Tíminn - 10.08.1958, Side 8
MW.WVAWVWWW
8
TÍ3IINN, sutuiudaginn 10. ágtist 1958.
’AV.V.’.W.WW.VAV.W.'AWVWJV
LANDSLEIKURINN
ISLAND
er fram á morgun (mánudag) á íþróttaleik
vanginum í Laugardal og Kefst kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag í Aðgöngumiðasölu
Melavallarins kl. 1—6 og á morgun á eftirtöld-
um stöðum:
Dómari: Leif Gulliksen
.iðgöngumiðasölu Melavallarins kl. 1—6.
Bókaverzlun L. Blöndals, Vesturoeri kl. 9—6.
Bókaverzlun Ilelgafells, Laugav. 100 kl. 9—6.
og úr bifreiðum hjá Laugardalsleikvanginum
frá kl. 6 á morgun.
N E F N D I N
Kaupið miða í forsölunum og forðizt biðraðir
rétt fyrir leikbyrjun.
Askriftasími 1-23-23
FerSir verða frá B.S.Í. frá kl. 6,30.
’.VW.W.WAV.WA’AW/A’.V.’A'.V.V.WAWV.V.V.V.’.V.VAV.’.V.V.W.V.V/AW.V.V.V'.V.V.V.’.W.W.V.V.’.W.W.’.W.V
•j
Einkaútflytjendur:
CENTROTEX - PRAGUE - CZECHOSLOVAKIA
Umboð:
0. H. Albertsson
Laugavegi 27 A — Reykjavík — Sími 11802
Fyrr á tímum voru þröng föt og
stífuð skyrta með hörðum flibba
fcfi að þvinga eðlilegar likamshreyfingar.
Nú á dögum er tízkan all't önnur:
menn klæðast þægiiegum fötum og skyrtu með
vörumerkinu E R C O
Það er augljóst mál að enginn er vel klæddur án
fallegrar skyrtu.
vegna biður þú llka um
Þegar bugt
og beygingar
bóttu sjáflsög’ð
kurteisi. . . .
2.___
IgtmmmMBms.....
Þátlur kirkjun.n.ar
Kirkjubyggingar-nefndir
NEFNDIR ÞÆR, SEM eiga að
sjá um kirkjubyggingar, gegna
mjög margþrotnu og þýðingar-
miklu starfi. Þær eiga að túlka
óskir safnaðanna.
Þær eiga að taka ákvarðanir
um þær kröfur, sem gera verð-
ur til byggingarinnar, svo að
hún fullnægi slörfum þeim,
sem kirkjunni er ætlað að
gegná.
Þær eiga að gæta þess, að
hverri krónu só varið á sem
hagkvæmastan hált. Þær eiga
að ákveða grundvallaratriðin í
jfj þeirri vitneskju, sem byggingar-
meistarinn fáer'til að móta eftir
sínar teikningar.
Slík ábyrgð krefst mikillar
1 samvizkusemi, trúmennsku og
rl heiðarleika.
ÞAÐ ER ÞVÍ FYRSTA
SKYLDA allra aðila í bygging-
arnefnd, að gera ákveðnar og
yfirgripsmiklar tilraunir til að
efla skilning sinn og þekkingu
á andlegum og efnislegum verð-
mætum, sem snerta byggingu á
Guðs húsi. Og þcgar þeir hafa
gert sér gildi slíkra atriða ljóst,
verða þeir einnig að gjöra sér
grein fyrir öllum takmörkun-
um, bæði hjá sjálfum sér og
gagnvart öllum aðslæðum.
Þess eru víða dæmi í kirkju-
byggingum nú á dögum, að þar
skortir mjög á fagran stíl og
hagkvæmt fyrirkomulag. Og
oft er þar um að kenna, að
byggingarnefndirnar yfirleitt
hafa nálgazt hlutverk sitt með
fyrirfram ákveðnum hleypi-
dómum.
Oft er sú tilfinning ríkjandi,
að fólkið í byggingarnefndinni
eigi að hafa frábæra þekkingu
og hæfni til að bera, einkum
viðvíkjandi húsabyggingum. En
þetta er ekki alls kostar rétt,
enda naumast nægilegt út af
fyrir sig.
SOFNUÐURINN VELUR OG
Á að velja menn í kirkjubygg-
ingarnefnd í þeirri trú, að þeir
séu hæfastir til að skilja og
meta þær hugsjónir og aðstæð-
ur, sem hver einstakur söfnuð-
ur hefur verið að búa og yfir
að ráða, og það er þess vegna,
sem hann felur nefndarmönn-
um örlög kirkju sinnar í hend-
ur. Og einmitt þannig verður
hlutverk nefndarinnar tilefni
til hróss eða gagnrýni eftir á-
stæðum.
Þess vegna verður slík nefnd
að gefa sér tíma til að lesa,
læra og athuga til þess að auka
sem mest þekkingu sína og efla
smekk sinn gagnvart kirkjum
og kirkjuhyggingum, stíl þeirra
og útbúnaði.
Hún verður að gera það, sem
í hennar valdi stendur, til að
kynna sér rikjandi stefnur á
þessu sviði bæði í nútíð og for-
tíð og skapa úr þeirri þekkingu
sem óhlutdrægast mat verkefjii
sínu- í dag.
Meðal annars þurfa nefndar-
menn að heimsækja og skoða
aðrar kirkjur, athuga gerð
þeirra og ræða vandamál verks-
ins við þá, sem rcynsluna hafa.
ALLT OF OFT ERU TIL
nefndarmenn, í svona starfi,
sem eru svo gagnteknir af sjálf
um sér og. sinum sjónarmiðum,
að þeir loka hugsun sinni, aug
um og hjörtum fyrir skoðunum
og ráðleggingum annarra. Suma
skortir alla þekkingu á viðfangs
efnum byggingameistarans.
Nokkrir geta litið á hann sem
teiknara, sem aðeins er leigður
til að koma þeirra húsagerðar-
snilli á framíæri. Aðrir vilja
láta hann öllu ráða, án þéss að
útskýra vilja, efni og ástæður
safnaðarins., Hvort tveggja er
röng starfsaðferð.
Til eru einnig þær byggingar-
nefndir, sem hugsa svo mikið
um kostnaðinn, að allt annað,
verður að vikj a fyrir þeirri
hugsun. Þeir halda að ódýr
bygging sé æskilegust af öllu.
Og þröngsýni þeirra og smá-
sálarskapur grafa fegurð og
anda undir hrúgu smámunasem-
innar, sem kynslóð þeirra fyrir-
verður sig fyrir að afhenda;
þeirri næstii.
KOSTIR OG STARFS- j
ÞROSKI hverrar kirkjubygging-1
arnefndar munu ljóma skærast |
í fullkominni byggingu, sem !
sameinar í svip og formi það j
takmark, sem steínt var að í |
blómlegri starfrækslu kirkjunn-1
ar, og hæfni hennar um ár og
aldir til að fullnægja þörfum
og kröfum hvers tíma.
Þannig munu lengi sjást
höpp og mistök nefndarinnar,
sem lagði fyrstu drögin að stór-
virki því. sem hver kirkjubygg-
ing hlýtur að verða nú á dög-
um.
Okkar öld hefur aðstöðu til
slíkra framkvæmda með bygg-
ingarefni, sem mnn sýna hæfni
þeirra, sem hugsa og vinna leng
ur en nokkurn grunaði, sem
vann að þessum störfura hér á
íslandi fyrir nokkrum árum,
meðan ekki var annað efni til
en grjót, mold og timbur.
Þvi er ábyrgð slíkra nefnda
svo mikil, vandi þeirra og vcg-
semd svo' stór, og mikiisvert,
að þær vinni i auðmýkt festu,
helgun og ást á trúarlegum
hugsjónum og síðast en ekki
sízt ai' drengskap og fórnarlund.
Árelíus Níelsson.
Gerizt áskrifendur að Tímanum