Tíminn - 22.07.1958, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.07.1958, Blaðsíða 9
T.ÍMINN, þriðjndaginn 22. júlí 1958. sex grunaðir saga eftir agathe chrisfie voru fölsuð. Báðar konurnar voru sjúklingar hans, eins og þér munið. Og allt, sem þurfti að gera, var að tafeýta kort- um þeirra. Hercule Poirot taætti við: — Og nú skiljið þér, hvað ég átti við, þegar þér spurðuð mig, hvort konan væri lifs eða lið- in og ég svaraði að það væri undir ýmsu komið. Því að hvora konuna eigið þér viS, þegar þér talið um ungfrú Sainsbury Seale? Konuna, sem f.ór frá Glengowrie hótel- inu eða hina réttu Mataelle Sainsbury Seale? Alistair Blunt sagði: — Eg veit, að þér M. Poirot erúð í mjög miklu áliti. Því mún ég játa að þér kunnið að hafa ástæðu til að láta slíkt út úr yður — því að þetta er í raun inni svo fáránlegar hugmynd ir, aö mér liggur við að hlæja. Eg get ekki annað sagt en að ég álít þetta allt afleiðingar af sérlega fljótu ímyndunar- afli. Þér eruð að halda fram — er það ekki rétt — að Mabelle Sainsbury hafi verið rnyrt og Morley hafi einnig verið myrtur til aö koma í veg fyrir að hann þekkti líkið aft ur. En hversvegna? Það lang ar mig að vita. Hún var, eftir öllum líkindum að dæma al- gerlega hættulaus, miðaldra kona, átti marga vini og aö því er mér skilst, enga óvini. Hvers vegna í ósköpunum aö gera viðtækar ráðstafanir til að ryðja henni úr vegi? — Hvers vegna? Já, það er spurningin? Hvers vegna? Eins og þér segið var Mataelle Sainsbury Seale algerlega liættulaus, hún myndi ekki drepa flugu! Hvers vegna var hún myrt? Og það á svona ruddalegan hátt? Eg skal segja yður, hvað ég held. — Já? Hercule Poirot hallaði sér fram. Hann sagði: — Eg held, að Matoelle Seale hafi verið myrt vegna þess að hún var of mannglögg — mundi of vel eftir andlitum, sem hún hafði séð einhvern tima áð- ur. — HVað eigið þér við? Hercule Poirot sagði: — Eg hef lýst fyrir yður muninn á konuhum tveim, hinni réttu Mataelle og hinni, sem þótt- 'ist vera Matoelle Sainstoury Seale. Hin rétta Seale er mein laus kona frá Indlandi og hin sem leikur 'hina meinlausu Seale frá Indlandi. Hvor Ma- toelle Sainsbury Seale var það sem talaði við yður á götunni, hrópaði upp, að hún hefði þekkt konu yðar. Nú var þessu algerlega vísaö á taug af vin- um hennar. Svo að við getum sagt: Það var lýgi. Það var sem sagt tilefni til að ná tali af yður og hagnast um fimm pund, sem runnu til trúboðs. Alistair Blunt kinkaði kolli.; — Það virðist ljóst. En ég skil ekki hver tilgangurinn var. | Poirot sagði: — Bíðiö þér ti,ð — v:f) skulum athuga málið. Þetta var hin rétta Sainsbury Seale. Hún lýgur ekki. Svo a'ð þetta hlýtur að liafa verið satt. — Eg býst við, að það megi gera ráð fyrir þvi — en mér finnst það vægast sagt ótrú-, legt. j — Auðvitað er það ótrú- legt. En staðreyndin er — að þetta er satt. Og ungfrú Sains bury Seale þekkti konu yðar. Hún þekkti hana vel. Þess vegna hlýtur kona yðar að hafa verið svipuð kona og ungfrú Sainshury Saele hefur þekkt vel. Einhver í svipaðri þjóöfélagsstétt. Ef til vill trú boöi — eða ef við hverfum lengra aftur í tímann — leik- kona. Þess vegna — ekki Re- becca Arnholt. Nú skiljið þér ef til vill, M. Blunt, hvað ég átti við þegar ég minntist á opintaert líf og einkalíf? Þér erúö' frægur fjármálamaður. En þér eruð líka maður, sem kvæntist ríkri konu. Og áður en þér genguð að eiga hana — voruð þér aðeins liluthafi í fyrirtæki — þér voruð lítt þekktur — hefðuð kannske aldrei orðið þekktur hefðuð þér ekki kvænzt Retaeccu Arn holt. Og fyrirtækið sem ég minntist á var ekki langt frá Oxford. Alistair Blunt sagði: —, Hvað eruð þér aö gefa í skyn, M. Poirot? Poirot sagði rólega: — Eg er að gefa í skyn, M. Blunt, aö þegar þér kvæntuzt Re- beccu Arnolts vorwð þér þeg- ar kvœntur. Þér voruð dáleidd ir af völdum þeim, sem þér mynduö fá yfir að ráða ef þér kvæntust henni og þess vegna gerðuð taér yður sekan um tvíkvæni. Hin rétta kona yð- ar sætti sig við þetta. — Og hver var þessi rétta kona mín? — Hún gekk undir nafninu Albert Ohampmann þegar hún tajó i King Leopold Mans- ios — þægilegur staður, ekki fimm mínútna gang frá heimili yðar i Chelsea. Þér fenguð lánað nafn mans í leyniþjönustunni, með því gát hún sannað hvers vegna hann tajó svo sjaldan heima. Þetta tókst prýöilega. Engar grundsemdir vöknuðu. Engu að síður var það staðreynd, aö þér voruð ekki löglega kvœntir Reheccu Arnofds, og vorúð sekir um tvíkvæni. — Yður datt aldrei i hug, að hætta myndi steðja að eftir svona mörg ár. En hættan var yfirvofandi — í gervi góðr 9 ar og heimskrar konu, sem iniiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiimiiiiiiiimiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini þekkti yður aftur sem eigin- = = mann vinkonu sinnar. Þiab' s || var tilviljun að hún sneri s = heim aftur, tilviljun að þér hittuð hana í Queen Charl- otte Street — tilviljun að frænka yðar og heyrði, hvað hún sagði. Ef hún hefði ekki sagt frá þvi síðar, heföi ég sennilega aldrei gizkað á þetta. — Eg sagði yður frá því sjálfur, minn kæri Poirot. — Nei, það var frænka yð- ar, sem var svo áfjáð í að segja mér það og þér gátuð’ varla neitað henni um að gera það, án þess að það vekti grunsemdir. Og eftir að þér hittúð ungfrú Seale, vildi svo skelfilega til (að yðar viti) að ungfrú Mabelle Sainsbury Seale hittir Amberiotis, borð ar kvöldverð með honum og rausar þá um þennan fund sinn og eiginmanns vinkonu sinnar — eftir öll þessi ár. Var ellilegri, en hafði annars mjög lítið toreytzt. Eg skal játa að þetta er aðeins tilgáta frá minni hálfu, en ég held það hafi verið þetta sem gerð ist. Eg held ekki að ungfrú Sainstoury Seale hafi eitt augnablik áttað sig á því, að maðurinn, sem vinstúlka hennar giftist, var hinn frægi fjármálamaður hr. Alistair| Blunt. Nafnið er, þegar á það j er litið — fremur venjulegtJ En Ambériotis var okrari og hafð'i fengizt við fjárkúgun. | Fjárkúgarar eru venjulega greindir menn — og skai-p- j skyggnir og minnisgóðir. Am- j beriotis hugsaði málð. Það j var auðvelt að uppgötva hver i þessi hr. Blunt, eiginmaður vinkonunnar var, einmitt fjármálamaðurinn frægi. Ogj því næst, er ég ekki í vafa um, að hann hafi skrifað yöur eða hringt — já, heil gull- náma fyrir Amberiotis. Poirot tók sér málhvíld. Dauft taros kom á andlit hans. — Sannleikurinn í málinu var nefndur í upphafi rannsókn- arinnar. Lyftudrengurinn Al- freð var að lesa glæpasögu, sem hét „Dauðinn kom klukk an 11,45.“ Við hefðum átt að skilja að það var fyrii- boði. Því að um það leyti var Morley drepinn. Þér skutuð hann, þegar hann var búinn að gera við tennurnar í yður. Þvínæst hringduð þér bjöll- unni, skrúfuðuð frá kranan- um og fóruð út úr hertaerg- inu. Þér höguðuð því þann- ig að þér komuð niður stig- ann einmitt þegar Alfreð var að fylgja ungfrú Sainstaury Seale upp — þ.e.a.s. konunni, sem lék hana. Þér opnuðuð útidyrnar, ef til vill fóruð þér út, en jafnskjótt og lyftan var komin af stað upp, lædd- ust þér inn aftur og fóruð upp stigann. Eg veit hvað Alfreð gerir þegar hann fylgir upp sjúklingi. Hann toer að' dyr- um, opnar þær og lætur sjúkl inginn ganga inn, en hann stendur þannig að hann sér ekki inn. Aö innan hfcyröi hann vatn renna. Morley var að þvo sér um hendurnar eins og venjulega, þegar hann hafði lokið við að gera við' tennuf í sjúklingi, áður en hann tók á móti þeim næsta. En Alfreð sá hann ekki. Strax og Alfreð hafði farið aftur niður með lyftuna, læddust þér inn d hertoergið'. Þér og lagsokna yðar hjálpúðust a'ð viö að setja Morley inn í næsta hertaergi. Þvi næst fór- uð þér í gegn um spjöldin og lagfærðúð það sem þurfti. Þér fóruð í hvítan slopp, og ef til vill lagaði eiginkona yðar sig eitthvað til. En þess Stangaveiði í Fnjóská, | Suður-Þingeyjarsýslu 1 Veiðifélag Fnjóskár leigir sjálft út stangaveiði i I Fnjóská á þessu sumri. | Ánni er skipt í þrjú veiðisvæði. Neðsta svæðið frá sjó og upp að Laufásfossum I (laxastiganum), þrjár stengur á dag. Verð pr. | stöng kr. 75.00. p Miðsvæði frá Laufásfossum og upp að Fnjósk- | árbrú. Þrjár stengur á dag. Verð pr. stöng kr. | 25,00. | Efsta svæði frá Fnjóskárbrú og fram úr. Þrjár I stengur á dag. Verð pr. stöng kr. 25,00. Veiðileyfi veita: Á neðsta svæði Hallgrímur I Tryggvason í Pálsgerði. Sími um Grenivík. Á I miðsvæði Tryggvi Stefánsson, Hallgilsstöðum. | Sími um Skóga. Á efsta svæði Þórólfur Guðmunds- I son, Lundi. Sími um Skóga. Engin veiði leyfð á mánudögum og þriðjudögum. 1 Stjórn Veiðifélags Fnjóskár numnranimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiinnimniiiiinmiiiiiiiiiiiiiiiiuiiimnii HÖFUM OPNAÐ | IE teiknistofu | I í Aðalstræti 6, 5. hæð (Morgunblaðshúsinu. — | Teiknum hvers konar innréttingar og húsgögn, 1 sími 14600. Heimasímar 33984 og 33113. S B i KJARTAN Á. KJARTANSSON 1 | PÁLL GUÐMUNDSSON | húsg. arkifektar . iiiiiillllllllllllliiiiiiiiiiiliiiiiiilllililiiililiiililiiiiiiiliiliiiililliiiilllillllilliillillliiiililllilillilllllilllllllllillllllllilinii | Hafnarfjarðar ( fyrir árið 1958, varðandi einstaklinga og félög, 1 er til sýnis í skattstofu Hafnarfjarðar frá 22. júlí | til 4. ágúst n.k. að báðum dögum meðtöldum. 1 Jafnframt er til sýnis á sama tíma skrá vfir ið- | gjaldagreiðslur atvinnurekenda, samkvæmt á- I kvæðum almannatryggingalaganna, svo og um 1 gjöld til atvinnuleysistryggingasjóðs. Enníremur I skrá um skyldusparnað. § Kærufrestur er tvær vikur og þurfa kærur a'ð I vera komnar til skattstofu Hafnarfjar'ðar eigi síð- I I ar en að kvöldi 4. ágúst n.k. I Skattstjórinn í Hafnarfirði 21. júlí 1958. g Eiríkur Pálsson |j Triiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiri MóSir okkar og tengdamóöir, Inga Rasmussen verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. júli kl. 10,30 f. h. Stella Geirsdóttir, Ágúst Rasmussen Ellen og Sverrir Pálsson. ÞÖKKUM INNILEGA auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, fósturmóður og ömmu Fannýar Jónsdóftur Björg Jóhannssdóttir, Ólafur Kr. Magnússon, Soffía Jóhannsdóttir, Guðm. B. Þorsteinsson, Bryndis Jóhannsdóttir, Valdimar Bæringsson, Jón Á. Þorsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.