Tíminn - 03.04.1958, Blaðsíða 4
'4
TÍMTNN, fimmtndaginn 3. apríl 1959»
Það var rétt í þann mund,
Markgreifinn og ballettmeistarinnl
hösluðu sér völ! - sverðin mættust ogl
blóðiS flant (ofurlítill dropi) - Stimd-
in var matartíminn en ekki dögnn -
staðurinn bakgarður í París en ekki
Boulogne skógur - Vináttan endur-
sem venjulegir borgarar setj-
ast að hádegisverði, sem þeir
hittust markgreifirm og ball-
ettmeistarinn. Frá viðskipt-
um þeirra hefir áður verið
skýrt hér á síðunni. De Cuev-
as markgreifi móðgaði Serge
Lifar ballettmeistara, bailett-
meistarinn fleygði vasaklút
í andiit markgreifans, og
eftir það varð ekki komizt
hjá því að fullnægja heiðurs-
skyldunni.
Eimígið var ákveðið, og heims-
pressan fékk stundarhvíld frá
Iheimspólitíkinni. Og svo rann
stundin upp s.l. sunnudag. Það var
imatartíminn. En einvígi eiga að
fai’a fram í dögun samkvæmt hefð-
(bundinni venju. Þá lúrðu hinir
reist við hlaðið matborð
'stríðandi aðilar á koddanum. Stað-
urinn var bakgarður í Vernon, 80
(km frá París, en ekki í Boulogne-
skógi. þar sem hetjur liðins tírna
hösluðu B’ér völ.
Eftir að vopnin höfðu verið at-
huguð liófst leikurinn. Sverðin
mættust, markgreifinn, 73 ára,
dansaði fyrir framan ballett-
mcistarann (53 ára). Þeir tóku
sér hvíldir og köstuðu mæðinni.
En í þriðju lotti rak markgreif-
inn sverðsoddinn í handlegginn
á ballettmeistaranum og sá síð-
arnefndi rak upp óp. Einvígið
var á enda kljáð.
„BlóS hefir flotið"
Vopnunum var kastað á jörðina,
micrkgreifinn var taugaóstyrkur
eftir viðureignina og nær máliaus
af mæði. Hann byrjaði að kjökra.
Hann hailaði sér upp að öxl ein-
vígiisvottar síns, Jean Marie Le
Pens. Tárin hrundu ofan á öxima
á honum. En Le Pens, sem er
fyrrverandi poujadisti og fallhlíf-
arhcrmaður, huggaði hann af karl-
anennsku. Baliettmeistarinn var
nuvn hressari. Hann gekk fram og
tilkynrrti:
— Heiðurssikyldunni hefir verið
fullnægt. Blóð hefir runnið.
Læknir hans vafði dulu um skein
una á handleggnum. Hún var lítil
Og grunn.
Lifar gekk um og sýndi viðstödd-
tun blaðamönnum, eitthvað um 30
talsins, sárið. Þar næst gekk hann
inn í húsið, en þar iá markgreif-
inn á dívan, aðframkominn af
þreytu og mæði. Lifar gekk að
honum og kyssti hann á kinnina.
Lifar baileftmei^tari meö bindi um
skyldu fullnaegt og vir
— Égvissi að þannig mundi það
fara, sagði markgreifinn og brosti.
Lögreglan leit í aðra átt
Lögreglan gerði enga tilraun til
að stöðva einvígið og vis'si hún þó
mæta vel, hvað til stóð. Það er
bannað með löguni að heyja ein-
vígi, cn lögreglan leit í aðra átt
meðan undirbúninguririn fór fram
og sá ekkert. Enginn lögreglumað-
ur var nærstaddur sjálfan atburð-;
inn.
iMarkgreifinn lýsti því yfir í
upphafi að hann hefði engan á-
huga fyrir að særa balletlmeist-
arann t eystir, en ballettmeist-
arinn treystir þeim orðum var-
lega. Ilann samdi erfðaskrá og
var svo liugulsamur að láta ást-
mey sína, dansvnærina Ludmillu
Tscherina, varðveita hana. Til
lvalds og trausts dró lvann á fing-
ur sér liring mikinn, sem sagt
cr að Katrín mikla liafi átt og á
að vera gæddur huldum verndar-
krafti.
Hjarta markgreifans var hlustað
eftir 4 mínútna viðureign. Lækn-
irinn, sem það gerði, ráðlagði að
ekki skyldi barizt nema eina um-
ferð enn og þá vildi svo heppi-
lega til, að heiðursskyldunni var
fullnægt með handleggsskrámunni.
— Hann barðist hetjulega, sagði
markgreifinn að lokinrii viðureign-
inni.
Litlu seinna söfnuðust höfuðper-
^ónurnar á-a^t einvigisvottum og
„sárið‘% ma<iv9-emnn segir hetóurs*
láHubönd tengd á ný.
aðstoðarfólki, saman á góðu veit-
ingahúsi. Þar var vináttan endur-
reist að viðstöddum steiktum ak-
urhænsnum og flösku af góðvíni.
Sæmdir riddarakrossi
Fálkaorðunnar
L
I Hinn 26. marz 1958 sæmdi for
seti íslarvds. að tillcgu orðunefnd
ar, þessa íslendinga riddarakrossi
hirinar islenzku fálkaorðu:
i Einar Guðfinnsson, útvegsbónda
í Boíungarvík fyrir störf í þágu
sjávar útvegsms.
Jónas Magnússon bónda og verk
stjóra. Stardal, Kjalarnesh.-eppi,
fyrir búnaðarstörf og vegaverk-
stjórn.
Stsfán Baldvinsson, bónda,
Stakkahlíð. Loðmundarfirði, Norð
ur-Múlasýslu fyrir störf að búnað
ar- og félagsmálum.
Ilinn sama dag sæmdi forseti
fslands eftirfalda kjörræðismenn
íslands erlendis riddarakrossi
fálkaorðunnar:
WiUiam Pepper, ræðismann í
. Aberdeen, John Ormond Peacock
ræðismann í Glasgow, E. A. G.
Caröe, ræðismann í Liverpool,
James Albert Lacy, ræðismann í
Hull, Alfred Kraunsöeí ræðis-
mann í Manchester, Ferdinando
jjgj’m1 1 jjgjgjjg 1 2 > 1
p
1
Þáttur kirkjunnar
Ljós eilífs lífs
ÞEIR, SEM komið hafa tU
Jerúsalem, og þeir verða nú
stöðugt fleiri með hverju ári
jafnvel 'héðan utan af fslandi,
þafa séð Grafarkirkjuna, sem
stendur á þeim stað þar sevn
líkaimi Jesú var lagður fyrir
nær tvö þúsund árum.
Sérhverja páskanótt er liér
haldin hátíð 'hins heilaga elds.
Þá biða þúsundir manna
í rökkri Grafarkirkjunnar.
Hvergi logar ijós. Enginn geisli
má rjúfa hið djúpa húm, sem
hvílir yfir öllu þarna inni. Allir
bíða 1 hljóðri eftirvæntingu,
sem smám saman nálgast of-
væni.
EN ALLT í einu blikar ljós
í grafarkapellunni sjálfri, sem
byggð er yfir gröf Krists. Allt
vaknar skyndilega af hinni
helgu þögn, sem ríkti þarna
í kinkjunni.Hvislandi hljómar
fylla 'hvelfingarnar og nú má
sjá, að allir eru aneð kerti í
hönd. Og þeir, sem næstir eru
gröfinni, krjúpa niður að gröf-
inni og tendra Ijós við logann,
sem þar blikar.
Þeir næstu kveikja síðan af
þeirra ljósum og síðan koll af
kolli, unz þúsundir Ijósa blika
um alla kirkjuna, en brosandi
andlit og leiftrandi augu ljóma
í kapp við dýrð ljósanna björtu.
Alit hið míkla musteri er eitt
tindrandi Jjósahaf en titrandi
hljómar óma um súlur og
hvolf. Jafnvel þeir, sem ekki
hafa komizt inn í kirlkjuna,
geta nú kveikt ljós sín við ljós
þeirra, sem standa næst dyrun-
um. Brátt tolikar vornóttin lygn
og ilmandi af ljósum fólksins,
sem gengur 'heim, með brosandi
logana í höndum til að kveikja
ijósin á heimilum sínum. Og
allt í einu hljóma kirkjuklukk-
urnar yfir hina helgu borg.
Fyrstu geislar sólarinnar tendra
ijós yfir fjallatindum í áustri,
og 63ar en varir er allt lijúpað
ijósum og hljómum páskanna
— ímyrid 'hins fyrsta páska-
morguns við upprisu Krists.
ÞESSI SÉRSTÆÐU liá-
tíðahöld við hina helgu gröf
eru tákn þess, hvernig sálir
mannanna hafa kveikt sína eil-
lífðarvon, sina 'ljóstrú og iífstrú
við gröf Krists, hvernig upprisa
hans hefir bægt brott rnyrkri
ótt'"" og nótt dauðans frá gröf-
urii þeirra og úr hjörtum þeirra,
sem trúa á upprisu hans og ei-
líft líf persónuleikans eftir
líkamsdauðann. Og enn kveikja |1
þúsundirnar ijós iífstrúay sinn-
ar við Ijósið ,sem blikar yfir
gröf hans ,enn höldum við
páska.
Og það mun ein hin heitasta
bæn írá 'hjörtum mannkyns, að
ljósið frá gröf hans og björtum
boðskap páskanna nvegi lýsa
inri í vitund þeirra, sem and-
varpa í 'húmi efans og myrkri
harmanna, allra, sem gráta við
gröf ástvina sinna, allra, sem
titra við aðkomu dauðans.
Sú bæn gagntekur hjarta
heimsins, að ijóminn fi'á boð-
skap páskaguðspjallsins rnegi
Jýsa um musteri og heimili
með söngvunum fögru um sigur
lífsins, og orð postulans: „Dauð-
inn er uppsvelgdur í sigur“,
verða sannfæring hverrar sorg-
þrunginnar sálar.
ÞANNIG KVEIKIST ljós
af ljósi frá hinni helgu gröf,
unz heimurinn allur er umvaf-
inn ljóma þess morguns, sem
boðar hið eilífa vor friðar og
gleði, sem tengir himinn og
jörð með sigur hljómi kirkju-
klukknanna á páskamorgni
nýrrar veraldar, þar sem kær-
leikurinn verður allt í öllu.
Gleðilega páskahátíð.
Árelíus Níelsson.
isgiOBiiiiiiia&iiiijtaaijiii
*|*iiir! igjgiPiiiiBiiiöiiiiateSBssiiiiig aif«siiii ffl
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiJMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiHiiiiiiil
Ódýr pdskablóm
Blóma- og tnatjurtafræið komið. j
Laugavegi og Miklatorgi
iiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiUHiiiiiiiiiiuia
§ a
Einvigið I bakgarðinum, markgreifinn til hægri, ballettmeistarinn t. v. að baki einvígisvotturtnn Jean-Mari
Le Pens, líflæknlr og annað aðstoðarfólk.
| Jörð til leigu |
| Jörðin Ragnheiðarstaðir í Flóa er til leigu frá 1
næstu fardögum. Áhöfn getur fylgt. — Upplýs- 1
ingar í síma 284, Ytri-Njarðvík, eftir kl. 6 á |
I kvöldin.
| I
juuiiiuiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiuiumniiiiuiiiiniumniiiiiiuuiuiii!iiiiiuiuiiiiiiuniiiiiq
s _ s
1 Lausar stöður I
= =
Staða vélritara, bókara og fulltrúa hjá landssím- |
anum eru lausar til umsóknar.
Laun samkvænit launalögum.
= . 1
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri |
störf, sendist póst- og símamálastjórninni fyrir |
1. maí 1958.
Póst- og símamálastjórnin, 1. apríl 1958.
laiiiiiiiiuHimiimiHiHimiiiuiiiimiiuiiiimiiimmmiiiinniimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiHiiiiiiinmiiHiiimiiiiaí