Tíminn - 05.09.1957, Blaðsíða 1
Sfmar TÍMANS eru:
Ritstjórn og skrifstofur
I 83 00
Blaðamenn eftir kl. 18:
18301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árgíBgur.
Auglýslngasfml TÍMANS ert
1 95 23
Afgrefðslusíml TÍMANS:
1 23 23
Reykjavík, finnntudacinn 5. septeinber 1957.
196. blað.
Verður Schweitzer sendur tiiMoskvu
að taia máli ungversku þjóðarinnar?
Áíorm uppi um aS senda emhvern
heimskunnan mann í slíka för
NTE-New York, 4. sept. — 12. allsherjarþing S. Þ. kemur
saman til funda þann 10. þ. m. og hefjast þá umræður um
skýrslu Ungvérjalandsnefndarinnar. sem birt hefir verið. Þar
er sem kunnugt er talið að um volduga og almenna þjóðar-
uppreisn hafi verið að ræða, sem rússneskur her braut á bak
aftur. Nn undirbýr Bandaríkjastjórn tillögu um að sendur
verði einhver heimskunnur maður til Moskvu og Búdapest
til að tala máli ungversku þjóðarinnar.
Segir í fréttastofufregnum, að
fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafi
rætt þessa tillögu við sendinefnd
ir 60 ríkja, sem sæti eiga á þingi
S. þ. Er talið, að í'lestir fulltrú-
anna hafi verið tillögunni hlynnt-
ir.
Dr Albert Schweitzer
Verður Schweitzer sendur?
Eins og kunnugt er reyndi Dag
Hammarskjöld framkværndastjóri
S. þ. að komast til Búdapest strax
i fyrrabaust, en til þess fckk hann
aldrei Jeyfi ungverskra eða rússn-
Danski flotinn missir
tundurskeytabáta
Kaupmannahöfn í gær. — Danski
flotinn varð fyrir allmiklum skaða
í morgún, ér tveir tundurskeyta
bátar rákust á og sökk annar
þeirra þegar í stað, en hinn
skemmdist mikið. Einn sjóliði
beið bana. Þessa dagana er norski
og danski flotinn að æfingum í
Stóra-Belti og varð slysið, er þær
æfingar stóðu yfir. Bátarnir sem
rákust á voru Flugfiskurinn og
Hogen. Tókst að draga þann síð
ar nefnda til haf'nar í Korsör.
Henderson svartsýnn
um Sýrland
NTB—Washingtou, 4. sept. Loy
Henderson aðstoðarutanríkisráð
herra Bandaríkjanna sagði við
konnma til Wasliington frá mið
austurlöndum, að ástandið í Sýr
landi væri nijög alvarlegt, ekki
aðeins fyrir löndin þar eystra
heldur allan hinn frjálsa licim.
Hann kvað ferðina hafa verið
mjög gagnlega og hann kæmi til
baka með mikilvægar upplýsing
nr. Mann sat á fuudiim með
Eisenhower og Dulles í dag.
eskra yfirvalda. Síðar hefir verið
látið í veðri vaka, að honum væri
heimilt að koma, en hann taldi að
slík heimsókn væri nú gagnslítil
eins^og komið væri.
f uinræðum fulltrúa um til-
lögu Bandaríkjamanna liafi kom
ið til mála, segja fréttaritarar, að
fá liinn lieimskunna inannvin AI.
bert Schweitzer til fararinnar. —'
Yrði hliitverk hans að fá rússn-,
eska og ungverska valdhafa til
að bæta lífskjör ungverskrar al-
þýðu og reyna að fá dregjð úr|
ógnarstjórninni, sem talið er að
ríki í landinu. Einnig hafi komið
til mála að senda í þessa för nú
verandi forseta allsherjarþings-
ins.
Ársskýrsla Hammarskjölds.
Birt hefir verið árskýrsla Ilanun-
arskjölds um starf S. þ. á s!. ári.
Segir hann það góðs vita. að dreg-
ið hafi úr árásum á landamærum
ísraels og Egyptalands. —- Mörg
deiluefni þar eystra séu óleyst og
erfið viðfangs: Hann telur gæzlu-
lið S. þ. hafa gegnt hlutverki sínu
með prýði og telur að sú reynsla,
sem a-f því hafi fengizt bendi ein-
dregið til þess að S. þ. myndi að
því mikill styrkur, ef slikt alþjóð-
legt gæzluiið væri jafnan til taks,
ef svipaðan vanda bæri að höndum
og í Egyptalandi á sl. hausti.
Endurskoðun strandar
á Rússum.
Mörg mál liggja fyrir allsherjar
þinginu eins og að undanförnu.
Eitt heizta þeirra er endurskoðun
sáttmála S. þ., en hún hefir lengi
verið til umræðu, en ekkert áunn
izt. Veldur miklu um, að Rússar
setja sig gegn flestum mikilvæg-
um breytingum, nema gengið sé
að þeirn kröfu þeirra, að Peking-
stjórnin kínverska fái sæti Kína
hjá samtökunum, en það er í hönd
um stjórnarinnar á Formósu. —
Bandaríkjastjórn má hins vegar
ekki heyra slíkl nefnt og þar við
situr.
Bretar leita vinfengis
við Júgóslava
Lundúnum, 4. sept. Selwyn Lloyds
utanríkisráðherra Breta hélt í dag
ásamt fjölmennu fylgdarliði til
Júgóslavíu í boði Popovic utan-
ríkisráðherra. Er þessi heimsókn
talin allmikilvseg. Mun Lloyds
væntanlega einmg ræða við Tító
forseta. Sum ensku blöðin segja,
a'ð þessi för sé farin á elleftu
stundu, því að vinsældir Breta
hafi mjög þorrið í Júgóslafiu
vegna atburðanna í Oman að ó-
gleymdri Súezdeilunni. Samtímis
þessu hafi mjög dregi'ð saman með
Rússuin og Júgóslöfum.
Með flugþotunni voru tvær laglegar flugfreyjur, sem kunna þá list að
þrosa til farþeganna eins og myndin sýnir glögglega.
Rússneska farþegaþotan TU-104 á Islandi í gær:
Fór á rúmum sex klukkusiundum frá
Moskva til Keflavíkurflugvallar
Fyrsta flug slíkrar flugvélar yfir Atlantshaf. —
Fer íil Bandaríkjanna meö hluta af sendinefnd
Rússa hjá Sameinutiu þjóSunum
Klukkan rúmlega hálftvö í gær heyrðist mikill hvinur i
lofti yfir Keflavíkurflugvelli. Mikinn fjölda fólks dreif að úr
öllum áttum, nokkur hundruð manns að minnsta kosti. Ein
fullkomnasta farþegaflugvél heimsins og eina tegundin, sem
knúin er þrýstiloftshrevflum, var að búa sig til lendingar.
Var þelta rússneska flugvélin
TU — 104 á leið til Bandaríkj-
anna og sú fyrsta af þeirri gerð
er nokkru sinni flýgur yfir Atlants
hafið.
Véiin lenti kl. 1.45 og skreið
þegar með miklum hvin upp að
ílugvallarhótelinu, en þar var fyr-
ir mikill mannfjöldi til að sjá
þessa glæsiegu flugvél, sem vakið
hefir heimsathygli. Bandaríkja-
menn og íslenzkir flUgvallarstarfs
menn voru þar í miklum meiri-
hluta. Margir starfsmenn Flugfé-
lags íslands leigðu sér flugvél til
að skoða hina rússnesku vél. All-
margir fulltrúar rússneska sendi
ráðsins tóku á móti áhöfn og far-
þegum, sem reyndar fæstir fóru
úr vélinni. Flestir farþeganna eru
í hinni fjölmennu sendinefnd
Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York, en þetta er aðeins
hluti hennar. Ilinn hlutinn kemur
með sömu flugvélategund um
London og Keflavík að 10 dögum
liðnum. Gromyko utanríkisráð-
herra verður þá sennilega í hópn
um.
Vekur mikla athygli.
Fréttamönnum gafst kostur á
því að ræða við Seminkoff fulltrúa
rússneska flugfélagsins Aeroflot,
með aðstoð lúlks, sem var með
í förinni.
TU-104 lagði af sfað frá Moskva
í gærmorgun í blíðuveðri kl. 7.50
eftir Moskvu-tíma. Vélin flaug til
London á 3 klst. og 45 mínútum.
I London var numið staðar um
stund, en þaðan flogið beint til
Keflavíkur á 2 klst. og 40 mín-
útum. Eins og áður er sagt er
þetta fyrsta ferð slíkrar vélar yf-
ir Atlantshafið. Vél af þessari
gerð mun fyrst hafa komið til
Vesturlanda er hún flutti þá Krú-
sjeff og Bulganin til London í
fyrra og vakti þá geysilega athygli
TU—104 á Keflavíkuiflugvelli í gær. Myndin var tekin er hún renndi upp að flugvallarhótelinu. Ljósm. Tíminn
Bugajeff flugstjóri á Tu-104.
sérfræðinga og leikmanna.
Seminkoff skýrði fréttamanni
blaðsins svo frá, að flugvél þessi
hefði fyrst verið tekin í notfeun
i reglulegu farþegaflugi þann 15.
september 1956.
Lítið sézt á Vesturlöndum.
Hafa nokkrir tugir slikra véla
verið smíðaðir og reynzt mjög vál.
Hafa þær einkum verið noteðöi'
í Ráðstjórnarríkjunum og í áæti
unarflugi til ýmissa Asíu-landa.
Slík vél hefir aldrei sézt í Banda
ríkjunum, en fyrirhugað flug henni
ar þangað hefir vakið mikla at-
hygli þar í landi sem annars steð
ar. Hefir heimsblöðunum verið
tíðrætt um flug þetta undaníarna
daga.
Vélin tekur 70 farþega, en á-
höfnin er 7 manns. Með vélhrni í
gær voru tveir Englendingav, sigl
ingafræðingur og loftskeytamaður.
Áætlað var að hafa aðeins skamma
viðdvöl hér áður en flogið yrði á-
leiðist til Goose Bay á Labrador,
en þaðan verður flogið til Mae
Guire-herflugvallarins í Ne\r
Jersey, nokkuð fyrir utan New
York. Þrýstiloftsflugvélum er ekki
(Framhald á 2. 6Íðu).