Tíminn - 18.05.1958, Síða 8

Tíminn - 18.05.1958, Síða 8
8 TÍMINN, snnnudaginn 18. maí 1958 Haukur Snorrason lífsins að finna þar sjálfan sig. Fá- Jr munu þeir þó vera, sem ekki verða einhverntíma — og flestir sí og æ — að 'kljást við efasemdar- spurningu Ibsens: „Er starf mitt í raun og veru virði þeirra lífsfórna, sem ég hefi orðið að færa því“? Er ekki betra að fara sér hægar, doka við, gæla við sjálfan sig, njóba meiri Mfsþæginda, en gjalda starfinu aðeins lægsta skatt? Marg ir taka þann kostinn, en til eru þeir menn, sem eiga svo mikla lííisorku, starfsfjör og hugsjónaeld, að efasemd Ibsens ber aldrei á dyr þeirra. Mér fliaug það oft í hug, að Ilauk ur Snorrason væri einn þessará fágætu hamingjumanna. Ég ætlaði oft að segja honum þelta, bera upp við hann spumingu Ibsens, en það varð aldrei af því. Það var aldrei tóm tfl þess. Og það var svo margt ahnað, sem ég ætlaði að segja honum. Ég ætiaði að segja honum, hve það væri gott að finna snertingu þessarar lífsorku. Ég ætlaði að segj'a honum, hve oft mér hefði hlýmað hugur við að koma inn til hans, sjá hann spretta hvatlega úr sæti með ótal nýjar hugmynd- ir á reiðum höndum. Og mig hefði langað tU að segja honum, að ég dáðist að því, hve stutt var leiðin milli hugmyndar og frainkvæmd- ar. Mig langaði oft til að þakka hon- um fyrir fölskvalausan hlýhugann, hvatoinguna, ósérhlífnina, tiliits- semina, hugkvæmnina, drenglund- ina og iifsfjörið, sem hann miðlaði öðrum — alla þessa eiginleika, sem gerðu hann að hugljúfum sam- starfsmanni og l'eiðbeinanda. Og mér hefði þótt vænt um að hann vissi, hve mikils virði mér og öðr- um samstarfsmönnum hans þótti að eiga sMkan hauk í horni, sem hamt var, í erli og vanda hins dag- lega storfs. En þetta var allt ósagt og mikiu meira, og líidega skiptir það engu móli. Ég efast um að hann hefði gefið sJíkúni orðum gaum. Verk- efiii dagsins og framtíðarinnar áttu hug hans alian, svo að ekkert anhað komst að. Ég er viss um, að hann hefði þegar snúið talinu að því, hvað hafa skyldi í blaðið á morgun cða hinn daginn. Dagur biaðamannsins er stuttur, tíminn flýgur ætíð frá honum, áð- ur en haön veit af, verkefnin kalia en klukkan eklci, og menn óska þess eins, að ekki væri orðið eins áliðið og vísarnir segja. Stuttur en mikiil starfsdagur snjalls blaða- mantLs er liðinn, manns, sem fanh sjáifan sig í starfinu og réisti í veitki viljans mcrki svo að vísar langt fram á veg. A. K. Fráfail Hauks Snorrasonar er okkur nánum samstarfsmönnum hans óvæntur harmur og mikill. Góður vinur, glaðvær og uppörv- andi félagi er frá okkur tekinn, Sá staðreynd, að hann er horfinn úr félagsskapnum og daglegu sam- starfi er okkur að vísu orðin ljós, þó að erfitt sé að skilja og sætta sig við þá ráðstöfun forsjónarinn- ar. Nú þegar leiðir skilja, cr margs að mimoast frá liðnum samstarfs- dögum. Leiðimar (tágu talsvert saanan, löngu áður en Haukur flutt- ist suður, ekki sízt á þeim árum, er hann var ritstjóri Samvinnunn- ar. Þá og síðar nutum við saman margra fagurra daga við iygna firði norðan lands. Ég geymi minningu utn morgunstund, er tveir árrisulir blaðamenn horfðu á bjarta morgun sól eyða mildri haustnæturhélu yf- ir AðaidaL Sumarfiskar voru enn ekki gengnir tiil sjávar og náttúra landsins var eins og opin kvika í morgunmistrinu, viðkvæm og hlý þeim, sem vildu hafa augun opin. frá sííkum morgnum verðrn- manni samfylgd Hauks Snorrason- ar ógleymanlegust. Viðkvæmni hans og virðing fyrir íslenzki-i nátt- úrn var einlæg og trýgg í dýpstu rótiim hjartahs. Á ritstjórharáktifstöfuhni var 6tfíflStáíí«5 tíáð sömu lífstogluhum. Þar var Haukur öruggur og fórn- fús starfsfélagi, eldsnöggur til ákvarðana og sá hlekkurinn í boð- hiaupi blaðamennskunnar við prentvélarnar, sem aliltaf héít. Starfið sjálft og árangurinn í vel uppsettu og lesgóðu blaði mótaði viðhorfið til stundaglassins, þar sem engar reglur um vinnuLima og dagslengd komast til ákvarðana í lífi blaðamannsins. Á ritstjórnarskrifstofunni eins og annars staðar, var það þó fyrst og síðast hinn trausti drengskapur, sem setti svip sinn á störf Hauks Snorrasonar. Ætti hann vaiið, tók hann á sig óþægindi, þó að aðrir hefðu til stofnað. Hann hafði já- kvæð viðhorf til samstarfsmanna og lifandi áhugi hans og dugnaður hafði geislavirk áhrif, eins og sagt væri á nútíðarmáli. Ilér verður ekki rætt um þann mikla harm og þá þungu sorg, sem fjöJskyldu Hauks Snorrasonar er fenginn, eiginkona, börn, faðir, bræður og systur. Samúð okkar vina hans og starfsfélaga er því miður Mtils megnug. En það mega þau þó vita, að þau eru ekki ein um söknuð. — Og öllum getur okk- ur verið það nokkur huggun, þeg- ar frá Mður, að minningin mn góð- an dreng, félaga og vin, — hún liíir, þó að leiðir skilji við lokuð sund. —gþ. Það var fyrst í febrúarmánuði 1956 að við prentararnir við Tím- ann kynntumst Hauki Snorrasyni, því að þá byrjaði hann starf sitt við blaðið. og kom það í minn hlut eins og hinna prentaranna að starfa aneð honum, en áður hafði ég starfað með mörgum ritstjórum Tímans á undanförnum árum. Samstarfið við Hauk líkaði mér mjög vel og ég get fullyrt að svo var einnig um alla sem störf- uðu með honum í prentsmiðjunni. Það var fljótt séð og heyrt að; hann hafði áður með prenturum starfað og í prentsmiðju unnið. Það lýsti sér í því, hve vel hann þekkti ganginn í þeim málum og hvé vel hann kunni skil á að vinna með prenturunum og skilja þá og starf þeirra. Haukur Snorrason var frábær starfsmaður og hafði þá eiginleika til að bera, sem að mínu áliti eru hvað mikilvægastir í því starfi að vera ritstjóri og sjá um útgáfu blaðs. Haukur var manna háttprúðast- ur og afar dugmikill og fljótur Við starf sitt og þá sérstaklega þegar mest á reyndi. Hin stuttu kyirni mín af HaUki Snorrasyni og okkar stutta sam- starf hefir enn betur en áður sann fært mig um það, að ekki er sama hver maðurinn er, sem unnið er með. Við samstarfsmenn hans í prent- smiðjunni þökkum honum ágætt samstarf, sem aldrei bar skugga á, og sendum eftirlifandi konu hans og börnum, innilegustu samúðar- kveðjur. Valdimar K. Guðmundsson. Itéttri viku áður en þetta er ritað, átti ég símtai við Snorra Sigfússon og barst talið m. a. að því, hvenær Haukur væri vænt- anlegur heim. Fyrir dyrum stóðu ýmis átök á stjónimálasviðinu og mé'r fannst betra að hafa Hauk nærri, þegar sú hríð byrjaði. Ég vonaði því hálft í hvoru, að Hauk- ur kænii heim öllu fyrr en hann liafði ætlað, en um það hafði ver- ið talað, að hann skryppi eftir Þýzkalandsferðiiia til Brussél og London i erindum blaðsirts og kæmi heim í seinasta lagi um þfessa helgi. Raunin varð sú, að Haukur kóm heim fyrr en ætlað var. Én sú heimkoma varð með öðrum hætti en mig og aðra vini hans hafði órað fyrir. Þótt Haukur Snorrason hafi fyr I ir alllöngu unnið sér orð, sem ' feinn snjailasti blaðamaður þjóð- i irinnar fyrr og síðar, munu þó tæpast aðrir en nánustu samstarfs menn hans gera sér fulla grein fyrir þeim mis'si, sem þjóðin hefir orðið fyrir við fráfall hans. Þegar ég rifja upp við hann náið samstarf í hálft þriðja ár, koma mér ekki fyrst i hug hinar marg- þættu gáfur hans, einstætt starfs- fjör, frábærlega traust minni og mikil glöggskyggni, hekiur dreng- skapur hans, hreinlyndi og góo- vild. Hæfileikar hans myndu í framtíðinni hafa tryggt honum ör- uggan sess sem vaxandi áhrifa manns á sviði íslenzkra þjóðmáia og þeim myndi sannarlega hafa verið beitt með það að takmarki að verða þjóðinni að sem mestu liði og vinna fyrir mál hennar af róttsýni og drenglyndi. ísland hef- ir því misst mikið við fráfall hans. Haukur Snorrason var einn þeirra manna, sem lét áhugamál sín sitja í fyrirrúmi fyrir per- sónulegum hagsmunum og inetn- aði. Þær einu kröfur, sem hann gerði fyrir sjálfan sig, var að geta séð fjölskyldu sinni vel farborða. í samstarfi minu við hann varð ég þess aldrei var, að hann sækti eftir einu eða öðru fyrir sjálfan sig persónulega, og ef eitthvað slíkt var fært í tal við hann, benti hann yfirleitt á aðra, er væru sér verðugri, eða bæri forgangsrétt- ur. Lítið dæmi um þetta er eini á- reksturinn er varð í starfi okkar en hann snerist urn það, hvort nafn hans eða mitt skyldi standa á und an í blaðhaus' Tímans. Mér fannst rétt, að við létum stafrófsröð ráða, en Hauki f^nnst, að ég ætti að hafa ‘forgahgsrétt, þar sem ég hafði verið ritstjóri blaðsins á und an honum. Þessi litli árekstur jafn aðist og minntist ég ekki annars árekstrar milli okkar og þakka ég það því fyrst og-fremst, hve góð- ur sams'tarfsmaður Haukur var, í senn ákveðinn og laginn, og fund- vís á urræði og málaniiðlun, ef á þurfti að halda. Meðal þeirra, sem minna þekktu til, mun Ilaukur kunnastur fyrir hið mikla fjör sitt, sem leyndi sér ekki hvar sem hann fór. Ókunn- ugir gætu því haldið, að það hefði verið meginkostur hans og átt mestan þátt í því, að sótzt var eftir honum til starfa. Af því voru líka stundum dregnar þær ályktanir, að hann kynni að vera fljótráður um of. Hér er um mikinn misskiln ing að ræða. Hasfileikar Ilaulcs voru svo margþættir og svo hag- lega samofnir, a'ð erfitt er að hugsa sér mann betur gerðan að andlegu atgervi. Hann hafði mikla fróðleikksfýsn og hafði lesið fcikn- in öll um margvíslegustu efni og hafði mjög traust minni, svo að það var næstum eins og að ganga á fund alfræðibókar að leita hjá honum upplýsinga og ráða. Eg hefi ekki kynnst öðrum manni fjölfróðari en lionum og var þetta honum ómetanlegur styrkur sem alhliða blaðamanni. Áhugamál hans voru mörg, en mest fannst mér bera á áhuga hans á félags- og samvinnumálum og á feg- urð iandsins og nátlúru. Hann var með fróðustu mönnum um allt, sem laut að náttúru og dýralífi landsins, og man ég efcki eftir að hafa heyrt annan mann ræða um þau mál af meiri áhuga og innileik, nema Pálma Hannes- son. Grænlandserindin, er hann flutti í útvarpið á síðastliðnum vetri, voru örlítil vísbending um hæfileika hans á þessu sviði. Hin mikla og víðfeðma þekking hans, gerði honum að sjálfsögðu auð- veldara en ella að átta sig á mönn um og málefnum, en því fll viðbót- ar kom mikil meðfædd glögg- skyggni. Hann var því eldfljótur að greina kjarna hvers máls' og finna ráð og úrlausnir við, svo að segja fyrstu sýn. í sajneiningu gerðu allir þessir hæfileikar hans hann að frábærum starfsmanni, svo að fáir munu finnast jaíningj- ar hans. Og þó eru það ekki þessir hæfi- leikar, er valda mér mestum sökn- uði við fráfall hans, og svo -hygg ég að einnig sé. um flesta vini hahs. Drengskapur-. hreinleiki og góðvild, eru mestir allra kosta og þeim var Haukur gæddur í svo ríkum mæli, að vinir hans munu aldrei fá gleymt honum. Þess vegna höfum við samstarfsmenn hans misst svo mikið við fráfall hans. Á sviði þjóðmálanna átti Hauk- ur tvö áhugamál mest, að minni hyggju. Annað var efling sam- i vinnu og félagslegs starfs, cn þó i á fullkomlega frjálsum grundvelli. | Trú hans var sú, ag þroski manns | ins og persónuleiki yrði bezt efld- ur á þann hátt. Hitt var viðhald og efling hinnar dreifðu byggða, því að án hinna nánu tengsla við náttúru landsins og sögu fyrri tíma, myndi þjóðin glata mörgu þvi, er væri henni dýrmæt- ast. Þetta síðara stefnumá] Hauks gerði hann að vissu marki tregan til þess ag flytja til höfuðstaðar- ins og taka að sér störf þar. Við nánari athugun mun hann þó hafa talið, að hann gæti bezt rækt | þessa köllun sína með. því að vinna I að ritstjórn Tímans og gcra hann að enn áhrifameira tæki í þessari og annarri baráttu, er stefndi til þjóðarheilla. Hann geklc líka ó- trauður til verks eftir að hann kom að ritstjórn blaðsins. Segja má að hann ynni nótt sem dag og örvaði aðra til dáða með for- dsemi sínu. Merki hans hafa sézt j svo vel á blaðinu á undanförnum ! árum, að óþarft er ag rekja það mál nánara fyrir lesendum þess. Margar þær endurbætur, sem Haukur ætlaði sér að gera á blað- inu, voru þó rétt í undirbúningi, þegar hann féll frá, svo honum auðnaðist hvergi nærri að koma því í það horf, sem hann hefði helzt kosið scr og ætlaði sér að sníða því í framtíðinni. Markmið hans var að gera Tímann jöfnum höndum að enn áhrifameira vopni í þjóðmálabaráttunni og enn fuli- komnara fræðslu- og mcnningar- tæki, en óneitanlega eru blöðin ein mestu menningartæki nútím- ans'. Það verður nú verlc sam- herja Hauks að leitast við að koma þessum fyrirætlunum fram. Til þess, að svo geti orðið, nægir ekki aðeins átak þeirra, sem vinna við Tímann, heldur allra þeirra mörgu velunnara, sem blaðið á víðsvegar um landið. Þeir vcrða að-leggja hönd á plóginn og hjálpa til að gera blaðið betra og fjölbreyttara. Áfall Tímans er vissulega mikið, þar sem fráfall Hauks er. En það ér líka mikil hvatning, þegar ágæts foringja missir við að hefja minningu hans til vegs með því að bera hugsjónir hans fram til sigui’s. Og mætti Haukur nú sjálf- ur mæla, myndi hann vissulega hvetja til þess, að hendur yrðu ekki látnar falla í skaut, heldur sótt fram á leið. Með þeirri hugsun skuluni við kveðja Hauk Snorrason, og þakka honum leiðsöguna og samfylgdina, að merki hans skuli ekki niður falla, þótt hans sjálfs njóti ekki lengur við. Þ. Þ. Er þetta fórn? (Framhald af 6. síðu). séu raunverulega álögur á þjóðina. Hvaö mundi þjóöin hafa til þess að lifa af, ef þetta væri ekki gert? Hún mundi ekki hafa annað en verð- lausa pappirsseðla sem mundu sennilega þó vera kall aðir penmgar, ef þetta væri ekki gert. Er hægt að kalla það fé álögur á þjóðina, sem dregiö er saman, til þess að bæta framleiðendunum upp það tjón, sem þeir bíða vegna rangrar gengisskráningar ? Þessar ráðstafanir veröa tvímælalaust til bóta fyrir allar atvinnugreinar lands- ins, enda þetta fyrst og fremst miðað við að reyna að hleypa auknu fjöri í frarn leiösluna, nýj u lífi í atvlnnu- reksturinn og skapa skilyrði fyrir fjöibreyttari atvinnu- rekstri en áður hefir veriö nú um sinn.“ Dagheimilið í Hafnarfirði 25 ára Á þessu vori eru 25 ár liðin, síð- an Verkakvennafélagið Framtíðin í Hafnarfirði kom á fót dagheimili fyrir börn. Þegar félagskonur hófu þetta starf, var djarft spor stigið, því þá voru érfiðir tímar í Hafharfirði, eins og raunar víðar á iandi hér, og Verkakvennafélagið hafði ekki af digrum sjóði að táka. En brýn þörf .fyrir dagheimli, er gæti lótt undir með barnaheimilum í bæn- um, varð’ félagskonum hvöt til starfa. í . fyrstu varð daghcimilið ■að koma upp húsi íyrir þcssa starf- rækslu sína ó hlnum óákjósanleg-. asta stað, á Hörðuvöllum, og hefir síðan stariTækt þar ieikskóla. á vetrum og dagheimili á sumrum. Fyrir ári var hús þetta stækk- að mjög og endurbætt, svo að nú c'ru" starfsskilyrði þar hin gíæsilegustu. Starfar daghéimilið nú í þreniur deildum og getur tek- ið á móti 100 börnum á aldrinum 2—5 ára. Verkak.vennafélagið hefir átt því láni að fagna, að hafa jafnan hinu hæfasta starfsliði á að skipa við Ieikskólann og dagheimilið, enda hefir þetta starf félagsins notið. sívaxandi vinsælda meðal bæjar- búa, og mörg eru þau órðin'barna- heimilin í Hafnarfirði, sem standa í óbættri þakkarskuld við fólagið og forstöðukonur þess, fyrir mikil- væga aðstoð og fórnfúst starf. Mun margur minnast þess nú á þessum tímamótum í sögu dagheimilisins á Ilörðuvöiitim. Forsöðúnefnd dagheimilisins hefir jafnan haft dvalargjöld barna svo lág, að ekki hafa þær íckjur hrokldð fyrir kostnaði. Til að vinna það upp, sem á hefir skorf, hefir hefndin haft einn fjársöfn- unardag á ári. Sá dagur verður að þessu sinni næstkomandi sunnudagur 18. þ, m. Verðúr þá skemmtun í Bæjarbíó á vegum nefndarinnar, með fjöl- breyttri dagskrá, og margt fleira hafa þær konur til hátiðabrigða þann dag. Auk þess verða rnerki seld í bænum Lil styrktar þessu góða málefnt. Garð'ar ÞorsteSnsson. Á kvenpalli (Framh. af 3. síðu). ganga svo frá, að hún gæti annað- hvort selt, það eða búið þar á- fram eftir að hann lé'tist. En hún neitaði að 'trúa þeirri spá; sem líka reyhdist röng. ÖU' er frásögn þessi hressileg og.blandin kímni, en engum dylst við hve ótrúlega erfiðleika liefir verið að. etja. Enda sýnir það nokkuð um það, hverja fótfestu menniDg hins hvíta kynstofns muni hafa ■ náð þarna um þetta leyti, að árið 1933 fóru nokkrir ungir menn í rannsóknarför inn í þann hluta Nýju Guineu, sem talinn var samfeilt fjalliendi og fungu þar dali, sem um hálf millj- ón blökkumanna byggði. Frásögn af þeirn leiðangri birtist nú í bandaríska vik'uritinu Saturday Evening Post. S.Th. Þingeyingaskrá tFramh. af 5. síðu.) ára starf, og býst ég við að sú áætlun sé ékki fjarri sanni, eí' mér endist aldur og heilsa til að vinna. — Hvað svo um útgáfuna? — Um hana er enn óráðið, svar- ar Konráfý en nú þegar er Þing- eyingaskrá bezta heimildarrit, sem ég hefi aðgang að um þingeyska ættfræði á 18. og 19. öld. Mennta- málaráð og sýslusjóður Suður- Þingeyjarsýslu hef-ir veitt mér ofurlítinn styrk, sem ég er auð- vitað þakklátur fyrir. Hinn aldni fræðaþulur, Konráð Vilhjálmsson, hraðar nú gpngu sinni suður Hafnarstræti eftir þessa töf. Þingeyingar nítjándu aldarjnnar og mikrofilman í Amts- bókasafninu bíða hans. — Innan stundar mun hann aftur skyggnast inn i fortíðina og færa fróðlcik í lctur. .•

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.