Tíminn - 06.08.1958, Side 8
T í MIN N, mi&rikudaginn 6. ágúst 1958,
AUSTU
STRÆ
SÍMAR: 13041 — 11258 '
Þorstein Jónsson
Frandiala; af 3. síðu.
sfcjóri karlaikórsins „Húnar“, sem
starfaði þar um skeið.
f starfi sínu á sýsluskrifstof-
unni kynntist Þorsteinn mikl-
um fjölda héraðsbúa. Hann hafði
einkum með höndum þau störf, er
Jiutli að Tryggingarstofnun rfkisins
og varð svo vel að sér í öllu, er
snerti tryggingarlöggjöfina að at-
liyig® vaíkti. Naut sín vel í þessu
starfi hans hin meðíædda lipurð í
umgengni og öryggi, sem byggist á
góðum hæfileikum og samvizku-
semi til orðs og æðis.
Á s.1. hausti kenndi Þorsteinn,
fyrir alvöru þess sjúkdúms, sem
ekki varð við ráðið að hæta. Marg-
ir munu hafa vonað og trúað að
hann kæmi aftur að starfi sínu, og
var ég einn í þeirra hópi. Ég hafði
beðið hann að kenna dóttur minni
á orgel, en hann færzt undan, sök-
u«t anna. Er hann dvaldist heima,
eftir skurðaðgerð í Reykjavík, gaf
hann kost á að taka hana, er hann
iinesstist •nokkuð. Og tækiíærið var
natað er það gafst og þó í samráði
við kqnu hans og iækni. — Dóttir
nlín dvaldi á heimili þeirra hjóna
í .nookSarar vikur á liðnium vetri og
vaíð síðasti nemandi Þorsteins.
Ég ;kom oft á heimilið þann tíma
og kynntist heimilisföðurnum ag
ktmu hans. Kynntist því hversu
þau hjón voru samhent og höfðu
tileinkað sér vel hina ramíslenzku
iheimilismenningu. Kynntist því
iþvensu músikin var Þorsteini há-
leitt hugðarefni og hversu hohum
var óblandin ánægja að sonur
þeijjra hjóna, sem nú dvaldist stúd
entsveturinn í Menntaskólanum á
Akureyri, sýndi forustu og yfir-
burði í músikllfi skólans og miklar
vonir voru einnig tengdar við dótt-
urina ungu, sem enn var ófermd,
en dvaldist nú norður þar til náms,
sian fyrsta vetur úr föðurgarði.
Kynntist því hversu frábær kenn-
arí Þorsteinn var og hve þekking
hans var mikil á sviði tónlis.tarinn-
ar. Persónulegir tijfrar háðargáfu
hans leyndu sér ckki er hann leið-
beindi nemanda sínum. En mér
varð ijóst að honum hafði stundum
verið það raun að starfa að söng-
málunum meðal þeirra, sem ekki
áttu hina innri glóð. Hann bar
söngmál héraðsins mjög fyrir
brjósti og hafði veitt mikla fyrir-
greiðslu um kirkjusöng, enda stað-
ið þar í nánu sambaodi við söng-
mJátasitjóra þjóðkirkjunnar. Síðasta
verk ihans á bessu sviði var aö
spila í Blönduósskirkju við fesm-
ingu dóttur sinnar og fleiri barna
nú í vor. Hann liafði óskað þess að
þrek sitt entist til þessa, e.n margir
vissu að þetta var mikil raun hin-
um sjúka manni. Síðast lék hann
verk er hann hafði sjálfur samið
fyrir þetta tækifæri.
Það var gott að ræða við Þor-
stein Jónsson um mál dagsins.
Hann var sem víðsýnn og vel
menntaður bóndi. Hús hans stend-
ur nokkuð afsíðis og við það er
tún og útrhús. Hann umgekkst,
kindurnar sínar sem vini og fé-‘
laga, enda báru þær þess glöggt
vitni. Sýndi þetta bóndaeðli hans
og uppruna úr dalabyggðinni h"ans
kæru. , I
Daginn áður en yfir lauk, kopri
ég til Blönduóss og frétti af líðan
Þorsteins. Ég átti ekki von á að
ná fundi vinar míns, en fékk svo
boð frá honum að koma. Sú stund
varð mér helgistund og á nokkr-
um augnablikum varð mér ljóst,
að við daiuðans dyr getur lífið birt
sínar fegurstu hliðar. Honum leið
nú vel og lýsti því í fám orðum.
Hann lýsti hamingju sinni yfir að
hafa haft börnin sín hjá sér, síð-
ustu vikurnar, eftir að námstfma
þeirra lauk og að vera í hönjöwm
konu sinnar, sem Ihafði reynzt hon-
um hinn góði förunautur, sönn
'hetja í raun og friðandi engiil á
erfiðUstu augnablikunum. Heimil-
is- og fj ölsbylduböndin voru svo
sterk að það hlaut að verða hon-
um dýrmætast að njóta þeirra síð-
ustu stundirnar. Hann var lífinu
þakklátur.
Daginn eftir frétti ég lát bans.
Jarðarförin fór vel og virðulega
fram. Sóknarpresturinn Þorsteinn
B. Gíslason prófastur í Steinnesi,
jarðsöng, en Karlakór Bólstaðar-
hlíðai’hrepps annaðist sönginn í
virðingarskyni við hinn látna söng-
félaga. Söng m. a. lag eftir hinn
látna, sem naut sín einkar vel á
þessari kveðjustundu. Kvæði fluttu
Jón Pálmason alþm. og sr. Birgir
Snaébjörnsson, 'kveðju frá söng-
bróður í Bólstaðarhlíðarhreppi.
Mjög mikill fjöldi fólks var við-
staddur útförina svo að hvergi
nærri komst inn í kirkjuna.
Þennan dag skartaði Húnabyggð
sólgljáðum skrúða og meöan söng-
guðinn þandi vængi sína tók móðir
jörð þennan son lífsins í faðm
sinn.
Það er gott að minnast Þorsteins
Jónssonar, og ég flyt konu hans,
börnúm, háöldruðum föður, tengda
foreldrum og öðrum aðstandend-
um samúð mína.
Grímur Gíslason.
VotheysgerS
(Framhald af 7. síðu).
votheyi eða uim 30% 1955, en um
20% 1956, og er það líkt venju.
í einni sveit er eklkert vothey
gert. Vafalaust er votviðrasamara
í vestiursýs'lunni en þeirri eysfri,
og miun það eiga sinn þátt í því,
hve miklu meiri votheysgerð er í
vestursýslúnni.
V estur-f saf jarí arsýsla
í Vestur-ísafjarðarsýslu er mest
votlheysiger'ð' hér á tondi. Taliið er
að 1955 hafi þrír bændur verið
í allri sýslunni sem eklki gerðu
votihey, og höfffu þeir mjög lítil
bú allir. Árið 1955 settu þeir
eítirtalinn hundraðshluta af töð-
uim sínum í vothey:
A víðavangl
1955 1956
Auðkúluhreppur 10 7
Þinigeyranhreppur 23 20
Mýráhreppoir 61 55
Mosvaliahreppur 43 43
Flateyrarlhreppur 44 44
Suffureyrarhreppur 23 26
Öllum skepuum er gefið vothey,
og hefir svo ltengi verið. Þó er
mjög óvíða nýtízku tæki, til að
verka votíhey,' ef þaff er nokkurs
staðlar í sýsiluinni. En steyptar
gryfj.ur, gerðar eftir grein Hail-
dórs á Hvanneyri, eru mjög víða,
en á öðrwm stöðum eru votheys-
geymislurniar tonElgryfj'ur. Fyrir
kemur að kindur fá Iivanneyrar-
veiki og drepast úr, en nú er
þeim oft bætt hún með súífameð-
ulum. En bænduim þar finnst hag-
ræðið við votheysgerðina, léttir
heyskaparins og betra fóður, gera
miMu meira en vega upp, þótt
þeir missi kind og verði að skrifa
það á reikming votheysns, og ekki
hvarflar að þeim að minnkia eðá
hætta votheysgerðinni þess
vegna.
FTamhald af 7. síðu;
við hinn óttalega leyndardóm:
efuahagsmálin og landhelgismál
ið. En bæði þessi mál eru alþjóð
kunnug, yfir þeim hvílir engin
hula. Að vísu má til sanns veg
ar færa, aff nokkur leynd ríki uni
afstöðu sumra flokka í þessum
málum. Þanniig hefir flokkur
Bjarna Benediktssonar enga
stefnu birt í efnahagsmálum, og
stefna hans í landhelgismálinu
er harla reikul og loðin. Þar er
því leyndardómur til staðar, en
varla getur hann talizt hinn ótta
legi leyndardómur, því að leynd
sú er tilbúin af bráðsnjöllum
stjórnmálakempum, sem telja
það beztan áróður á vandasöm
um tímum að hafa enga skoðun.
Menn sjá í gegnum þann ,,Ieynel
ardóm“ aðalritstjórans. Þetta á
að vera geysilegt herkænsku-
bragð stjórnarandstæðLnga, en
verður skel/ilega lítlff bragð til
lengdar og allt annað en stór-
mannlcgt. Menn eru ékki komn
ir á þing cða stjómmálaflokkar
myndaðir til þess eins að hafa
enga skoðun.
Áskriftarsíminn
er 1-23-23
Frá
Frá
Búsáhaldadeild.
-'cr
Finnlandi
Plast gólfflísar Margir litir.
Gólflistar 4l/2, 6 og 10 cm.
Handriðalistar W* x y4
Listar framan á stigatröppur. Lím fyrir góifflísar.
Noregi
Vandaðar útidyraskrár Verð kr. 455,80
Galvaniseraðar lamir með næloniegum
Verð kr. 72,00