Tíminn - 21.08.1958, Side 1
I ( M A R TÍMANS E R U:
Atðreiðsla 12323. Auglýsingar 19523
Ritstjórn og skrifstofur
1 83 00
Blaðamenn eftir kl. 19:
18301 — 18302 — 18303 — 18304
PrentsmiSjan eftir kl. 17: 13948
42. árgangur.
líeykjavík, fininitudagiiin 21. ágúst 1958.
EPNI:
Fjórða síðan, bls. 4.
Vettvalngur æskunnar, bls. 5.
Skoðanakönnun, bls. 6.
Landbúnaðarsýningin, bls. 7.
183. blað.
(Pa fíecjir cjarciduexL
í yarc)ijr!juclei(cli
inm
slendingar hafa ótvíræðan rétt til ein-
hliða útfærslu fiskveiðilandhelginnar
Ur greinargerð, sem ríkisstjórnin hefir látið
gera um útfærsíu fiskveiðitakmarkananna
Garðyrkjudeildin með öllum sínum blómum og þroskamiklum garðávöxtum vekur ósvikna hrifningu á landbún-
aðarsýningunni. Hér sét Ágúst Þorvaldsson, þingmaður Árnesinga, virða jarðargróðann fyrir sér ásamt Stefáni
á Slera-Fljóti og fleirum.
Mikil aðsókn að landbúnaðarsýn-
ingunni í gær - gestir 14 þúsund
Landbúnaðarsýningin á Selfossi var mjög vel sótt í gær,
stöðugur straumur fólks á hana, einkum er leið að kvöldi, og
var þar margt Reykvíkinga á ferð. Munu nú hartnær 14 þús.
manns hafa komið á sýninguna. Má og búast við mikilli að-
sókn i dag, sem verður að öllum líkindum síðasti dagur sýn-
ingarinnar.
byggingahlutum úr steinsteypu,
Fólk dveíur oftast alllengi á plasti og íslenzkur iðnaður ýmis’
sýningunni, þegar það er þangað konar. svo seni frá Gefjuni og Ið-
komio, enda er þar margt að skoða.' unni’ Ekki, nlá lí?dur gleyma hin-
_ ... . um margvislegu framleiðsluvorum
Velarnar eru syndar að storfum ]andbúnaðannS, sem eru mjög fjöl-
uti íynr, og mni í húsinu er margt breyttar og í fallegum umbúðum.
Ijósmj'BKÍa og línurita, sem fróð- Þá er heimilisiðnaðarsýningin, þar
legt er að skoða. Svo koma hinar sem stúlkur ganga um í íslenzkum
ýmsu deiltíir, jafnvel deild gamalla búningi. I>ar er margt fagurra
íslenzkra búshluta. Framleiðslu- muna.
deiltíir eru margar, svo sem á I Framhald á 2. síðu
Erlendar flugufregnir um land-
lelgismálið bornar til baka
Forsætisráftherra segir, aíí enginn fótur
sé fyrir þeim
Blaðinu barst í gær greinargerð, sem utanríkisráðuneytið
hefir látið taka saman um landhelgismál íslands. Eru þar
dregin saman nokkur helztu rök íslendinga fyrir útfærslu
fiskveiðilandhelginnar og svarað mófmælum þeim, sem borizt
hafa.
NTB flutti þá flugufregn í
gær — og hafði eftir heimildum
frá Bonn — að íslenzka ríkis-
stjornin væri fús til þess aff fall
ast; á miðlunartillögu, sem Paul
Henry'Spaak hefði borið fram
við umræður um málið í stöðvun
Atlanlshafsbandalagsins í París.
Væri tillaga þessi á þá lund, að
íslendingar hættu við að færa
út fiskveiðilandheligina í 12 míl
ur, en gerðu hins vegar ýmsar
fríKunarráðstafanir á tilteknum
miðum' viS landið.
Þessi frétt átti sér þó skannn
:ut aldur, því að nokkurri stundu
síðar sendi fréttastofan út til-
kynníngu um það, að hjá NATO
kannaffist enginu við þessa íniðl
unartillögu, lnað þá heldur að
íslenzka ríkisstjórnin vildi sam
þykkja liana, og' inundi fréttin
því vera gripin gersamlega ur
lausu lofti. Slíkar flugufregnir
eru nú margar uppi í máli þessu
á erlendum vettvangi, og sýnir
það, ay uin það er sívaxandi at-
hygli.
Ríkisútvarpið flutti þessar
flugufregnir erlendra frétta-
stofa i gær og bar þær undir
Hermann Jónasson, forsætis-
ráðherra. Sagði hann, að
enginn fótur væri fyrir þeim.
Togarar láta úr höfn
í Hull
NTB—Hull og Osló 20. ágúst. Sagt
er í Reutersfrétt, að brezkir tog
arar hafi í morgun látig úr höfn
í Hull í dag og lagt af stað til
íslandsmiða, þrátt fyrir að ís-
lenzka ríkisstjórnin hafi tilkynni
útfærslu fiskveiðimarkanna 1.
sept. Togararnir hafa meðferðis
skjalfestar fyrirskipanir frá
stjórn brezka ílotans, en ekki er
vitað, hvers efnis þær eru. Skip
stjórarnir sögðu við brottförina,
að þeir væru á leið á sín vanalegu
mið, og spurningin er nú, hvort ís
lenzk landhelgisgæzluskip muni
reyna að stöðva togarana, er þeir
koma inn fyrir 12. mílna mörkin.
— Stöðugar viðræður fara fram
innan Atlanlshafsbandalagsins um
land'helgismálið, segir norska
fréttastofan. Hefir hún það eftir
starfsmanni norska utanríkisráðu
neytisins að Norðmennirnir, sem
taka þátt í viðræðunum í París
muni þá og þegar M fyrirmæli um,
hvernig þeir eigi að íaka afstöðu
gagnvart þeim vandamálum, sem
upp kunni að koma við þessar um
ræður.
Greinargerð þessi mun hafa
verið þýdd á ensku og send sendi
ráðum íslands erlendis, og munu
þau afhenda hana blöðum og öðr
um þeim aðiluni, sem óska upp-
lýsinga um útfærslu fiskveiðiiand
helginnar.
Greinargerð þessi mun birtast
í heild hér í lilaðinu á morgun,
en einn lielzti kafli hennar er
svar við þeim ásökunmn, að ís-
lendingar liafi ekki haft rétt til
einhliða útfærslu á landhelginni.
Kaflinn um þetta atriði liljóðar
á þessa Ieið:
Engir alþjóðlegir samningar eru
til varðandi það, hvernig ríkin
skuli ákveða landhelgi sína. Hcr
verður því að fara eftir þeim
venjum, er skapast hafa. Næstum
öll, ef ekki öll ríkin hafa ákveðið
landhelgi sína með- einhliða á-
kvörðun. Það verður því ekki sagt
með neinum rétti, að íslendingar
hafi brotið alþjóðalög eða venjur
með einhliða útfærslu fiskveiði
landhelginnar, heldur hefir ísland
þar þvert á móti fylgt ríkjandi
venjum. í mólmælum þeim, sem
ríkisstjórn íslands hafa borizt,
eru líka hvergi nefnd ákveðin
dæmi um lög eða venjur, sem
þessi ákvörðun íslands brjóti
gegn. Hiít er svo annað máí, að
réttur ríkis til einhliða útfærslu
hlýtur að vera háður vissum tak-
mörkunum. Hér á eftir skal vikið
að því, að íslendingar hafa með
umræddri ákvörðun sinni ekki
farið yfir þessi takmörk.
Engin alþjóðalög eða venjur
eru lil um ákveðna víðáttu land-
helginnar. Landhelgi einstakra
ríkja er því mjög mismunandi eða
3 mílur, 6 mílur og 12 mílur, og
í einstökum tilfellum hafa strand
ríki ákveðið sér viss réttindi ut
an við það svæði. í Evrópu hafa
ríkin mjög mismunandi landhelgi
eða Bretland 3 mjlur, Svíþjóft og
Noregur 4 mílur, Grikkland, ítalía
og Spánn 6 rrtilur, Sovétríkin og
Júgóslavía 12 mílur. Á ailsherjar
þingi S. þ. 1956 var það upplýsl,
að aðeins 25% þeirra strandrákja,
sem væru aðilar að S. þ., hefðu
þriggja mílna landhelgi. Öll hin,
eða 75% þeirra strandríkja, sem
þá voru í S. þ., höfðu breiðari
landhelgi en þrjár mílur.
Að minnsta kosti sum þau ríki,
sem hafa mótmælt útfærslu ís-
lenzku fiskveiðilandhelginnar í 12
mílur, hafa í reynd viðurkennt 12
mílna landhelgi annarra ríikja.
Þannig hefir t. d. Bretland samið
við Sovétríkin um að brezk skip
megi veiða á vissum svæðum á
Hvílahafi, sem eru innan hinnar
yfirlýstu 12 mílna landhelgi Sovét
ríkjanna. Með þessu hefir Bretland
raunverulega viðurkennt 12 milna
landhelgi Sovétríkjanna, enda um-
ræddur samningur óþarfur að öðr
um kosti.
Eins og áður er rakið, átti ís-
land frumkvæði að því, að þjóð-
réttarnafnd Sameinuðu þjóðanna
var falið að athuga reglur um víð
áttu landhelginnar jafnhiiða því,
sem hún abhugaði aðrar reglur
(Framhald á 2. síðu)
Skriðuf all gróf norður-
ítalskt f jaliaþorp í jörð
IllviSri veldur tjóni á mönnum og mannvirkjum
víís vegar um Evrópu
NTB-London, 20. ágúst. — Gífurleg skriða af grjóti og jarð-
vegi féll í dag í Norður-Ítalíu og gróf í jörð niður fjallaþorp
eitt. Skriðufallið lokaði einnig leiðinni gegnum Simplon-skarð
á um það bd 300 metra svæði. Talið er, að um 10 þúsund rúm-
metrar af grjóti og mold hafi verið í skriðunni.
Prófessorsembætti
Iíinn 18. júlí s. 1. var prófessors
emibælti í málfræði við heimspeki
deild háskólans auglýst laust til
umsóknar. Umsóknarfrestur rann
út 18. þ. m. Ums embæltið sækja
dr. Hreinn Benediktsson og dr.
Sveinn Bergsveinsson, prófessor í
Bérlín.
i (Frá menntamálaráðuneytinu).
Skriðan féll eftir að gengið hafði
yifir hið versta illviðri og skýfall
íiafð orðið af regni öðru hvoru.
12 manna er saknað', og hæpið er
talið, að umferð hefjist aftur um
Simjnlonskarð í þessari viku. Meðal
þeirra, sem fórust, eru fjórir er-
lendir ferðamenn, sem ekki er
vitað enn hverrar þjóðar hafa ver
ið og kona með fimm börn.
Víða annars staðar í Evrópu
geisaði einnig iliviðri síðastliðna
nótt. í Berlín urðu þúsundir
manna að fara fótgangand til
vinnu sinnar vegna umferðarstöðv
unar, og víða var vatnið fet á dýpt
á aðaTgötum borgarinnar.
Haglél drap búpening.
í Valence í Austur-Frakklandi
herma fréttir, að brotnað hafi 20
þúsund rúður í grimmilegu hagl-
éli, sem þar gekk yfix. Bændur
þar segja einnig, að margt sauðfé
hafi drepizt í haglélinu. í Sviss
olli haglél miklu tjóni á vínekrum
og frétzt hefir um fleiri skriðu-
föll, en þau er að framan greinir.
Flóð í Vestur-Englandi og Wales.
Bretland fékk sinn skerf af
þessu illviðri þegar í gær, og urðu
þá hin mestu flóð Víðs vegar í
Vestur-Englandi og Wales. í mörg
(Framhald á 2. sjðu)