Tíminn - 20.06.1957, Side 6
s
'TÍMIN'N, finraitudaginn 20. júní 1957.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sumar í Týról
Sýning í kvöld kl. 20.
Næstu sýningar föstudag og
laugardag kl. 20.
Næst síðasta vika.
Aðgöngumiðasala opin í dag frái
ki. 13,15 til 20. Á morgun, 17. júní j
frá kl. 13,15 til 15.
Sími 8 23 45, tvær línur
Pantanir sækist daginn fyrir sýn-
ingardag, annars seldar öðrum.j
NÝJA BÍÓ
Siml 1544
„Fast þeir sóttu sjóinn“
(Beneath the 12 Miles Reef)
Mjög spennandi ný amerísk
mynd, um sjómannalíf er gerist
bæði ofansjávar og neðan. Tek
in í litum og CinemaScope.
Aðalhlutverk:
Robert Wagner
Terry Moore
Gilbert Roland
Bönnuð börnum innan 12 ára. —
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ
Siml 1475
Þrjár ástarsögur
(The Story of Three Loves)
Víðfræg bandarísk litkvikmynd,
leikin af úrvalsleikurum:
Pier Angeli, Kirk Douglas, Leslle
Caron, Farley Granger, Moira
Shearer, James Mason
kl. 5, 7 og 9.
Austurbæjarbíó
Slml 1384
Santiago
Hörkuspennandi og viðburðarík
ný amerísk kvikmynd í litum, er
fjallar um vopnasmygl á Kúbu.
Aðalhlutverk:
Alan Ladd
Rossana Podesta
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hafnarfjarðarbíó
Siml >249
Gyllti vagninn
(Le Carossel D'Or)
Frönsk-ítölsk úrvalsmynd í Utum
gerð af meistaranum Jean Ren-
oir. TónUst eftir Vivaldi.
Aðalhlutverk:
Anna Magnani, Duncan Lemoont
Sýnd kl. 9.
Siðasta sinn.
Danskur texti. — Myndin hefir
ekki verið sýnd áður hér á landi
Sirkus á flótta
Spennandi amerísk kvikmynd
Frederik Mars
Terry Moore
Sýnd kl. 7.
Síml 82675.
NeySarkalI af hafinu
(si tous Les Gars Du Monde)
Ný frönsk stórmynd er hlauti
tvenn gullverðlaun. Kvikmyndin S
er byggð á sönnum viðburðumj
og er stjórnuð af hinum heimsj
fræga leikstjóra Christian Jaque.
Sagan hefur nýlega birzt sem!
framhaldssaga í danska vikublað j
Inu Familie Journal og einnig íj
tímaritinu Heyrt og séð.
Sýnd sunnudag og mánudag
kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ
Sfml 6485
Vinirnir
(Pardners)
Bráðfyndin ný amerísk litmynd.
Aðalhlutverk:
Dean Martin
Jerry Lewis
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ
Svarti kötturinn
(Seminole Uprising)
Spennandi og mjög viðburðarík
ný amerísk mynd í litum. Byggð
á skáldsögunni „Bugle Wake“ eft
ir Curt Pranden.
George Montgomery
Karen Beeth
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 12 ára
HAFNARBIO
Dóttir höfuðsmannsins
(La Figlia del Capitano)
Spennandi ítölsk kvikmynd eftir
sögu A. Pushkins.
Irasema Dilian
Amadeo Nazzari
Bönnuð 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TRIPOLI-BÍÓ
Slml 1182
TiIrætJiÖ
(Suddenly)
Geysispennandi og taugaæsandi,
ný, amerísk sakamálamynd. —
Leikur Franks Sinatra í þessari
mynd er eigi talinn síðri en í
myndinni „Maðurinn með gullna
arminn“.
Frank Sinatra
Sterling Hayden
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
bMW
i- HAFNARFIRÐI —
Þegar óskirnar rætast
Ensk litmynd í sérflokki. Bezta
mynd Carol Reeds, sem gerði
myndina „Þriðji maðurinn".
Diana Dors
David Kossoff
og nýjar barnastjarnan
Jonathan Ashmore
Sýnd kl. 7 og 9.
Myndin hefi rekki verið sýnd áð-
ur hér á landi. Danskur texti.
MARTHA OSTENSO
RÍKIR SUMAR
1 RAUÐÁRDAL
5 4
sex mílur — og borið Karsten
og þessa þungu tösku. Ef þér
bíðið til morguns, þá mun
Steve fara með ykkur í vagn
inum.
— Hér er um nokkuð að
ræða, sem þér ekki skiljið,
sagði ívar. Það er ekki það,
sem gerðist þarna úti, sem
máli skiptir, heldur allt ann-
að og ég verð að ganga úr
skugga um það strax. Og þess
vegna fer ég nú strax.
Hann heyrði að Kate and-
varpaði. — Þér gætuð að
minnsta kosti skilið töskuna
eftir og Steve fer með hana í
fyrramálið. Ég skal gæta henn
ar fyrir yður.
ívar vóg töskuna í hendi
sér. Hún myndi verða allmiklu
þyngri um það bil hann hefði
gengið sex mílur og það á vegi,
sem var fullerfitt að feta sig
eftir laus og liðugur í þreif-
andi myrkri. Auk þess hafði
Kate Shaleen talað eins og
hún væri að biðja um pant til
staðfestingar á vináttu þeirra
og því, að hann væri ekki reið
ur við hana.
— Það myndi vera betra að
vera laus við hana, játaði
hann. En ég get sótt hana
sjálfur.
— Þér eruð mjög þrár mað
ur, ívar Vinge, sagði Kate
hæglátlega.
— Um það veit ég ekki,
svaraði ívar, en þér. .. .hann
hikaði um stund til að velja
réttu oröin. — Þér eruð göf-
ugmannleg, sagði hann með
áherzlu um leið og hann lyfti
Karsten hærra á öxl sér og
gekk af stað.
XIII. kafli.
Himinninn var heiðskír og
öll regnský horfin. Það var
auðvelt að fylgja götuslóðan-
um í stjörnuskininu, þegar
hann fór að venjast birtunni.
Það var líka þurrt um, en
þægilega svalt, því að utan
af sléttunni barst hægur and-
vari fullur af vorilman og un-
aði. Karsten var ekki svo
þungur, að karlmann munaði
um að bera hann, en hitt var
þó annað mál, hvort honum
myndi finnast það sama um
það bil hann næði heim. En
hann hugsaði lítið um það. í
huga hans komst ekkert ann-
aö að en það, að hefði hann
ekki farið að heiman, þá
myndi hann ekki núna vera
að reyna að má út úr huga
sínum minninguna um Char-
les Endicott eins og hann sá
hann seinast, þar sem hann
var úti á akrinum sínum að
plægja með þrem spýtum, er
hann hafði bundið saman eins
og plóg og beitti fyrir grind-
horuðum hesti. Þá myndi
hann ekki heldur vera að velta
því fyrir sér eins og hann var
núna, hversu Magdali hefði1
flýtt sér að grípa tækifærið
— auðvitað með hjálp Roalds ‘
— og ekki einu sinni hirt um ^
að bíða eftir honum til að.
spyrja um hans álit.
Skerandi sársauki í hryggn
um minnti hann aftur á,1
hvernig hornið á veitingaborð
inu hafði skorizt inn í bakið,
á honum, þegar hann hrökkl,
aðist aftur á bak undan j
sparki Ungers. Hann setti Kar j
sten á jörðina hálfvakandi og
settist niður til þess að láta 1
þrautina líða hjá. Hann.
skammaðist sín sárlega þarna |
í myrkrinu fyrir að hafa látið
náunga þennan koma sér'
svona að óvörum. Hann hefði
mátt vita við hverju var að
búast. Nú jæja, hann myndi j
sjálfsagt læra þetta áður en [
lyki. Var ekki Magdali alltaf,
að segja honum að hann ætti
svo margt ólært? Það var al-
veg rétt hjá henni. En auð-
vitað hafði hún ekki haft í
huga neitt þessu líkt, hugs-
aði ívar og brosti meinlega,
þar sem hann sat einn þarna
í myrkrinu.
Hann var í þann veginn að
lyfta Karsten aftur upp á öxl
sér, þegar hann veitti því at-
hygli, að hann hafði einmitt
setið í útjaðri þess svæðis, þar
sem áður stóð þorpiö Lost
Coulee. Hann litaðist um í
stjörnuskininu. Svæðið var al-
gerlega yfirgefið og tómleik-
inn einn eftir. Tómleikinn var
meiri, enn meiri en ella, sök-
um þess að þarna hafði ,þó líf
giiiiiiiiiiiiiiiiimimúMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiuuiiiiiiiiiiiiiiuiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiani
I TILKYNNING I
ið haft aðsetur fyrir skömniu
en síðan hórfið á brott. Hann
lyfti drengnum upp og hrað-
aði sér á brott.
Klukkustund síðar kom
hann að girðingastrengnum,
sem markaði ytri mörk hveiti
akurs hans. Það voru einmitt
fyrstu ekrurnar, sem hann
braut, þegar hann vítr hér
einn síns liðs. Hann var kom
inn heim núna, fannst hon-
um, enda þótt húsið þar sem
Magdali hvíldist og svaf, væri
aðeins óljós þústa í rökkrinu.
Magadli hvíldist og svaf, væri
að hér, þar sem hann hafði
fyrst lagt hönd á plóginn og
talað við uxana sína, myndi
ávallt verða hans heima. Á
komandi árum myndi hann
standa hér, þegar erfiðleikar
steðjuðu að, og finna kyrrlát-
an straum friðar og - rósemi
streyma um hug sinn og
hjarta frá safaríkri jörð.
Það var Roald, sem kom og
hleypti slagbrandi frá útidyr-
um. — Bövelen, ívar, hvaöan
kemurðu?
— Ég kom frá Burbank —-
við Karsten báðir, svaraði
ívar honum kurteislega. Það
var gott að vera kominn heim
og skipti þá ekki máli, hversu
ömurlegir atburðir hefðu orð
ið þess valdandi að hann í
dögum reikaði örþreyttur inn
um sínar eigin húsdyr.
Hann setti Karsten niður og
kveikti á eldspýtu. Um leið og
bjarminn lýsti upp herbergið,
kom Magdali í dyrnar á innra
herberginu og hafði vafið um
sig teppi. — ívar, sagði hún,
er eitthvað að Karsten? Er
Karsten....
— Karsten er eins heil-
brigður og þegar hann fór að
heiman, flýtti ívar sér að
segja. Og það hefir ekkert það
komið fyrir, sem við getum
ekki kippt í lag, ef við aðeins
kærum okkur bæði um það.
frá
Menntaskólanum í Reykjavík
Umsóknir um inntöku í skólann ásamt skírnarvott- |
| orði og landsprófsskírteini skulu hafa borizt rektor 1
!| fvnr 20. ágúst, en æskilegast, að þær berist fyrir 5. |
! | júlí. |
i E Rektor
' niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinuiijiHiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiuuiiiðl
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiniiiiii|||ii»iiiiB®*,1||ll|lllllllllllllllllllllllllllllll,llllinilllllimllllllllllulutnu,iniimiinmilll,IIBI,ll,2
I Litlu hvítu rúmin í barnaspítala Hringsins |
FORELDRAR!
3
Leyfið börnum yðar að hjálpa okkur á morgun (föstudag)
við að selja merki, sem afgreidd verða frá kl. 10 f.h. á eftir-
töldum stöðum: Garðastræti 8, miðhæð, Melaskólanum (í-
þróttahúsinu), Miðbæjarskólanum, Austurbæjarskólanum
(Vitastígsmegin), Laugarnesskólanum, Langholtsskólanum,
Háagerðísskólanum og Kópavogsskólanum. Góð sölulaun. —
Með fyrirfram þakklæti.
Fjáröflurtarnefndin.
ÍiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiMiiin