Tíminn - 14.09.1957, Síða 5

Tíminn - 14.09.1957, Síða 5
® í MIN N, laugardaginn 14. september 1957. Grundvöllur þ eftlr jarlinn af Ath-one, fyrrv. lancfsstjóra Kaaada Erindi þetta var flutt í brezka útvarpið 1. desember 1939, en var nýlega gefið út í sambandi við minningarat- höfn, er fór fram í Ontario í Canada í janúar s. I. Þar var þá stödd 200 manna liðssveit M.R.A. hreyfingarinnar frá 26 þjóðum. Þessi fyrrv. lands stjóri Canada var þá nýdá- inn, eða 16. janúar. Erindið vakti athygli víða um lönd og vakti aðdáun hjá þingfor- seta Bandaríkjanna Lands- stjórinn hafði átt drjúgan þátt í að gefa M.R.A. hreyf- ingunni byr undir báða vœngi cg var heilhuga vinur hennar og sfuðningsmaður um 25 ára skeið. Bókstöfun- um MRA (Moral ReArma- ment) mætfi vel gefa merk- inguna: Meira réttlæti alls staðar. Það er í raun og veru síefnumark hreyfingarinnar. Þýöandi. FRÁ ÞVÍ, er heita mætti í gær, að M.R.A. hreyíingin hóf göngu sína héi' í Englandi, hefir liún náð umhverfis jörðina og orðið mill- jónum manna uppspretta nýrra vona. Þjóðhöfðingjar og forustumenn þjóða, félagsmála, atvinnumála, allra stétta og lífsskoðana hafa fagnað þessari siðbótarhreyfingu sem lækningu þess geigvæna sjúk- dóms, er þjakar andlegu lífi og siðmennir.gu þjóða. Hvarvetna í brezka heimsveldinu hefir þessari hreyfingu verið fagn- að, og forseti Bandaríkjanna (þá Roosevelt) hefir hvatt til þess, að liún verði efld um heim allan. Á vopnahlésdaginn í fyrra féllu orð mín á þessa leið: „Grundvöllur þjóðlífsins og samfélags þjóða verður að vera M.R.A., það er umsköpun hugar- fars manna til endurnýjaðs sið- ferðisþroska. Andi Guðs getur unnið það kraftaverk í lífi manna að sigra þar allt stærilæti, eigin- girni, græðgi, tortryggni og óvild, því að máttur ar.dans er þó vissu- lega öllu máttugri í heimi manna“. Þetta er alltaf og eilíflega satt. M.R.A. krefst hugarfarsbreyting- ar, að nýr andi nái tökum hvar- vetna í allri sambúð manna. Mark- miðið er: að menn miði alla breytni sína við mælikvarða heið- arleika, hreinleika og kærleika. Vilji Guðs verður að vera ráðandi aflið í lífi einstaklingsins, fjöl- skylduþfinu og þjóðlífinu. Vissulega hafa þessi sannindi verið öryggi og styrkur þjóðarinn- ar á öllum öldum. Bjargráð okkar á þessunj dögum hins skuggalega útlits er þetta, að við tileinkum okkur á ný af heilum hug og hjarta þessi sanuindi. Það er rétta svar- ið við kvíða, ótta og öllum þreng- ingum, og þar er einnig uppspretta hinna öruggustu vopna okkar um 1 nýjan heim. i INNSTA OG DÝPSTA þrá okkar i allra er sú, þótt óljós og yfirlætis- laus, að geta átt hlutdeild í því að ka}Ia fram nýjan heim, hæfan til ' eflingar friðarins og þess andlega og siðferðilega þroska, sem einn getur tryggt það, að vísindi og i verkleg kunnátta þjóni velmegun | manna, en ekki tortímingu mann- ' kynsins. I Þessa lífsskoðun lét þingforseti ! samba’ids verkalýðsfélaganna l Trades Union) hr. Hailesworth, í ljós skýrum orðum í bréfi til mín nýlega. Hann segir: „Hvarvetna stöndum við and- spænis vanmætti mannlegrar vizku til þess að finna örugga og óumdeilanlega leið til sam- félags allra þjóða, í eirium hug að einu marki: alþjóðabræðra- lags. M.R.A. knýr nú á hjá mönnum hvarvetna, að þeir fáist til að hlusta á rödd Guðs, hver sé fyrirhugun hans. Á þessari stundu, er ég flyt þetta mál, verður mér hilgsað I til þeirra milljóna manna, sem víðs vegar í brezka heimsveld- inu og í öðrum löndum, leggja nú stund á að hlusta á rödd Guðs og hlíta leiðsögn hans. | Undir handleiðslu hans og með almennri hlýðni okkar getur enn freðzt nýr heimur, samein- aður í friðarins anda. ÝMSIR embættismenn og leið togar hér í landi hafa gefið út ávarp til þjóðarinnar. Það er ' undirritað af fimm hundruð borgarstjórum, háskólarektor-1 um og formönnum ráða og nefnda um allt Bretland. Má þar nefna t. d. borgarstjóra og háskólarektora í Aberdeen, Bel-! fast, Bristol, Cardiff, Dundee,! Edenburgh, Elgin, Glasgow, Hull, Leeds, Leicester, Liver- pool, Ncweastle-upon-Tyne, Nottingham, Perth, Ports- mouth, Sheffield, York. — Ávarpið er á þessa leið: ,,Á þessum tímum, þegar ger- eyðing hangir yfir höfði mann- kynsins, verður augljósari en nokkru sinni fyrr þörfin á þeirri andlegu orkú, sem M.R.A. hreyfingin felur í sér, og megn- ar að framkalla nýjan heim, heim nægta og friðar, er stjórn- ist af sanngirni og réttlæti. Við getum ekki unað eilíflega hrakningi frá einni kreppu Lil- annarrar, frá einni styrjöld til annarrar. Við bráum heim, sem er laus við hatur, ótta og yfir- gang, þar sem hver þjóð getur Iggt stund á að efla sem 'bezt lífskjör manna og enginn þarf að ganga atvinnulaus. Þetta, en ekki endurtekið neyðarástand og eyðilegging, er það, sem Guð hefir fyrirhugað mannkyni. Á meðal allra ósigra mann- legs hyggjuvits, er opin leið að andleguin og yíirmannlegum orkulindum, er geta svalað og vakið nýjar vonir og bjartsýni. Andi Guðs talar til sérhvcrrar mannsálar, sem viljug er íil þess að hlusta og hlýða. Milljónir manna um heim all- an ieita nú vilia Guðs íil far- sældar sjálfum ,sér og bjóðum sínum. Hundrað milljónir inanna, leiddar að Guði, mundi reynast nægileg alþjóðaorka til útrýmingar styrjöldum. BRÝNASTA þörf þjóðanna er nú leiðtogar leiddir af Guði, menn, sem byggja allt sitt líf á gruudvelli hinna kristilegu dyggða, heiðarleik, óeigingirni og trú. Slíkir menn mundu ekki aðeins magna allt siðgæðisþrek þjóðarinnar, heldur einnig efla og útbreiða þann anda, sem skapað getur réttlátan og var- anlegan frið. Þennan nýja anda og hugsun- ariiátt verðum við að rækta, vegna okkar sjálfra, barna okk- ar og barnabarna. Hundrað milljónir manna víðs vegar um heim, hlustandi á rödd Guðs og léiddar af honum, mundu sjá rætast orð spámannsins: „Og allir synir þínir eru lærisveinar Drottins, og synir þínir njóta mikils friðar“. Um allt Bretland eru leiðtog- ar félagsmála og embættis- menn, sem hvetja nú samborg- ara sína til þess að sameinast þeim í heimsvíðtæku áformi um að hlusta á rödd Guðs og láta stjórnast af anda hans. Við leitum til vkkar allra um að taka heilhuga þátt í þessari mikilva’gustu þjóðhollustu og þjónustu. Vei’um í hópi þeirra framvarða, sem kosta kapps um að leiða heiminn íil andlegrar heilbrigði og varanlegs friðar". Við ávarp þetta vil ég bæta að- eins nokkrúm orðum. Hugur okk- ar hvarflar nú til þeirra, er standa andspænis mikilli hættu og miklu verða að fórna. Við dáumst að and legu þreki þeirra og staðfestu, og (Framhald á 8. síðu). Starfsemi þjóðskrár- innar skipuiögð Er upplýsingamiSsíöS um aÖsetur manna og fíeiri þýðingarmikii atriíi I lögum um Þjóðskrá og almannaskráningu, er sett vuru á síðasta ári, er gert ráð fyrir því, að Þjóðskráin láti í té vottorð og upplýsingar eftir skrám hennar og gögnmn, og er þetta mikiivægur þáttur í starfsemi hennar. Hér er annars vegar um að ræða vottorð um aðsetur fyrirspyrj- anda sjálfs eða um eitthvað ann- að um hann skráð, og hins vegar upplýsingar sem fyrirspyrjandi óskar aö fá um aðsetur annarra manna nú eða fyrr. Veiting upp- lýsinga um önnur skráningaratriði en aðsetur er háð vissum takmörk um, eins og vænta má. UpplýsingamiSstöð Áður var ekki til nein slík upp- lýsingamiðstöð, þar sem opinberir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar gátu fengið upplýsingar um aðset- ur manna hvar sem er á landinu, og kom það sér illa fyrir marga aðila, sem hér eiga hlut að máli. Nú hefur Þjóðskráin tekið við I þcssu hlutverki og mun hún kapp ; kosta að fullnægja þörfum þeirra, j sem nota sér þessa þjónustu. í i því sambandi má geta þess, að áð ! ur fyrr gat sá aðili, er annaðist I manntalsskráningu í hverju sveit ! arfélagi, yfirleitt aðeins veitt upp j lýsingar um aðsetur manna sam- j kvæmt síðasta manntali, en Þjóð j skráin fær jafnóðum upplýst að- I setur þeirra, sem flutt hafa eftir síðasta skráningardag, sem er 1. desember ár hvert. Það skal tekið fram, að upp- lýsingaþjónusta Þjóðskrárinnar er að því er snertir fyrirspurnir um aðsetur manna í Reykjavík ein- skorðuð við aðila, sem þarfnast upplýsinga vegna atvinnurekstrar eða annarrar starfsemi. Almenningur skal eftir sem áður snúa sér til Manntalsskrif- stofu Reykjavíkur með beiðnir sínar í þessu sambandi. Söm/ leiðis skal almenningur í hverju umdæmi utan Reykjavíkur snúa sér til hlutaðeigandi bæjarstjóra eða oddvita, þegar óskað er upp lýsinga um aðsetur manna í sama umdæmi. Mýjar reglur Stjórn Þjóðskrárinnar hefur fyr ir nokkru sett reglur um tilhögun r Prestáféíag Islaods sendir Radar skeyti: ungversk þessarar starfsemi og um gjöld fyrir vottorð og upplýsingar, sem hún lætur í té. Þjóðskránni ber að veita opinberum aðilum hvers konar uppiýsingar, sem eru að finna í skrám hennar og gögnum ef þeir þurfa upplýsinganna við vegna embættisfærslu eða hlið- stæðrar starfsemi, og gerir Þjóð- skráin þettá endurgjaldslaust. En aðrir, sem fá upplýsingar frá Þjóð skránni, þurfa að greiða fyrir þær tilskilið gjald samkvæmt gjald- skrá. Gjaldið er breytilegt eftir tegund þeirrar þjónustu, sem um er að ræða, og það fer lika eftir tölu fyrirspurna hverju sinni; þaniiig að afsláttur er veittur, ef margar fyrirspurnir eru bornar fram í-einu lagi. Auk þess er hægt að' fá keypt afsláttarhefti með 25 eyðublöðum undir fyrirspurnir til Þjóöskrárinnar. Sérstakur taxti gildir fyrir upplýsingar veittar ættfræðingum og öðrum fræði- mönnum, — Gjald fyrir vottorð óg upplýsingar úr Þjóðskránni greiðíst um leið og fyrirspurn er fram borin. Nota skal sérstök eyðublöð und ir fyrirspurnir til Þjóðskrárinnar og fást þau í Hagstofunni. Sórsfök stofnun Þjóðskráiri er lögum samjivæmt scrstök stofnqn undir eigin stjórn þar sem sæti eiga fulltrúar þeirra aðila, sem stóðu að stofnun henn ar, en hins vegar er hún starfrækt sem deild í Hagstofunni. Hagstofu stjóri er formaður stjórnar Þjóð skrárinnar, en aðrir stjórnar- menn eru: Einar Bjarnason aðal endurskoðandi, skipaður af fjár- málaráðuneytinu, Guttormur Er- lendsson, forstöðumaður endur- skoðunardeildar Reykjavíkurbæj- ar, skipaður af heilbrigðismála- ráðuneytinu fyrir hönd berkla- varna ríkisins, Sverrir Þorbjörns son forstjóri, skipaður af Trygg ingastofnun ríkisins og Þormóður Pálsson bæjarfulltrúi, skipaður af fclagsmálaráðuneytinu. (Frétt frá Hagstofu fsland). Bevae í Varsjá í gær var skýrt frá því í blöðum hér að funclur danskra biskupa hefði sent ungversku ríkisstjórninni skeyti þar sem mótmælt var dauðadómi yfir lúterskum presti. í því tilefni sneri Tírninn sér til formanns Prestafélags íslands og grennsl j aðist eítir því hvort íslenzkir prestar hefðu látið málið íil: sín taka. Séra Jakob Jónsson, formaður félagsins, upplýsti j að Prestafélagið hefði sent Kadar Janos, forsætisráðherra, . skeyti þann 6. september s. 1. og var þar mótmælt dauða- dómi yfir séra Gulyas Lajos sem dæmdur var í borginni Györ í Gngverjalandi. | dæmdur af „alþýðudómstóli“, en! Var honum gefið að sök að hafa dómnum hefur enn ekki verið hvatt fólk til mótstöðu gegn ríkis- fullnægt, þar sem hann hefur á- stjórninni og tekið sjálfur þátt frýjað til hærri dómstóla. í baráttu gegn ríkisstjórninni í því j Prestafélög á Norðurlöndum skyni að velta henni úr stóli. Þá og víðar munu senda áskoranir var hann ennfremur sakaður um um aö hnekkja dauðadómnum, að hafa orðið ráðbani tveggja og sendi Prestafélag íslands skeyti liðsforingja sem vegnir voru í þegar 6. sept. s.l. Skeytið sem grennd við Györ. Presturinn var Prestafélagið sendi Kadar hljóðar á þe=.?a leið í í=lenzkri þýðingu: | „Yðar hágöfgi, Kadar Janos, forsætisráðherra alþýðuíýðveld- j isins Ungverjalíoids. Prestafélag íslantls hefur með sárvi raun fengiú þær fregnir að séra Giilyas Lajos iiafi verið dæmdur j til dauSn. Vi'ð óttumst aö líf- láíshegning prests, sem ckki hefur bori'ð vopn, muni valda ar.dúö meðol ki'istinna presta og annars kírkjufélks. Þar sem við evum þess fullvissir, að afíétting dauðadómsins muni stuðla a'ð sainúðarrikari skiíningi, skoruin við hér með á yður persónulega, fyrir hönd íslenzkrar klerkastétt ar, að bcita áhrifavaldi yðar til þess að dauðadómurinn verði aftuj'kallaður. Jakob Jónsson, form. Prestafél. íslands.“, Einn af helztu leiðtogum brezka Verkamannaflokksln, Aneurin Bevan, er um þessar mundir á ferðalagi i A-Evrópu. Á myndinni sést hann tala við Adam Rapacki, utanríkisráðherra Póliands.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.