Tíminn - 22.01.1958, Page 8
B
T í MIN N, miðvikudaginn 22. janúar 1958.
Ræða Þórðar Björnssonar
(Framliald af 7. siðu).
og verði því lokið um haustið
1960.
Þá hafa nýlagningar gatna verið
gerðar úr svo lélegu efni að stór-
ifelldar viðgerðir hafa orðið að
fara fram á þeim árlega.
Sannleikurinn er sá, að enn í
dag eru í fullu gildi orð eins af
valdamönnum bæjarins fyrir nokkr
um árum þegar hann sagði að
Beykjavíkurbær kynni ekki að búa
til götur.
Þrátl fyrir allt þetta hafa valda-
menn bæjarins fellt tillögur Fram
sóknarmanna á undanförnum ár-
um að gatnagerðarmenn bæjarins
lærðu gatnagerð í nágrannalönd-
unum, að bærinn hagnýtti sér er-
lenda -reynslu, aukna tækni og
bættar vinnuaðferðir, og að verk-
legar framkvæmdir bæjarins verði
saanræmdar.
Orsakir ógæfunnar
®g hefi nú rakið nokkra þætti
■bæjarmála. Niðurstaðan er þessi:
Valdamenn bæjarins hafa ekki
ráðið við þau verkefni, sem þeir
>hafa þurft að glíma við.
Þeir hafa sýnt fyrirhyggju-
leysi í atvinnumálum, ábyrgð
arleysi í fjármálum, sinnu-
leysi í hitaveitumálum, vett-
lingatök í húsnæðismálum
og mistök í skipulagsmálum
og gatnagerð.
En hvemig stendur á þvi að
svona hefir tekizt til, spyrjið þið
áheyrendur góðir. i
Astæðurnar eru margar.
l»að er í fyrsta lagi vegna þess
að sjálft stjórnarform bæjarins
er fyrir löngu orðið úrelt. —
Samkvæmt því skal einn maður,
borgarstjóri, vera framkvæmda-
stjóri alls rekstrar bæjarsjóðs en
hann er fyrir löngu hættur að
geta annað öllu því starfi — ekki
sízt ef hann á einnig setu á Al-
þingi. — Þannig er það enn í
dag aukaverk borgarstjóra að
bafa á hendi alla framkvæmda-
stjórn fjármáia bæjarins. — Þá
vantar alla ábyrga yfirstjórn
verkiegra framkvæmda. i
Það er í þriðja lagi vegna þess
að bænum stjórna þreyttir
menn, sem hreint og beint valda
ekki þeim verkefnum, sem leysa
þarf og gera sér oft heldur ekki
nægilega grein fyrir þeim, menn,
sem þarfnast aðeins hvíldar frá
stjórnarstarfi.
Það er í þrðija Iagi vegna þess
að í stjórn bæjarins eru hags-
munir fámenns hóps sérhags-
munamanna látnir sitja fyrir
bgasmunum bæjarfélagsins og al-
mennings. Og hér er komið að
því allra alvarlegasta.
í hirmi löngu stjórnarfíð
sömu valdamanna hefir skap-
azt slík spilling að gegnsýrir
. allan bæjarreksturinn. .. .“
Þessi spiiling kemur víða
fram og í mörgum myndum.
Skipulagi bæjarins er hag-
rætt eftir vilja og hagsmun-
um sérstakra gæðinga ráða-
manna og fámennri flokks-
klíku.
Heilir kontórar bæjarins
eru notaðir eins og flokks-
skrifstofur.
Bærinn er látinn kaupa
hús og fóðir ofurverði af
flokksgæðingum.
Þegar bærinn úthlutar lóð,
íbúð eða veitir einhver leyfi,
sitja sérgæðingar fyrir.
Þegar bærinn þarf að
kaupa vörur eru þær keypt-J
ar af einhverjum úr flokks-
klíkunni án tiliifs til verðs
og gæða.
Þegar bærinn þarf að fá
verk unnið er það fengið
einflokksgæðingnum án til-
lits tii kostnaðar.
Svona martti lengi áfram telja.
Sérkennið er: Fámennar valda-
jklíkur og flokksgæðingar verða að
Tá að græða á bænum. '
GlundrotSakenningin
Svo mikil og mörg eru vömm
valdamanna bæjarins að þeir
treysta sér alls ekki til að verja
þau.
Þess í stað kyrja þeir sönginn
um það að ef þeir missi völdin
verði glundroði í stjórn bæjarins.
Þetta sama sagði íhaldsflokkur-
inn gamli fyrir Alþingiskosning-
arnar 1927. Þá fullyrti hann að
glundroði yrði í málefnum ríkis-
ins ef hann missti völdin. íhaids-
stjórnin féll og af því varð eng-
inn glundroði heldur upphaf að
glæsilegu framfaratímabili þjóðar-
innar.
í langflestum bæjarfélögum ut-
an Reykjavíikur hafði enginn einn
flokkur meirihiuta á þessu kjör-
tímabili. í þeim öllum var mynd-
uð ábyrg stjórn tveggja eða
fleiri flokka. Sama yrði að sjáif-
sögðu í Reykjavík ef Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði meirihluta sín-
um í bæjarstjórn.
Það er engin ástæða til að
haida fram glundroða þótt núver-
andi ráðamenn bæjarins missi
meirihlutann.
Þvert á móti.
Þá myndu aðeins koma fram
yfirburðir og styrkleiki lýðræðis-
skipulagsins — að skipta um
stjórn — að velja og hafna — að
hafna ömurlegum stjórnarháttum
og gjörspillingu, sem fyígir í kjöl-
far langrar stjórnax sama flokks
— en velja nýja menn til starfsl
og stjórnar og breytta stefnu. '
Góðir Reykvíkingar. j
Bæjarstjórnarkosningarnar í ’
Reykjavík snúast ekki einvörð-
ungu um einstök bæjarmálefni,
sem vaidamenn hafa vanrækt eða \
ekki valdið.
Þær snúast einnig um það
hvort sérhyggjusjónarmið eins
og sama flokks, Sjálfstæðis-
flokksins, eigi að vera áfram
allsráðandi í málefnum bæjarins.
Þær snúast einnig um nauðsyn
þess að breyta um stefnu og skipta
um yfirstjórn bæjarmáia.
Það er fyrir iöngu orðin mál-
efnaieg nauðsyn á að afnema al-
ræði Sjálfstæðisfiokksins í bæjar-
stjóm Reykjavíkur.
Það er orðin söguleg nauðsyn
á þvi að hinir langþreyttu valda- j
irr-enn verði sviftir stjórn bæjarins. |
Það er orðin söguleg nauðsyn
á að ábyrgur, frjálslyndur mið-:
flokkur, eins og Framsókn arflokk-
urinn, fái úrslitaáhrif á gang
mála í bænum.
Og það gera Reykvíkingar
á sunnudaginn kemur með
því að kjósa B-lisfa Fram-
sóknarfiokksins og koma
tveimur framsóknarmönnum
í bæjarstjórn.
x-B listinn
íslenzkum kennurum boðið til Dan-
merkur í sumar í f jórða sinn
Nýlega barst Norræna félaginu í Reykjavík boðsbréf frá
„Föreningen Norden“ í Kaupmannahöfn, þar sem danska
félagið býður 15 íslenzkum kennurum ókeypis námsdvöl í
Danmörku um þriggja vikna skeið í ágúsíínánuði 1958.
Þetta er í fjórða skiptið sem
klenzkir kennarar fá slíkt heim-
boð fyrir atbeina Norræna féiags-
ins í Danmörku, en tvívegis hefir
dönskum kennurum verið boðið
tiH ísiandis og hefir dvöi þeirra hér
verið skipuilögð af Sambandi M.
barnakennara oig Landssambandi
ísl. fraanhaildsskólakennara í sam
vinnu við Norræna féiagið. Um
60 ísl. kennarar og tæplega 50
danskir kennarar hafa hingað til
notið þessarar gagnkvæðu fyrir-
greiðsdu.
Gert er ráð fyrir, að íslenzku
barnakennararnir komi til Kaup-
mannahafnar með m.s. Heklu mið-
vikudaginn 6. ágúst n.k. (Hekia
fer héðan 2. ágúst). Síðan verður
þriggja daga dvöl í Kaupmanna-
höfn, skoðuð söfn, heimsóttar
bækislítöðvar dagblaðs, farið í ferða
lag um Norður-Sjáland til Frede-
riksborg-haMarinnar og Kronborg,
og farið uim Norðvestur-Sjáland
m.a. heimsótt dómikikjan í Hróars
keldu.
Dagana 10.—23. álgúst, dvelja
M. kennaramir í Sönderborg Höj-
skole og vierður þá farið í kynnis
ferðir urn Suður-Jótland.
Dagana 24.—30. ágúst dvelj^
svo kennararnir í Höfn og búa
þar hjiá starifssysfckynum sínum.
Þá verða lieimsóttir skódar og
ýmsar aðrar menntaistofnanir í
Kaupmannahöfn og nágrehni.
Hinn 29. ágúst býður danslka
menntamilaráðuneytið íslen2ku
kennumnum, áisamt ffleiri gesitum
til skllnaðarhófs, en laugardaginn
30. ágúslt verður haldið heimleiðis.
Undirbúr.ingur.
Undirbúnimgsnefndina slripa i’uil
trúar Norræna fólagisLnis í Dan-
■niörku, kennarasamtakanna og
yfirstjóm íræðslumála ■ Kaup-
mannaihafnarborgar. Foran. nefnd-
arinnar er formaður sikólanefndar
Norræna félaigsins i Danmörku,
Albin MitíbeOsen, ráðuneytisstjcri
mieninifcamiál a ró ðu n eytiisinis.
Þeas má geta að meðail nefndar-
manna eru Cart Th. Jensen aðal-
rifcstjóri Berlingiske Tidende og'frú
Bodil Begtrup fyrrverandi am-
bassador Dana í Reykjaivík.
Tilkynning um þáttttöfcuskilyrði
og umsóknarfrest verður birt siðar
í dagblöðum og útvarpi, þégar
undirbúiningsmefnd hefir verið
skipuð af hállfu íslenzkra aðiia.
(Frétt íriá Norræna félaginu).
^!UillUI!IIIIIUIIIIIlimilIIIilUlIIllIIilIlliIimimiilII!IlIlIIIIIIllllHllimi!!lll!III!im|[mil!llllllllIimiUIIIIIIIII!lIlllllIIII!II)UlIIII!lIimiIIIIIIIIIIIIIIIIill!IIUlllllllllI!llllllillillilinilllllllllllillllilllllIllllllllll!i!illllllli]!iillilllllll||||||||i =
JltlasCopcö
LOFTVERKFÆRI
Vér útvegum meS stuttum fyrirvara hvers konar Loftverkfæri, Loftþjöpp-
ur, Borstál með hinu fræga Sandvík Coromant stáli, Málningarsprautur
meí Loftþjöppum o. fl. |
LeitiÖ fyrst til okkar, ef yíur vantar Loftjjjöppur eÖa Loftverkfæri. —
| Einkaumboð fyrir ATLAS COPCO j
| LANDSSMIÐJAN
1 Sími: 11680 |
iíiiiiiiiiiiuiiiiiuiiiiiiiiiiuiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiili