Tíminn - 01.05.1958, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.05.1958, Blaðsíða 9
TÍMfNN, fimmtudaginn 1. maí 1938. Þrettánda stúlkan Saga eftir Maysie Greig — Eg ætla ekki að spyrja yður, hvaða tilfinningar þér berið í brjósti til Franklins, sagði hann hægt. í augnablik inu kemur það rnálinu ekki við. Nei, spurningin er hvort þér kæriö yður um að vera blandaö inn í skilnaðarmál vegna hans. Hún starði á hann. Henni fannst svo ótrúlegt að hann skyldi geta sagt þetta — eins og hann tryði því enn, sem ha-nn hafði einu sinni ásakað hana fyrir. Loks stundi hún upp veikri röddu: — Þér eruð að gera að gamni yðar. En hún vissi að honum var alvara. — Eg hef að vísu þroskaða kimnigáfu, en ég sé ekki neitt gaman í þessu, sagði hann. Nei, ég er ekki að gera það — En . . . en þetta nær ekki nokkurri átt. Ég á við . . . Hún þagnaði, hún var svo slegin að hún lcom ekki upp orði. — Já, sagði hann þurrlega. Þ>ér eigið við, að þér ætluðuzt ekki til að þetta gengi svona langt. Mig grunaði það. Að vísu er mér málið öviðkom- andi, en þér verið áreiðanlega að gæta ve) að, ef þessu á að lykta eins og þér viljið helzt., En hún hafði enn ekki náð sér — og hún var líka tor- tryggin. Iiún gat aðeins stun- ið upp: En mér er óskiljanlegt, hvernig nokkrum getur dottið í hug . . . hr. Franklin og ég . . J Ó, þér haflð þó ekki trúað þvi líka . . . Allt stolt hennar var þorrið og tórin streymdu nið- ur kinnarnar. Honum fannst eins og fargi væri lyft af sér. Hann langaöi mest tii aö stökkva á fætur af fögnuði. Hún hafði ef til vill verið ofurlítið skotin í honum, en skyndilega varð honum ljóst að meira hafði það aldrei verið. — Nei, en það gera ýmsir aörir, sagði hann hægt. Þér hafið gefið þeim ástæðu til að, vera á báðum áttum. — Meö hverju eiginlega? — Tja, svarar hann feimnis- lega, í fyrsta lagi dvölduð þér á Hillcrest House meðan kon- an hans var hér. Hún svaraði ekki. Roði hafði hláupið í fölar kinnar hennar. Hún haföi raunverlega veriö eina nótt í Hillerest House, þegar loftárásin var gerð á London. Franklin hafði verið á móti því að aka til borgar- innar aftur meðan á árásinni stæði.og hún hafði ekki kunn- að við aö neyða hann til þess. En nú óskaöi hun af heilum hug að þau heföu gert það. Jón hélt áfram: Þér verðið að skilja, að frú Franklin vill trúa því að eitthvað hafi verið milli yðar og Franklins. Eftir því sem ég hef hlerað vill hún skilja við mann sinn, ef hún finnur nægilega ásaæðu. Og ég er hræddur um . . . Svipur hans harðnaði . . . að hún muni nota yöur, Klara, sem orsök skilnaðar. — Hvað segið þér! Klara var höggdöfa af undrun og skelf- ingu. Hún sat samanhnipruð í stólnum og starði á hann. Litlu siöar herti hún sig upp og sagöi. — En það getur hún ekki gert. Hún getur ekki verið svo gr-imm. — Gagnvart yður, Klara? Hún hfisti höfuðið. Nei, gagnvart Franklin. Þér remi ið ekki grun í, hvað börnin og heimilið eru honum mikils virði. Hún bætti við: Skiljið þér, hann hefur beðið svo lengi og ekkert séð til þeirra, og kæmi skilnaður til sögunnar nú . . . Imnn mundi alveg láta bugast. Égýgæti aldrei afborið það . . . ég gæti gert . . . gæti gert allt . . . . Hún var áköf og néri hend- ur sínar. Hún mat hr. Frank- lins svo mikils og engum var betur kunnugt en henni, hvað kona hans^og börn voru hon- um kær. — Það er yður til sóma, Klara, hváð þér sýnið mikla umhyggju fyrir velferð hús- bónda yðar, þótt það komi nokkuð seint, sagði hann þurr lega. Ég hef verið að hugleiða, hvað þér— gætuö tekið til bragðs — já, yður finnst auð- vitaö frekt af mér að skipta mér af þvi-.-. . — Nei, hvíslaði hún og beit á vörina. Eg yrði yður af- ar þakklát, ef þér — eða hver annar sem væri gæti hjálpað mér. Ég . .. . ég þekki engan hér. — Og gleymið því ekki aö ég er vinur bróður yðar, skaut hann inn í.úÞó að þér tækjuð það ekki vei upp fyrir mér, þegar ég reyndi að ráðleggja yður eins og hann . . . .— Ég man það, sagði hún lágt, en hvernig átti mér að detta í hug . . . ? Hvers vegna hafði hún ekki farið eftir því sem hann sagði þá. Ef hún hefði bara farið að ráðum hans" og' sagt upp stöð- unni. En hún hafði haldið að aðeins hann væri tortrygginn. Henni hafð'i ekki komið i hug að nokkrum öðrum dytti slíkt í hug . . . Jafnvel nú hefði hún varla trúað honum, ef hún hefði ekki heyrt orö Júditar í nótt. Hún andvarp- aði mæðuiega og leit á hann. Jón sá, aö augu hennar voru full af tárum. — Hvað á ég að gera? spurði hún. Hann lert undan. Hann þoldi ekki, að hún horfði svona á hann angistafull og einmana leg. — Ég held að eina undan- komuleiðin sem stendur sé aö' ná í unnusta handa yður, sagði hann aö lokurn. Ef þér- eruð' trúlofuð og, að því er virðist, mjög hrifnar af honum verð- ur erfitt fyrir frú Frankiin aö sannfæra sig — og aðra — um að nokkuð' alvarlegt hafi ver- ið mifli ykkar Franklins. Eg hugsa að þá falli öll skilnaðar- sagan um sjálfa sig. Já, ég hugsa meira að segja að frúin fyllist svo miklu samvizkubiti að hún fleygi sér aftur í faðm manns síns: En þetta getur auðvitaö farið á annan veg . . ég er aðeins með getgátur. Hvað finn.sF’yður? Klara svitnaði. Hún átti að vera trúlofúð einhverjum — já, hún átti- að töfra fram unn usta — en hvað' gagnaði að stinga upp á slikú; þegar hún átti engan unnustá? Hún bar spurninguna fram veikri og skjálfandi röddu. Taugar hennai’ voru spennt- ar til hins:. ýtrasta og hún fann, að hún þoldi ekki miklu meira úx þessu. — Eg hef einnig hugsað út í það, sagði hann rólega, — annars hefði ég ekki stungið upp á þessu. Hlustið nú á mig, Klara . . . Hann beygði sig fram og studdi olnboganum á borðið . . . Þér megið ekki verða reiðar eða óttaslegnar, málið er i raun og veru mjög einfalt. Hvernig litist yður á að trúloíast viér? Klöru snarsvimaöi. Þetta var brjálæði, en allt sem gerzt hafði í kvöld var brjálæði. Hún hvlísllaði tortryggnis- legri röddu: — Já, en þér ætl- ið' ekki að giftast mér? Það var þögn litla stund. Hann horfði á hana. Andlit hennar var svo barnslegt og fallegt í ljósrauðum bjarman um frá litla borðlampanum — en á því var einnig óttasvip- ur. — Nei, sagði hann svo. Eg ætla ekki að kvænast yö'ur Klara. En það kemur ekki mál inu við. Mér finnst fyrir mitt leyti það alveg ljómandi hug mynd að' segja fólki, að við séum trúlofuð. Þá björgum við yður úr slæmri klípu og auk þess . . : Hann þagnaöi og kveikti sér í sígarettu . . . . já, auk þess verður það hjálp fyrir mig lika, svo að þér meg- ið ekki halda að' ég hafi að- eins hugsað þetta upp til að bjarga yður. Trúlofun okkar er ágætis spaug og verð'ur okkur báðum til gagns og gamans. Honum varð' hugsað til Rósalindu og sigurvissunnar í rödd hennar þegar hún tal- aði við fööur sinn kvöldið góða. — Það ætti að minnka of- Hugguleg kona um fertugt óskar eftir að kom- ast í samband við duglegan, menntaðann athafnamann. Gott taekifæri fyrir mann sem hefur góð fjárráð og sambönd. Tilboð sendist í pósthólf 1279 merkt Hjúskaparmiðlun. Biöjl um Sex manna bifreið, með útvarpi og miðsitöð, árg. 1940, er til sölu. — Uppl. á Barónsstíg 61 (kjallara) milli 5—7. v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v. Rafíaguaefni Rofar og tenglar, inngreiplir Hvítir og brúnir. Utanáliggjandi rofar og tenglar Ljós í eldhús, bað og ganga. Vatnsþéttir rofar, tenglar og ljós. Plaströr 5/8 tommu. Stálrör V,í t. og 2 t. Plastvir, 1,5. 2,5. 4 og 4 mm. Gúmmikaplar, flestir gildleikar. Vartappar, margar gerðir. Véla og raftækjaverzlunin Tryggvagötu 23. Sími 18279 }\ niHm'niunnnnmiiimmiuiiuiimiiimimimimimiHiiiiiiHiimiimmii ISVEL - Sem ný amerísk Sweaden ísvél til sölu. Tilboð merkt Sweaden, sendist afgr. blaðsins fyrir 10. maí. vav.w.'.w.v.wv.vv.w amimmmimiiiiaBnnniiimmiiiiimiiiiimimmmiimniiimimiiiiimiiiimmimmmiimuiiuuiu inmmmmimmmnminmmiimininni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.