Tíminn - 27.09.1957, Page 4

Tíminn - 27.09.1957, Page 4
B TÍMINN, föstudaginn 27. september 1957« Óvanalegt björgunarstarf - Sökk á innsiglingunni - Athyglisverðar kaf- anir á 17. öld. - GóSar heimildir » Mynd Óðins. - Borgið frá tímans tönn - Lyft að vori Óvanalegt björgunarstarf er nú í undirbúningi við inn- siglinguna í Stokkhólmi. Hi5 stolta sænska herskip „Vasa" sem legið hefir á hafsbotni 18 faðma undir yfirborðinu í 330 ár, á nú áð lyftast úr grpf sinni. „Vasa" sökk á reynsluferð sinni, áður en skipið komst út úr innsigl- ingunni. Sérfræðingar telja víst, að takast muni að lyfta skipinu og koma því á flot, en hér er um einstæðar sögu- legar menjar að raéða. „Vasa“ var glæsilegt herskip af Galleon-gerð í flota Gustavs Adolfs sem rikti á stórveldistíð Svíþjóðar. Skipið hafði þrjú þilför og var bú- ið 60—70 fallbyssum, sem vógu um þrjú tonn hver. Sennilegt þykir, að þessi mikli þungi hafi átt þátt í því að skipið sökk. „Vasa“ var með 400 manns innan borðs, þegar snögg vindhviða hvolfdi skipinu á innsiglingunni árið 1628. Meðal áhafnarinnar var fjöldi borgara, sem hugðust taka sér far með skip- inu gegnum skerjagarðinn. Góðar heimildir Þótt fjöldi gamalla skipa hafi verið dreginn upp af hafsbotni, svo sem egypzkir sólbátar, galeið- ur Caligula og norsk víkingaskip, er „Vasa“ sennilega elzti farkostur, sem fullar heimildir eru um og.í beztu ásigkomulagi. Byggingarár skipsins er kunnugt og heimildir um Jögun þess, útbúning og áhöfn hafa reynzt.mjög nærri lagi. Einn- ig liggja fyrir fullar upplýsingar um fyrri tilraunir til björgunar, en þær voru gerðar á fyrstu árunum eftir að skipið sökk. Heimildirnar um þessar kafanir á miðri 17. öld eru mjög athyglis- verðar. Vísindalegar aðferðir við köfun og framfarir x vinnubrögð- . um neðansjávar auðvelda slíkar ’ aðgerðir nú á dögum, en köfun á 18 faðma dýpi var sennilega eins dæmi á þeim tímum. Það sem e. ti v. vekur enn meiri furðu, er, að nokkrum af hinum verðmætu fáll-j byssum var bjargað, a. m. k. 17 al þeim 60—70, sem voru um borð í skipinu. Nokkuð af efri viðuni skipsins, sem nú er horfið, héfir sennilega verið losað og borgið um ’ svipað leyti. Þrátt fyrir þetta er talið, að skrokkurinn muni ná 40 fet upp úr sjó þegar skipið rís. Mynd Óðins I „Vasa“ var einkanlega skraut- legt skip eins og títt var í þá ’daga. I Margir útskornir bitar hafa fund- ] izt um borð og annað mastrið ber upphleypta skreytingu. Merkileg- asti hluturinn, sem komizt hefir upp á yfirborðið, er 13 feta há tré- líkneskja af manni. Hún var á kafi í leðjunni, sem er allt í kring um skipið og hylur útlit þess að nokkru leyti. Andlitsdrættir stytt- unnar hafa varðveitzt óskemmdir í leðjunni, jafnvel smáar lifandi hrukkurnar í kringum augun. Leif- ar af gullskrauti eru sýnilegar á myndinni, en hún er talin vera af Óðni. Lyft að vori Þótt stáðsetning flaksins hafi verið nokkurn veginn kunn, er það fyrst og fremst áhugamanninum Anders Franzén að þakka, að tek- izt hefir áð finna skipið. Hefir hann starfáð árum saman að þess- um Tannsóknum. Kafanirnar og hreinsun á Jeðjunni af þilförunum er í liöndum flotans og er stjórn- áð af P.iE.)Falting, sem kortlagði skipið og stöðu þess x höfninni, skammt utan við sigiingaleiðina. „Vasa“-skipið er gert úr eik. Þessi harði viður og staða skipsins ! á hæfilega miklu dýpi hafa borgið , því frá tímans tönn og skemmd- | um vegna áhrifa Joftsins. Skipið ; er ósnorti'ð af saltvatni, ís, flóði og j fjöru, gróðri og dýralífi. Jafnvel hitastigið á þessu dýpi hefir átt góðan þátt í vai-ðveizlunni. Búizt - er við, að skipinu verði lyft af hafsbotni næsta vor og er þess beðið með eftirvæntingu af fornfræðingum, sagnfræðingum og öðrum vísindamönnum. Fágæi bók, sem unglingaskókmir ættu að veita al EIN ER SÚ BÓK, sem kom hér á markaðinn fyrir nokkrum mán- uðum síðan og fremur hljótt hef- ur verið um, enda lætur hún ékki mikið yfir sér, fremur en sá sem hún er kennd við. Á ég hér v.ið bókina: „Myndir og minningar“ Ásgríms Jónssonar listmálara, sem Almenna;bókafélagið gaf út í sam bandi við áttræðisáfmæli hans, og færði Tómas skáid Guðmundsson frásögn Ásgríms í letur. í bókinni erurnokkrar myndir afrmálverkum iistamannsins. Þessi bók á fáa sína lika, og hún ætti að komast í hendur sem allra flestra og verða i mikiö les- in. Hún er fáorð saga um mikinn bæfileikamann, sem brauzt áfram úr fátækt og umkomuleysi til mik- ils þroska og manndóms. Það er látlaus frásögn á fáguðu máli um dreng, sem hlaut snilligáfu í vöggu gjöf, er fljótlega lét á sér bæra í leikjum hans og dundi, sem fáir skildu. Það er saga um fátæka soninn unga, sem þráir að geta glatt foreldra sína og systkini, og leggur því einn af stað með litla smíðisgripinn sinn (skútu) á bak- inu austan úr Flóa í svarstasta skammdeginu, alla leið til Reykja- vikur, þar sem hann getur selt gripinn fyrir 2 krónur, og fyrir þær keypt ofurlítinn jólaglaðning handa heimilinu. Athyglisverð skákbók Skákir yngri skákmanna Islands Nýlega kom út skákbók, sem nefnist Skákir yngri skákmanna íslands. Bókin er gefin út á veg- um Friðrikssjóðs til minningar um Guðjón M. Sigurðsson, hinn skemmtilega -skákmann. Er fyrst grein um Guðjón heitinn og nokkr ar skákir birtar, sem hann tefldi. Þá eru greinar um 12 unga skák menn, skýrt frá árangri þeirra, og skákir birtar, sem þeir hafa valið sjálfir. Skákmennirnir eru Friðrik Ólafsson, Guðmundur Pálmason, Ingi R. Jóhannsson, Arinbjörn Guð mundsson, Björn Jóhannesson, Freysteinn Þorbergsson, Gunnar Gunnarsson, Ingvar Ásmundsson, Jón Einarsson, Jón Pálsson Sveinn Kristinsson og Þórir Ólafs son. Skákirnar í bókinni eru hinar athyglisverðustu m. a. eru þar all ar frægustu skákir Friðriks. Skák irar eru skýrðar ítarlega. Bókin er fjölrituð hjá Letri s. f. og er frágangur allsæmilegur, þegar til lit er tekið til þess, að hér er um nýung áð ræða, til dæmis eru myndir af öllum skákmönnum birt ar í bókinni, og hafa sumar þeirra fjölritast ágætlega. :BÓKIN SEGIR einnig söguna af æskumanninum sem brennur af óslökkvandi þrá til lærdóms og skilnings á listrænum viðfangs- efnum, leggur á sig margskonar erfiði árum saman til þess að afla sér möguleika á að fá þeirri þrá svalað og ná settu marki, — einn og óstuddur. Og hún segir frá yfirlætislausa snillingnum, sem áratugum saman fer um landið, gengur á fjöll og véður ár, og seyðir í liti og á léréft.ægifegurð og töfra ættjarðar sinnar með máttugri listtúlkun sinni, og glæð- ir með því fegurðarskyn og ætt- jarðarást þúsunda sona hennar og dætra. Og loks er það sagan um hið óeigingjarna göfugmenni, sem lif- að hefur fábrotnu lífi og engar kröfur gert til annarra en sjálfs sín, en helgað sig köllun sinni af fágætri trúmennsku, og leggur nú í hendur þjóðar sinnar eftirlátnar eigur sínar og listaverk, — að gjöf. Hér sést Snemo erkibiskup í Noregi kveðja Harald krónprins Norðmanna, er hann yfirgefur höliina skömmu eftír láf-Hákonar konungs. Akureyri í gær. — Á Árskógs- strönd það það slys í .göngum s. 1. mánudag, að bóndinn á Stærra- Árskógi, Sigurður Stéfánsson, hrap aði í Derrisárgljúfur og slasaðist nokkuð. . Komst hann þó af eigin i-amm- leik upp úr gljúfrinu, en það tók félaga hans 5Vz klukkustund að koma honum heim, þar sem gert var að meiðslum hans. Hafði Sig- urður hlotið höfuðsár og auk þess marizt illa. Átök á milli stúdenta og lögreglu í Japan TOKIO — NTB, 25. sept. — í dag kom til harðra átaka milli 1000 japanski-a stúdenta í Tokío og lög- reglu. Lögreglan varð að beita brynvörðum bifreiðum til að koma á ró og reglu. Stúdentarnir efndu til óeirðanna í mótmælaskyni við handtökur 25 manna um síðustu helgi, er tóku þátt í óeirðum til að mótmæla stækkun bandaríski-ar flugstöðvar við Tokíó. Fjölmargir særðust í átökunum í dag. Þetta er hin fáorða saga utn snillinginn Ásgrím Jónsson, sem er þannig sögð að engum mun leiðast lesturinn, því að græsku- laus og gamansamur tónn lífgar oft frásögnina, sem víða er með þeim fágæta blæ, að ærið margt má . lesa -jnilli línanna. OFT ER rætt um görótt les- efni .unga fólksins, og ekki að ástæðulausu. Og því miður virð- ist nú einna greiðastur áðgangur að Tuslinu. En það slcyldi enginn ætla, að einu gildi hvað æskan les og heyrir. — Æsiritin valda truflun og spenningi, sem krefst þess að mikið gerist á fáurn blöð- um, og þá helzt með þeim hætti, sem grófastur er og ótrúlegastur. Þetta spillir hugarheimi óþrosk- aðra lesenda og heimskar þá. Það verður því að vera hlutverk þeii-ra, sem leiðbeinandi störf hafa með höndum meðal hinna ungu, að freista þess að hreinsa hinn sjúka hugarheim og róa æstar taug ar, leiða hugann frá hraðanum og hingiðunni að hinni rólegu og tæru lind eðlilegrar frásagnar um það sem gerist og gengur, um málefni óg menn, sem holt er að kynnast, beina rólegri íhugun að dæmi þeirra og glæða dómgreind sem kann að skilja hismi frá kjarna, og smekk, sem greinir fegurð og stíl frá soranum. I ÞAÐ ER vandasamt verk, en veglegt, að velja lesefni handa ungu fólki nú, sem framhalds- skólana gistir. Af mörgu góðu má taka. En það ætla ég, að Myndir og minhingar Ásgríms Jónssonar sé ágætlega hæf bók til upplest- urs og íhugunar fyrir æskumenn á mótunarskeiði, a.m.k. kaflar úr henni. Því að auk þess sem frá- sögn öll er létt og mál og stíll fellur sérlega vel að öllu efni, er hér viðféðmt umræðuefni, hug- næmt og íþtoskandi, þar sem sí- gild viðfangsefni allra vaxandi og leitandi manna blasa við, og út- sýni allt er mikið og heillandi. Og þess vegna vildi ég segja þetta við unglingakennara: Kynn- ið unga fólkinu þessa bók um sæmdarmanninn og snillinginn, sem var köllun sinni trúr og þjóð sinni góður sonur. Snorri Sigfússon. Leikvellir smábamagæzlimnar í Reykjavík eru orSuir 10 talsies Leikvallanefnd Reykjavík- urbæjar hefir nú opnað 3 nýja gæzluveili fyrir smá- börn. Er það við Dunhaga, Hlíðargerði og Rauðalæk. Vellir smábarnagæzlunnar eru ■þáxorðnir 10. Eru þeir ætlaðir 2—5 ára börnum. Tilskilið er að börnin séu frísk og séu þau sótt af aðstandendum ef vont er véður. Tvær gæzlukonur gæta barnanna á hverjum velli. Líta þær éftir börnunum, örfa þau til leikja og sinna þörfunx þeirra. Aðrir gæzluvellir eru ætlaðir börnum á öllum aldri. Starfar þár ein gæzlukona í senn. Hvert barn x-æður því sjálft, hve lengi það dvelur innan vallanna og ganga þau óhindrað út og inn. Slíkir vellir eru á 6 stöðum í bænum. Auk gæzluvallanna eru um 30 leiksvæði í bænum, sum girt, önnur ógirt. Smábarnagæzla verður á hinum þrem nýju leikvöllum, sem síðast itóku til starfa. Framkvæmdir við þá hófust á s. 1. ári og hefir Bjarn- héðinn Hallgrímsson verkstjóri haft umsjón með verkinu. Á hverj- um hinna nýju valla liefir verið reist skýli og voru þau öll byggð samtímis og eftir sömu teikningu. Rósmundur Runólfsson, trésmíða- meistari sá um smíðina. f skýlun- um er herbergi: fyrir gæzlukonur, hreinlætistæki og geymsla, auk útiskýlis fyrir börnin. Hinir nýju leikvellir eru yeruleg úrbót fyrir fólkið í þessum bæjarhverfum. Heybruni að Klaufa- brekkum í Svarfað- ardal DALVÍK í gær. — f gær síðdegis varð vart elds í 4—500 hesta hey- hlöðu áð Klaufabrekkum í Svarf- aðardal. Hafði orðið vart hita í heyinu undanfarið en virtist I rén un. Hjálp barst fljótt af næstu bæjum í svoitinni. Ennfremur komu slökkviliðsmenn frá Dalvík. Með slökkvidælu tókst að ráða nið urlögum eldsins um miðnættið, og var þá búið að rífa meirihluta heysins út. Munu 50—100 hestar lxafa eyðilagzt af eldi og vatni. Heyið var óvátryggt. Bóndinn, Hreinn Jónsson hefir orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Skemmdir á hlöðunni eru ekki miklar. P.J.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.