Tíminn - 04.03.1958, Blaðsíða 2
2
T f M IN N, þriðjudaginn 4. marz 195%
Stjémmálaályktim aðalf. miðstjórnar Framsóknarflokksins
(Framhald af 1. síðu).
þeim grundvelli, sem áður hafði verið lagður
fyrir forgöngu Framsóknarmanna.
Stóreignaskattur hefir verið á lagður til þess
að afla lánsfjár til byggingar íbúðarhúsa í bæj-
um og kauptúnum næstu tíu ár og til að sjá Veð-
deild Búnaðarbankans fyrir nokkrum árlegum
tekjum á sama tíma vegna lánsfjárþarfar sveit-
anna.
Á síðasta Alþingi var samþykkt ný bankalög-
gjöf. Með henni var seðlabankinn settur undir
sérstaka stjórn og er það skoðun miðstjórnar-
innar, að sú ráðstöfun ásamt fleiri breytingum
1 þeim lögum frá því, sem áður var, eigi að geta
skapað meiri festu í bankamálum þjóðarinnar
og stuðlað að því, að fjármagn bankanna hag-
nýtist landsmönnum betur.
Sett hafa verið ný lög um Háskóla íslands,
Vísindasjóð og fleira á sviði menningarmála.
Þakkar miðstjórnin ráðherrum og þingm.
flokksins fyrir ötult starf að framgangi þessara
og annarra þýðingarmikilla mála, sem tekizt
hefir að koma í framkvæmd með stjórnarsam-
starfinu.
Þá vill miðstjórnin vara þjóðina við ófyrir-
leitnum baráttuaðferðum Sjálfstæðisflokksins í
stjórnarandstöðunni og dæmalausu ábvrgðar-
leysi hans, sem komið hefir meðal annars fram
í margendurteknum tilraunum til að skapa erfið-
leika í efnahagslífi þjóðarinnar heima fyrir, en
þó birzt allra hatrammlegast í óhróðri í erlend-
um blöðum, er virzt hefir beinlínis við það mið-
aður að spilla lánstrausti þjóðarinnar erlendis.
Miðstjórnin vítir harðlega slíkt ábyrgðarleysi
hjá stærsta stjórnmálaflokki landsins.
<2 Jafnframt því, að miðstjórnin lýsir
** ánægju sinni yfir því, sem áunnizt hefir
til framfara, telur hún nauðsyn bera til að vekja
athygli þjóðarinnar á bví, að almennar fram-
kvæmdir í landinu hafa nú um sinn verið byggð-
ar méira á erlendu lánsfé en hægt er að búast
við að unnt verði á næstunni, auk þess að fram-
kvæmdirnar hafa stundum verið svo miklar, að
þær hafa dregið til sín vinnuafl frá aðalatvinnu-
vegum þjóðarinnar og þar með skert gjaldeyris-
tekjurnar. Verð á neyzluvörum hefir orðið að
greiða niður með ríkisfé í stærri stíl en áður
til þess að kaup og þar með tilkostnaður fram-
leiðenda hækkaði ekki, en hins vegar hefir ekki
komið tilsvarandi tekjuöflun til ríkisins á móti.
Verulegur greiðsluhalli á ríkisbúskapnum hefir
orðið síðastliðið ár og allmikið skortir á, að
tekjur útflutningssjóðs hafi hrokkið til uppbót-
anna. Afleiðing alls þessa er óhjákvæmilega sú,
að enn er hættuleg verðbólguþróun fyrir dyrum
í landinu og tilfinnanlegur gjaldevrisskortur, ef
ekki er að gert. Að óbreyttu eru því framundan
óleyst stórfelld ný fjáröflunannndamál. '
Miðstjórnin leggur áherzlu á, að slíkt niður-
greiðslu- og uppbótakerfi, sem hér hefir verið
búið við, er því aðeins framkvæmanlegt, að
samkomulag geti tekizt um að afla þess fjár,
sem til þess þarf. Jafnframt vill hún vekja at-
hygli á því, að enda þótt fé til niðurgreiðslu og
uppbóta væri fvrir hendi, leiðir þetta fyrirkomu-
lag til vaxandi erfiðleika fyrir framleiðslu þjóð-
arinnar og öll heiibrigð viðskipti og í því ríkari
mæli sem það er lengur í gildi og uppbæturnar
og niðurgreiðslurnar meiri. Framkvæmd fyrir-
komulagsins hefir það m. a. í för með sér, að
halda verður uppi í vaxandi mæli innflutningi
miður nauðsynlegra vara, hátollaðra, til tekju-
öflunar í þessu skyni, en að sama skapi verður
fyrir hendi hætta á gjaldeyrisskorti til kaupa
á nauðsynlegustu tækjum, rekstrarvörum til
framleiðslu og brýnustu lífsnauðsynjum. Vax-
andi verðuppbætur á einstakar útflutningsvöru.r
koma jafnframt í veg fyrir, að hægt sé að halda
uppi atvinnurekstri eða stofna til nýrra fram-
leiðslugreina án uppbóta, og dregur því úr við-
leitni manna til að auka fjölbreytni í atvinnu-
lífinu. En skortur á gjaldeyri til nauðsynlegra
innkaupa og fábreytni framleiðslunnar leiðir af
sér rýrnun lífskjara í landinu. Miðstjórnin telur
því nauðsynlegt, að leitað verði annarra úrræða
í þessum efnum.
Miðstjómin telur fyllstu nauðsyn bera til, að
haldið verði áfram því samstarfi, sem hófst með
myndun núverandi ríkisstjórnar, og áríðandi, að
efld verði samvinna milli hinna fjölmennu
vinnu- og framleiðslustétta til sjávar og sveita
og milli þeirra og ríkisvaldsins um framkvæmd-
ir og mótun efnahagskerfis, er miðað sé við það
að tryggja sem bezt almannahag og framtíð
þjóðarinnar, og sporna gegn óþarfa eyðslu svo
og gróðastarfsemi sérhyggjumanna, sem ekki
samrýmist þjóðarhagsmunum. Skorar miðstjórn-
in á alla þá, er að slíku samstarfi vilja stuðla, að
leggja fram krafta sína því til stuðnings, standa
saman gegn þeim, er því viija spilla, og halda
vörð um það, sem áunnizt hefir eða vel er á veg
komið. Væntir miðstjórnin þess, að þeir aðilar,
sem að samstarfinu standa, hiki ekki við að horf-
ast í augu við þá erfiðleika, sem framundan eru
í efnahagslífinu, og hopi ekki frá þeirri ábyrgð,
sem stjórnendur landsins verða að taka á sínar
herðar í því sambandi. Geri það, sem gera þarf
og til heilla horfir, þó að áreynslu kunni að kosta
í bili.
Miðstjórnin leggur á það megináherzlu, að
unnið sé að því af hálfu Alþingis og ríkisstjórnar
að byggja upp traust atvinnulíf, auka fram-
leiðslu útflutningsvara og nauðsynlegra neyzlu-
vara, skapa heilbrigt efnahagskerfi og stuðla að
jafnvægi í byggð landsins. Hún telur, að áfram
verði að vinna að því að auka ræktun landsins
til fóðuröflunar og beitar, stækka minnstu búin,
skipuleggja landbúnaðarframleiðsluna með til-
liti til markaðsmöguleika, bæta samgöngur dreií-
býlisins og vinna að dreifingu raforkunnar, auka
fiskiskipaflotann, bæta hafnir og aðstöðu til fisk-
verkunar og færa út friðunarlínuna við strendur
landsins. Ennfremur að nota möguleika þá, er
hinar nýju virkjanir og orkuveitur skapa til að
auka iðnað í landinu og þá sérstaklega fram-
leiðslu iðnaðarvara til útflutnings. En til þess að ■
þetta megi verða, telur miðstjórnin, að rekstrar-
grundvollur framleiðslunnar þurfi að yera ■
traustur. Á því byggist velmegun bæði framleið-
enda og launamanna. Þá myndi og með fram-
leiðsluaukningu sæmilega séð fyrir gjaldeyris-
málum þjóðarinnar, ef engir möguleikar eru
látnir ónotaðir til að tryggja íslenzkum fram-
leiðsluvörum markaði, þar sem þeirra er kostur *
og halda fyrri mörkuðum. í þessu sambandi vill
miðstjórnin enn á ný beina því til hinna fjöl-
mennu vinnu- og framleiðslustétta að gera sér
þess fulla grein, hve mikilsvert er fyrir þær að
taka höndum saman um uppbyggingu framfara •
í landinu og standa að ábyrgri ríkisstjórn, sem
vill þeirra hag, en láta ekki meðferð þessara
málefna í hendur þeirra manna, sem eru full-
trúar fyrir gróðastarfsemi og sérhagsmuni í
þjóðfélaginu.
'J Aðalfundur miðstjórnarinnar heitir að
* lokum á Framsóknarmenn um land allt
að standa fast saman um flokkinn og stefnu
hans, hver sem viðfangsefni hans verða og hvað
sem framundan kann að vera í stjórnmálum al-
mennt. Skorar fundurinn einnig á umbótasinnað
fólk, hvar á landinu sem er, að ganga til liðs við
flokkinn. Síðan flokkurinn var stofnaður, fyrir
meira en 40 árum, hefir hann aldrei staðið
traustari fótum meðal þjóðarinnar en hann nú
gerir og samhugur og samheldni flokksmanna
aldrei verið meiri. Þetta kom glöggt fram í al-
þingiskosningunum 1956, og þá ekki sízt í því,
hve drengilega og hiklaust flokksmenn studdu
það kosningabandalag, sem gert var samkvæmt
ákvörðun flokksþings á því ári. Þetta kom einnig
skýrt fram í bæjarstjórnarkosningunum í byrjun
þessa árs, en í þeim kosningum jók flokkurinn
heildarfylgi sitt um 29% frá því seín var í næstu
bæjarstjórnarkosningum á undan. Framsóknar-
flokkurinn hefir aldrei skorazt undan þeirri
ábyrgð að hafa forystu um lausn mála á þann
hátt, sem hann hefir talið óhjákvæmilegt og
þjóðinni fyrir beztu, enda þótt hann geri sér
ljós.t, að nauðsynleg úrræði eru ekki alltaf öllum
að skapi við fyrstu sýn og óábyrg afstaða getur
á tímabili villt um fvrir mönnum við mat þeirra.
Það hefir oft komið í hans hlut að taka upp bar-
áttuna við ábyrgðarleysið í efnahagsmálum
þjóðarinnar og til þess er liann jaínan reiðubú-
inn, jafnframt því sem hann berst fyrir alhliða
■framförum og hvetur þjóðina til bjartsýni og
trúar á land sitt og framtíð.
Margt ágætra mynda á málverkaupp-
boði Sigurðar Benediktssonar í dag
Sigurður Benediktsson heldur málverkauppboð kl. 5 síðd.
í dag í Sjáiístæðishúsinu. Sýning var opin á málverkunum
í gær og vcrður opin í dag kl. 2—4 síðd. Er þarna á boðstól-
um óvenjulega margt ágætisverka.
Alls eru 36 myndir á uppboð-
inu. Þar eru þrjár myndir eftir
Kjarval, ein sérstaklega fögur úr
SVínahrauni. Tvær myndir eftir
Ásgrím áf EiríksjöMi, önnur vatns
iitarmynd. Ein m.ynd eftir Jón
Stefánsson; smámynd eftir Kríst-
ínu Jónsdóttur, atlt ágætiamynd-
ir.
Þá er ein sævarmynd eftir Gunn
■1 g Sehcving og vafcisiitamyíid
eftir Gunnlaug Blöndal. Tvær
■myndir eru eftir Guðmund frá Mið
dal, úr Aðaldal og frá Þórisvatni.
Aðrir, sem myndir eru eftir'
é uppboðinu, eru Ólafur Túbals,
Jón Ferdinantsson, Gunnar Hjalta
son, Einar K. Jónsson, Sólveig
E. Pétursdóttir, Kristján Davíðs-
son, Agnete Þórarinisson, Jóhann-
es Geir Jónsson, Engiibert Gísla-
■son, háaldraður maður úr Vest-
■mannaeyjum, seim oft hefir átt
myndir á uppboðum þassum, og
verð myndia hans farið sfhækkandi.
Einnig eru myndir eftir Kristján
Magnússon, Vigdísi Kristjiánsdótt-
ur og Jón Helgason.
Það leynir sér ekki, þegar litið
er yifir þessa sýningu, að þar
er óvenjulega margt góðra mynda,
og er óyíst að eins margt góðra
mynda hafi um langan tíma verið
á málverkauppboði hér.
Mor'Smáli'ð
(Framhald af 12. síðu).
handtaika hann selnt á sunnudags-
kvöldið. Kveðst Guðiaugur hafa
sotfið lengst af á sunnudaginn,
enda þá orðinn vansvelfna. Guð-
laugur var í dag úrskurðaður í
gæzluvarðhald og til geðheilbrigði
rannsóknar.
Lík Sigríðar heitinnar fannst
með þeim hætti, a/5 faðir hennar
fór td að viitja uim ha.na, þegar
hún var ekíki kcimin hieiim á Skóla
vörðu'Stíg 35 síðdegis á sunnudag.
Kom hann að læstri hurð her-
bergisins í risi í EskiMíð 12B.
Þegar enginn anzaði sá hann í
gegnum skrláargatið föt dóttur
sinnar. Þótti honum þetta ekki ein
leikið og braut hurðina upp-
Utanríkisráðherra-
fundur í Genf í apríl
— er tillaga Rússa
Loadon, 3. marz. — Birtnr var
í kvöid í Moskva boðskapur sá,
er Rússar sendu vesturveldunum
um helgina varSandi utanríkis-
ráSherrafund. Er þar lagt tii, aS
utanríkisráð'herrafundur verði
haldinn í Genf í apríi til undir-
búnings æSstu manna fundi í
júní. Rússar leggja til, aS báðir
fundir verið jafnt skipaðir aðii-
um úr kommúnistiskum og and-
kommúnistiskum ríkjum. Bretar,
Frakkar, Bandaríkjamenn og
ítalir verði af hálfu vesturlanda
en Rússland, Póiland, Tékóslóvak
ía og Rúmenía af hálfu komm-
únistaríkja.
Dregið í DAS
í gær var dregið í Happdrætti
DAS og komu upp eftirtaldir
•vtaningar:-.
3 herbergja íbúð að Álfheimum
toom á nr. 23146. Miðinn seldur
í Stykkishólmi. Eigandi: Hrafn-
keil Ailexandersson, trésmiður,
Borgarneisi.
Ford, model ’58, á nr. 8777, seld
ur í uimboði Sigríðar Helgadóttur
Miðtúni. Éigandi Guðrún Karís-
dóttir, Miðtúni 30.
Véibáturina Sólartindur, nr.
55571, seldur í Hafnarfjarðarum-
boði. Eiigandi: Kjartan Guðmunds
son, sjóimaður, Ströndum.
Mosikvibsch-ifólksbíilil kom á miða
nr- 39986, seldur í Vesturveri.
Eigandi: Páll Jónsson, vélvirki,
Vig'hódastíg 13. Kópavogi.
Húsgöign fyrir kr. 25000 kom
á miða nr. 206. Seldur í Vestur-
veri. Eigandi: Katrín Ásmunds-
dóctir, MláfaMíð 22.
Píanó kom á núða nr. 46954,
seldur í Vesturveri. Eigandi:
Júlíus M. Júlíusson, Ægissíðu 76-
Psjanó (hornung-Möki'er) kom
á miða nr. 58464. Eigandi ófund-
inn.
Heimlistseki fyrir kr. 10 þás.
kom á miða nr. 17344. Seldur í
Vasturveri. Eigandi: Jóhann Guð-
jónsson, Rauð. 34.
Fjárlagafrumvarp
fyrir norska þinginu
Norska stjórnin lagði í dag fyrír
þingið framvarp til fjárlaga fyrir
næsta fárhagsár. Heiidarupphæð
á frumvarpinu er 5 milljarðar
og rúml. 730 milljónir norskra
króna, og er það um 100 mil-ljón-
um króna hærri upphæð en á
núverandi fjárhagsári. 980 miiijón
um norskra króna skai varið til
landvarna. Nokkrar breytingar
verða gerðar á skattaá-lagningu,
meðal annars á þá lund, að barna
lifeyrir, sem mun hækka nokkuð,
verður algeríega skattírjáis.
Uim 40 þiis. manns eru nú at-
vinnulausir í Noregi, og er þetta
atvinnuleysi að nokkru leyti talið
að kenna aflabresti á sí’dveiðun-
um. Útvegsmienai munu ekki geta
haldið áfram útgerð eftir vertíð-
ina nema þeir fái lán með ríkis-
ábyrgð till rekstrarins.
Húsgögn fyrir kr. 10 þús. kom
á miða nr. 39793, seldur í Vestiur-
veri. Eigandi: Margrét Eiríksdótt-
ir, Langagerði 41.
Húsgögn fyrir kr. 10 þús. kom
á miða nr. 25310. Seldur í umboði
Sig. HeUlgadóttur. Eigandi: Ólafur
Jóhannesson, Njiáiteg. 75.