Tíminn - 06.08.1958, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.08.1958, Blaðsíða 4
T í MIN N, miðvikudaginn 6. ágúst 1954, 4 Hryllileg morð í írak — Forsætis- ráðherra dreginn eftir götunum — Villzt á útlendingum — Fékk Feisa hjartaslag? — Breitt yfir óhæfuverk Nú hafa frekari fregnir borizf umheiminum frá bylt- ingunni í írak. Enda þótt að- eins um 30 manns hafi beðið bana í uppreisninni, eru lýs- ingar sjónarvotta á drápum þessum svo hroðalegar, að því verður vart trúað að hér hafi mennskir menn verið að verki. Fyrstu dagana eftir dráp kon- rngsfjölskyldunnar gat að líta alls bonar slagorð gegn Vesturveldun- i m máluð á húsveggi og annað, 'sem til lagðist. Myndum af krón- prinsinum, hagandi fótalausum i ppi í ljósastaur og Nuri as-Said íorsætisráðherra, þar sem mugur- inn dró lík hans nakið eftir r num, var stillt út í glugga hér og jbar. Breitt yfir verkin En þegar frá leið, tóku stjórnar- \iildin í taumana og reyndu að gera allt, sem í þeirra valdi stóð, fil þess að fegra þessi ódæðisverk :ftir megni. Blöðum var bannað að reka áróður gegn Vesturveldunum. og strangar fyrirskipanir voru gefn ar út um að útlendingar væru ekki áreittir. Múgurinn hafði nefnilega ekki gert greinarmun á útlendingum og öðrum, og meðal annar voru ung ur Þjóðverji og Bandaríkjamaður drepnir á hinn 'hryllilegasta hátt ásamt háttsettum Jórdaníumanni er þeir lentu af misskilningi sam- an með nokkrum innfæddum, sem i ppreisnarmenn tóku á hóteli -imm. Lík krónprinsins hengt til sýnis. notekru í Bagdad. Bifreiðinni var ekið að varnarmálaráðuneytinu, en þangað átti að flytja mennina til yfirheyrslu. Þegar komið var að hliðinu, dróst nokkuð að því yrði lokið upp og bifreiðin varð að nema staðar. BiSu ekki boðanna Það skipti engum togum að múg urinn réðst á bifreiðina, braut upp hurðir og mennirnir voru dregnir einn af öðrum út og slátrað þar eins og skepnum. Nokkrum tókst þó að komast undan inn um hliðið, er því endanlega var lokið upp. Nú vilja uppreisnarmenn breiða yfir öll þessi óhæfuverk og blað nokk- Lik Nuri as-Said dregið eftir götunum. Sprakk ekki. Á dögunum vildi það til í Alsír, er franskir hermenn sátu að snæðingi á veitingahúsi einu, að hermdarverkamaður nokkur varpaði heimatiibúinni sprengju inn í salinn. Sprengjan lenti í súpudisk eins hermanns- ins með þeim afieiðingum að kvekjuþróðurinn blotnaöi og sprengjan sprakk ekki! LrfsgleSi. Bandaríkjamaður einn í Delaware-fylki þar í landi var sektaður um 550 dollara fyrir aö vera drukkinn við akstur, eftir að hann hafði ekið inn á íögreglu- stöð í fylkinu og þeytt þar flaut- una iengi vel unz lögregluþjónn kom út. Aðspurður hvað hann væri að gera þarna kvaðst hann vilja fá þjónustu og heimtaði kaffi og hamborgara! Hndíáni? Maöur nokkur í Kaliforniu ■gekk á fund lögreglunnar þar um 'daginn og kvartaði undan því, aö l'ítil einkaflugvél hefði steypt sér niður að honum úti á víðavangi. Flugmaðurinn hallaði sér út úr sæti sínu og skaút á hann af boga og örin lenti aðeins nokkra senti- metra frá au,mingja manninúm, sem varla vissi hvaðan á sig stóð veðr.ið! Adam og Eva! Néktarklúbbur einn í Suður-Bhodesiíu auglýsti fyrir nokkru eftir heppilegum land- skika tU þess að gera þar nektar- nýlendu. Auk þess skityrðis, að staðurin yrði að vera afskekktur, var látin í Ijós ósk um það, að helzt þyrfti að vera þar eitt til tvö fíkjutré tii tilbreytingar! Óheppni. Maður nokkur í Frakklandi kom fyrir rótt vegna þess, að hann hafði svikist um að setji númer á bílinn sinn. Hann var í miðjum viðræðum við dómarann um það, hvort ekki væri hægt, að fá sektinni frestað um hríð á þeim forsendum, að hann væri at vinnulaus, þegar þær fréttir bár- ust inn í réttarsalinn að bii'J sak- borningsins-hefði losnað úr hand- bremsu, runnið niður götuna fyr- ir utan og lent þar á bil saksókr- arans með þeim afleiðingum að hann stórskemmdist. Ekki er þess getið að aumingja maðurinn hofði fengið frest á sektinni. urt í Kaíró hefir jafnvel gengið svo langt að fullyrða að Feisal kon ungur hafi látist af hjartaslagi, eft ir að. Abdullah frændi hans haTi gefið honum kinnhest og sagt hon um að gefa sig orðaiaust á vald uppreisnarmanna. Erlendir frétta- ritarar eru grátbeðnir að iíta ekki sömu augum á ástandið nú og fyrstu daga uppreisnarinnar, þegir bióSbaðið var í algreymingi. Framan á brezka sendiráðið var hengt gríðarstórt spjald, sem bar eftirfarandi áietrun: „Þér 'hefðuð ekki átt að haga yður svona. Þess- ir menn eru gestir okkar og vinir.“ Og jafnvel sjálfur forsætisráðherra uppreisnarmanna er sagður hafa lagt fyrir sendiráð íraks í London „í guðana bænum að gera Vestur veldunum það ljóst, að við séum enn þá vinir þeirra.“ En nú vakn- ar sú spurning hversu lengi sú vin átta muni haldast. i Einn WARNERBRÆÐRA látinn Þeir létu gera fyrstu falmyndina Einn af brautryðjendum kvikmyndaiðnaSarins, Harry Warner, er nýlega látinn vestur í Bandarikjunum og með honum er fallinn í val- inn einn beztu manna Holly- wood. Það var hann sem á- samt bræðrum sínum Jack, Albert og Sam Warner, sem framleiddi fyrstu talmynd- ina, sem náði þeirrí lengd, sem nú tíðkast, og þar með hófst nýr kafli í þróunar- sögu kvikmyndanna. Árangur tilrauna Warnerbræðra með talmyndir var fyrst gerður lýðúm kunnur í Mauhattan Opera Iíouse í New Yorfk árið 1926 og myndin sem sýnd var þar, var „Don Júan“ m'eð John Barrymore í aðálhlutverki. Eins og nærri má geta vakti myndin feikna athygli sem fyrsta hljóð- og talmyndin, ;em þá hafði séð dagsins' ijós, en nargir efasemdamenn ypptu öxl- im og Sögðu þetta vera stundar- fyrirbæri, sem mundi liða undir ok eftir skamman tíma. En það fór á annan veg. Frekari tilraunir Warner-bræður létu ekki staðar numið, en héldu áfram tiiraunum sínum með svokallaða Vitaphone Mjóðkerfi. Fyrirtæki þeirra ramb- aði á barmi gjaldþrots og þeim var þa'ð fuffljóSt. að ef þessar til- raunir mlsheppnuðus't rnundi allt fara á hvinandi hausinn. í ör- væntinigu sinni gripu þeir í síð- asta háiimstráið: tónbandið. Til- raunimar heppnuðust og þeir gerðu fyrstu myndina með tón- bandi, en það var „Jazzsöngvar- inn“ með A1 Jolsson í aöalhlut- vei'ki. Myndin vaíkti geysilega at- hygli, eins og nærri m'á geta og fyrirtækLnu var forðað frá gjald- þroti. Nýlega sagði Harry Warner skil- ið við hið erilss'aona starf sitt sem forstjóri Warner Bros, og lifði kyrrlátu lífi unz hanu llézt af heilablæðingu fýrir skömmu, 76 áxa að aldri, eftir að hafa legið rúmfastur lengi. Jack Warner tók við forstjórastöðunni af bróður sínum en Albert Warner hefir alllt tiil þessa verið yfirmaður kvik myndaversins. Sam Wamer, fjórði bróðirinn, er látinn fyrir nokkr- um árum síðan. Wiliiam Holden og frú. William Holden „Ósköp venjulegur BandaríkjamaSur — á konu, sem á peis og krakka me3 hurstaklippingu“ William Holden er sá kvik myndaleikarinn, sem íólk gerir sér helzt ferð að sjá, upplýsa kvikmynda „spe- kúlantar“ í Holywood, en Holden var kosinn þar „að- dráttarafl ársins“ nú fyrir skemmstu. Honum bárust þessi tíðindi á meðan verið var að taka myndina „The Bridge on the River Kwai“ á Ceylon 1956 og hann held- ur enn þessum titli. Islenzkum kvikmyndahúsagest- um er Holden þegar að góðu kunnur frá myndinni Picnic, sem Stjörnubíó sýndi í vetur sem leið, en þar lék hann sem kunnugt er, aunað aðaihlutverkið á móti Kim Novak. „Venjulegur Bandaríkjamaður!" „Holden ei' aðeins venjulegur Bandaríkjamaður“, sagði kvik- myndahöldur nokkur um hann, ,,á konu, sem aftur á pels, og krakka með burstaklippingu!“ Ef þetta er rétt, verður ekki hjá því komizt að álykta að „Venju- legir Bandaríkjamenn“ komizt ó- venjulega vel áfram í lífinu. En hins vegar eru ekki allir sammála um það, að William Holden sé bara réttur og sléttur Bandarísk- ur meðalmáður og leikur hans í myndinni „The Unquiet Grave“ sýnir þetta bezt. Mynd þessi fjallar um dauða og tortímingu styrjaldar- áranna og Holden lifði sig svo inn í hlutverk sitt að mörgum þótt jafnvel nóg um. Á meðan upptökur fóru fran á „The Unquiet Grave“ (Óróleg gröfin!) sendi Holden framleið anda og'höfundi kvikmyndarhand handritsins „The Key“ (Lykiliinn) en Hoiden ieikur þar eitt aðalhlu verkið, eintak af handriti „Th Unquiet Grave“, og skrifaði á káp una: Til órólegs manns á óróatín um frá órólegum vini! Vi!l ekki „statista" Holden er prýðisgóður íþrótta maður og að öllum jafnaði neita hann að láta „statista“ leika fyri: sig hættulegustu atriðin í myndum sínum. í myndinni Picnic var eitl, af hættulegustu atriðunum það, að1 stökkva upp í járnbrautarlest á nokkrum hraða. Holden Keimtaði að fá að gera þetta sjálfur og stóð í miklu stámabraki við fram- kvæmdastjóra myndarinnar út af þessu. Hann hafði sitt fram, eflir að hafa farið út um glugga á 10. hæð og hangið þar á annarri hendi drykklanga stund á gluggakarmin- um. „Ég var ekki að gera þetta til að sýnast“ segir Holden. „Ég varð bara að sýna fram á það að ég gæti leikið þetta lestraratriði sjálfur!" Kappakstursbilar Það hefir löngum verið eitt helzta áhugamál kvíkmyndaleikara að aka á ofsahraða eftir þjóðveg- unum í evrópis'kum sporfcbílum, og í þessu tilliti er William Holden ekkert frábrugðinn öðriím leikur- um. Hann á tvo sportbíla, Bentley Continental og ítalskan Ferrari og eitt helzta tómstundagaman íians er, að þeysa á þessum bílum eftir vegunum. Ilolden er hófsmaður á vín, en sagt er, að hann fái sér gjarna glas i'yrir máltið! Honurn hefur tekizt að verða einn eftirsóttasti leikari Hollywood, og það er segin saga að myndir þær, sem hann leik ur í, verða alltaf metmyndir hvað aðsókn snertir. Sem dæmi má taka taka ,,Picnic“ og „The Bridge on The River Kwai“, en þar leiikur Hodlen á móti enska Icikaranum heimsfræga Alee Guiness. Brúin yfir Kwal fliótlð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.