinni kona séra
Magnúsar í Bjarnarnesi, var Rann
veig Jónsdóttir prests yngra í
Bjarnamesi Bergssonar prófasts
þar, Guðmundssonar (1702-1789).
Séra Magnús fluttist að Stapa um
eða eftir 1810 og bjó þar til ævi-
rloka og hefir ættin búið þar síðan
■'við rausn og myndarskap.
Hallur missti föður sinn á unga
aldri og bjó móðir hans áfram með
börnum sínum til æviloka 1925.
Eftir lát hennar hafa systkinin
sem heima eru, búið þar með
mesta myndarskap. Hafa þau alið
upp 5 fósturbörn með miklum
ágætum. Hefir Stapaheimilið alla
tíð verið eitt af beztu heimilum
sveitarinnar á allan hátt. Má óhætt
fullyrða að fjölskyldubúskapurinn
þar sé og hafi verið til mikillar
fyrirmyndar. Það er því skarð
fyrir skildi, þar sem einn úr hópi
systkinanna er horfinn, og sá sem
drýgstan þátt átti í að vinna að
framförum þessa merka heimilis.
Og utan þess sakna menn góðs
félaga, sem alltaf var boðinn og
búinn að veita lið, þegar á reyndi,
því að hjálp og greiðasemi hefir
alla tíð verið mikil frá því heimili
og í raun og sannleika sveitarstoð
og styrkur. Hallur heitinn unni
mjög alhliða framförum, var sann
kallaður vorsins maður og feg-
urðardýrkandi mikill. Hann ólst
upp í fögru umhverfi með fjöl-
breytta liti, þar sem nær eru grasi
vafðar hæðir og grundir og víð-
sýni mikið til svipmikilla fjalla
með „heiðjökla hring“.
„Gimsteinn ertu á grænu klæði
greyptur inn í jökla hring“
sagði Skarphéðinn læknir Þorkels-
son í kvæði um Hornafjörðinn. Og
AÐ VESTAN ...
(Framhald af 5. síðu).
vita það, að í öðrum löndum eru
líka menn, sem meta það, sem
landbúnaðurinn hefir sér til ágæt-
is. _
Ég skil ekki, að nokkurs staðar
á íslandi séu fullkomnari og betri
uppeldisskilyrði en á sveitabæn-
um, þar sem þrjár kynslóðir standa
saman í vorönn og vorgleði, vor-
striti og vornautn.
Við ættum að skilja það, sveita-
fólk sérstaklega, en raunar íslend
ingar allir, að búskapurinn er ann-
að og meira en atvinna eins og
hinn brezki vísindamaður segir.
Búskapurinn er lífsstefna og full-
næging eðlisbundinnar þrár, upp-
spretta jafnvægis og heilbrigði í
sálarlífinu. Á hinum „síðustu og
verstu tímum“ efnishyggju og
veiklaðra tauga, þegar þindarlaust
er dansað . kringum gullkálfinn,
megum við gjarnan heyra álit er-
lendra fræðimanna um það, sem
jákvætt er við landbúnaðinn og
viðfangsefni hans. Mun það ekki
líka falla saman við íslenzka
reynslu? H. Kr.
þessarar náttúrufegurðar nýtur
ekki sízt á hæðunum austan við
Stapa, þar sem margir listmálarar
hafa mótað hin fegurstu málverk
sín. — Það er því að vonum að
unglingur, sem fengið hefir eins
mikið og gott í vöggugjöf eins og
Hallur á Stapa, hafi ekki lítið mót
ast í slíku umhverfi, enda gekk
maður þess ekki dulinn í sam-
ræðum við hann. Ég hygg lika, að
þetta sé eitt meðal annars, sem
á unga aldri hefir orðið útþránni
sterkara og haldið hefir honum
til þess að helga lífstarf sitt þessu
umhverfi, bæta það og fegra,
skreyta það grænum skógi og
hann vann svo trúlega að, enda
þótt að upplag og gáfur hefðu
getað beinst að öðrum viðfangs-
efnum, því Hallur var prýðilegum
gáfum gæddur, las mikið og hafði
sérlega fagra rithönd. Hann var
trúr þeim málstað er hann taldi
réttan, stefnufastur, enginn yfir-
boðsmaður, prúðmenni mikið og
vann sér hylli og traust hvers
manns er kynntust honum.
Þó að Hallur á Stapa væri mjög
hlédrægur, komst hann ekki undan
að vinna ýmis opinber störf fyrir
sveitunga sína. Hann átti lengi sæti
í hreppsnefnd og skólanefnd og
var formaður hennar lengi. I.
skattanefnd var hann, og fleiru,
er hér verður ekki upptalið. Öll
þessi störf rækti hann með áhuga
alúð og trúmennsku og var sam-
vinnuþýður. Þess ber og að geta,
að hann var einn af stofnendum
ungmennafélagsins >,Mána“ og
starfaði mikið í þágu þess fyrr á
árum og alla tíð annt um starf-
semi þess.
Við fráfall Halls Sigurðssonar
á Stapa eigum vér sveitungar hans
á bak að sjá merkum og góðum
dreng. Nú að leiðarlokum, er hann
flytzt yfir landamærin miklu, þökk
um vér honum alla samveruna og
störf hans á liðnum árum, vottum
systkinum hans, fósturbörnum og
öðru venzlafólki djúpa samúð vora
og hluttekningu og kveðjum hann
með söknuði og virðingu.
Bjarni Bjarnason
Brekkubæ
Sd oq lieqrt á St.
ocj Heyrl a
(Framhald af 7. síðu).
'paru
nOTEBORG ■
Hin árlega kaupstefna, Svenska Massan, var haldin í Gautaborg dagana 18.—26. þ. m. íslenzka deildin var
skipuiögð af Guðmundi Pálssyni, sem stundar nám í húsagerðarlist í Gautaborg. íslandsdeildin þótti smekkleg
og vakti mikla athygli hinna mörgu sýningargesta. — Stefanía Guðmundsdóttir, flugfreyja, leiðbeindi gestum,
er skoðuðu islenzku sýningardeildina, og sést hún hér á myndinni í sýningardelldinni.
Þróttmikið síarf Dansk-íslenzka
félagsins
en auðæfin hlaðast upp í kirkjun-
um frá ári til árs.
Náttfarar í haglendinu
„Hvað ætlarðu að gera, þegar þú
verður stór?“ Þetta er stundum
sagt við litla stráka heima á fs-
landi. í Andalúsíu vita allir litlir
strákar, hvað þeir ætla að gera,
þegar þeir verða stórir. Þeir ætla
að verða nautabanar. Venjulega
kæra foreldrar sig lítið um, að
synir þeirra velji þetta hættulega
lífsstarf. En það er hægara sagt
en gert að halda aftur af strákun-
um. Þeir stelast að heiman að næt
urþeli, skíða inn í nautgripagirðing
arnar og egna tarfana með jakkan
um sínum. Flestir þekktir nauta
banar hafa stigið fyrstu sporin í
einvígi í nátthaganum, en margir
falla þar fyrir hornum nautsins og
komast aldrei á sviðið. Þessar næt-
urferðir strákanna í girðingarnar
eru þó bannaðar með öllu þótt lít-
ið komi til. Spillast nautin mjög
við þessar heimsóknir, láta ekki
blekkjast af klæði, en !renna beint
á manninn sjálfan. Þykja þau þá
óhæf til vígs eða þau eru ekki lögð
af velli nema fyrir sérstaka þókn-
un. Flestir nautabanar strjúka að
heiman á unga aldri. Allir eiga
þeir sameiginlegt takmark, en það
er að finna efnaðan fjárhalds-
mann (,,apoderado“), sem styrki
þá til náms og hafi hönd í bagga
með fjárreiðum þeirra. Ef heppnin
er með og blóð þeirra rennur ekki
í sandinn, hyllir lýðurinn þá og lít
ur á þá sem hetjur.
Hjátrú
Þjóðtrú og hjátrú lifa enn góðu
lífi í Andalúsíu og þá einkum 1
smáþorpunum. Það þykir ekki góðs
viti að tala um slöngur í þeim
landshluta, og þorri manna nefnir
þær aldrei á nafn. Óvinurinn brá
sér í höggormslíki og taldi formóð
Dansk-íslenzka félagið hélt aðalfund fyrir skömmu. Starf-
semi félagsins hefir aukizt mjög upp á síðkastið, og hefir
félagatala tvöfaldazt á síðast liðnu ári. Úr skýrslu stjórnar-
innar má einkum nefna, að félagið sendi tvö eintök af bók-
inni: „Tag med til Island“ eftir Kay Nielsen, sem gjöf til
hvers hinna 70 menntaskóla í Danmörku.
Var gjöfin vel þegin og þakkar-
bréf hafa borizt frá mörgum skól-
um. 14 stúdentar hlutu á síðasta
urina Evu í aldingarðinum. Enn
fer hann um jörðina magnaður
fjandsamlegri kyngi. Hann birtist í
búunum í hverri slöngu, sem verð
ur á leið þeirra og nafn hans kall-
ar ógæfu yfir þann, sem tekur sér
það í munn. Stundum má finna
gamalkunnar hliðstæður í munni
alþýðunnar: Sumir segja, að svart-
ur köttur komi í veg fyrir þann,
sem á von á dauða sínum; stundum
boðar hann lát ættingja eða vin-
ar. Það er ills viti ef þrettándi mán
aðardagur ber upp á þriðjudag;
menn hafa ímugust á rangeygðum.
Ef saltbaukur fellur í gólfið, boðar
það ógæfu og ekki má nefna ref,
þegar farið er til veiða. Hversdags
legir smámunir hafa jafnan sína
þýðingu í Andalúsíu. Og menn
gangast lítt við nýmælum, halda
gamla aðferð og eru íhaldssamir
í daglega lífinu.
Eins og með Serkjum
Ilvarvetna í Andalúsíu má finna
bæjarhluta og mannvirki, sem
standa Óhreifð og minna á stórveld
istíma Serkja. Vatnsknúnar, arab-
ískar myllur til vinnslu á jurtafeiti
hafa verið í notkun allt til þessa
og gamlar hljólvindudælur, algeng
ar í þorpunum eru af sama upp-
runa. Sveitafólk, sem vinnur á ökr
unum, kýs fremur að klæða af sér
hitann heldur en fækka fötum;
konurnar setja upp heljar mikla
stráhatta og hnýta skýluklút fyrir
andlitið, en láta rifa í augun. Það
þykir ekki fínt að láta sólina
brenna hörundið. Mataræði svipar
oft til þess, sem gerðist í Norður-
Afríku og vögguljóð, sem mæðurn-
ar raula við börn sín eru arabísk
að uppruna.
Skuggsælir, austurlenzkir húsa-
garðar (patio) sjást í hundraðatali
í gömlu bæjarhverfunum í Córdba
og Sevilla. Það eru bæjarhverfi
eins og Santa Cruz, þar sem smá-
göturnar bugðast með kvenlegum
þokka. Og það er eitthvað glettnis-
legt við þessar götur, sem virðast
breyta stefnu í sífellu, en beinast
þó jafnan í sömu átt. Golan streym
ir mi'lli nástæðra húsanna eins og
í farveg og birtan, ljós og skugg-
ar, sem víxlast á götunni og veggj
unum, gerir þær dýpri og straum-
rænni. — Það eru serkneskar borg
ir í Vestur-Evrópu og bergmál af
austrænni menningu, sem var
gróðursett á Spáni fyrir þúsund ár
um.
Barcelóna, 12. apríl 1957.
vori bókaverðlaun frá félaginu
fyrir góða kunnáttu í dönsku.
Fræðslukvikmyndir um Danmörku
hafa verið sýndar í Nýja bíói á
vegum félagsins og í októbcr var
efnt til upplestrarkvölds í sam-
bandi við dönsku félögin í Reykja
vík, þar sem leikkona við konung-
lega leikhúsið, frú Ellen Malberg,
söng og las upp. Félagið hefir átt
frumkvæði að því, að danski sendi
kennarinn við Háskólann, cand.
mag. Erik Sönderholm, hefir heim
sótt nokkra hinna æðri skóla og
lesið dönsku íyrir nemendur-
Rektor Kaupmannahafnarhá-
skóla, prófessor dr. méd. Erik War
burg, var ásamt frú tsinni gestur
félagsins um vikutíma í apríl.
Stjórn félagsins skipa: Friðrik
Einarsson, læknir, formaður, Har
aldur Ágústsson, húsgagnasmíða-
meistari, ritari, Guðni Ólafsson,
apótekari gjaldkeri. Meðstjórnend
ur: Ásbjörn Magnússon, forstjóri,
Brandur Jónsson, skólastjóri, Lud-
vig Storr, aðalræðismaður, Zoph-
onías Pálsson, skipulágsStjóri.
Stjórnarskipti hafa ofðið í Dan-
| merkurdeild félagsins. Prófessör
I Niels Nielsen hefir lájtið. af ::or-
jmennsku, en við ' heiir ték’ið pró-
ifessor, dr. med. Eihar Meulen-
jgracht. Aðrir í sfj'órn eru: Marti'n
iBartels, bankafulltrúi, Bodil Beg-
I trup, íyrrv. ambassador, prófessor
j Jón Helgason, Carsten Nielsen,
formaður danska blaoamannafé-
lagsins, prófessor Nicls Nielsen,
prófessor Chr. Westergaard-Niel-
sen, dr. phil. Ole Widding.
(Frá dansk-ísl^nzkg., félaginu.)
W
r fíd '
ári8 sem leiS
Frá aðalfundi Bandaíags íslenzkra leikfélaga
Aðalfundur B. í. L. var haldinn í Iðnó laugardaginn fyrsta
þessa mánaðar. Formaður bandalagsins, Ævar Kvaran, setti
fundinn og stiórnaði honum, en framkvæmdastjórinn, Svein-
björn Jónsson, flutti skýrslu um störf þess og sýnihgar
bandalagsfélaganna á árinu.
Stofnuð voru fjögur ný Icikfé-
lög: Leikfélag Bíldudals, Leikfé-
lag Ólafsvíkur, Leikfélag Seyðis-
fjarðar og Leikfélag Kópavogs.
Var inntaka þeirra samþykkt á
fundinum. Alls eru í bandalaginu:
sextíu og átta félög. Tala sýninga i
47 nemendur í Tón-
listarskóla ísaf jarðar
Tónlistarskóla ísafjarðar var slit
ið s. 1. laugardag við hátíðlega at-
höfn í Alþýðuhúsinu kl. 5 síðd.
Skólastjórinn, Ragnar H. Ragn-
ar, flutti ræðu og ræddi um skóla-
starfið. Nemendur léku á hljóð-
færi verk eftir Beethoven.
Nemendurnir, sem léku, voru
Lára Sigríður Rafnsdóttir, Messí-
ana Marselíusdóttir og Anna Ás-
laug Ragnarsdóttir. Að lokum
voru nemendum afhent verðlaun
fyrir dugnað eða leikni.
Áður hafði skólinn efnt til vor-
hljómleika í Alþýðuhúsinu 29.
fyrra mánaðar. Komu þar fram 30
nemendur skólans, og voru þetta
9. vorhljómleikar skólans. I skól-
anum voru í vetur 47 nemendur,
þar af 36 í píanóleik. Kennarar
voru auk skólastjórans Elísabet
Kristjánsdóttir, Guðmundur Árna-
son, Jónas Tómasson og H. Herluf-
sen.
mun vera svipuð og árið á undan,
en þá voru sýhd yfir fjörutíu
stærri leikrit. Yfir 100 leikþættir
voru afgreiddir til ýmissa félaga
og skóla. Af stærri leikritum voru
íslenzku leikritin: Kjarnorka og
kvenhylli og Gimbill vinsælustu
verkefnin. 1 samvinnu við Hand-
íða- og myndlistaskólarin var hald-
ið námskeið í leiktjaldagerð og
andlitsförðun. Ragnhildur Stein-
grímsdóttir, leikstjóri, starfaði á
vcgum bandalagsfélaganna og mik
ill áhugi er á að fá hana til starfa
næstu leikár.
Eins og undanfarin ár naut
bandalagið húsrýmis í Þjóðleikhús
inu. Stjórn B. í. L. var endurkos-
in, en hana skipa: Formaður: Æv-
ar Kvaran og með honum í stjórn
eru Lárus Sigurbjörnsson og Sig-
urður Kristinsson.
Bessastaðakirkja
(Framhakl af 4. síðu).
við musterisvígsluna: „Sjá him-
ininn og himnanna himnar taka
þig ekki, hve miklu síður þá þetta
hús.“
Að svo mæltu býð ég yður —
og öllum landslýð, gleðilega hátíð!