Tíminn - 22.07.1958, Page 4
T f M I N N, þriðjutlaginn 22. jfilf 1953.
Amerísku bílarnir af árgerð 1959:
Lengri, breiðari, lægri, betra út-
sýni, en dregið úr skærum litum
Á FERÐ OG FLUGl
Krómskrautií svipaS, sömuleiSis vélaafliS,
stélin í aJgieymingi, sterkari hemlar, aukiS
íarangursróm, tvöföld framljós, sjálfskipting
Tilbúnir eftir tvo mánuði
1959 módelið af amer-
ísku bílunum verður fyrr á
markaðinn í ár en verið
hefir frá því að styrjöld-
inni lauk. Mörgum leikur
hugur á að vita hverjar
breytingar verða á nýju bil-
unum, hvað þeir komi til
með að kosta o. s. frv. Upp-
lýsingarnar, sem hér fara
á eftir, eru frá áreiðanleg-
um heimildum, þótt verk-
smiðjurnar sjálfar hafi enn
ekki opinberað neitt um bíl-
ana af árgerðinni 1959.
General Motors verksmiBjurn-
ar hafa gert verulegar breyt
ingar á flestum sínum bifreið-
um. Er hér aðallega um útlits-
breytingar að ræða, og mun
ekkert dregið úr króminu á
yfirbyggingunni. Buick verður
sennilega fyrstur á markaðinn
— um miðjan september— o-g
Ihinar gerðirnar, sem GM fram-
leiða, koma líklega síðar í sama
mánuði. Chevrolet verður enn
gjörbreytt að útliti, eins og gert
var á þessu ári með þeim af-
leiðingum, að það sem af er ár-
inu, á ;hann sölumetið. Chevro-
iet 1959 verður fáeinum þuml-
angum lengri en 1958 gerðin
og dálítið breiðari. Einnig mun
hann lækka lítillega, en án þess
: ð s'kerða rúmið innan dyra, að
->ví er sagt er. Gluggar verða
stærri, og sveigjast inn í þakið
og til hliðanna, svo sem verið
1 heffr. Stélið og höggdeyfar
breytast.
impala og Corvette
Lúxusmódelið Impala mun
'bæta víð fjögurra dyra bíl og
’ „station“ vagni, en íhefir áður
aðeins verið framleitt sem
tveggja dyra bifreið. Litlar
breytingar verða á Corvette
’ sportbílnum.. Ekki verður um
að ræ.ða hestaflaaukningu í vél-
um Chevrolet, en búizt er við
sparneytnari vélum.
Pontiac
Nýi Pontiac bíllinn er lika
mikið bréyttur. Hann lækkar
um þrjá þumlunga, og verður
einn lægsti bíll, sem um getur
(54 þum-lungar). Hann breikk-
ar nokkuð, en lengdin verður
svipuð og áður. Aðrar breyting-
ar: mikið um gler, flatir högg-
deyfar að aftan, tvöföld fram-
ljós og miklar nýjungar í hemla
utbúnaði. Hestaflafjöldi sami
og áður.
Oldsmobile
Oldsmobile leggur meiri á-
herzlu á sjálfa lögun bílsins en
krómið. Höggdeyfar breyttir og
stél tekin upp. Lengist, breikk-
ar og lækkar. Breýtingar á vél
eru alger leyndarmál, en þær
fela í sér minnkaða benzín- og
olíunotkun.
Buick
Þeir,sem til þekkja, segja að
Buick-bíllinn verði gjörbreyttur'
í útliti. Yfirbyggingu, höggdeyf
um, krómskrauti, fram og aftur
ljósum er breytt. Sagt er að
engin stél verði á nýja bílnum
og skjannalegu litirnir hverfa
. Buick lækkar einnig og breikk
ar, sum módelin lengjast
Hemlaútbúnaður er fullkomn-
aður, og komið fyrir kælikerfi
í 'honum. Markmið verksmiðj
anna er að vinna aftur þriðjá
sætið í sölukapphlaupinu, sem
Buiclc tapaði fyrir Plymouth
1957.
Cadillac
Breytingar á útliti Cadillac
verða nokkrar, en þó ekki gjör-
breytingár frá því sem nú er.
Hann breikkar og lækkar, en
lengist ekki. Vatnskassahlífin
verður svipuð, en gluggar ná
upp í þakið, stéli toreytt og
krómskreytingu 'einnig. Engar
'verulegar breytingar á véi eru
ráðgerðar, en þó er miðað að
meiri sparneytni.
Ford
Fordverksmiðjurnar hafa lagt
verulegt kapp á breytingar á
bifreiðategundum sínunt til
þess að reyna að hnekkja for-
ystu Chevrolet á markaðnum.
FordbHarnir breikka, lækka
og lengjast og hrufótta þakið
víkur aftur fyrir sléttu þaki.
Gluggareru stærri og ná 'hærra
upp í iþakið. Breytt vatnskassa-
hlíf og höggdeyfar. Tvöföldu
afturljósin hverfa fyrir einföld-
um, gríðarstórum ljósum, sem
er komið fyrir neðarlega á bíln-
um. Fyrir ofan þau eru svo'
smærri Ijós til notkunar þegar
ekið er afturábak. Krómskreyt-
ingu er toreytt. en hún ekki
aukin.
Thunderbird og Edsel
Thunderbird er lítið breyttur
Það þarf að breyta stórum og dýrum verkfærum, þegar ný módel eru
smíðuð. Á myndinni sést 39 smálesta „stans“ í bílaverksmiðju.
en miklar breytingar á Edsel
eru á döfinni, aðallega fækni-
legu hliðinni, en leynd livíiir
yfir þeim. Vatnskassahlífin og
aft’urljósin halda sér, 'sömuleið-
is hemlaútbúnaður og demp-
arar.
Mercury
Höggdeyfarnir að aftan, sem
í tvö ár' hafa verið eitt aðal-
einkenni Mercury bilsins, muny
nú hverfa úr sögunhi. 1959,
. módelið er með stærri glugga
og stélin hverfa. Stærð bílanna
mun verða svipuð og verið hef-
ir, enda er Mereury ennþá
breiðasti toíllinn á markaðnum,
81 þumlungur.
Lincoln
Ný va'tnskassahlíf, afturljós,
breytt skraut og innrétting
munu verða aðaleinkenni Lin
coln bílsins, sem kemur í haust.
Einnig munu verða gerðar ein
hverjar breytingar á Continen
tal, aðallega með það fyrir aug
um að gera hann frábrugðinn
Lincolninum. Báðar tegundim
ar munu halda einfaldleika í
útliti, og mjög lítið verður
lun króm á Continental. Litl'ar
■stærðaúbreytingar eru ráð-
gerðar.
Chrysler
Chrysler toílarnir breyttust
sama og ekkert í ár, en 1959
gerðin mun hins vegar breyt-
ast. Stélin, sem voru einr.enn-
andi fyrir 1958 árgerðina,- munu
haldast, og jafnvel stækka á
sumum gerðum, svo sem Ply-
mouth, sem framleiðir nú teg-
undina Fury, til að keppa við
Imþála !hjá Chevrolet og Thund
ei-bird hjá Ford. Plymouth bil-
arnir bfeikka, en stærðin verð-
ur að öði'U leyti svipuð og áður.
Nýtt þak, vélarhús, vatnskassa-
hlíf og höggdeyfar að framan,
sömuleiðis demparar..
Dodge
Dodge breytist bæði að fram-
an og aftan. Höggdeyfar sveigj-
ast niðu-r ámóts við miðja vatns
kassáhlíf, og lilífin er einnig
•breytt Stélin lengri og mjórri.
Útblástursrör klædd alúminí-
um á þeim gerðum, sem búnar
eru tvöföldu útblástursfvrir-
komulagi. De Soto og Chrvsler
munu halla niður að framan,
frá frámrúðu að vatns'kassahlíf
og skrauti toreytt.
Rambler
Ameriean Motors verksmiðj-
urnar voru hinar einu sem
bæði framleiddu og seldu fleiri
bíla á þessu ári en árinu 1957.
Bifreið þeirra, Rambler, mun
ekki verða verulega breyct í
úrliti, aðeins í smærri atriðum.
Stærð hennar verður hin sama
og áður, enda hefir hún verið
heppileg og átl mikinn þátt í
sölunni. 1959 módelið mun
verða til sýnins fyrir almenning
í októtoer. Forstöðumenn verk-
smiðjanna toú’ast við, að- sala á
Rambler nnini enn færast-í auk
aukana. • , ■
Studebaker-Packard
Studebakér-Paekard verk-
smiðjurnar beina framleiðslu
sinni í átt til ódýrari og spar-
neytnari bíla af svipaðri stærð
og Rambler en framleiddan í
mörgúm gerðum 'og hægt að
velja milli mismunandi aflmik-
illk véíá. Einnig er’ hægt að fá
vökvastýfi og vökvahemla fyrir
heldur meira verð. Hawks teg-
undin af Studebaker mun frám:
leidd lítið breýtt, en Packai'd
bílar verðá -ekki framleiddir
framár með svipuðu sniði og
-þeir hafa verið fram að þessu,
Nýju bílarnir eru mótaðir í leir í fullri stærö áður en framleiðsla
er hafin, til þess að framleiðendur geti séð með eigin augum væntan
legt útlit.
Checker
Checker Motors verksmiðj-
urn eru nýliðar í bifreið-afram-
leiðslu, og ætla að framleiða
litla bifreið við vægu verði. Á-
ætlað er. að -bifreiðin verði fuli-
■búin og til sýnis eftir þrjá mán-
uði.
Útsýni
Yfirleitt eiga „station“-vagn-
ar sívaxandi vinsældum að
fagna og sammerkt með öllum
bílategundum er, að 1959 módel
ið hefir-stærri glugga, meira út-
sýni. Gluggar flestra ná tals-
Stélin eru í algleymingi.
vert upp í þakið. Flestir eru á-
nægðir með -að fá-meira útsýni,
én ’einn og einn kvartar yfir
því að hitmn og sólskinið verði
þá of mikið inni í bílnum.
Þetta kemur tæplega að sök á
ísland, en sólskýli eru fram-
leidd fyrir margar bílategund-
ii' og er mikil eftirspurn eftir
þeim.
Ljós og litir
Tvöföld framljós eru nú al-
veg komin í móð, og mjög fáir
bílanna verða án þeirra. Skærti
litirnir virðast hafa lifað sitt
fegursta — í ár er dregið úr
þeim, og litasamsetningar sörnu
leiðis ekki jafn skjannalegar og
áður. Svarti liturinn á aftur
vinsældum að fagna.
Loftkældir að irman
Margir bílanna módel 1959
munu verða útbúnir loftktei-
ingartækjum að innan. Búizt er
við, að tveir af hverjum fimm
Cadillac muni búnir si-kum
tækjum.
Hjólbarðar
Hjólbarðastærð er yfirleitt ó-
breytt, en vinsældir tvöfaldra
hljólbarða, sem hafa þann kost,
að hægt er að halda förinni á-
fram þótt springi á öðrum
helmingnum, fara í vöxt.
Á bílamarkaði -
A fimmtíu árum hafa General
Motors verksmiðjurnar í Banda
ríkjunum framleitt 57.275,2849
bíla, sem er einnl milljón fleiri
'bilar en skrásettir voru í Banda
ríkjunum 1957.
Ditzler bílamálunarfyrirtækið hef-
ir fundið nýja tegund máining-i
ar til notkunar á langferða-
vegna. Málning þsssi lýsir af
sér, -og gerir að verkum, að auð-
velt er að koma auga á bilana á
erfiðasta tíma bílstjórans — í
Ijósaskiptunum.
Chrysler verksmiðjurnar hafa ekki
fengist við sölu á iimíluttum
EVróputólum fram til þessa,
þótt margar aðrar bandarískar
verksmiðjur hafi hagnazt vel á
slíkri sölu. Sagt er að Chrysler
hafi ef til vill á prjónunum eig
in bíl með líku sniði og Evrópu
bílarnir eru, — lítinn og spar-
neytinn.
Frönsku Peugeot verksmiðjurnar
sendu í fyrsta sinn framleiðsla
sína á markað í Bandaríkjunum
í marz sl. Var þar um að ræða
300 toíla, og ef Peugeot bílunum
verður jafn vel tekið og öðrum
Evróputoílum vestra, er fyrsla
sendingin vafalaust þegar upp-
seld.
United States Rubber Company
hefir framleitt hjólbarða úr næ
lon, sem mun ekki þenjast út
við notkun. Þeir nælonhjólbarð
ar, sem hingað til hafa verið
reyndir, Ihafa þanizt út um 3 til
4 af hundraði vegna útþennslu-
eiginleika nælonsins. Með sér-
stökum efnabreytingum hefir
tekizt að koma í veg fyrir þetta
og er ekki ótrúlegt að nælon-
hjólbarðar verði vinsælir áður
en langt um líður.
Frönsku bílaverksmiðjurnar Ren-
ault ætl-a að auka framleíðslu
sína í 2000 bíla á dag til þess að
mæta eftirspurninni eftir bíl-
unum til útflutnings. Sem stend
ur eru 40 af hverju hundraði
Renaulttoilanna fluttir út til
kaupenda í 88 lðndufn. Verk-
smiðjurnar hafa framleitt' 1600
bíla á dag, það sem af er þessu
ári, en salan er talin muni auk-
ast mjög i ár, t. d. er áætlað að
55 þúsund Renault bílar seljist
í Bandaríkjunum í ár, en salan
í fyrra nam 27 þús. og 500 bíi-
um.
Sala smærri bíla í Bandaríkiunam
er þegar farin að ha-fa áhrif á
framleiðslu verkfæra, hjólbarða
og varahluta. Margir framleið-
endur slíkra hluta snúa sér nú
í ríkara' mæli að framleiðslu fyr
ir litlu bilana.
Það virðist vera ag draga úr hest
aflakaþp'hlauþinti og bílafram-
leiðendur leggja ekki eins
mikla áherzlu á kraftmiklar vél
ar og.gert hefir verið undanfar
in ár. 37,5 af hundraði Chevrol-
et sl. ár voru búnir sex cylindra
vólum, 20,1 af hundraði Ply-
mouth og 15,1 af hundraöi Ford
bíla. Rambler átti þá metið, því-
að 60,4 af. hverju hundraði
þeirrar tegundnr voru með 8
. eyl. vélum og Studebaker, será
virðist ætla að ger asitt ýtrasta
til að ná markaði fyrir ódýra
toíla, framleiddi 43,9 af hundr-
aði bila með 6 cyl. véi.