Tíminn - 03.08.1958, Qupperneq 6

Tíminn - 03.08.1958, Qupperneq 6
6 TÍMINN, sunnudaginn 3. ágúst 1958 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Frjáls Á MORGUN er hinn ár- legi hátíöisdagur verzlunar- manna. Síð'an á dögum dönsku ein okunarverzlunarinnar hefir íslendingum oft legiö mis- jafnt orö til verzlunar- manna. Að verulegu leyti er þetta þó á misskilningi byggt. íslenzka verzlunar- stéttin á t. d. sinn stóra þátt í sjálfstæöisbaráttu þjóðar- innar. Kjör þjóðarinnar og öll aðstaða batnaði stórum, þegar verzlunin komst í hendur innlendra verzlunar manna. Margir verzlunar- menn, jafnt i hópi kaupfé- lagsstjóra og kaupmanna, áttu svo einnig sinn drjúga þátt í hinni atvinnulegu uppbyggingu til lands og sjávar. ÞAÐ er eitt dæmið um glöggan skilning og fram- sýni Jóns Sigurðssonar, að hann taldi það nauðsynlegt sem fyrsta skref sjálfstæðis- baráttunnar að losa verzlun ina úr klóm hinnar dönsku einiokunar og gefa hana frjálsa. Einokun leiðir alltaf fyrr og síðar til slæmra verziunarhátta fyrir neyt- endur, hvort heldur sem hún er í höndum einkaaðila eða ríkisvalds. Frjáls verzlun er bezta trygging þess, að neytendur njóti hagstæðra kjara. Annað merki um framsýni Jóns Sigurðssonar er það, að hann taldi það ekki næga tryggingu fyrir fi'jálsri verzl un, að innlendir kaupmenn leystu útlenda kaupmenn af hólmi, því að hætta væri á því, að þeir kæmu sér þá saman um verðlag og verzl- unarkjör og þannig myndað ist einskonar einokun. Þess- vegna lagði Jón áherzlu á, að samhliða kaupmanna- verzlun væri stofnuð verzlun arfélög alþýðu, sem kepptu við kaupmenn og tryggðu á þann hátt næga samkeppni verzlun og fullkomlega frjálsa verzl- un. REYNSLAN hefir sýnt, að stefna Jóns Sigurðssonar var rétt. Kaupfélagsskapurinn hefir haft ómetanlega þýð- ingu fyrir hag þjóðarinnar. Hann hefir átt hinn stærsta þátt i viðreisn hinna dreifðu byggða. Hann hefir með sam keppni sinni við kaupmenn komið í veg fyrir, að hér mynduðust samtök um verð lag og verzlunarkjör, eins og sums staðar annars staðar, og verzlunin yrði því ekki frjáls nema að nafni til. Samkeppni kaupfélaga og kaupmanna hafa tryggt frjálsa verzlun á íslandi. OFT hafa staðið harðar deilur milli kaupfélaga og kaupmahna. Þó hefir heldur dregið úr þessum deilum í seinni tíð. Báðir aðilar hafa séð, að þeir eru hvor öðrum nauðsynlegir, ef litið er á málin frá sjónarmiði heildar innar. Fyrir bæði kaupfélög og kaupmenn er heppilegt að hafa víst aðhald. Þetta að- hald verður bezt tryggt með því að kaupmenn og kaup- félög. keppi á jafnréttis- grundvelli. Með því móti verður neytendum lika tryggð bezt verzlun. Á HÁTÍÐISDEGI verzlun- armanna hlýtur mönnum að verða hugsað til þess, hve mjög hin frjálsa verzlun hef ir sér verzlunina fyrir öld sést bezt, ef menn virða fyr- ir sér verzlunarhöld fyrir öld síðan. Um það geta því jafnt kaupfélagsmenn og kaup- menn sameinast, að reynt sé að forðast sem mest allar öeðliilegiar hömllur í veg)l frjálsrar verzlunar. Og þjóð in er áreiðanlega fátt gagn- legra en að eiga velhæfa verzlunarmenn, er keppast um að tryggja henni sem bezt kjör. Hálfvelgja Morgunhlaðsins MORGUNBLAÐIÐ heldur áfram í gær kröfu sinni um það, að hafnar verði að nýju umræður um þann á- greining varðandi landhelg- ismálið, sem varð milli stjórnarflokkanna á síöastl. vori. Eins og oft hefir verið sagt frá hér í blaðinu, var sá ágreiningur um aukaat- riði, en ekki um þau megin- atriði málsins að færa fisk- veiðilandhelgina út í 12 mílur og láta útfærsluna taka gildi 1. september. Erfitt er að sjá hvervegna Mbl. vill nú að nýju hefja deilur um aukaatriði máls- ins, þar sem þær væru síður en svo fallnar til þess að bæta fyrir því út á við. Hér virðist eitthvað annað ráða skrifum Mbl. en umhyggja fyrir framgangi málsins. Athyglisvert er það líka, að Mbl. gerir ekkert að því að færa fram rök íslendinga fyrir útfærslu fiskveiðiland helginnar, en heldur uppi alls konar ónotum í garð rík isstjórnarinnar í sambandi við meðferð málsins. Sú hætta fyrir málið, sem fellst i þessum starfsháttum Mbl. kemur glöggt fram í aðalmálgagni brezkra togara eigenda, Fishing News, er það kemst svo að orði fyrir skömmu: „Eins og íslenzk blaðaum- mæli sýna er til allrar ham- ingju fleiri en ein skoðun á málinu meðal þeirra (þ. e. íslendinga). Við hljótum að vona að sanngjarnara við- horfið verði ofan á fyrr en til árekstrar kemur.“ Þetta „sanngj arnara við- horf“, sem „Fishing News“ á við, er fráhvarf frá þeirri stefnu að fá 12 mílna fisk- veiðilandhelgi viðurkennda. Mbl. gerði sjálfu sér og þjóðinni mikið gagn með því að lýsa skörulega yfir fylgi sínu við útfærslu fiskveiði- Nasser og Bretar togast á um yfirráð í furstadæmum við Persaflóa Sumir autSugustu furstar heims sitja þar í skjóli Breta í hrjóstrugum ey'Simerkurlöndum Með ströndum Arabíu- skaga eru nokkur fursta- dæmi, sem nú hafa skyndi- lega fengið úrslitaþýðingu um örlög Miðausturlanda. Furstarnir eru flestir hlynnt- ir vesturveldunum, en ríki þeirra eru næsta bráðin sem Nasser stefnir að. Útsendar- ar hans halda þar uppi á- róðri, og ástandið fer versn- andi. Bretar eru staðráðnir í því að halda furstunum við völd, með valdbeitingu ef nauðsyn krefur. Hér á eftir er sagt lítillega af nokkrum þessara fursta og ríkjum þeirra. I Þessi furstadæmi væru næsta lít- _ ils virði — cf ekki væri olían, og sum þeirra eru með olíuauðugustu svæðum heims. Eftir fall íraks eru það þessi smáríki og auðæfi þeirra, sem Nasser stefnir að í viðlettni sinni til þess að ná yfirráðum yfir öllum Miðausturlöndum. Og að baki Nassers stendur Krustjoff. — Það voru óskir Nassers er réðu til- raunum Krústjoffs til að koma á fundi æðstu manna innan Samein- uðu þjóðanna á dögunum. Furstarnir, sem Nasser beinir nú brandi sínum að búa auk þess við vaxandi kröfur heima fyrir um að ganga í lið með panarabisma hans. Sumir þeirra eru jafnvel persónu- lega hlynntir því. Þrír þessara fursta ráða svæðum þar sem fram- lcitt er ótrúlega mikið magn olíu, meira en þriðjungur allrar fram- leiðslu Miðausturlanda, og þeir eru undir brezkri vernd. Bretar láta það skýrt í ljós að þeir muni ekki sleppa hendinni af þessum furstum baráttulaust. Fimmfungur allrar olíu í Kuwait, litlu furstadæmi við mynni Persaflóa, ræður ríkjum Abdullah as Salin as Salah. Frá Kuwait fá Bretar meira en helm- ing allrar olíu sinnar, og þar er j fimmti hluti af öllum olíulindum j heims, meira en í nokkru öðru j ríki. Olíutekjurnar hafa gert þenn an lítt þekkta fursta í afskekktu heimáhorni næstauðugasta mann heims. Sagt er að Saud Arabíu- konungur sc einn auðugri en hann. Þriðjungur olíuteknanna renna til furstans — 100 milljónir dollara árið sem leið — annan þriðjung fær ríkisstjórnin í sinn hlut, og þriðjungur rennur til ýmissa fram faramála. Þrátt fyrir þessi auðæfi lifir furstinn mjög hófsömu lífi. Hann er einlægur múhameðstrúarmaður, hefir ferðast til Bretlands og ná- grannaríkja sinna, — og hann hef- ! ir sinnu á að koma miklu af auði sínum fyrir í brezkum verðbréf- um. Ríkisstjórnin er alveg í hönd- um hans, ættingjar sjálfs hans í öllum embættum. Abdulláh fursti hefir algert ein- ræðisvald í ríki sínu, ræður lífi og dauða þegna sinna. Engu að síður er stjórn hans mild. 1 smíðum er fjöldi af skólum, sjúkrahúsum og opinberum byggingum, og sömu- landhelginnar í 12 mílur, en hætta óþörfum ónotum og hálfvelgjuskrifum um málið. Ef hinir erlendu aðilar finna að hvergi sé bilbug aö finna á íslendingum, mun máiið áreiðaniega leysast fljótt og vel, en ef það álit hins veg- ar myndaðist, að stærsti stjórnmálaflokkur íslands væri eitthvað óheill í mál- inu, gæti það haft slæmar afleiðingar og torveldað skjóta lausn málsins. leiðis vatnsvinnsiuslöð, eina upp spretta fersks vatns í Kuwait. — Kennsla og sjúkrahjálp er ókeypis, og hann veitir ríkulega náms- styrki til nemenda er sækjj vilja erlenda háskóla. Merk aðstaða Nassers Það er auðskilið, hvers vegna Nasser, sem sjálfur ræður fátæku landi, sækir fast að komast yfir Kuwait og hvers vegna Brelar eru staðráðnir að verja það. Ynni Nasser Kuwai.t væru fjárhagsvand- ræði hans þar með leyst. Olíutekj- urnar myndu færa Nasser nægi- legt fé til þess að koma Samein- aða Arabalýðveldinu vel á laggirn- ar og auk þess e. t. v. skila afgangi íil _að heyja fyrir stríð við ísrael. Ýmsir hagfræðingar segja að yf- irráðin yfir Kuwait ráði því hvort Bretar haldast bjargálna cða lenda í fjárhagsöngþveiti. Furstadæmið skiptir miklu máli fyrir efnahags- jafnvægi Breta, bæði vegna hagn- aðarins af British Petroleum Co sem hefir með höndum olíuvinnsl- una í Kuwait ásamt amerísku fyr- irtæki, og eins vegna fjárfestingar furstans í Bretlandi. Þar sem Ku- wait tilheyrir sterlingssvæðinu er öiium tekjum þess í eriendum gjaldeyri komið fyrir í Bretlandi. Byltingin í írak hefir komið öllu þessu í öngþveiti. írak liggur að norðurlandamærum Kuwaits, og Nasser hefir sterka aðstöðu til að skapa furstanum vandræði. Því nær helmingur íbúanna í Kuvvait eru innflytjendur, flestir frá írak. Sýríu og Palestínu. Hundvuð eg- ypskra kennara hafa verið fluttir inn til starfa við skólana, og þeii draga enga dul á vinskap sinn viP Nasser. Aðrir Egyptar hafa mef höndum mikilvæg embætti í stjórn arráðinu. Það er því engir. furða að nasserisminn á sterk ítök í Ku- wait eins og víða kemur fram. Fáum dögum eftir byitinguna í írak átti Abdullah fursti fund með Nasser. Bretar gera sér þó engar grillur af því. Augljóst er talið að furstinn verði annað slagið að láta undar stuðningsmönnum Nassers heima fyrir með vinsamlegri fram- komu við hann, en sjálfur er hann talinn tryggur fylgismaður Breta. En því til fullkomnari trygging- ar að Kuwait bíði ekki sömu örlög og íraks ‘hafa Bretar herlið í stöðv um skammt frá Kuwait, og þvi verður beitt ef horfur eru á að furstinn sé að missa tökin á landi sínu. Quatar og Bahrein Ali bin Abdullah al Thani er ein- valdur í Quatar furstadæmi á skaga út í Persaflóa. Síðustu ár nam olíu framleiðsla þess 50 milljón tunn- Framhald á 11. síðu Furstinn af Kuwait, — hann ræður yfir fimmta hluta af allri olíu heims en nasserismi sækir á Furstinn af Quatar, — fyrir skemmstu átti hann við verkfall og nasserisma að etja. Furstinn af Bahrein. -— Bretar komu honum til hjálpar fyrir tveimur árum, hann þarf kann- ski á hjálp aS halda aftur. Soidáninn af Muscat og Oman, — hann hefir lengi átt við upp- reisnarmenn að etja. Á SKOTSPÓNUM m Svo virðist sem ný skeggöid sé að hefjast í höfuð- staðnum, og nú eru það ekki ung skáld eða ungir listamenn, sem safna skeggi, heldur virðulegir og ráð- settir borgarar. . . . Nefna má þessa menn, sem sézt hafa með skeggvísi Pál ísólfsson, tónskáld, Gils Guð- mundsson, rithöfund, Harald Sigurðsson, bókavörð, Baidur Pálmason, fulltrúa útvarpsráðs það má þakka fyrir ef skálmöld fylgir ekki á eftir, því að mennirnir eru vígalegir Fullvíst má nú telja, að Húsmæðrakennaraskólinn taki til starfa að nýju í haust og fái til umráða hús það, sem bvggt var norðan í Öskjuhlíðinni sem bústaður rektors menntaskólans Ráðgert er að bókaútgáfa Menningarsjóðs hefji útgáfu nýs tímarits um bókmenntir, eða stækki Andvara í þessu skyni.... þessi útgáfa mun þó ekki fullráðin . Rímur eru taldar heyra til liðnum öldum, en þó eru enn ti! rímnaskáld og rímur ortar á hverju ári en sjaldan gefnar út. . . þó mun væntanlegt í haust all- stórt rímnasafn ort síðustu ár eftir Sveinbjörn Bein- teinsson frá Draghálsi. . ísafoldarprentsmiðja gefur út.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.