Tíminn - 25.02.1958, Blaðsíða 7

Tíminn - 25.02.1958, Blaðsíða 7
TÍMINN, þriffjndaginn 25. febrúar 1958. 7 Vangefin börn una sér þá bezt er þau geta starfað að því sem orkan leyfir Frú Sigríííur Thorlacius talar vií frú Gretu Bachmann sem er sérfræftingur í uppeldi og umönnun vangefinna barna Það er velkomið að ég spjalii við yður, ef þér hald- ið að það gæti orðið til þess að vekja áhuga fleiri stúlkna á að leggja fyrir sig hjúkrun vangefinna barna, sagði ung- frú Gréta Bachmann, er ég bað hana um viðtal. — Á þeim vettvangi bíður hér mikið verkefni og þar að auki veitir slik menntun at- vinnumöguleika í velflestum löndum heims. Þaff var eiginlega fyrir til'mæli einnar vrnStúlku minnar, sem ég lagffi ú’t í i>etta nám, segir Gréta. Hún 'hafffi fengið tilmæli um að kynna sér þessa starfsgrein, en af því varð ékki,. svo hún spurði mig hvort ég vildi ekki athuga máliff. Ég réffist íyrst til starfa að barna- iieimiliivu aff Skálatúni til' að vita hvennig mér félli að annast van- geíin börn, og er ég hafði gengið úr skugga um, að þaff er síður en svo fráhrindandi starf — þvert á móti — .liggiir mér við að segja, fór ég lil Noregs á fávitahæli, sem heitir Emma Justs Hjem og er í SandVfk, rétt hjá Osló. — Hvérsu langan tíma tekur námiff ? '<"■: — Œvö ár. Ég hyrjaði í janúar mánuði 1956 og lauk prófi í jan- úar þessa ;árs. Fyrstu þrjá mán- uði náimstímans er eingöngu um bóknám áð ræða, en eftir það er farið að starfa á hinum ýmsu deild um 'hælisins. Allan námstímann hlýða 'nemarnir öðru hvoru á fyrh-- lestra og síðustu tvær vikurnar fyrir þró'f eru helgaðar bóknámi. — Hvérjar eru helztu námsgrein- ar? — i Það- er kennd sálarfræði, bæði almenn barnasálarfræði og sálsýkisfræði, hjúkrun, heilsu- fræði,- hjálþ í viðlögum, haniaupp- eldi dg' föndur, auk ýmislegs ann- ars, sfeift viðkemur meðferð á van- gefnu fól-ki á öllum aldri. Náms- skráin'er erfi ð, en eftir á finnur maður; að 'inikilsvert er að hafa fengið þjálfun í svo mörgum grein um. Þaö veitir manni styrk, þeg- ar á að í-ara að vinna sjálfstætt. — Var þetta stórt hæli? — Það voru al'ls 270 sjúklingar á öllum aldri á því, en til mis- langrar dvalar. Margir sjúkling- anna komu þangað til' rannsóknar fyrst og fremst, en mikilli ná- kvæmni var beitt í þehn rannsókn um, sem gerðar eru til að ákveða vit-smunastig og hæfni. Þá var og mikið að því gert að reyna að glöggva s'ig á því sem fram kom í leik og starfi sjúklingsin-s, því að oft segir það mikið til um orsakir örðugleika, sem skapast af ýmsu öðru en beinum vitsmunaskorti. Truflanir geta orðið á sálarlífi barns eða unglings vegna örðugra heimilisástæðna — sum þeirra sem á hælið komu höfðu kannski flækzt af einu uppel'disheimilinu á annað vegna munaðarleysis. — Hvað var þá gert við þá sjúklinga, ■ sem ekki stöðvuðust á hælinu? — í Noregi er mikið gert að því að koma upp smáheimilum fyrir vangefin böm og eru þá ekki nema 10 til 15 börn 1 stað. Öll eru þessi heimili undir eftir- liti eins’aðalhælis og reynt er að velja saman börn, sem samstöðú eiga. Taldi yfirlæknir hælisins, sem ég lærði á, að þetta fyrir- komulag væri mjög æskilegt. — Hver rekur þessi heimili? — Ríkið sér um rekstur allra fávitahæia í landinu, en ýmsar stofnanir koma þeian á fót. Til dæsmis er hælið, sem ég lærði á, stofnað af minningarsjóði konunn- ar, sem það dregur nafn af og félag, sem kailar sig Emma Justs Venner, gefur sjúklingunum gjaf- ir á jólu-m og afmælum, emkuin þeim, sem enga eiga að. Voru það oft dýrar og mik'lar gjafir, heil útvarpstæki eða annað við- líka og stundum fengxi sjúkl'ing- arnir sjálfir að velja gjafirnar. Þetta sama félag kostaði líka oft slcemmtikrafta, sem komu og skemmtu vistmönnum hælisins. Barnadeild hælisins fékk lika fé fi'á félaginu til kaupa á leikföng- um og ým'su öðru, sem með þurfti Gréta Bachmann og mátti með sanni segja, að ekk- ert væri sparað til að búa sem bezt að sjúklingunum. — Kynntust þér starfsemi fleiri hliðstæðra r.tofnana? — Ég dvaldi þrjá mánuði í Dan- mörku á stóru sjúkrahúsi fyrir van- gefið fólk. Var skipzt á nemum milli þess og hælisins í Noregi. Á þvtí sjúkrahúsi voru 870 fávitar. Fannst mér minni rækt lögð þar við hvern einstakling en á hæl- inu i Noregi. — Hvar hafiS þér starfað síðan þér komuð heirn? — Ég hef veitt ferstöðu barna- heimilinu að Skálatúni frá því í janúar, en verð þar aðeins þangað til í apríl', en þá fer ég að starfa á fávitahælinu í Kópavogi. Húsið í Skálatúni er óhentugt og illa fallið til svona starfsemi og ég treysti mér ekki til að leysa staifið þar svo af hendi til langframa, að ég verði ánægð með það sjálf. En þörfin fyrir heimili fyrir vangefin börn er svo mikil, að sjálfsagt er ag reyna að nota-t viö þetta hús- næði þangað til annað betra býðst. — Hve m'örg börn eru að Skála- túni? — Sem stendur eru þau 25, en alitaf eru að berast fyrirspurnir um rúm fyrir íleiri börn, svo að brýn þörf er á að koma sem fyrst upp auknum húsakosti til þeirrar staftf- semi. — Eru sjúklingarnir í Kópavogi efcki aðallega fullorðið fólk? — Þeir eru 16 ára og eldri. Að- búnaður þar er ágætur, enda er húsið byggt til þessara nota. — Álítið þér ekki æskilegt, að þar væri byggð barnadeild? — Alveg tvímælalaust. Með því móti myndu bezt notast starfskraft- ar sérmenntaðs fólks og ýmis tæki, sem slíkar stofnanir þurfa að nota. -— Saknið þér þess ekki að sumu leyti að fara frá börnunum? — Jú, það geri ég sannarlega. Flest vangefin börn er auðvelt að hæna að sér, finni þau hjá manni traust og ástúð. Að vísu þarf mikla þolinmæði við þau, manni hættir við að gleyma, að ekki er nóg að segja þeim að gera eitthvað svona og svona, — geta þeirra er nú einu sinni ekki meiri en það, að aðrir verða að koma þeim til aðstoðar. Eitt vildi óg taka fram, sem að- standendum þessara barna er ef til vill elcki alltaf ljóst. Þeim líður yfirleitt betur í félagsskap þeirra, sem eru á svipuðu stigi og þau sjálf, heldur en meðal heilbrigðra barna. Þá verður samkeppnin fyrir þau of erfið. Þau eru ýmist að reyna að framkvæma það sama og heilbrigðu börnin, en það er þeim um megn, eða þeim er sífelldlega hlíft vegna veikindanna og þá verða þau líka vansæl. Ánægðust eru þau, þegar þau fá að læra og starfa það, sem orka þeirra fram- ast leyfir, en það er ekki á færi annarra en sérfræðinga að meta það. Ég efast um að fólk skilji, án I þess að kynna sér það, live ánægju legt það er, að vinna fyrir vangef- I in börn — og eitt einkenni van- gefins fólks er raunar það, að það heldur alltaf áfram að vera börn að miklu leyti. — Ef — nei, — þegar komin er upp barnadeild við hælið í Kópa vogi, þá fínnst mér að það ætti að verða liður í starfsemi fóstruskól- ans að nemendur hans störfuðu þar um tíma. Þá er ég viss um að fleiri stúlkur myndu leggja fyrir sig fóstrun vangefinna barna og okkur er brýn þörf á að fá fleiri sérmennt aðar stúlkur til stirafa. Með sam- stilltu starfi kunnáttufól'ks, sem vill af kærleika vinna fyrir þá, sem svo höllum fæti standa í lífinu, má margt böl bæta. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að athygli yfirvalda og einstaklinga beinist að því að bæta úr hinni hrýnu þörf, sem er fyrir aukin _ sjúkrahús fyrir vangefið fólk. Óþarft er að fjölyrða um þá erfiðleika, sem því fylgja að hafa slíka sjúklinga í heimahúsum. Sigríður Thorlacius. Framsóknarmenn í Kópavogi Framsóknarfélag Kópavogs heldur almennan félagsfund í Barnaskólahúsinu við Digra nesveg miSvikudagskvöldið 26. febrúar kl. 8,30 e. h. Rædd verða ýms félags- og bæjarmál. Einnig verður tekið á móti nýjum félags- mönnum. NIÐURSTÖÐUTÖLUR Framhald af 4. síðu). væg og vandmeðfarin. í nefnd þessa voru kj'örnir af bæjarstjórn þeir Ólafur Jensson verlkfræðing- ur og Finnbcgi R. Valdimarsson, alþingismaður, en þriðji nefndar- maðurinn verður tilnefndur af fé- lagi erfðaleiguhafa í Kópavogi, sem hefir sérstakra hagsmuna hér að gæta. Framsóknarmönnum í Kópavogi er þessi nefndarkosning ög fyrir- huguð meðferð íóðamála sérslakt ánægjuefni, enda í samræmi við tillögu þeirra í kosningarbarátt- unni. Á fundinum var einnig kjörið í framfærslunefnd. Morgimbíaðsmenn finna upp nýja hagfræðikenningu: Fyrningaraf skrif tir að lögum eru gróði Hve.rnig væri nota sömu reikningsa'SfertÍ gagnvart Eimskipafélaginu og Hamrafelli? Morgunblaðið virðist eiga erfitt með að kyngja þeim sann- leika, sem nú hefir verið birtur og rökstuddur með tölum, að það varð ekki 15 milljóna gróði á Hamrafelli 1957, heldur aðeins 1,7 milljón, en nú er taprekstur á skipinu og það senni- lega langt komið með þessa 1,7 milljón. Svarar blaðið þessum staðreyndum nánast með því að hrópa enn um „gífurlegt okur“. \ í vandræðum sínuin grípur Morgunblaðiff til þess neyðarúr- ræffis aff finna upp nýja hag- fræðikenningu til aff afsaka sig. Hún er á þá lund, aff fyrningar- afskriftir af skipum, eins og þær eru leyfffar í íslenzkum Iögum, séu gróði! Mörg væru gróffa- fyrirtækin á íslandi, ef þetta fengi staðizt, og væri t.d. fróff- legt aff Morgunblaðiff reiknaði saman og birti gróffann á Eim- skipafélagínu samkvæmt þessari kenningu. Ætli stjórnarmeðlini- um Eimskips, svo sem Bjarna nokkrum Benediktssyni, þætti ekki þröngt fyrir dyrum, ef af- skriftirnar af fossunum væru taldar íil gróffa? Þar að auki má minna á, að núgildandi lög um fymingaraf- skriftir skipa munu hafa verið sett í tíð stjórnar Ólafs Thors, og er ólíklegt, að hann hafi litið svo á, að með þessum lögum væri verið að geía kaupskipunum stór- gróða. Verður 17 milljóna tap á skipinu í ár? Það hefir verið margsinnis bent á, hversu varhugaverðar tölur Ing- ólfs Jónssonar í þessu máli væru. Ef reikningsaðferð Ingólfs, sú hin sama sem leiddi í Ijós lýgina miklu um 15 milljónirnar, væri nú notuð, mundi dæmið koma þannig út: Það er sanngjarnt (sagði Ing- ólfur í fyrra) að ætla Hamrafelli 80 shillinga reksturskostnað fyrir flutta smálest. Nú eru þau farm- gjöld, seni Hamrafellið fær, hins vegar tæplega 27 shillingar. Vant- ar þá 53 shiilinga upp á, að skipið hafi fyrir reksturskostnaði, en það gerir 1.750.000 krónur fyrir hverja ferð skipsins. Fari skipið 10 ferðir á árinu, verður tap þess 17,5 milljónir. En skyldu koma miklar greinar um það í Morgunblaðinu? Ætli það hlað skrifi mikið um „ofsatap" á olíuflutningum og krefjist þess, að ríkisstjórnin leið- rétti það? Vonandi reymist þessi útreikn- ingur eftir Ingólfsreglu stærðfræð- innar jafnfráleitur og útkoman um 15 milljóna gróðann. Olíu- siglingarnar lúta nefniléga ekki neinum stærðfræðilegum reglum, eins og berlega þefir komið í Ijós á síðasta ári- Premvilla hfeizta haldreipið Morgunblaðinu finnst ummæli forstjóra SÍS þess efnis, að hægt hefði verið að Ieigja Hamrafell í árslok 1957 vera brosleg, og er það að vonum, þvi hér er um prentvillu að ræða, átti að vera árslok 1956. Verða þá uinmæli forstjórans skiljanlegri og voru aðstæður í árslok 1956 eins og hann lýsir þeim. Morgimblaðiff fylgir þeirri gömlu reglu, aff endurlaka Iýg- ina í þeirri von, aff fólk trúi lienni. Vonaudi fer svo, aff sanu- leikurinn nái eyruni þjóðariunar og þeir Morgunbláffsmenn verffi gerffir ómerkir fyrir ásakanir sínar í þessu máli. k víðavangi Fyrsta persóna „Átti hann Bjarni örfá strá, eitt af þeim er. fokiff . . . Þessi vísuorð hrukku af vörum ganial- reynds Sjálfsíæðismanns, er Iiann hafði lesið Reykjavíkurbréf Mbl. á sunnudaginn þar sem aðal- ritstjórin birtir æviþætti af sjalf um sér. Þessi samherji hélt aff skynsemin bæri hærri hlut í viö ureigninni við metnaðinn. En þar fauk þaff strá. Reykjavíkurbréfið er eitt heljarstórt „ÉG", að vísu ritaff í þriffju persónu, en samt í rauninni í þeirri einu peísómi, sem Bjarni Benediktsson nietur nokkurs, nefnilega fyrstu per- sónu. Ævisöguþættir í ævisöguþáttum Mbl. eru rnargar fróðlegar- og furðulegar. upplýsingar. M. a. þetta: „HANN átti því láni að fagna að Vera við framhaldsnám í lögfræði við Berlínarháskóla . . . Bæði fýrir og eftir valdatöku nazista sótlu margir íslendingar menntun til Þýzkalands . . . Þeim er þetta rit ar er nær daglega brugðiff um það í blöffum allra stjórnarflokk anna að HANN hafi numiff naz- istísk fræffi á æskuárum sínum í Berlín. Óttinn viff þann lærdóm liggur eins og mara jafnvel á meinleysismönnum, eins og llelga Sæmundssyni . .'. . . • Víst væri Bjarna Benedikls syni fengur í því aff það rættist úr draumnum, aff hann kynni að dansa því aff þá list hefir liann aldrei iffkaff í vöku sjálfs síps ; .. Á fundi með nazistum /u Um veruna í Berlín segir m. a. á þessa leiff: „ . . . á Berlínar- árunum sótti Bjarni Benédikts* son tvisvar sinnum fundi nazista. . . . Annar fundurinn var . . . stúdentafundur . . . Hinn fuiicl- urinn varff sögulegri því að þar talaffi sjálfur Hitler . . . Verffur ekki um það deilt aff á landa síua liafffi hann hrein sefjunará* hrif . . . Hrapalegt að lcoma of seint „ . . • í ágúst 1939 skrapp IIANN örfáa daga til Berlínar . . til að skoffa fornar stöffvar. Þá Iiitti HANN í hópi íslending'a þýzkan skipiistúdent, sem verið Iiafði á íslandi og sennilega hef* iil veriff nazisti því aff hann hafffi orð á því aff leitt væri að lionum hefffi ekki vcriff kunnugt um koniu Bjarna því aff þá liefffi hann getaff boffiff lionuin að vera vi^þtaddur aftöku, sem fraiu liafffi farið þá um iiiorguninn. Manninuni var þöklcuð einstök hugulsemi ... Grunsamleg persóna „ . . . geta má þó þess, að þegar HANN var borgarstjóri á stríðs árunum bar það viff aff HANN brá sér . . . norffur í land . . . Þá skutu cmhverjir góffviljaðii’ menn því aff herstjórninni hér að þetta ferffalag væri tortryggi legt. Voru síffan sannar spurnir af því aff gerffur var út leiffang ur tii þess aff fylgjast með ferð um hins toríryggilega borgar* stjóra. Traustatakið á símanum Um viðliorf Sjálfstæðisflokks ins, síffan HANN gerðist þar framámaffur, til líknarstofnana, er þet'ta: „ . . . þegar Sjálfstæðismenn opnuðu félagsheimili sitt í Val Iiöll fyrir tæpuin tveimur árum, var mikill skortur á síinum hér i bæ. Þá var þaff aff um nokkurra mánaffa skeiff fengu þeir lánað símanúmer Vetrarhjálparinnar ... Deila má um þaff.. hvort þeíta liafi verið smckklegt effa ekki. . . . Hvaff sem um það er, þá er notkun flokksins á símanúmer- inu nú fyrir löngu lijá liðin . . .a

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.