Tíminn - 10.07.1957, Blaðsíða 12
VeSrið:
Hæg breytileg átt, skúrir síðdeg-
is, annars víða léttskýjað
Hitinn kL U:
Reykjavík 15 stig, Akureyri 10,
Ósló 15, New York 27, París 22.
, d- í
Miðvikudagur 10. júli 1957.
^ýzk óperusöngkona syngur hér
í vegum Tónlistarfélagsins
Komin er hingað til lands á vegum Tónlistarfélagsins,
■>ýzka óperusöngkonan Herta Töpper, ásamt manni sínum
7ranz Mixa, sem íslendingum er að góðu kunnur frá fyrri
írum. Ætlar óperusöngkonan að syngja hér fyrir styrktar-
Tieðlimi Tónlistarfélagsins á tveimur söngskemnitunum á
’immtudag og laugardag.
Iíerta Töpper óperusöngkona er
mikiliwirt söngkona í heimalandi
Svona þeyta borholurnar við Námaskarð gufunni upp í loftið ár og síð. Lítil breytinq verour á þeim. Ef til viil
líður ekki á löngu áður en farið verður að nota þetta afl og efni gufunnar til efnoiðnaðar, t. d. að gufan verði
notuð tii að nýta bofnleirinn við Mývatn. (Ljósm.: Guðni Þórðarson)
Tilraunir hafnar með
botnleirnum upp úr Mývatni
Blaöamenn áttu viðræðufund
með hjiónuuum í gær, ásamt for-
A-arsmiönnuin tónlistarfélagsins og
var þar skýrt frá þessum fyrirhug-
uðu tónleikum.
Þau hjónin koana hingað í sum-
arleyfi og ætla að dvelja her f
lan-di am þriggja vikna skeið eftir
ið söngskemmtunum er lokið.
Starfaði hér lengi
að tónlistarmátum.
Óþarft er að kynna Franz Mix?
þeim fslendingum, sem muna tór
listarviðburði liér á landi fyri*
stríð. Hann kom liingað til land
árið 1929 til þess að undirbú"
hljómlist vegna Alþingishátíðar
inar og síðan var hann skóla
sijóri Tónlistarskólans á fyrsti'
árum lians. Ilaim stjórnaði hé'
þá hljóinsveit og óperuflutningi
sem þólti þá tíðinduin sæta í höf-
uðstað landsins.
Herta Töpper
Stórvirk dæla dælir honum upp í lokað
lón, |>ar sem vatnií á aí síga úr honum
Jafnframt hafnar rannsóknir á gerð hans og
efnagreining framkvæmd
Um þcssar mundir eru að hefjast framkvæmdir við að«dæla
í tilraunarskyni botnleðju úr Mývatni. Hafa tæki til þess verið
flutt norður og er verið að koma dælum fyrir. Blaðið átti tal
við Baldur Líndal, efnafræðing, sem hefur umsjón með þessu
í gær og kvað hann þctta einu tilraunaframkvæmdirnar, sem
gerðar verða við Mývatn í sumar og ekki yrði um neinar fram
kvæmdir í Námaskarði að ræða.
Eius og kunnugt er fór fram at-
hugun á botnteir Mývatns fyrir
nokkru og komust menn að þeirri
niðurstööu að í botni vatnsins væri
á vissum svæðum geysimikið magn
af Msilleir, mynduðum af kísilþör-
ungum, og væri ekki ólíklegt, að
leir þennan mætti nota sem hrá-
efni til efnaiðnaðar. Nú eru rann-
sóknir á vinnslu hans og samsetn-
inu að hefjast.
Dælt upp við Reykjahlíð.
Dæla sú, sem nota á svo og fleir'
áhöld, hefir nú verið flutt norður
Búið er að hlaða fyrir grunnan vog
og gera uppistöðulón í svonefndum
i Helgavogi í Reykjahlíðarlandi. o;
er ætlunin að dæla botnleiðjunn
inn í þá uppistöðu, lóta þar síga úr
I henni og rannsaka hana nánar. Er
! notuð til þessa stórvirk véldæla 6
1 þumlunga.
Tékkneskur dagur á vörusýning-
unni í Austurbæjarskélanum í gær
í gær var dagur Tékkóslóvakíu á vörusýningunni í Austur-
bæjarskólanum. og af því tilefni bauð sendifulltrúi Tékka hér
Jaroslav Zantovský, og framkvæmdastjóri tékknesku sýning-
ardeildarinnar Véroslav Cubr allmörgum gestum að skoða sýn
inguna í gærmorgun. Var þar á meðal ríkisstjórn, ýmsir kaup-
sýslumenn og fréttamenn útvarps og blaða.
Sendifulltrúinn ávarpaði gesti og
framkvæmdastjórinn ræddi nokk-
uð um viðskipti íslendinga og
Tékka og þátttöku Tékka í þessari
sýningu. Er gestir höfðu skoðað
sýninguna var þeim boðið til hress
ingar í Þjóðleikhúskjallaranum.
Sýningin hefur verið allvel sótt
®g vekja margar vörur þar athygli
einkum ýmsar tæknivörur. Sýning
anni er einkar smekklega fyrir
komið.
By r j unarf ramkvæmdir.
Tilraunir þessar eiga að svara
ýmsum spurningum varðandi leir-
vinnsiu úr botni Mývatns. Þær eiga
að skera úr um það, hvernig hag-
kvæmast sé aö ná leirnum og hvort
hægt sé að láta síga úr honum með
þessum hætti. Samtímis verður leir
inn nákvænvlega efnagreindur og
athugaðir möguleikar á vinnslu
hans, t. d. hvort heppilegt sé að
flytja hann upp í Námaskarð og
þurrka við gufu eða vinna á ann-
an hátt.
Gufumagnið lítið breytt.
Baldur sagði, að engar boranir
eða aðrar framkvæmdir mundu
fara fram i Námaskarði í sumar.
Þó væri alltaf fylgzt með holunum
og gufuþrýstingur mældur. Virtist
svo, sem gufumagn borholanna
breyttist lítið þótt tíminn líði.
Forsetahjónin heimsækja Snæfell-
inga, Dalamenn og Barðstrendinga
Forseti Islands, herra Asgeir
Ásgeirsson og forsetafrú Dóra
Þórliallsdóttir fara í opinbera
heimsókn vestur í Snæfells- og
Hnappadalssýslu nú um lielgina.
Verða þau í Stykkishólmi á laug-
ardag 13. júlí, en niunu síðan
ferðast víðar uin héraðið á sunnu-
dag og mánudag.
Um helgina 20. til 21. júlí
inunu forsetahjónin fara í heiin-
sókn í Dalasýslu og Barðastrand-
arsýslu. Verða þau í Búðardal á
laugardag og í Bjarkarlundi í
Þorskafirði á sunnudag, og munu
síðan koina víðar við í þessum
sýslum á heimleiðinni.
(Frá skrifstofu forseta íslands).
NOBELIUM-
er nýjasta frumefnið
Stokkhólmi—NTB. 9. júlí: Sænskir
bandarískir og brezkir vísinda-
menn við sænsku Nóbels-vísinda
stofnunina hafa uppgötvað nýtt
geislavirkt frumefni. Ber það nafn
ið NOBELIUM og er nr. 102 í
röðinni. Siðustu frumefnin er upp-
götvuð hafa verið eru Plutonium,
Americum, Curium, Derkeliuin,
Kaliforniuin, Einsteinium, Ferini-
um, Medelevium og síðast NOBEL
IUM.
Landsleikur í knattspyrnu við Dani
háður á Laugardalsvellinum í kvöld
Annar leikurinn í Afraælismóti Knattspyrnumóti íslands
verður háður 1 kvöld og hefst kl. 8.30. Þá leika Danir og ís-
lendingar fimmta landsleik sinn í knattspyrnu. Hingað til
hafa Danir alltaf unnið með miklum yfirburðum og eftir leik
íslenzka liðsins gegn hinu norska á mánudaginn virðist allt
benda til, að Danir hljóti fimmta sigur sinn gegn ísJandi í
kvöld.
f GÆR kom til skothríðar á milli fsra
elskra og sýrlenzkra landamæra-
varða. Síðustu fregnir hermdu, að
gæzluliði S. þ. hefði tekizt að
stöðva skothríðina.
ENN ER mikil hitabylgja á megin-
landi Evrópu, þó að hitinn fari
minnkandi annars staðar en ó ít-
aiíu, þar sem 140 manns hafa far-
izt af völdum hans.
TVEIR háttsettir kommúnistaleiðtog-
ar í stjórnmálanefnd rúmenska
kommúnistaflokksins voru í gær
sviptir stöðum sínum. Sagt er, að
þeir hafi „iofað bót og betrun".
Vefnaðarvara a taKknesku vörusýningunni vekur athygli, ekki sizt kvenþjóðarinnar, encla eru Tékkar þaulreynd
iðnaðarþjóð, ekki sízt í gerð klæðaefna. Myndin er tekin í gær, er gestir skoðuðu sýninguna. Ljósm.: P. Tomsen
Islenzka landsliðið, sem leika á
í kvöld, hefir verið valið og kemur
aðeins einn nýr maður í liðið,
Gunnar Guðmannsson, KR, sem
leikur á hægra kanti í stað Hall-
dórs Sigurbjörnssonar. Þá skitpa
þeir Halldór Halldórsson og Krist-
inn Gunnlaugsson um stöður. Rétt
hefði verið hjá landsliðsnefnd að
gera meiri breytingar á liðinu, því
sumir af leikmönnunum verð-
skulda alls ekki að vera í liðinu eft
'i- frammistöðuna á mánudag. En
við skulum vona að liðinu takiz.t
vel upp í kvöld, því ísl. knatt-
spyrnumenn geta sýnt miklu betri
leik en reyndin varð gegn Norð-
mönnum.
íslenzka liðið er þannig talið
frá markmanni að vinstri útherja.
Iíelgi Daníelsson, Halldúr Ilall-
dórsson, Jón Leósson, Sveinn
Teitsson, Kristinn Gnnnlaugsson,
Guðjón Finnbogason,. Gunnar
Guðmannsson, Ríkarður Jónsson,
Þórður Þórðarson, Álbert Guð-
mundsson og Skúli Nielsen.
Miklu réttara virðist að láta Hall
dór Halldórsson leika vinstri bak
vörð, því hann er tvímælalaust bezt
ur varnarleikmanna okkar, en bezti
maður danska liðsins, Jens Peter
Hansen, leikur einmitt á hægra
kanti.
Danska liðið er þannig skipað:
Ilenry Form, AGF, Dan Ohiand
Andersen, AB, Bjarke Gundlev,