Tíminn - 22.07.1958, Síða 8
■c
T í M I N N, þriðjudaginn 22. julí 195fc
Greínaflokkur Páls
Zóphóníassonar
(Frarahald af 5. síðu)
minnstu jarðirnar yrðu bættar og
gerðar byggiiegar. Þetta var gert
á Alþingi 1957 m:eð nýrri löggjöf,
og því mátti segja að þessi minn
tilgangur með greinunum væri úr
þvá orðinn óþarfur. Engu síður lét
ég Tímann halda áfram að birta
greinarnar, því verið gat að það
styddi að aukniun metnaði manna,
er þeir sæju sjálfs síns bústop
saraanborið við búskap starfsfélaga
sinna í öðrum sveitum og sýslum.
Eftir að fyrir lágu nýrri tölur en
frá áramótunum 1956—57, var ég
ot’t að hugsa um að koma þeim inn
í greinarnar, en hvarf frá því, þar
tiil nú í sáðustu sýslunum að ég
hef sett nokkrar ’nýrri tölur inn
í, en reynt að gera það þann veg
að það þyrfti ekki að rugla sýslu-
samanburðinn.
Þegar óg af.henti Tímanum hand
rit að þessum greinum um miðjan
marz 1957 átti ég eftir að rita um
Gullbringu- og Kjósarsýslu. Þar er
búskapur með nokkuð öðrum hætti
en víðast annars s'taðar og oft mjög
erfitt að segja hvað er jörð. og
hvað ekki. Þar er líka miklu
mietri hænsnabúskapur en annars
staðar, og til bændur sem liafa
meginið . af tekjum sínum frá
hænsnunuim. Einstaka bændur
hafa líka þar svánabú, og það er
tií, að aðaMekjurnar af búinu koma
í gegnum svínin. Iívort tveggja
þetta gerir meðalbúið varla og
elski sambærileg við meðalbú ar.n-
árra hreppa. Enn kemur það til,
að sumir stunda aðra atvinnu
jafnframt og hafa í gégnum hana
eins miMar tekjur og af búinu
sjálfu. Ég er ekki enn ráðinn í,
hvort ég tek mig saman eftir að
þessi greinaflokkur hefir birzt
ailur, og reyni að semja Mkt yfir-
lit yfir þá Iireppa í þessum sýslL
um sem eftir cru, þar sem bú-
skapurinn hvílir á svipuðum
grunni og annars staðar í land-
inu. Það má vera að ég geri það,
en hitt getur eins verið að ég
sleppi því.
Um leið og ég hef skrifað þess-
ar greinar hef óg hér og þar vikið
að einu og öðru sem ég hef viij-
að benda á til sérstakrar umhugs-
unar fyrir bændur. Um það bið
ég þá að hugsa. Ég bið þá að
leggja það vel niður fyrir sér,
hvort þeir eigi ekki að taka til-
lit til sums þess er ég hef
bent á, og vona að sumir geri svo,
og að því leyti komi greinarflokk-
ur þessi að nokkru gagni.
Pálmasunnudag 1958.
Páll Zóphóníasson
r
Minning: Hjörleifur Arnason, yélstjóri
IAWA^WíV.V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.W.V.’.V.V.VAJ
Hinn 16. júlí var til moldar bor-
inn Hjörleifur Árnason vélstjóri.
Hann var fæddur að Tjörn í Svarf-
aðardal 9. okt. 1892. Voru foreldr-
ar hans þau hjónin Árni Friðriks-
son frá Brekkukoti Jónssonar og
Ingigerður Zóphóniasdóttir frá
Bakka. En ömmur Hjörleifs voru
þær Guðrún Björnsdóttir frá
Jarðbrú, kona Friðriks og Soffía
Björnsdóitir frá Koti og Grund,
kona Zóphóníasar. Fórust báðir
þessir afar Hjörleifs með há-
karlasklpi frá mörgum börnum,
sem ekkjur þeirra komu þó upp
og urðu þessi börn hið mesta
myndar- og dugandi fólk, og eiga
nú fjölda afkomenda.
Foreldrar Hjörleifs bjuggu um
skeið að Gullbringu, rétt við Tjörn,
og þar var hann oft í bernsku, sem
íheiniabarn á glöðum hópi og þólti
jafnan góður- félagi. En lengst
bjuggu þau íhjón að Skáldalæk, og
fiuttu svo til Akureyrar, þar sem
þau dóu bæði.
Voru þau hjón á sinni tíð talin
með afburðum að dugnaði og raó-
deild og að öllu hin mestu sæmd-
arhjón.
Má því með sanni segja að
Hjörleifur átti til dugnaðarfólks
að telja, enda sjálfur harðskarpur
maður til allrar vinnu meðan heils-
an leyfði, (en hún var ekki sterk
hin siðari ár. Var hann þó jafnan
hress í máli og oftast léttur i lund,
enda karlmenni í hverri raun. Við
sjómennsku og vélstjórn fékkst
hann framan af ævi, en síðan við
iðnaðarstörf.
Hjörleifur Árnason átti því
mikla láni að fagna að eignast hina
mestu ágætiskonu, Gróu Herter-
Erlent. yfirlit
(Framhald af 6. síðu).
varð þeim. Þeir gera sér nú Ijós-
ara en áður, að söguleg þróun
verður ekki stöðvuð í Arabalönd-
unum fremur en annars staðar.
Sameining Araba hlýtur að koma.
Fjrir vesturveldin skiptir nú
mestu, að missa ekki Araba alveg
til Rússa. Fyrir vesturveldin væri
nú bezta lausnin úr því, sem kom-
ið er, að upp rísi Arabaríki, hlut-
laust í átökum aasturs og vesturs,
en þó viðskipíalega í meiri tengsl
um við vestrið, vegna þess, að
þangað þurfa Arabar að selja olí-
una. OMan hefur hingað til mjög
sundrað þessum aðilum, en hún
getur líka orðið lykillinn að góðri
samvinnu þeirra, ef vesturveldin
j koma þeim málum á hrcinan við-
| skiptagrundvöll, þar sem tekið er
j rétt tillit til hagsmuna béggja.
Þ. Þ.
vig, er lifir mann sinn ásamt tveim
ur börnum þeirra. Það eru þau,
Arna gift Jcih. R. Snorrasyni flug-
stjóra, og Yngvi raffræðingur,
deildarstjóri hjá K. E. A., kvæntur
Ólínu Halldórsdóttur.
í sólskini og sunnanþey var Iljör
leifur Árnason kvaddur í dag af
fjölda vina og vandamanna; þökk-
uð samveran og árnað fararheilla
inn í ókunna veröld.
Akureyri, 16. júlí 1958.
Gamall vinur.
Yfir sumarmánuðina cr
nauðsynlegt, að augiýsing-
ar, er birtast eiga f sunnu-
dagsbiaði, hafi borizt aug-
iýsingaskrifstofu blaðsins
fyrir kl. 5 á fostudag.
Vinnið ötullega að útbreiclslu TÍMANS
Áskriítarsími TÍMANS er 1-23-23
’A
Þegar hjólreiíar voru enn
í tízku
foröfðust þær að sjálfsögðu nreira erfiðis og leikni, yegna
hins óþægilega þrönga klæðnaðar þeirra tíma, 'sem
hindraði allar eðlilegar hreyfingar.
■Liiiiiiiiiiiituiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinim
Útsvarsskrá Hafnar-
fjarðar árið 1958
Skrá yfir niðurjöfnun útsvara í Hafnarfjarðar-
kaupstað fyrir árið 1958 liggur frammi almenn-
ingi til sýnis á vinnumiðlunarskrifstofu Hafnar-
fjarðar, Ráðhúsinu, Strandgötu 6 frá þriðjudegi
22. júlí til þriðjudagsins 5. ágúst n. k. kl. 10 til
12 og 16 til 19 nema á laugardögum, þá aðeins
kl. 10 til 12. Kærufrestur er til þriðjudagskvölds
5. ágúst kl. 24, skulu kærur yfir útsvörum
sendar bæjarstjóra fyrir þann tíma.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði 25. júlí 1958.
Stefán Gunnlaugsson =
iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii
'.’.V.V.W.V.’.V.VAY.V.Y.V.V.’.V.V.V.’.V.V.’.V.V.VV.V
:* :«
:: Beztu þakkir til ykkar, sem glödduð mig með heim-
■: sóknum, gjöfum og góðum kveðjum á fimmtugsafmæli ;l
í mínu 13. 'júlí.
Nú á dögum kýs hver hvgginn maður þægilegan klæðn-
að, slkyrtu sem annan fatnað. Það er þess vegna að svo
margir klæðast TÉKKNESKUM POPLIN SICYRTUM
með vörumerkinu ERCO.
Þær eru framleiddar í fjölbreyttum gerðum eftir
nýjustu tízku, sem hæfir við öll tækifæri.
Einnig þú ættir að biðjla um þær!
Útflytjendur:
CENTROTEX — PRAGUE — CZECHOSLOVAK'A
[LV.V.V.W.V,
lií. í
Gísli Högnason
Læk í;
.V.V.V.V.V.VV.W.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V/Í
Umboð:
9. H. Albertsson
Laugavegi 27 A — Reykjavík —. Sími 11802