Tíminn - 26.07.1957, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.07.1957, Blaðsíða 8
Veðrið: Austan og norðaustan gola, skýj að og lítls tóttar rigning. Hitinn kl. 18: Reýkjavík 14 stig, Akureyri 18, London 18, París 23, Kaupm.h., 15, New York 28. Föstudagur 26. júlí 1957. Binn nýi íorseti var þjófthetja sjálfstæíis- baráttu Túnishúa Tunis—NTB 25. júlí: Þjóðþingið í Túnis samþykkti í dag sam- (Újóða ályktun, þar sem því var lýst yfir, að landið hefði verið ^ert að lýöveldi og beyinn Sidi Mohammed sviptur stöðu sinni Múgur og margmenni beið fyrir utan þinghúsið og fagnaði ákvörðun þingsins með klappi og húrrahrópum. FiskveiSar eru okkur Islendingum í blóð bornar, og sést það bezt á þess- «rl mynd, sem tekin er niður við Tjörn fyrir nokkrum döqum , af þessum ongu drengjum, er þeir voru að veiöa síli. Drengjunum fannst veiðin ekki ganga nógu vel fyrir sig, og þá var ekkert annað að gera en að fara jr skóm og sokkum, bretta upp skálmarnar og vaða á eftir sílunum. — Aðferðin að reyna að grípa sílin með berum höndunum heppnaðist ekki vel, því að buslugangurinn var nokkuð mikill, er drengirnir óðu um i Tjörninni. (Ljósm.: Jón H. Magnússon). Brezkar flugvélar ráðast enn á virki uppreisnarmanna í Oman Lloyd varar menn við furíiufregnum frá Kairó London— NTB 25. júlí: Nokkrar orrustuflugvélar brezka flug- hersins fóru enn í dag til árása á virki uppreisnarmanna í Oman og Muskat skammt frá bænum Niwsa, en þar eru aðal- feækistöðvar þeirra. Flugvélarnar létu eldflaugar og vél- feyssuskothríðina dynja á bækistöðvunum. Flugmennirnir höfðu þá sögu a'ð segja, að þeim hafði tekizt að vinna mikið tjón á virkjunum, en ekki sáu þeir til neinna manna- ferða. Áður hafði flugritum verið varpað og menn varaðir við va>ni anlegri árás og ráðlagt að haia sig á brott frá virkinu. Aðeins fjórar þrýstiloftsvólar tóku jþátt í árás- inni. Stór barnaskóli byggur að Lauga- landi í Holtum Hvolsvelli í gær. — Hafin er bygging á stórum lieimavistar- barnaskóla að Laugalandi í Holtalireppi, og á skólinn að verða fyrir þrjá hreppa, Holta- lirepp, Ásahrepjj og Landmanna hrepp. Að Laugalandi er félags heimili þeirra lloltamanna, og þar er einnig sundlaug fyrir. — Ráðgert er að nota samkomusal félagsheiniilisins sem íþróttasal fyrir skólann. Hinn nýi barna- skóli verður hitaður upp með jarðhita. Yfirsmiður við þessa stórbyggingu sem er á 6. hundr að fermetrar að grunnfleti, er Sigurður Haraldsson frá Hellu. Þá er einnig verið að reisa nýjit kirkju að Eyvindarholtum í A- Eyjafjallahreppi. Kirkjusmiður er Þorsteinn Jónsson Drangs- hlíðardal. FE. ! Flugskeytum skotií í Kanada til rannsókna á háloftunum _ Fort Churchill-Manitoba 24. júlí. í dag var flugskeýti skotið upp í fcáloftin frá sameigin'legri rann- E iknarstöð Bandaríkjanna og Kan Kda frá Fort Churehill í fylkinu ílanitoba. Miða rannsóknir þess- Ei' að því að efla frekari þekkingu é háloftunum í sambandi við hið íílþjóðlega jarðeðlisfræðiár. Flug- fekeytið fór upp í 80 km. hæð með 1.100 metra hraða á sckúndu. Tilkynningar frá Kairó. Talsmaður imans, trúarleiðtoga landsins, sem stendur að baki upp reisnarmanna, sagði í Kairo í dag, að einn af fulltrúum soldánsins hefði beðið bana og brezkur liðs foringi særzt af völdum sprengju er þeir hefðu farið í heimsókn til aðalstöðva uppreisnarmanna fyrir skömmu og óskað eftir vopnahléi. Tadsmaðurinn sagði, að brezki iiðs foringinn hefði alvarlega særzt og verið fluttur til herstöðvar Breía í Aden. Fréttinni uni vopnahléstil boðið hefir þegar verið vísað á bug af brezkum yfirvöldum. Vilja koina á friði. Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra Breta, fluiti ræðu í dag í neðri deildinni og kvaðst vilja vara menn við því að leggja trúnað á þær fréttir er bærust frá Kairo um at burðina í Oman og Muskat. Það væri stefna brezku stjórnarinnar aö koma sein fyrst á friði á þessum slóðum sem annars staðar, afstaða bandarísku stjórnarinnar væri hin sama. Talsmaður stjórnarandslöð- unnar, Aneurin Bevan lcvaðst viija gagnrýna það framferði stjórnar innar að hafa ekki alltaf á reiðum höndum upplýsingar handa þing- mönnum um hið raunverulega á- stand í Oman og Muskat. Bevan krafðist þess, að stjórnin gæfi yf- irlýsingu um málið þegar í byrjun næstu viku. Að atkvæðagreiðsluuni iokinni var Hagib Bourgiba foi'sætisráð- herra einróma kjörinn lorseti hins nýja lýðveldis. Ilinn nýi forseti Túnis hefir ver ð forsetisráðherra síðan í apríl, jn hefir um lang tárabil verið með al heiztu stjórnmálamanna lands- ',ns og' ætíð fremstur í flokki í sjáif stæðisbaráttu landsins. Hann er fæddur aí fátæku íorseldri í smá- þorpi sunnan við borgina Túnis og er yngstur af 6 systkinum. Mikill samningamaður. Hann fór á unga aldri til Frakk lands, þar sem hann nam lögfræði kvæntist þar, en að námi loknu fór hann þegar heim og tók virkan þátt í stjórnmálabaráttunni. Hann er gæddur miklum samningahæfi leikum svo og frábærum dugnaði. Það er einkum þakkað þrotlausri baráttu Bourgiba, að árið 1956 veittu Frakkar Túnisbúum heima- stjórn og algjört sjálfstæði tæpu ári síðar. Bourgiba var einn af helztu hvatamönnum að stofnun Neo Destourflokksins, en meginmál hans var að vinna að sjálfstæði landsins. Vel búið að beymtin. Um Ieið og atkvæðagi-eiðslan iiafði farið írain í liöHiuni yfir gaf beyinn og ríkiserfinginn höll beyans og óku til skrauthýsis fyr ir utan borgina í lögreglufylgd, en þar nnin beyinn liafa aðsetur. Bourgiba lýsti því yfir í dag, að það yrði að sjálfsögðu vel að beymun búið svo og fjölskyWti lians. Sætti aukinui gagnrýni. Hinn 73 áar gamli beyi liefir set ið að völdum í Túnis í 14 ár, en vinsældir hans hafa ekki farið vax andi. Hann hefir að því að segt er, safnað óheyrilegum auði og lif að i vellystingum. Hann heiir aldrei verið ráðamaður í landinu, en lítil völd hans urðu engin er hin mikla þjóðernisalda gekk yfir landið. Hann hefir ætíð verið tal inn hlynnlur Frölrkum og hægfara breytingum í frelsisátt. Upp á.síð kastið hefir hann orðið fyrir síauk inni gagnrýni ýmissa innlendra stjórnmálamanna, ekki sízt Bour giba forseta. Hann er kvæntur og á 3 syni og 9 dætur. BOURGIBA hinn nýi forseti Túnis TÚNIS, yngst lýðveldi heimsins sést lengst til vlnstri á kortinu. Biskup messar á Ólafsvöku í Færeyjum Kaupmannahöfn í gær. — í fyrsta sinn í sögu færeyska lög- þinsins mun biskup halda guðs- þjónustu á Ólafsvökunni hinn 29. júlí, en þá kemur þingið saman. Það er Fuglsang Daggaaixi, biskup sem dvelur í Færeyjum um þessar mundir. Guðsþjónustunni verður útvarpað um hina nýju útvarps-, stöð Færeyja. —Aðils. Sjúkov ekki boðið til Bandaríkjanna Washington. — IlaCt er eftir ýmsum embætlismönnum stjórnar innar í Washinglon, að engar á- mannafundi sein skömmu að eí til vill væri gagnlegt að koraa á fundi landvarnaráðherranna Wil- sons og Sjúkovs. Þetta mun ekki hafa alls staðar mælzi vel fyrir vestan hafs og ýmsir þingmenn repúblíkanaflokkisins lýstu því yf- ir að þeir myndu beita sér gegn héimsókn „slátrarans frá Buda- pest“. 49 býli í landeyjum íá nu Sogs- rafmagn frá nýrri háspennulínu Sii aum var hleypt á tessa línu í gær og byrjaft aft tengja heimtaugar vií hana Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli í gær. í dag var hleypt straum á háspennulínu, sem liggur um V- Landeyjr.r og nær auk þess til sex býla í A-Landeyjum og Voð múlastaðakapeilu. Er nú þessa dagana verið að tengja býlin við háspennulínuna. Með þessum framkvæmdum fá 49 býli í Austur- og Vestur-Landeyjum Sogsrafmagn. Á V-Landeyjum fá 43 býli raf- magn frá þessari lfnu og einnig félagsheimili V-Landeyinga, Njáls búð og kirkja þeirra að Akurey. Iíeimtaugargjaldið er 60% af sam anlögðu fasteignamati jarðar og húsa og auk þess 3 þús. kr. grunn- gjald á hverl býli. Háspennulína þessi er framháld línunnar sem liggur um Hvolsvöll austur á bóginn. Unnið var að þess ari línulögn aðallega í vctur, en sí'ðan hefir verið unnið að raflögn um að bæjum, og mun þó vera nokkuð ógert af því enn. PE Vatnsskortur í Færeyjum Kaupmannaliöfn í gær. — í Fær eyjum hellr sumarið verið svo þurrt fram að þessu, að menn muna ekki annað eins. Síðustu þrjá mánuðina hefir verið mjög iströng vatnss'kömmtun í Þórshöín. og falti ekki regn næsta hálfan mánuð verður þar mikill rafmagns skortur, þar sem raforkuver í Voátmanna, sem þrjár stærstu eyj arnar íá ralmagn frá, mun þá því næst stöðvast. — Aðiis. Haíníirðingar sigruðu KR 3-1 FeHur KR niíur í 2. deild ? í gærkvöldi fór fram mjög þýðingarmikill leikur í 1. deildarkeppninn á íþróttavellinum í Reykjavík. Þar léku tvö af neðstu liðunum í deildinni Hafnfirðingar og KR. Leikar fóru þannig að Hafnfirðingar sigruðu 3:1, í hálf leik stóðu leikar 1:1. Mörk Hafnfirðinga skoruð Sigurjón, Albert og Ásgeir. Fyrir KR skoraði Hörður Felixsson. Ettir þessi úrsiit tryggðu Hafnfirðingar sé nokkuð ör ugglega sæti í deildinn næsta ár.. — KR eru nú neðst í deiidinni ásamt Akureyringum. En; Akureyringar eiga eftir cð leika við Val og KR við Akurnesingar svo aS úrslit eru ekki enn kun varðandi hvaða lið fellur niður í 2. deild. — Talsverður f jöldi áhorfénda var á vellinum í gær og mikíll spenningur var um hver úrslitin myndu verða. Hornsílin veidd með berum höndum Lýðveidi stofnað í Túnis - Bourgiba kjörinn fyrsti forseti landsins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.