Tíminn - 25.03.1958, Side 4
4
«
Mike Todd öðlaðisf fyrsf
heimsfrægð, þegar sýnd var
kvikmyndin „í kringum jörð-
ina á 80 dögum". En nafn
Todds var þó þekkt í sam-
kvæmislífi Ameríku áður en
myndin var sýnd sem nú hef
ir gengið um tveggja ára
skeið í New York og ganga
mun enn um nokkur ár sam-
fleytt. Fáir hafa tapað og
grætt á kvikmyndagerð sem
hann, annan daginn var hann
mill jónamæringur, næsfa
dag var hann blankur með
öllu. En Todd hafði lag á því
að komast alitaf á tindinn á
ný.
Líf hans var viðlburðairíkt og æs-
andi, miklu dramatískara en nokkr
um reyfarahöfundi í Hollywood
gæti dottið í hug, æviferillinn var
svipvindasamur. Það leyndist ótæm
andi viljakraftur í þessum þéttaxla
íturvaxna manni. Hann náði því
Mike Todd — brenndl íjórar stúikur
upp til agna.
marki, sem hann sóttist eftir og
kærði sig kollóttan hvað það mundi
kosta.
Byrjaði snemma
Mike Todd sá fyrst dagsins Ijós
í Minneapolis, sonur pólskra inn-
flytjenda. Við skírn hlaut hann
nafnið Avrom Hirsch Goldbogen.
19 ára gamall breytti hann nafninu
Goldbogen í Todd. Nafnið er til-
komið af því að í æsku gætti hann
geita, geit er goat á ensku, en í
munni drengsins varð það toat og
hlaut hann síðan það viðurnefni.
Úr því varð síðan Todd.
Það varð ljóst meðan drengurinn
var á unga aldri, að hann bjó yfir
áfburða verzlunarhæfileikum. Og
hann kunni að notfæra sér það.
Hann var ekki miklu eldri en 10
ára, þegar hann fann upp aðferð
til að hindra gesti í skemmtigarði
borgarinnar í því að kasta þremur
(boltum í körfu við skotbakkann og
fá þar með verðlaiUTi.
An þess að eiga eyri í vasanum
opnaði hinn 15 ára gamli skóla-
drengur skrifstofu í Chicago, sem
bar nafnið: „Gerið heimili yðar
iiýt!zkulegt“. Mike samdi um gjald
frest fyrir auglýsingar í blöðunum
og seldi síðan viðskiptavini sína í
hendurnar á húsgagnaværzhinum.
Þar næst stofnaði Todd með
vini sínum félag, sem greiddi bruna
itjón á ódýrum vörulagerum, sem
síðan voru seldir á niðursettu!
verði. Húsmæður streymdu að til j
að fá ódýrar vörur úr brunanum I
og upp úr þessu höfðu þeir félag-
ar álitlegan pening.
Eldtungudansinn
• Það var á heimssýningunnt 1933
Mike Todd lifði viSSburðaríkri ævi -
var milljónamæringur einn daginn -
staurblankur hinn daginn - byrjaði
semma - „Strauss á sviðinu - heitar
pylsur í hléinu' - dó milljónamæring-
ur - viðurkenndi Krusjov sem ofjarl
sinn - 46 stjörnur 68894 statistar og
7959 dýr komu fram í kvikmyndmni
„Kringum jörðina á 80 dögum^
í Chicago, sem Todd vakti fyrst
verulega athvgli á sér. Þá var hann
byrjaður að starfa í skemmtanalíf-
inu, fvrst um sin-n í smáum stíl. Á
leiksýningunni setti hann á svið
EldtungudansLnn, sem gaf álitlega
fjárhæð í aðra hönd.
Dansinn var á þá lund, að stúlka
í lí'ki meiflugu dansaði villtan dans
í kringum bálköst og fikraði sig sí-
fellt nær og nær, þar til föt henn-
ar fuðruðu upp og hún hlióp æp-
andi út af sviðinu I björtu báii —
að því er virtist. „Ég brenndi fjór-
ar stúlkur upp til agna áður en
mér heppnaðist brellan“, sagði
Todd. En síðan seldi hann þetta
skemmtiatriði um þvera Ameríku.
I
65000 doHarar á viku
Þegar í lok annars tugs aldarinnar
iiafði hann komið við í Hollywood
' með bróður siínum og sett á stofn
fyrirtæki, sem tók að sér að byggja
vinnustofur fyr-ir kvikmyndir með
1 tali, sem þá voru að ryðja sér til
1 rúms. Tveimur áratugum seínna
sneri hann þangað aftur og langaði
nú til að framleiða kvikmyndir.
Hann keypti einkarétt á nýrri teg-
und breiðfilmu, sem enginn hafði
trú á, Cinerama. Fyrir það fé, sem
j hann græddi á því að selja þetta
j framileiddi hann seinna
’ sína eigin uppgötvun á sviði kvik-
myndatjalda „TODD-AO“, sem
! notað var með frábærum árangri
í myndinni „Oklahoma". Todd ein-
beitti nú öllum kröftum sínum að
kvikmyndagerðinni, lagt skyldi til
baráttu með myndinni „Kringum
jörðina á 80 dögum“.
Á miðjurn þriðja tug aidarinnar
skaut han-n upp kolli á Broadway.
Nú hafði hann snúið baki við
skemmtiatriðum og revíuleik, ætl-
aði að taka sér fyrir hendur alvar-
lega leiklist. Það var honum dýrt
í byrjun. Eftir fjórar misheppnan-
ir lærði hann lis'tina að setja á
svið. Slagorð hans var á þessa leið:
„Strauss á sviðinu, heitar pylsur í
ihléinu“. Hann náði sér fyrst á strik
með negraóperu.nni „The Hot
Blikado", sem vaikti feikilega
kátínu og vinsæMir. Hann ferðað-
ist með hana um Bandaríkin og.
græddi 65000 doliara á viku. Nú
vissi Todd hvað fóikið vildi fá fyr-
ir snúð sinn. Hvað eftir annað
setti hann stórfé í nútímasöngleiki
með „straumlínulagi" og græddi á
tá og fingri. Svo mikið frægðarorð
fór af honum á stríðsárunum, að
Eisenhower skipaði hann fram-
kvæmdastjóra skemmtinef'ndar fyr-
ir sameinaðan hera'fla bandaman-na
í Evrópu.
En það var kvifcmyndin, sem
gerði hann að ókryndum konungi.
Myndin kosfaði bara
6 milljónir
Árangurinn varð sá, að veröldin
fékk að sjá kvikmynd, sem tók öliu
öðru fram. Maður verður hissa á
því að heyra að hún skyldi ekki
hafa kostað meira en 6 milljónir
dollara. Allur tilkostnaður við
myndina var svo gífuriegur, að
slikt og þvílíkt hefir aldrei heyrst.
Hvorki meira né minna en 46
kvikmyndastjörnur komu fram í
myndinni, þar sem ein þeirra
mundi nægja í hverri venjulegri
kvikmynd. Svo koma aukablutverk-
in: 68.894 statistar og 7959 dýr.
Todd leigði sér 34 leikstjóra, sem
unnu undir stjórn Englendingsins
unga Michael Anderson og mynd-
in var tekin á 160 dögum á 112
stöðum í 13 löndum.
Kvöldið, sem myndin var frum-
sýnd í New York, lýsti Todd þessu
yfir: — Ef einhver mundi biðja
mig að lána sér 100 dollara í kvöíd,
verð ég að játa með kinnrqða, að
ég á ekki svo mikið fé. Ég hef
fórnað öliu, sem ég á fyrir þassa
kvikmynd.
Mike Todd var margfaldur
milljónam'æringur, þegar hann lét
Hfið. Hann reiknaði sjálfur með
því að myndin myndi gefa 40
milljónir dollara af sér í Evrópu
og Ameríku. Það var ekkert við
því að segja, þótt hann byði frum-
sýningargestum í London upp á
glas eftir sýninguna í Tívolí í
Lundúnaþorg. Það kostaði hann
ekki nema 200 þús. dollara.
Hálfu ári fyrir þann atfourð
hafði Todd hitt kvik-
myndastjörnuna Elisabeth Taylor,
sem var 25 ára að aldri og upprunn
in í Englandi. Hann kvæntiist
henni. Hún hafði verið gift tvisv-
ar áður eins og Todd.
Hún á tvö börn frá hjónabandi
sínu með Ieikaranum Michael'
Wilding, og eitt barn á hún með
Todd. Fyrsta eiginkona Todds dó
'árið 1946, önnur kona hans, leik-
konan Joan Blöndel'l skildi við
hann árið 1950.
Síðasta árið ferðuðust hjónin um
Evrópu og komu einnig til Moskvu.
Þar hi'ttu þau Krústjov og Todd
sagði síðar að Krústjov væri enn
meiri töframaður á sviði leiksýn-
inga en hann sjá'lfur.
Þegar Mike Todd kom í einkaflugvél
sinni til Parísar en þaðan aetlaði
hann me3 konu sinni Elizabeth Tayl-
or ti! Moskvu, haf5i frúin gert inn-
kaup í verzlunum borgarinnar og
var þaS ekkert smáræSi. Hér útskýr-
ir hún fyrir manni sínum aö hver
smáhlutur hafi veriS nauSsynlegur
fyrir hana — enda setti Mike Todd
met í því aS borga fyrir yfirvigt á
farangri til Moskva.
TÍMINN, þriðjudaginn 25. marz 1958»
Indverskskáldsaga
Norska Gyidendals-forlagið gef-
ur út foóka'flokk úrvalsbóka, sem
ritlhöfundurinn Sigurd Hoel velur.
í þessum flokki birtist árið 1956
skáldsaga eftir indverska konu,
Kamala Mankandaya og ritaði Hoel
formála fyrir bókinni.
Hcifundurinn er þrítug kona frá
suðurhluta Indlands og hiant
mennt-un sína við -háskólann í Mad-
ras. Strax á námsárunum tók hún
-að stunda Maðamennsku og ferð-
aðist þ'á um og dvaldi oft hjá. fá-
tæku aíþýðufólki. Kynntist hún við
það fcj'örum þess og hinni hörðu
líifsbaráttu. Árið 1948 fluttist hún
til Englands, giftist þar og heíir
verið 'búsett þar síðan.
Sigurd Hoel -segir í formála sín-
um, að skálds-ögunni „Hunang í
sáldi“ (Neetar in a sieve), hafi
verið l'íkt við „Gott land“ eftir
Pearl Buek og „Grát, ástkæra fóst-
urmold“ eftir Allan Paton. Sumir
ritdómarar íhafi jafnivel gengið svo
'langt að bera bana sa'man við
„Gróður j’arðar" eftir Hamsun og
,,’Kristin Lafransdóttur“ eftir Sig-
rid Undset. í Bandaríkjunum var
sagan -valin „bók mánaðarins“ í
júná 1956 og hlaut afar góðar við-
tökur.
Segja má, að allsterkt svipmót
sé með þessari bók og „Gott land“.
Þó þýkir mér þessi betur skrifuð.
í foenni er lýst 'kjörum indversks
rísyrkjuhónd-a o-g fjölskyldu foans.
Söguna segir kona hans, sem er
h'Onum gefin tólf ára gömul. Fjöl-
skylda ihennar foefir orðið fyrir því
óláni að þar fæddust fjórar dætur
og þar sem þessi er yngst, endast
ekki efni föður foennar til að gifta
hana manni æðri stéttar. Bóndinn
fer með hana (heim í leirbotfann,
sem foann hefir sjálfur reist á
jarðarskikanum, sem hann hefir á
leig-u og verður að gjalda svo hátt
verð fyrir, að uppskeran endist
ekki, jafnvel í góðæri, nema rétt
til að framífleyta hinni vaxandi
fjölskyldu. Manni finnst, að höf-
undi takist undra vel að lýsa líf-
inu frá sjónarhóli kon-u, sem mót-
uð er af slíku umhverfi. Hún lýs-
ir hörmum og gieði, örvæntingu
og þrautseigju, réttleysi leigulið-
ans gegn fjarlægum jarðeigandaj
og vanmætti hinna örsnauðu verkai’
manna gegn iðjuhöldum.
Að vissu leyti er þessi skáldsag-a
'löfsöngur um konuna, sem aldrei
lætur bugast, se-m með samblandi
kærleika og hörku, þolgæðis og afc-
orku tekur hverju því, sem a3
höndum ber. Svo mannlega sann-ad
eru lýsingarnar, að lesandinn hlýt-
ur að hrærast með iífi fjölskyld-
unnar í þessu framandlega um«
hvenfi, fyllast samúð og hljóta auife
inn skilning á kjörum þeirrá
milljóna, sem öidum saman hi^
lífsbaráttu sína á mörkum hungur
dauðans. En lífslöngunin er sterk,
baráttunni er haldið áfram og
ósigrunum tekið með auðmýkt —■'
svona hefir iþetta alltaf verið og
fáir eygja, að við nok'kurn sé a'ð
sakast, að nokkru verði breytt.
Vonandi verður þessi bók þýdd
á íslenzku, sivo að sem flestir geti
n-otið hennar. S. Th.
ELDHÚSÍD
Eldhúsráð
Mabkaroni og spaghetti er
drjúgt og gott með ýmsum réttum,
auk þess sem það er tiltölulega
ódýrt. Til þess að það líti skemmti
lega út og bragðist vel, á að fylgja'
e'ftirfarandi reglum, þegar það er
soðið:
1. Ekki má ofsjóða það, en
fylgja nábvæmlega fyrirsögninni,
sem fylgir á umbúðunum.
2. Sjóða skal það í nógu af sölt-
uðu vatni og láta það ekki útí fyrr
en vatnið sýður.
3. Ekki ætti að brjóta spaghetti
eða makkaroni í bita, heldur renna
þeim niður í vatnið, jáfnóðum. og
stengurnar linast.
4. Þegar lengjurnar eru komnan
á kaf í vatnið, á að minnka hitann/
og láta sjóða við hægan eld. Öðrii
hvoru skal hreyfa lengjurnar með
sleif, svo að þær klessist ekki sam-
(Fraimh. á 8. síðu.)
Nýjar hárgreiíslur og hattar
Það er svo sem ekki nóg að kaupa nýjan hatt, hárgreiðslan þarf að haefa
hattinum og hér eru nokkur sýnishorn af því hvernig samræma má mi>
munandi hattlag og greiðslur.