Tíminn - 05.09.1957, Blaðsíða 12
VeðriS:
Norðan og norðaustan stinnings
kaldi; skýjað með köflum en víð
ast úrkomlaust.
Hitinn kL 12 í gær:
Reykjavík 13 st. Akureyri §, Dala-
tangi 9, Galtarviti 9, Loftsai'ir 12.
Fimmtudagur 5. september 1957.
Guðmuncfur á Efri-Brú þakkar Gísla mikið og gott starf í Framsóknar-
félagi Árnessýslu og afhendir honum að gjöf fagran pappirshnif frá því.
Hvítir bófar tóku svartan dómara,
bðrðu hann og vönuðu síðan
Mikið fjöimenni heiðraði tvo for-
ystumenn Arnesinga í veglegu hófi
- Samkoman haldin að Þingborg til heiðurs
afmæiisbörnunum Gísla Jónssyni á Stóru-
Reykjum cg Ágústi Þorvaldssyni alþingism.
Frá fréttaritara Tímans á Selfossi í gær.
Hátt á þriðja hundrað manns heiðruðu tvo forystumenn
sína að Þingborg í Hraungerðishreppi í gærkveldi, fluttu þeim
árhaðaroskir og góðar gjafir.
Jónsson á Stóru-Reykjum, sem
Þorvaldsson, aiþingismaður,
slcömmu.
Um hádegi í gœr kom stjórn
Kaupfélags Árnesinga saman á
Selíossi til heiðursfundar við Gísla
sem verið hefir formaður félags-
stjórnarinnar lengi. Færði stjórn-
in formanni sínum að gjöf málverk
eftir Finn Jónsson, og er það af
sjómanni, sem stýrir báti sínum
að landi.
Hófið að Þingborg.
Uin klukkan átta hófst svo af-
mælishófið að Þingborg. Voru þar
margar ræður íluttar fyrir minni
afmælisbarnanna og góðar gjatir
fram færðar. Fyrstur tók til máls
Ólafur Ögmundsson í Hjálmholíi
og afhenti hann Gísla forkunnar-
fagran göngustaf frá sveitungum
hans. Lét hann þau orð fylgja, að
gjöfin væri fremur gefin í heiðurs
skyni en af nauðsyn þiggjandans,
þótt áttræður væri.
Þá tók til máls Böðvar Magnús-
son á Laugarvalni og færði hann
Gísla að gjöf fagrar neftóbaksdós-
ir frá sýslunefnd Árnessýslu, en
Gísli hefir verið sýslunefndannað-
ur lengi. Páll Hallgrímsson, sýslu-
maður, flutti kveðju frá Kaupfé-
lagi Árnesinga.
Þessir forystumenn eru Gísli
varð áttræður í gær, og Ágúst
sem varð fimmtugur fyrir
Þá flutti Jörundur Brynjólfsson,
fyrrverandi alþingismaður, aðal-
ræðu samkvæmisins og minntist
aímælisbarnanna beggja, Ágústs
og Gísla, og var ræða hans bráð-
snjöll og skemmtileg.
Slefán Jasonarson í Vorsabæ
flutti Ágúsli alþingismanni kveðju
og árnaðaróskir Framsóknarfélag-
anna, bæði eldri og yngri, og af-
henti honum skrautritað ávarp frá
þeim ásamt gjafabréfi aö jeppabif-
reið, sem vinir og samflokksmenn
í héra'ðinu færa honum.
Næst talaði Ágúst og mælti fyrir
minni Gísla á Stóru-Reykjum.
Lýsti hann því, hvernig hann hefði
frá unglingsárum og allt til þessa
dags litið á Gísla sem fyrirmynd
sína og lærimeistara. Einnig þakk
aði hann þær góðu gjafir og árn-
aðaróskir, sem lionum höfðu verið
færðar.
Guðmundur á Efri-Brú ávarpaði
Gísla þessu næst fyrir hönd Fram-
sóknarfélags Árnessýslu, þakkaði
honum langt og mikið félagsstarf,
en Gísli var formaður félagsins um
árabil. Afhenti hann Gísla fagran
pappírshníf að gjöf frá félaginu.
Séra Helgi Sveinsson kvaddi sér
(Framhald ó 2. síð'u.)
Norskir hermenn
verða áf ram við
gæzlu í Egyptal.
NTB—Osló, 4. sept. Norska blað
ið Verdens Gang skýrir frá því í
dag, að Hammarskjöld fram-
kyæmdastjóri S. þ. hafi sent
norsku stjórninni erindi þess éfn
is, að Norðmenn sendi aftur her
lið til gæzlustarfa á vegum S. þ.
í Egyptalandi við lándamæri ísra
els. Innan skamms mun nerska
herdeildin, sem þar hefir vérið
frá því í fyrrahaust verða léyst
frá störíum. Segir blaðið; ' að
norska utanríkismálanefndúi fái
málið til meðferðar, þar eö 'þing
situr ekki. Muni nefndin verða við
beiðni framkvæmdastjórans og af
staða norsku rjkisstjórnarianar
sé sú sama.
Hafnaði tillögunni
NTB—Blackpoll 4 sept. Kjörin
hefir veruð stjórn brezka atþýðu
sambandsins, en í henni eiga sæti
355 menn. Það vekur helzt atíiygli
að enginn kommúnisti náði að
þessu sinni sæti í stjórninni. Komu
þar helzt til greina Horner einn
af leiðtogum kolanámumanna og
Hazell frá sambandi rafvirlvia.
Hvorugur fékk nægilega mHÞ'g at
kvæði. 20 af fyrri stjórnar»önn
um voru valdir með lófataki, aðr
ir 11 úr fyrri stjórn náðu kosn
ingu en fjórir nýir voru v'aldir.
Átök í einstaka skóla SutSurríkjanna
NTB-Little Rock, Arkansas, 4. sept. — Þjóðvarnarliðið í
fylkinu Arkansas í Bandaríkjunum var í dag kvatt út í bænum
Little Rock til þess að hindra það, að svartir nemendur fengju
inngöngu í menntaskóla bæjarins og sætu þar ásamt hvítum.
Var þetta að skipun fylkisstjórans, en þvert ofan í úrskurð
sambandsdómstóls, sem hafði staðfest í samræmi við áður
uppkveðinn úrskurð hæstaréttar að svartir og hvítir skyldu
sækja sama skóla.
Tvö hundruð hermenn stóðu
hlið við hlið framan við inngang
skólans. Fyrst bar að svarta stúlku
og gerði hún ítrekaðar tilraunir
til að komast inn í skólann, en
varð að lokum að hverfa frá, þar
eð hermennirnir vörnuðu henni
leiðina. 150 hvítir skólapiltar stóðu
og æptu ókvæðisorð að stúlkunni.
Síðar komu 11 svartir nemendur
í hóp, en þeir urðu frá að hverfa.
í öðrum bæ fylkinu Van Buren
gekk þó allt hljóðlaust fyrir sig,
er 23 svartir nemendur tóku sér
seeti við hlið hvítra í gagnfræða
skóla bæjarins í dag.
Svörtum dómara misþyrmt.
í borginni Birmingham í Ala
bama kom til óeirða í gærkvöldi
í sambandi við kynþáttavandamál
ið. Varð lögreglan að skerast í
leikinn sums staðar. Einkum varð
svertingi einn, Aaron dómari að
nafni, fyrir svívirðilegri meðferð
og liggur hann á sjúkrahúsi. Seg
ir hann að flokkur hvítra manna
hafi ráðist á sig, er hann var
að koma frá þeldökkri konu. Menn
þessir tóku hann bundu fyrir aug
un á honum fóru síðan með hann
á afvikinn stað, börðu hann til ó-
bóta og vönuðu hann. Leitar lög-
reglan nú þorparanna, en hefir
enn ekki fundið.
Landsleikurinn í gærkveldi:
Belgía sigraði ísland með 5-2
ísland skoraði eftir 15 sekúndur.
Landsleikurinn í gærkveldi byrjaði glæsilega fyrir íslenzka
landsliðið. Strax á fyrstu mínútum leiksins í fyrsta upphlaup-
inu tókst Ríkarði Jónssyni, sem nú lék sinn 20. landsleik, að
skora mark, og voru þá vart liðnar nema 15 sekundur af leik.
En glæsihragurinn fór fljótt af liðinu, og þegar til kom var
þetta einasta skot íslendinga á mark í fyrri hálfleik. Belgir
höfðu írumkvæðið í leiknum, og á síðustu sekundum hans
skoruðu þeir fimmta mark sitt í leiknum, og enduðu því eins
og íslendingar byrjuðu.
Vopnasmygl
til Marokkó
NTB-Rabat, 4. sept. — Hernað-
aryfirvöld í Marokkó hafa upplýst,
að þau hafi komizt yfir og gert
úpptækar 20, smálestir af vopnurn,
sem átti að smygla inn í landið.
Fannst þetta í finnskum bát, sem
Já í Tangierhöfn og vanalega flyt-
ur fiskafurðir. Sagt er, að bátur-
inn hafi tekið vopn þessi á Ítalíu
og séu vopnin frá einhverju ríki
í Mið-Evrópu.
• V „ 'g' xf, ¥ * '
k&, rf* ■ j
WmmUBBmBaBmUKmm&m v&SmA
’ mPS! I i ,<
1
Hér gera ísiendingar annað markið sitt í leiknum.
(Ljósm.: Tíminn)
I Eftir að þjóðsöngvar landanna
; höfðu verið leiknir skiptust fyrir-
■ liðarnir á gjöfum. Belgir unnu
hlutkestið og kusu að leika undau
snörpum vindi á syðra markið.
íslendingar líófu því leik og
brunuðu strax upp. Þórður Þórð-
! arson lék með knöttinn, ga£ íyr>
ir markið til Ríkarðs, sem þegar
spyrnti, en varnarleikmaður
{ komst á milli. Knötturinn hrökk
aftur til Ríkarðs, sem sendl hann
viðstöðulaust í netið af 4 m. iæri,
án möguleika fyrir markinanninn
að verja. Byrjunin var gltésileg,
og þetta mark kom sem veiðar-
slag á belgísku leikmennina.
Þessi byrjun var stórkostleg fyr-
ir íslenzka liðið, en leikiiúiunan-
um tókst þó ekki aff nýta þaw
ábrif, sem markiff liafði á Beigi.
Belgir taka við.
Andstæðingar okkar voru ekki
lengi að átta sig á leikaðferð ís-
lenzka liðsins, — þeir vöré’ust á
miðjunni, eh gáfu kantana eftir
og það kom ekki að sök, því áð
sjaldan var gefið þangað, og eins
þegar kantménn okkar fengu
knöttinn, fóru þeir yfirleitt illa
með sendingar.
Á 4. mín. áttu Belgir úpphlaup
og miðherji liðsins, Willems,
spyrnti föstu skoti, sem lenti í
höfði Halldórs Halldórssonar, og
svo fast var skotið, að Halldór lá.
Hann var þó furðu fljótur að jafna
sig. Á 9. mín. átti Kristinn við
hægri úlherjann, Jurion, og beið
lægri hlut eins og oftast í þessum
hálfleik. Útherjinn sendi fyrir
markið mjög vel. Hinum ýtherjan-
um brást skotfimin, en knötturinn
hrökk til framvarðarins Van Herpe
(Framhald á 2. síðu).