Tíminn - 30.10.1958, Side 7

Tíminn - 30.10.1958, Side 7
T í M I N N, fimmtudaginn 30. októbcr 1958, Lögregluþjónn frá Akureyri kynnir sér lögregiumál í USA og Kanada Siarfssvið íslenzku lög- regiunnar er sífellt að auk- ast. Með aukinni menningu, sem við sumpart tileinkum okkur frá útlandinu og sum- part sköpuð sjálf, koma fram vandamál, sem mörg hver eru afleiðing skyndi- legrar snertingar við um- heiminn. Áður fyrr var lög- gæzla í núverandi mynd ekki til hér á landi. Lengi vei voru svo örfáir lögreglu- menn í lendinu, en í seinni tíð hefir þeim fjölgað ört og nú munu vera nær tvö hundruð starfandi lögreglu- þjónar á landinu. Þétta er svo sem eðlileg afleið- ing borgarmenningarinnar s'em svo margt annað, sem við eigum við að stríða í dag. Nú er það, að nýjungar á sviði lögreglumála eru alltaf að koma fram. Þessar breytingar eru marg- ar á því sviðinu, sem okkur er óskylt, en þó er nauðsynlegt að fylgjast með, þannig að ekkert fari fram hjá okkur, sem að gagni má koma. í sumar ferðaðist Gísli Ólafs'- son lögregluþjónn frá Akureyri um Bandaríkin og Kanada og jkynnti sér lögreglumál þar. Hann Rætt vi<S Gísla Ólafsson, lögregluþjón Á þessari mynd sést hinn svo kallaði „Turnpike"-vegur, sem talað er um i greininni. — En hvað um A1 Capone? — Þessu þori ég ekki að svara. Aðbúnaður lögreglunnar — Hvað finnst þér um skipu- lagningu umferðarinnar? — Hún er víðast hvar mjög góð, enda má segja að' þörfin sé brýn, því að tjón af völdum um- ferðarslysa er gífurlegt. Það sem ég var einna hrifnastur af, hvað umferðina* snertir, eru hinir svo- kölluðu „Turnpike" eða „Tall road“ vegir, sem liggja milli Lögreglumaður stöðvar bifhjól sitt framan við aðallögreglustö'ðina í Wash- ington D.C. 3eit inn á skrifstofu blaðsins, þeg- ar hann kom að utan, og var hann þá gripinn og raktar úr honum garnirnar. — Hvernig lízt þér á starfss'við „kollega“ þinna vestra? — Það má segja, að um auð- ngan garð sé að gresja, þegar at- Iiugaðar eru skýrslur lögreglunn- ar. En almenningur hér á kost á því að kynnast ýmsu af því, sem spennandi er hjá lögreglunni vestra, og eigum við það kvik- myndunum að þakka, svo að við slepputn, öllum reyfaras'ögum, enda kann ég ekki mikið af því taginu. Barátta við glæpalýð „Turnpíka" — Þú hefir ekki orðið var við toaráttu lögreglunnar við glæpa- lyðinn, eða hvað? — Það get ég ekki sagt. Ég var einu sinni viðstaddur, þegar :neyðarkall harst frá banka ein- •um, en þetta kerfi, sem kallað er „hold up“, og flytur neyðar- kcllin, er mjög fullkomið og var mér sagt, að lögreglan gæti verið komin á staðinn innan fárra min- útna og jafnvel sekúntna. Já, en í þetta skipti var ekki um neitt aivarlegt að ræða, heldur tauga- skjálfta eins bankamannsins', sem út af fyrir sig getur verið alvar- legt. ýmsra stórborganna, svo sem á milli New York og Chicago, en þann veg ók ég 4. júlí í sumar og var geysileg umí'erð um veginn, sem vænta mátti . Á þessum vegi er lágmarkshraði 60 mílur. Braut- in er tvískipt þannig að tvöföld akbraut' er hvoru megin. Aldrei er ekið þvert inn á þennan veg, heldur smá færa bílarnir s'ig inn á veginn og er þvi hægt að sjá til þeirra lengi, þegar þeir aka meðfram aðalbrautinni. Eins er það með krossgötur; þá eru jarð- göng eða brýr notaðar til að kom.a í veg fvrir að ekið sé þvert yfir götuna. Á þessu millibili eru við þennan veg greiðasölustaðir, sem eru allir með sama sniði. Þeir slanda tveir og tveir og milli þeirra er ekki hægt að fara. — Hvernig fannst þér að aka á þes'sum vegum? — Það er mjög gott. Öryggið er mikið og vegna þessa góða aðbún- aðar tekur maður ekki eftir hrað- ar.um, og þegar þannig er uni hnútana búið, er þessi mikli hraði sjálfsagður, en beri eitthvað út af, þá er ekki að sökum að spyrja. — Eru slys á þessum vegum tíð? — Nei, það er mjög sjaldgæft, að slíkt komi fyrir, en þess' eru þó dæmj. —• Nú er mikið verið að bæta umferðarmerki og umferðarmenn- ingu hér heima. Hvað segir þú um umferðarmerki vestra? — Umferðarmerki vestra eru með nokkru öðru sniði en hér. Við höfum þetta kerfi, sem algeng ast er í Evrópu, þetta merkjakerfi, en fyrir vestan er algengast að umferðarmerkin séu ieturmerki. Þar að auki gera þeir mikið af því að segja fólki hvar megi fara, en ekki hvar akstur sé bannaður. Þeir telja þetta hentugra og hafa horfið að þess'u í seinni tíð. — Varðstu var við hringtorg með þessu sniði, sem hér er? — Slík hringtorg eru varla til vestra, því að þau hafa ekki reynzt vel. Þegar umferð er mikil úr einni átt, stöðvar það aðkeyrslu annars staðar frá. Þetta þekkja Reykvíkingar og aðrir, sem kynnzt hafa hringtorgum hér heima. Aðbúnaður lögreglunnar — Eitthvað getur þú sagt okkur frá aðbúnaði lögreglunnar banda- rísku? -— Þetta gengur allt með amerískum hraöa eins og við er að búast. Tæki og aðbúnaður all- ur er eins og bezt verður á kosið, eða svo finnst mér. Lögreglan hefir yfir að ráða ljósmyndastof- um,. sem einar eru í stórbygging- um á okkar vísu. Kvikmyndasalir og tæknistofur eru einnig víða á lcgreglustöðvunum. Eina nýjung hafa þeir tekið upp þarna fyrir vestan. Þegar menn hafa gerzt brotlegir við umferða- lögin, hafa þeir um tvo kosti að velja. Þeir geta borgað sekt, sem nemur kannske fáum dollurum, eða þá setið í ákveðinn tíma, horft á kvikmynd og hlustað á þrum- andi ræður lögregluþjóna um um- ferðalög og reglur. Margur horfir í peninginn og hlustar á leiðbein- ingarnar. Þetta gæti vel verið at- hugandi fyrir íslenzku Iögregluna. — Þú hefir kynnzt ýmsu öðru en lögreglumálum? — Það ber margt fyrir augu útlendingsins í þessum ríkjum. í Vancouver var ég á hinni árlegu hátíð, sem haldin er á afmæli borg arinnar og í þetta skipti var það hundrað ára afmælið, sem haldið var hátíðlegt. Mikið er um dýrðir. Skrautvögnum er ekið um borg- ina og ým.is' konar varningur sýnd ur. Á sumum vögnunum eru hljóm sveitir, öðrum fegurðardrottning- ar, skip og eldflaugar og hvað eina. Þessi akstur tók tvo klukku- tíma og auk þess voru margs kon- ar skemmtanir í sambandi við þetta, sem héldust allan daginn. Nú getum við sagt, að búið sé að segja undan og ofan af um ferð ina og ljúkum skráningu. T. fje\ Félag fatlaðra á ísafirði Á aöallögreglostööinni í Vanvouver. Lengst til hægri Gísli Ólafsson. Mánud. 29. sept. var stofnað fé- lag fatlaðra á ísafirði. Félagið hlaut nafnið Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á ísafirði og í nágrenni. Mark mið félagsins er m. a. að efla sani- hjálp hinna fötluðu, bæta kjör þeirra og útvega þeim atvinnu við þeirra hæfi, og einnig að efla fé- lagsleg kynni og sk'emmtanalíf með al fatlaðs fólks. Á stofnfundinum mættu um 30 manns, en alls eru stofnendur félagsins rúmlega 40, þar af nokkrir styrktarfélagar og einn ævifélagi. Styrktarfélagar geta allir orðið gegn því að greiða sarna árgjald og félagsmenn. Sigursveinn D. Kristinsson, for- maður Sjálfsbjargar, félags fatl- aðra í Reykjavík, var mættur á fundinum og aðstoðaði við stofnun félagsins. Flutti hann greizia.rgott erindi um stofnun Sjálfsbjargar fé- laga í Reykjavík og Siglufirði og starf þeirra. í Reykjavík eru með- limir þegar orðnir rúmlega 100 og 40 á Siglufirði. Fyrirhugað er að stofna hliðstæð félög í öllum kaup- stöðum landsins og stofna síðan landssamband þessara félaga á næsta ári. Félögin fengu merkja- söludag 26. okt'., en framvegis mun merkjasöludagur félaganna verða fyrsta sunnudag í sept. Ágóði af merkjasölunni rennur að hálfu í félagssjóð og að hálfu í byggingar- sjóð, en áformað er, að landssam- bandið komi séi; upp æfingarstöð og félagsheimili í Reykjavík, þar sem félagar utan af landi gætu dvalið, ineðan á læknishjálp stæði. Mikill áhugi ríkti á fundinum á stofnun félagsins, og var kosið í fjáröflunarnefnd og skemmtinefnd. Fyrirhugað er að halda skemmti- fund innan skamms. Félagið væntir stuðnings bæjar- búa. Fundurinn samþykkti einróma eftirfarandi áskorun á Alþingi: „Stofnfundur Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra á ísafirði og ná- grennis, lítur svo á, að örorkulíf- eyrir sé nú allt of lágur og skorar á næsta Alþingi að tvöfalda hann. Verði hann ekki að fullu niður felldur fyrr en tekjur lífeyris- þega jafngilda launum verkafólks." St'jórn félagsins skipa: Trausti Sigurlaugsson, formaður, Ingibjörg Magnúsdóttir, ritari, Trausti Magn- ússon, gjaldkeri, Sigrún Einars- I dóttir og Gestur Loftsson, með- I stjórnendur. Á viðavangi Ræðan á VarSarfundinum Helzti heimspekingur íhaldsins, Ólafur Björnsson, alþingismaðui hélt ræðu á Varðarfundi nú uý lega. Sú ræða er alls ekki að ölltt leyti ómerkileg. Það er t. d. mik- ill munur á lienni og þeim ræð- um, er „aðalritstjórinn" er sífelit að flytja við öll hugr.mleg tæki- færi og finnst sjálfum svo miki . til um, að hann birtir þær að jafn- aði í heild í blaði sínu, fyrir svo utan allar tilvitnanirnar hnns í ræður nefnds Bjaitia. Ólafur sýn- ir þó lofsverða löng'un til þess að ræða vandamálin nð einhverju viti. Frómar bollaleggingar Ólafur kvaðst ekki ætla „aö flytja sundurliðaðar tillögur úm það, sem gera skyldi.“ En fyrsta skrefið væri „að koma á innbyrð- is samræmi milli mismunandi þátta verðlagsins“. Annars væri þýðingarlaust að tala um stöðv- un.“ Hn í hverju þyrfti sú sam- ræming að vera fólgin?“ spyr Ól- afur. Og svarar sjálfur: „Það þarf í fyrsta J.agi að skrá íslenzka krónu á réttu gengi.“ En vitan- lega ldytu slíkar ráðslafanir að bafa í för með sér „kjaraskerð- ingu“. Varpaði ræðuivaður . „síð- an fram þeirri spurningu, hvort almenningur fengist til að sætta sig við þau óþægindi, er slíkar ráðstafanir hefðu í för með sér?“ HvaS er í pokanum? Menn minmst þess, að er eld- húsumræðurnar fóru fram sl. vor, þá yinpraði Gunnar Thoroddsen á gengisfellingu sem lausnarorði. Ekki mun hann þó hafa talið sig mæla með henni í nafni Sjálfstæð isflokksins. Þrásinnis hefir síðan verið um þ.ið spurt, hvort Sjálf- stæðisflokkurinn aðhylltist geng- isfellingu. En aldrei hefir fengizt við því svar. Kjörlieimkynni í- lialdsins er hið grugguga vatn, Nú hefir Ólafur alþingismaður skorið upp úr um sína skoðiin. Er það út af fyrir sig lofsvert óg ber vott um meiri kjark og ábyrgð.ar- tilfinningu en menn hafa átt að venjast úr lierbúffum stjórnar- dndstöðunnar. En eftir er samt sem áffur aff vita hvort flökkur þeirra Gunanrs og Ó.tafs vilí géra tillögur þeirra aff sínu evangelí- um. Á því veltur nokkuff. AHt um þaff má þaff þó vera ánægjuefni, að þeim framámönnum Sjálfstæff isflokksins skuli fara fjölgandi, sem h.afa kjark til þbss, að reka höfuðiff upp úr svefnpokanum. Rauða strikið Þegar stuðningsflokkur ríkis- stjórnarinnar samþykktu lögin um útflutningssjóð á sl. vori, þá var þeim vitanlega ljóst, að til greina gat komiff ,að fara geng'is- fellingarleiffina. Annaff varff þó ofan ó. Mun það helzt liafa veriff liaft móti gengisfellingu, aff húu leiddi til of hastiarlegrar „kjara- skerffingar“. Því var farin eins konar millileið. En hvernig snér- ist flokkur Ólafs Björbissonar viff henni? í stutíu mál þannig, aff öllum áróffurstölum íhaldsins hef- ir veriff beitt aff því, aff koma í veg fyrir ,aö hinar nauffsynlegu og óhjákvæmilegu affgerðii iiæðu tilgangi síiiuni. Alið hefir veriff á því nótt og nýtan dag, aff ráff- stafanir í'íkisstjórnaiinnar hafi leitt af sér lítt þolandi „kjar.a- skerðingu'‘. Eftir þeirra plötu hef ir „affalritstjórinn“ dansaff sitt pólitíska nautabrokk undanfaru.a mánuffi. Meff gengislækkunartil- lögu sinni hefir Ólafur Björnsson slegiff rauffu striki yfir allan mál- flutning Mbl. síffan á miff ju sumri 1956. Aldrei hefir nokkur stila- bók í barnaskóla fengið þvílíka út reiff sem Mbl. Bjania Benedikts- sonar lilaut lijá Ó.Vifi Björnssyni a Vai'ffarfundinum sæla.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.