Tíminn - 25.03.1958, Side 6

Tíminn - 25.03.1958, Side 6
6 T í M I N N, þriðjudaginn 25. marz 195$ Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn Kitstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarinsson (áb.) Skrifstofur í Edduhúsinu vjð Lindargötu. Simar: 18300, 18301, 18302, 18303, 18304 (ritstjórn og blaðamenn). Auglýsingasimi 19523. Afgreiðslusími 12323. Pi'entsmiðjan Edda h.f. ■------------------------------------- Björn, Ólafur og Einar vitna SÍÐAN bæjar- og sveitar stjórnarkosningamar fóru fram, hefur verið fremur hljótt um stjórn Reykjavík- urbæjar. Það er eins og þeir, sem. þá, áttust við, hafi tekiö sér nokkra hvild eftir kosn- ingasennuna. Það hefur hins vegar gerzt síðan, að þrír kunnir Sjálf- stæöismenn hafa orðið til þess aö minna á við ólík tæki færi, aö stjórn Reykjavíkur- bæjar sé ekki með alveg eins miklum ágætum og flokkur þeirra vildi vera láta fyrir kosningarnar. Þessir menn eru þingmennirnir Björn Ólafsson og Ólafur Björns- son og sérfræðingur Mbl. í útgeröarmálum, Einar Sig- urðsson útgerðarmaður og frystihúsaeigandi. BJÖRN Ólafsson kom fyrstur fram á sviðið þeirra þremenninganna. Það var á Alþingi í sambandi við frum varp fjármálaráðherra um aö lækka skatta á atvinnu- fyrirtækjum. Björn sagði réttiiega, aö hér væri stefnt í rétta átt, en þó myndi þetta verða atvinnufyrirtækjum að takmöfkuðum notum, ef eng ar hömlur væru settar gean því, aö Revkiavíkurbær eða öllum bæjarfélög misnotuðu ekki ve’tuútsvarið til þess að legaia óhófleear álöeur á at- vinnureks+urmn. Biörn rök- studdi það síðan nánara, hve grá’iega atvinnufvrirtækin væru leikin með veltuútsvör- um og hafði hann þá að si álf sögðu reynslu reykvískra fyrirtækja í huga. ÓLAFUR Björnsson próf essor varð næstur til þess að birtast á umræddu sjónar- sviöi. Það var í sambandi við umræður á Alþingi um þá till-ögu Alþýðuflokksmanna, að athugað yrði, hvort ekki væri rétt að fella alveg nið- ur tekj ivskatt ríkisins. Ólafur Bjömsson kvaddi sér þá hljóðs og flutti ræðu, sem var athyglisverð að ýmsu leyti. Mesta athygli vakti þó það atriði í ræðu hans, að hann taldi einstaklingana ekki mikið bættari, þótt lekjuskattur ríkisins yrði felidur niður, ef útsvarsálög- ur yrðu látnar vera ótak- markaðar áfram. Ólafur benti svo réttilega á það, að einst-akUngar borguðu nú miklu meira í útsvar en í tekjuskatt. Voru þessi um- mæii Óiafs að siálfsögðu miðuð við Reykjavík. í þessu sambandi er skemmst að minnast, að Reýkvíkingur. sem Mbl. sagði frá í fyrra að hefði flúið land vegna of hárra skatta, greiddi margfalt meira í út- svar en skatta til rikisins. FTNAR Sieurðsson kom svo frnm á siónarsviðið í Mbl. á sunnudaginn var. Hann ræöir þa-r um útgerðina í Reykiavik og segir m.a.: „En hvað gerir Revkiavík til aö efla hér útgerð Jú, bærinn hefur fest káup á 8 togurum og lagt þeirri út- gerð til á milli 30 og 40 millj. króna sem lán eða styrk úr bæjarsjóöi. Það hafa veriö byggðar verbúðir fyrir bát- ana. Fyi-ir utan þetta verður bent á fátt, sem gert hefur verið af hálfu bæjarins til eflingar útgerö hér. Eitthvað var þó um ábyrgðir af hálfu bæjarsjóðs á nýsköpunarár- unum í sambandi við báta- kaup. Svo hefur höfnin auð- vitað verið stækkuð hér, en það er almenns eölis og ekk- ert sérstakt fyrir Reykja- vík.“ Þegar það er athugað, að útsvör þau, sem bærinn legg ur nú á bæjarbúa nema hátt á þriðja hundrað milij. kr. árlega, og við þetta bætist svo fjölda margar álögur aðrar, þá verð'ur það vissu- lega ekki talin nein stór- rausn, þótt Reykjavíkurbær hafi á meira en 10 ára tíma- bili lagt 30—40 millj. kr. til bæjiarútgerðarinnar og um- fram það sama og ekkert til annarrar útgerðar. EINAR bendir svo þessu næst á það, sem ýmis önnur bæjarfélög gera til að efla útgerö hjá sér. Ef til vill kmmi sums staðar aö vera of langt gengið í þeim efn- um. Síðan segir hann orö- rétt: „En það er líka mikill mun ur á að leggja misjafnlega vel rekinni bæjarútgerö til einfalt, tvöfalt, þrefalt og þaðan af meira upprunalegt kaupverð togaranna eða leggja stein í götu útgeröar einstaJdinganna. Nýbúið er að hækka hér verbúðaleigu um 100%. Þá hefur vatns- skattm- á fiskiðnaðinn ný- lega verið fimm til tifaidað- ur og er nú orðinn állka og útsvarið eða hærra." í þessum ummælum Ein- ars kemur það eins glöggt fram og verða má, að hann tel-ur stjórnendur Reykjavik urbæjar síður en svo greiða fyrir útgerð og fiskiðnaði ein staklinga i bænum, heldur leggi þeir þvert á móti „stein í götu útgerðar einstakl- insra“ með aðgerðum eins og hækkunum á verbúðarleigu og vatnsskatti. SENN eru liönir þrír mánúðir af þessu ári. Fjár- hagsáætlun Reykjavíkurbæj ar fyrir þetta ár, sem átti að vera afgreidd fyrir áramót, hefur enn efcki verið af- greidd frá bæjarstjórninni. Upphaflega var henni frest- aðað fram yfir bæjarstjórnar kosningar en tveir mánuðir eru nú liðnir frá þeim. Hvað veldur þessum drætti? Er kannske verið að athuga möguleika á aö lækka út- svörin eða aö draga úr verð- búðarleigunni og vatnsskatt inum og reyna þannig að greiða fyrir útgerðinni í stað þess að leggja stein í götu hennar? Eða er það kannske á döfinni að hækka álögurn ar enn einu sinni? ERLENT YFIRLIT: iigur Khalils er áfall fyrir Nasser Úrslit þingkosninganna í Súdan styrkja sjálístætJi landsins í sessi UM 10. þ. ni. lauk í Súdan þing- kosningum, sem höfðu staðið yfir í nær hálfan mánuð. Staðhættir og aðstaða í Súdan gerðu það að verkum, að kosningarnar þurftu að taka svo langan tíma. Erlendir blaðamenn, sem fylgdust með kosningunum, segja, að þær hafi yfirleitt farið vel fram og borið þess vitni, að stjórnarhættir í Súdan séu traustari og heilbrigð- ari en yfirieitt sé hægt að búast við í ungu ríki, þar sem fjölmargt er enn á frumstígi og fólkið meira og minna óvant lýðræðislegum stjórnarháttum. Dómar hinna er- lendu blaðamanna eru líka yfir- leitt þeir, að hin fyrsta ganga Súdans á sjálfstæðisbrautinni spái góðu um framtíðina. í KOSNINGUNUM tóku þátt margir flokkar, en mest bar þó á tveimur meginfylkingum. Ann- ars vegar voru stjórnarflokkarn- ir tveir, Ununafiokkurinn og Þjóð veldisflokkurinn, en auk þess fylgdu ýmsir smáflokkar þeim beint og óbeint að málum. Hins- vegar voru þjóðlegi sameiningar- ílokkurinn og nokkrir smáflokk- ar, sem fylgdu honum að málum. f kosningum, sem fóru fram til stjórnlagaþings 1953, bar þjóð- lcgi sambandsflokkurinn sigur úr býtum og myndaði stjórn. Hann Wofnaði hinsvegar fyrir lVz ári, og gekk hluti hans, sem stofnaði Þljlóðveldisflokkinti, þá til sam- starfs við Ummaflokkinn. í innanlandsmálum ber ekki mjög mikið á milli þessara tveggja fylkinga. í utanríkismálunum er munurinn hins vegar verulegur. Báðir lýsa sig að vísu fylgjandi hlutleysi eða óháðri utanríkis- stefnu. Þjóðlegi sameiningarflokk urinn vill hins vegar hafa mjög nána samvinnu við Egypta og hefði sigur hans vel geta þýtt, að Súdan hefði gerzt aðili að bandalagi Egyptalands og Sýr- iands á svipaðan hátt og Yemen. Þá er afstaða flokksins heldur andsnúin vestur\reldunum. Umma- flokkurinn vill hins vegar ekki að- eins hafa nána samvinnu við Egypta, heldur einnig önnur ná- grannariki eins og Ethiopíu og Libýu. Hann telur að sameining við Egyptal. komi ekki til greina. Hann telur að Súdan eigi að hafa góða samvinnu við öll Arabaríkin, en sérstaklega eigi þó Súdan að vinna að nánara samstarfi Afríku rikjanna, enda eigi það bezt heima þar. Þótt hann fylgi hlutleysi í deilunum milli austurs og vesturs, er hann hliðhollari vesturveldun- um en Rússiun. í norðurhluta Súdans búa Arabar og hafa þeir ráðið mestu fram að þessu. MEÐ VISSUM rétti má segja, að saga Súdans í núv. mynd sinni, hefjist ekki fyrr en eftir 1920, er Egyptar brutust þar til yfir- ráða, en þá voru þar fyrir ýms smáriki. Um og eftir 1880 var gerð uppreisn gegn Egyptum undir for- ustu Mahdista, sem er einn stærsti þjóðflokkurinn í Súdan og nú myndar kjarna Ummafl. Uppreisn þessi var svo öflug að Egyptar voru hrabtir úr landi, og varð hún ekki j brotiri á bak aftur fyrr en Bretar skárust í leikinn. Bretar og Egyptar stjórnuðu svo Súdan sam eiginlega á árunum 1898—55, en í raun og veru voru það þó Bretar sem fóru með stjórnina. Þeir gerðu Súdan að sérstöku ríkiskerfi og lögðu þannig grundvöll að súdanska rikinu, eins og það er í dag. Jafnframt hófust þeir þar handa um ýmsar merkilegar fram , kvæmdir, t.d. eru áveiturnar, sem I þeir beittu sér fyrir á Gezira- l svæðinu, som myndar tung- una milli Hvítu- og Bláu-Níl- ar, eirilfverrar stærstu áveitufram kvæmdar í heimi, og ræktunar- fyrirkomulagið þar er mjög' merki legt, en það byggist á einskonar samvinnugrundvelli. Af þessum og fleiri ástæðum eru Bretar engann veginn illa séðir í Súdan. ; Súdan er með stærstu ríkjum í lieimi að flatarmáli, eða 967 þús. fermilur. Stór hluti landsins er eyðimörk, en ræktanlegt land er líka víðáttumikið og miklir mögu- leikar víða til stórfelldra áveitu- framkvæmda. Súdan gelur því orð ið mikið framtíðarland. íbúar þess eru nú rúmar 10 millj. ÁRIÐ 1953 urðu Bretar og Egyptar sammála inn að veita Súdan sjálfstjórn. Sama ár fóru fram kosningar til þings fyrir Súdan, og var fjmsta stjórn þess mynduð nokkru síðar. í deseanber 1955 ákvað þingið að lýsa ýfir fullu sjálfstæði Súdans, og lýstu Bretar og Egyptar síðan samþykki sínu á því. Endanlega var sjálf- stæði Súdans lýst yfir 1. janúar 1956. Eins og áður segir, vann þjóð- legi samemingarflokkurinn þing- kosningarnar 1953 og myndaði því fyrstu stjórn landsins. Vegna.klofn ings í flofcknum, urðu stjócnar- skipti 1956 og varð þá foringi Ummaflokksins, Abdullah Rhalil, forsætisráðherra, og hefur hann verið það siðan. Fyrsta verk hins nýkjörna þings, er það kom sam- an í seinustu viku, var að endur- kjósa Khalil sem forsætLsráðherra. Hann fékk 103 atkv. Foringi Þjóð- lega sameiningarflokksins, Ismail el Azhari, er var fynsti forsætis- ráðheri'a Súdans, fékk 44 atkv. og forsætisráðherraefni sunnan: manna 25 atkv. ABDULLAH Khalil er 66 áfa gamall. Hann er af þjóðflokki Mahdista, sem byggir norðvestur- héruð landsins og jafnan hefur haft forustuna í sjálfstæðisbaráttu Súdans. Faðir hans var sæmilega efnaður bóndi og sendi sori sinn á herskóla Breta í Khartóum, en Mahdistar hafa haft það orð á sér að vera góðir hermenn. — Khalil vann sér brátt gott orð sem hermaður og hlaut fljótt liðs- foringjatign. Hann barðist undir merkjum Breta í báðum heims- styrjöldunum. í fyrri heimsstyrj- öldinni stjórnaði hann inia. ; hér-' deild á Gallipoli, en í síðari styrj- öldinni stjórnaði hann liði því, sem fór frá Súdan inn í Ethiopíu og hrakti ítali þaðan. f þessú liði voru aðallega hermenn frá Súdan. Eftir striðslokin, en þá hafði Khal- il hlotið hershöfðingj atitil, hóif hann fyrst afskipti af stjómmál- um og varð brátt foringi Umma- flokksins. Hann hefur aldrei farið dult með það, að hann værí vinur vesturveldanna, en andvígur kommúnisma, en hinsvegar ' væri lega og aðstaða Súdans slík, 'að óhjákvæmilegt væri að fylgja hlutleysisstefnu. Khalil hefur þótt reynast traustur og klókur sóm stjórnandi og nýtur hann mjög vaxandi vinsælda í Súdan. Sú trú er almenn, að Súdan muni treysta sjálfstæði sitt undir hyggilegri for ustu hans. Þ.Þ. ÚRSLIT kosninganna urðu þau, að stjórnarflokkarnir unnu veru- legan sigur. Kosningasigur þeirra er talinn mikill ósigur fyrir sam- einingarstefnu Nassers, sem hefur ekki aðeins látið sig dreyma um nánari samvinnu við Súdan, held- ur jaínvel um innlhnun Súdans í Egyptaland. Sennilega hefur Nasser átt nokkurn þátt í þess- um úrslitum með ógætilegri fram komu, því að rétt fyrir kosning- arnar gerði liann tilraun til að ásælast hluta af súdönsku landi. 1 Stjórn Súdans brá hart við og skaut málinu til Öryggisráðs S.Þ. Nasser lét þá undan síga að sinni. | Úrslit þingkosuinganna eru tal-, in tiygging þess, að Súdan muni halda áfram að verða sjálfstætt ríki og öll sambræðsla við Egypta- land sé úr sögunni. Þá eru úrslit- in talin tryggja áfram vinsamlega samvinnu milli Súdans og vestur- veldanna, þótt utanríkisstefna Súdans haldi áfram að vera óháð. Auk siguns stjórnarflokkanna, vakti það athygli við úrslit kosn- inganna, að ýmsir minni flokkar í suðurhluta landsins styi’ktu að- stöðu sína. f þessum héruðum búa aðallega svertingjar og þykir þetta benda til að þeir muni láta ineira til sín taka í framtíðinni. 'RAÐSrOFAA/ RauSmagi á torginu. Þetta var engin missýning. Það var uppistaöa fyrri rauðmaganet sem flaut úti á víkinni hér á dög | unum. Vertíðin var því byrjuð og fiskimenn höfðu ýtt úr vör. Eitt hvað sást af rauðmaga hér í vik- j unni sem leið, en á laugardag- j inn var komið fjör í verzlunma Þá var torgsala á nokkrum stöð um. Þar var þyrping, fól'k og bíl- ar, surnir að skoða, aðrir að kaupa. Hoimilisfeður höfðu farið með börnin niður að Tjörn til að sjá endurnar, urðu að stanza og sýna rauðmagann. Börnin fengu þarna góða skemmtun. Hann er lifandi, sagði lítill snáöi, j sem sá stóran rauðmaga geispa, ólundarlega í kösinni. En skemmt unin fór af þegar babbi spurði hvað hann kostaði. Hann reiknaði það út í skyndi að rauðmagi í matinn mundi kosta 21 krónu og hætti við að kaupa. En það voru nógir um boðið. Verzlunin gekk greiðlega. Þetta er engin veiði ennþá, sagði einhver í hópnum, í mesta lagi 10 í net. Ótvirætt vormerki. En vorið er samt komið úr því að farið er. að selja rauðmagann á götunum. Það er eins ótvíríett vormerki og krókusarnir, sem blómstra nú i skjóli i nokkrum görðum i borginni. Og ekki er um að viHast, að nú fer senn að verða vart við fyrstu fárfugl- ana að sunnan. Skiðaferðirnar. í þessu góðviðri flykkjist fólk á öilum aldri á skíði. S'kiðaférð- ir almennings færast sífellt í auk ana og eni afturbatamerki í þjóð lifinu. Það er gott að vita unga fólkið uppi á fjalli á þéssum björtu vordögum frekar en inni á kaífihúsum eða á slangri um göturnar. Ekki er ósennilegt að meö árumrm verði umliorfs hér í höfuðbonginni um páskana e'ins og í Ósló. Dauður bær að kalla má, en líf og fjör upp til fjalla, Finnur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.