Tíminn - 06.10.1957, Blaðsíða 12
•Veðrið:
Sunnan stinnings kaldi og þoku-
súld með feöflum.
Hiti kl. 12 á laugard.
Reykjavík 9 stig, Akureyri 4,
París 14, Berlín 11, Khöín 10,
Stokkíhólmur 6.
Sunuuðagur 6. október 1957.
Annað stærsta mjélkurbú á Norðurlöndum
byggingu á Selfossi
Mjóíkurbú Flóamanna kemur á mark
að með nýjar tegundir ljúffengra osta
1
Á Selfossi er nu verið að
byggja næst- stærsta mjólk-
urbú á Norðurlöndum. Er þar
um að ræða algera endur-
byggingu á Mjólkurbúi Flóa-
manna, sem verður búið
beztu fáanlegum tækjum til
mjólkurvinnslu og ostagerð-
ar. Búið er að flytja starf-
semi búsins að mestu í nýju
byggingarnar, en ekki er bú-
ið að taka í notkun nema
tæplega helming þess nærri
5000 fermetra húsnæðis, sem
mjólkurbúið verður til starfa
í. í nýjum ostagerðavélum,
sem búið er að taka í notkun,
er nú farið að framleiða á
Selfossi sex tegundir Ijúf-
fengra bræðsluosta. Stjórn
MBF bauð í fyrradag blaða-
mönnum og fleiri gestum
austur til að skoða bygging-
arframkvæmdir og hina nýju
framleiðslu.
Þeir Grétar Símonarson, mjólk-
wrbússtjóri, og Egill Thorarensen,
fraupfélagsstjóri, skýrðu við þetta
íækifæri frá framkvæmdum við
foyggingu hins nýja mjólkurbús og
framleiðslunni nýju, sem þegar er
sýnt, að vel er þegin og metin af
húsmæðrum.
Sex tegundir nýrra osta
Er þar um að ræða sex tegund-
ir af ostum, sem seldir eru í lient-
ugum og fallegum umbúðum og
geymast vel. Allar eru þessar
tegundir framleiddar úr úrvals-
góðum hlauposti, sem er frain-
leiddur eins og venjulegur ostur,
en síðan breytt í bræðsluost í
nýjum vélum og lionum fengið
mismunandi bragð með blöndun
ekta bragðefna. Eru þannig nú
til sölu af þessum nýju ostum
tvær tegundir af smurosti, ostur
með hangikjöti, rækjum, tómat-
safa og steinsmára^ sunnan úr
AlpafjöIIum. Er það hinn svokall
aði græni Alpaostur.
Ostar þessir eru að sjálfsögðu
framleiddir eftir beztu erlendu
fyrirmyndum, nema hangikjötsost-
urinn, sem ekki er nein erlend
fyrirmynd að. Þegar framleiðsla
þessara nýju osta hófst fyrir um
það bil mánuði, starfaði um skeið
við leiðbeiningar og kennslu fram
leiðslustjóri eins þekktasta mjólk-
urbús, sem framleiðir hliðstæða
osta í Danmörku og sagði hann, að
hinir íslenzku ostar stæðu sízt að
baki dönskum ostum, sem eru
stór liður í mjólkurvöruútflutningi
Dana.
Bræðsluostar eiga vaxandi
vinsældum aö fagna
Nolkun bræðsluosta liefir aukizt
mikið víða um lönd síðustu árin,
sagði Grétar Símonarson, mjólkur-
bússtjóri á blaðamannafundinum í
fyrradag. Þannig væru þeir orðn-
ir meira en helmingur af allri
ostasölu í Bandaríkjunum. Árið
1947 fiuttu Danir út af slíkum osti
rúmlega 400 smálestir en 1952 var
útflutningur þessara osta orðinn
um 6500 smálestir.
Auk þessara sex nýju ostateg-
unda, sem framleiddar eru hjá
Mjólkurbúi Flóamanna, eru fram-
leiddar þar 7 aðrar tegundir osta.
Er því ostaframleiðslan orðin mjög
fjölbreytt hjá þessu stærsta mjólk-
urbúi landsins, enda l>ótt hið nýja
og myndarlega mjólkurbú sé enn
í smíðum og starfseminni sé af
þeim sökum vegna mikillar mjólk
urframleiðslu þröngur stakkur skor
inn. Þeir, sem skoða mjólkurbúið,
veita því athygli, liversu umgengni
er góð og reglusemi mikil á öllum
hlutum sjáanlegu gestsauga. Er
það vissulega mikil trygging fyrir
góðri vöru, enda má fullyrða, án
þess að ýkjur séu, að hinar nýju
ost'ategundir gætu verið útgengi-
leg og eftirsótt vara, hvar sem er
í heiminum. Ber að fagna því, að
íslenzkur mjólkuriðnaður skuli ná
slíkum árangri.-
Endurbygging Mjólkurbs Flóa-
manna hófst fyrir um það bil þrem
ur árum og er nú búið að byggja
Nýjar þýzkar ostagerðavéiar í Mjólkurbúi Flóamanna. Vélarnar eru mikil breyting frá fyrrl vinnubrögðum og
létta störfin til muna. (Ljósm.: Guðni Þórðarson).
Stjórn og framkvæmdastjóri Mjólkurbús Flóamanna.
Á Selfossi er verið að byggja hið síðara af stórhýsum mjólkurbúsins.
Það er um 2400 fermetra bygging.
nokkurn hluta búsins upp og starf-
semin flutt þangað úr gömlu liús-
unum, sem flest hafa verið rifin.
Mjólkurmóttaka og vinnsla er nú
til húsa í þeim hluta byggingar-
innar, sem síðar á að nota fyrir
ostageymslu svo til eingöngu, og
tekur sú bygging þá um 400 smá-
leslir af ostum til geymslu og verk-
unar. En undir ostaframleiðsluna
þarf mikið húsrúm og ostarnir
sjálfir mikla umsýslan meðan þeir
eru að eldast fyrstu vikurnar.
Vcrið er nú að byggja stórhýsi,
sem er um 2400 fcrmetrar, þar
sem mjólkurmóttaka og vinnsla
búsins verður til húsa. Undir því
húsi öllu er kjallari til geymslu
og fyrir vélar, sem tilheyra vinnsl-
unni. Uppi á lofti ostahússins verð-
ur stór samkomusalur, sem Verður
sá stærsti á landinu og tekur 1200
manns í sæti.
Vandlega undirbúnar
framkvæmdir
Allar þessar miklu framkvæmd
ir viö endurbygging'u búsins eru
mjög vandlega undirbúnar og
liefir verið leitað fyrirmynda lijá
þeim þjóð’um, er fremstar standa
um framleiðslu mjólkurvara og
vélar eru keyptar frá fjórum lönd
um, Danmörku, Noregi, Svíþjóð
og Þýzkalandi. Þeir sem að fram-
kvæmdum stjórna, liafa oft farið
tii útlanda til að skoða helztu
nýjungar og starfsemi þeirra
mjólkurbúa, sem mest þykja til
fyrirmyndar, og áherzla er á það
lögð að kaupa aðeins til hins nýja
ínjólkurbús þær vélar, sem eru
taldar beztar og fullkomnastar.
Mjólkurbúið gamla var órðið
með öllu ófullnægjandi, enda orð-
ið síðustu árin að taka á móti 5—7
sinnum aneira mjólkurmagni en
það var byggt fyrir. Hefir mjólkur-
móttaka hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna mest komizt upp í um 105
þúsund lítra á dag. Nýja mjólkur-
búið á að geta tekið á móti 175
þúsund lítrum á dag, en án mikils
aukakostnaðar verður hægt að tvö-
falda vinnslumöguleikana með því
að bæta við tönkum og vélum í
þær byggingar, sem fyrir liendi
verða, þegar mjólkurbúið í sinni
nýju mynd tekur að fullu fil starfa.
Er í-áögert að mjólkurmóttaka og
vinnsla í framtíðarhúsi fyrir þá \
starfsemi geti hafizt á næsta ári.
Ráðgert er að kostnaður við bygg-
ingu nýja mjólkurbúsins verði 45
—48 milljónir króna. Er hér um að
ræða mjólkurbú, sem vinna skal
úr mjólk á stærsta samfellda mjólk
urframleiðslusvæði landsins, af
j Suðurlandsundirlendinu öllu.
; Með f ramtíðina fyrir augum
Með byggingu hins nýja Mjólk-
urbús Flóamanna er stigið þýð-
ingarmikið spor til að efla og
bæta möguleika mjólkurfram-
leiðslunnar á Suðurlandsundir-
lendinu. Mjólkurbúið nýja er
myndarlegt átak samvinnumanna
til þess að tryggja það að úr
mjólkinni sé liægt að vinna sem
verðmætasta vöru á hverjiun
tíma. En vegna þess að stórhug-
ur og myndarskapur stjórnar at-
liöfnum þeirra rnanna, sem þar
hafa valizt til forystu, eru liorfur
á því að framleiðsluvörur bænd-
anna á Suðurlandsundirleiidiiiu
verði góð samkeppnisvara á al-
þjóðlegum mörkuðum, hvar sem
er í lieiminum. Það eru vissulega
þau búskaparviðhorf framtíðar-
innar, sem hæfa landinu og þjóð-
inni, ef hún vill nema Iandið silt
að nýju. gþ.
Hin nýja ostaframleiðsla til sýnis.