Tíminn - 10.08.1957, Side 1
Bimar TÍMANS eru nú
Ritstiérn og skrlfstofur
18300
SlaSamenn eftlr kl. 18:
18301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 10. ágúst 1957.
Auglýtlnyasiml TÍMANS ar aéi
1 95 23
AfgrelSsluslml TÍMANSi
1 23 23
175. blað.
Heybruoi á Rauða-
sandi
í fyrradag kom upp eldur í
stórri heyhlö'ðu ,að Stökkum í
Rauðasandshreppi. í hlöðunni
voru um 300 hestar af töðu, sem
vár vel þurr. Margt manna kom
til slökkvistarfs svo og slökkvi-
liðið á Patreksfirði. Tókst að
bjarga um 200 hestum úr hlöð
unni en 120 hestar eyðilögðust
og hlaðan stórskemmdist. Talið er,
að vatn hafi komizt inn úm vegg
sprungu og raki upp um gólf
hlöðunnar og hafi það myndað
hita í heyinu svo að sjálfkveikja
varð úr.
Fram-Ðynamo á
sunnudagskvöldið
Á sunnudagskvöldið keppir
Fram sem Reykjavíkurmeistarar
á móti llynamo með óstyrktu
liði. Keppt verSur á Melavellin
um. Lið Frani er þannig skipað,
talið frá markverði lil vinstri
útherja: Geir Kristjánsson, Gunn
ar Leósson, Giiðmundur Guð-
mundsson, Reynir Karlsson,
Halldór Lúðvikss. líinrik Láruss.
Karl Rergmaen Björgv. Árnas.
Dagbjartur Grímsson, Guðmund
ur Óskarsson og Skúli Nielsen.
Varamenn: Raldur Skaftason,
Baldur Scheving, Rúnar Guð
mundsson og Grétar Sigurðsson.
Stoíinn jeppi finnst
á öskuhaugunum
í fyrrinótl var stoíið bifreið sem
stóð inni á lóð hússins Efstasund
64. Þetta er jeppabifreið, R-9674,
eigandi Iíarl Pétursson. Bifreiðin
fannst eftir hádegið í gær austur
á öskuhaugum. Hún mun hafa ver
ið óskemmd, en búið var að steia
varahjólinu.
Missti tvo fingur
í saxblásara
Selfossi í gær. — Fyrir nokkrum
dögum bar svo við, að ungur mað
ur í Vestur-MeSaliholti í Gaulverja
bæ missti tvo fingur í saxblásara.
Var verið að blása vötheyi í turn,
ér saxblásarinn stáflaðist. Maður
inn stöðvaði blásarann og fór síð
an að reyna að hreins úr honum,
en saxarinn snerist þá enn og tók
af vísifihgur og löngutöng' vinstri
handar. Maðurinn heitir Helgi ív-
ársson.
-Fréttafrelsi- komm-
únista í Á-Berlín
BERLÍN, 8. ágiist, NTB. — Frétta
menn og ljósmyndarar frá vestur-
löndurn og komnir voru til Berlín-
ar í því skyni að fylgjast með
heimsókn rússnesku leiðtoganna,
hafa sætt hinum mestu afarkost-
um af hálfu austur-þýzkra stjórnar
valda. í fyrsta iagi var tilkynnt
að ekki fengi nerna einn fréiita-
maður frá hverju blaði eða frélta-
stofu, að fara til A-Berlínar, og í
öðru lagi máttu þessir fáu aðcins
vera viðstaddir fjögur atriði í sam
bandi við heimsóknina. Þá er þenn
og bannað með öldu að fylgjast
ineð ferðalagi Sovétleiðtoganna að
lokinni heimsókninni til Berlínar.
Þá urðu fréttaritararnir að híða
margar klukkustundir eftir því að
þeim yrði afhent skilríki til að
vcra viðstaddir hvern einstakan at-
burð.
Sendiráðherra Finnlands
Stöðumælar við götur
teknir í notkun á mánud.
Komið verður upp 275 stöðumælum við
allar helztu umferðargötur í miðbænum
Á mánudaginn verSa teknir í notkun í Reykjavík stöðu-
mælar fyrir bifreiðar við nokkrar fjölförnustu götur bæjar-
ins. Er hér um að ræða nýjung, sem gera má ráð fyrir að hafi
talsverðar breytingar í för með sér varðandi stöður bíla í mið-
bænum. Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri, Erlingur Pálsson
yfirlögregluþjónn og Valgarð Briem framkvæmdastjóri um-
ferðarnefndar áttu fund með blaðamönnum i gær og skýrðu
frá uppsetningu og notkun stöðumælanna.
Er Hrímfax’, millllandaflugvél Flugfélags íslands, kom hingað til Reykja-
vikur í fyrrakvöid, var sendiráðherra Finnlands á íslandi, Eduvard H. J.
Palín, meðal farþega. Sendiráðherrann kom frá Osló, þar sem hann hefir
aðsetur. Eggert Kristjánsson stórkaupmaður aoalræðismaðor Finnlands á
íslandi tók á móti Patín sendiráðherra á flugvellinum. Finnlandsforseti
kemur á þriðjudaginn. (Ljósm.: Sv. Sæm.l.
Breska herst jórnin á Kýpnr nemnr ár
giSdi versin ákvæSi öryggislaganna
NTB-Nicosia, 9. ágúst. — Brezku hernaðaryfirvöldin á Kýp-
ur felldu úr gildi í dag 35 ákvæði öryggislaganna, sem þar
hafa verið í gildi um tveggja ára skeið. Meðal ákvæða, sem
niður eru felld, er réttur hernaðaryfirvaldanna til að ritskoða
blöð og útvarpsefni og hlera símtöl. Þá er heldur ekki lengur
hægt að setja útgöngubann né banna fundahöld.
Þetta er í annað sinn, síðan
Að þessu sinni verða settir upp
100 stöðumælar á stólpa, sem búið
er að koma fyrir á gangstéttar
brúnum og vegfarendur í Reykja
vík hafa veitt athygli að undan-
förnu. í stöðumælinum er klukka
sem sett er í gang um leið og pen
ingur er látinn í tækið. Er því liér
um að ræða einskonar leigu á
bílastæði um ákveðinn tíma. Þeg-
ar sá tími er liðinn kemur rautt
merki upp í stöðumælinum og' er
því fljótséð ef einhver syndaselur
vanrækir að flyt.ia bifreið sína úr
stæði, eða lætur ekki gjald í að
nýju, ef bifreiðin þarf að standa
lengur.
Stöðumælir í 15—30 mín.
Þeir stöðumælar, sem fyrst
verða settir upp við aðalgötur í
miðbænum mæla allt a'ð hálfri
klukkustund, en í þann tíma má
geyma bíl á saina stæði, enda
séu tveir krónupeningar látnir
í mælitækið, og það trekkt upp
um leið. Vegfarendur og lögregla
geta því au'ðveldlega fylgst með
ef bílar standa ólöglega og verð
ur beitt sektum, ef ákvæði eru
brotin. Fyrst um sinn verður þó
farið vægt í sakir og mönnum
leyft að greiða beint á lögreglu-
stöðina 20 króna sekt fyrir fyrsta
brot og losna þá við allt vafstur
og sakaskrá.
Langt er síðan fyrst var vakið
máls á því að setja upp stöðumæla
hér í Reykjavík, enda er búið
að nota slíkt fyrirkomulag um 23
ára skeið í Bandarikjunum, en í
Evrópu eru slíkir mælar aðeins
komnir í notkun í tveim.ur lönd-
um, Svíþjóð og Finnlandi, en í
undirbúningi er að koma þeim upp
í mörgum borgum annarra landa.
í nokkrum þessara landa er þegar
búið að afla nauðsynlegra laga-
(Framhald á 2. eíðu.)
Dularfullt ferðalag
pólskra kafbáta
NTB—Lundúnum, 9. ágúst.
Brezka flotamálaráðuneytið hefir
nákvæmar gætur á pólsku kafbát
unum tveimur, sem liggja ofan
sjávar um 30 sjóniílur undan
austurströnd Skotlands og hafa
stefnu uður á bóginn. Talsmaður
ráðuneytisins sagði, að flugvélar
flotans hefðu fyrst orðið bátanna
var, en tók fram, að kafbátun
um væri að sjálfsögðu frjálst
að fara ferða sinna svo lengi
sem þeir væru utan enskrar
landheigi. Utanríkisráðuneytið í
Lundúnum kvað sér með öllu ó-
kunnugt um ferðir bátanna. Er
jafnvel haldið fram í Lundúnum
að áhafnir bátanna hafi í hyggju
að biðja um landvistaleyfi í Bret
landi og hafi siglt bátunum í
heimildarleysi á þessar slóðir í
því augnamiði.
Eoka-hreyfingin hætti hermdar-
verkum á eynni og hvatningum til
íbúanna til slíkra verka, að Bretar
slaka á varúðarráðstöfunum sín-
um. Er þó um miklu stærra skref
að ræða að þessu sinni, en var í
hið fyrra. Fi-mm mánuðir eru liðn
ir síðan Eolca lét aí bai’áttu sinni.
Enn líflátssök að bera vopn.
Það varðar enn líflátsdómi, að
bera vopn eða nota þau til árása
á lögreglu eða lierlið og vinna
skemmdarverk. Hins vegar er
eklci lengur dauðasök að veita
Eoka mönnum lið eða skjóta yfír
þá skjólshúsi á einn eða annan
hátt. Þá er afnuminn réttur land
stjórans lil þess að handtaka hvern
er honum þóknast og lialda í fang
elsi um óákveðinn tíma án dóms
og laga.
í tiikynningu landstjórans Sir
John Hardings segir, að ástandið
hafi farið bafnandi á eynni und
anfarið og því hafi verið hægl að
fella niður svo mörg ákvæði ör-
yggislaganna. Það er einnig sagt,
að haldið verði áfram á sömu
braut eftir því sem ásstæður leyfi.
Það er nú alniælt, að Bretar vinni
að því, að koma á fundi Breta
Grikkja og Tyrkja, er leiti að
lausn á Kýpurdeilunni. Er talið,
að Bretar sóu nú fúsir að fallast
á sjálfstæði eyjarinnar, enda er
hún þeim minna virði hernaðar-
lega síðan Egyptar náðu algerum
yfirráðum á Súeseiði.
Þúsund manns drukknuðu í flóðunum
Hin miklu flóS, sem urSu í Japan á dögunum vor'u mjög umrædd í heimsfréttunum. Talf8 er aS farizt hafi
um þúsund manns í fló'ðum þessum á eyjunni Kyushu. Þessi mynd frá flóðasvæðunum gefur nokkra hugmynd
um, hve stórfelld þessi flóö voru.