Tíminn - 30.10.1958, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.10.1958, Blaðsíða 8
8 T I M I N N, fiimnludaginn 30. október 4958. Fimmtugur: Ólafur Jóhannesson Sumum mönnum hefir Guð gefið þannig viðmót og lundarfar, að þeir ósjálfrátt ylja sínum samferða- inönsnum. Einn .úr þesum hópi er Ó4fur Jóhannesson. Hann átti há’lfa öld að baki hinn 15. þessa mánaðar og vil ég á þeim merku tímamótum í lífi hans nota tæki- færiS og þakka honum margar á- nægjulegar samverustundir. Ólafur er fæddur á Iíalldórsstöð- um við Reykjafjörð árið 1908, en f&refdrar hans voru þar í hús- mtennsku. Á 5. ári flyzt Ólafur með foreldrum sfhum að Gjögri í sömu sveit, og voru þar næstu 6 árin. Fluttu þau sig þá að Hvammi í Bjarnarfirði og settu þar upp eigið bú. Eftir 8 ára búskap 1 Hvammi, ílutt'u foreldrar hans sig enn um 1 \sét. í þetta skiptið að Bakka í Bjamarfirði, þar býr móðir hans enn og bróðir, en faðir hans er lát- inn fyrir nokkrum árum. Óiafur átti ekki kost á mikilli skólagöngu : á sínum uppvaxtarárum, annarri en í skóla lífsins. I>ar hefir hann líka numið mörg gagnleg fræði, enda gæddur góðri eðlisgáfu og inörgum góðum eiginleikum. Hann fór snemma að vinna fyrir sér. Sautján ára gamall fór hann að sækja sjó á opnum bátum á vetrum ogvorum vestur á Fjörðum. Nítján ária varð hann formaður á opnum ; báti, sem réri frá Eyjum í Bjarnar- firði. Var faðir hans, sem var af- iburðagóður sjómaður, háseti á toátnum. Kenndi hann Ólafi margt í sjómannsstörfunum, er síðar kom honutn oft að góðu gagni, enda varð Ólafui’ sérstakur sjósóknari. Næstu árin var hann formaður á ýmsum þilfarsbátum frá Drangs- nesi og Hólmavík og átti m. a. hlut í tveimur þeirra. Síðasta árið, sem hann var með bát frá Drangsnesi, réri hann eina vetrarvertíð frá Sandgerði. Þar veturinn 1943—’44. Hann var ókunnugur á miðunum hér syðra, en ekki gekk honum síSur en hinum og í ofsaveðri þá rim veturinn, sýndi hann einstæðan dugnað og áræði við að ná landi í Samdgerði, sem engir gleyma, er á hórfðu. Til Reykjavíkur fluttist svo Glafur ári siðar. Vann hann ýmis stdrf. Var kokkur á togaranum Þor- fi’n'Bi, vann í frystihúsum, var um skeið við bátaviðgerðir- og smíðar hjá Slippnum, húsasmíðar stundaði hann í nokkur ár og var smiður hjá verksmiðjunni Málning h.f. á árunum 1953—’57. Hann hefir á undanförnum árum stundað bóka- sölu í frítímum sínum fyrir nokkur bókaforlög hér í bæ. Hann er sér- stakur sölumaður og kemur hon- um þar til góða hift hýra viðmót og góða skap. Þegar hann lét af störfum hjá verksmiðjunni, fór hann í söluferð með bækur víða um land, með hinum bezta árangri. Nú stundar hann almenna smíða- vinnu meðfram bóksölustörfunum. Ólafur bjó með Kristjönu Hall- dórsdóttur frá því hann var 23 ára. Áttu þaú 7 börn, sem öll eru á lífi og nú uppkomin. Þau slitu síðar samvistum, Ólafur og Kristjana, en hann kvæntist svo árið 1947 Odd- laugu Valdimarsdóttur, frá Vest- mannaeyjum. Þau búa að Vallar- gerði 34 í Kópavogi og eiga 3 dæt- ur. Húsið að Vallargerði á Óláfur sjálfur, hann hefir reist það þegar tími hefir gefizt til í frístundum á undanförnum árum. Það er mikið og myndarlegt hús, sem gefur meistaranum góðan vitnisburð. Ólafur og kona hans, Oddlaug, hafa sameiginlega komið sér upp góðu og traustu heimili, og sendi ég þangað cmínar beztu kveðjur og óskir. Megi honum og hans fólki vel farnast á ókomnum árum. Ö. H. MWV.ViVAMW.V%VAWV,.W.*AW.WAV/.VA,.V/AW ÁTTHAGAFÉLAG STRANDAMANNA Vefrarsfarfið hefst meS Spilakvöldi 1 Skátaheimilinu í kvöld kl. 8,30 síðd. Fjölmennið og mætið stundvíslega. Stjórnin. í 1 ' s S WW.WA'.W.V.VV.WA’AVAV.V.'.W.V.V.VAV.VAV Áuglýsingasími TÍMANS er 19523 Bezt er að auglýsa í TÍMANUM ininiKnnmiiimmiiiiiHiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimniHiHiuiiiiimiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiHmsiiiu^ Tilkynning j um atvinnuleysistryggingu Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga nr. 52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningar- stofu Reykjavíkurbæjar, Hafnarstræti 20, dagana I 3., 4. og 5. nóvember þ.á., og eiga hlutaðeigendur | er óska að skrá sig samkvæmt lögunum að gefa | sig fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h. hina | tilteknu daga. Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig, séu viðbúnir 1 að svara meðal annars spurningunum: 1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði. 2. Um eignir og skuldir. Reykjavík, 30. október 1958,. Borgarstjórinn í Reykjavík KBuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiDiiiiiiiiiiiiiiimimniiiiiiiiimiBiiiinioi Fréttir frá S.Þ. (Framhald af 6. síðui. fór aftur til Beirut og kenndi næstu át'ta ár við ameriska háskól- ann. Því næst fór hann í utanrikis- þjónustuna og var sendiherra Líb- anon í Bandaríkjunum til 1955. Prófessorinn og diplomatinn Char- les Malik, sem talar ágætlega ara- bísku, ensku, frönsku og þýzku (hann las eitt ár við háskólann í Freiburg) varð síðan utanríkisráð- herra, og í byrjun jafnframt menntamálaráðherra. Samtímis var hann kosinn á þing Líbanons. Innan Sameinuðu þjóðanna hef- ur Malik sérstaklega látið til sín taka vandamálið um mannréttind- in. í þrjú ár var hann skýrslugjafi Mannréttindanefndarinnar, og í tvö ár formaður hennar. Uppáhalds frístundaiðja hans er að lesa Platon og Aristote'es á grísku. 3. siðan Ilala munu Svisslendingar og kosta nokkurn hluta gangnanna. 1380 m hæð Göngin verða grafin í fjallið í 1380 metra hæð yfir sjávarmáli, en það þýðir að byggja verður sér- staka vegi upp í þá hæð eftir fjalls- hlíðinni. Þetta ráð var tekið eftir að í liós kom, að auðveldara var að bora þar en við fjallsræturnar. Menn telja að hitinn í miðjum göngúnum muni nálgast 50 stig á Celsíus, en með því að dæla lofti stöðugt inn í þau að utan, íelja þeir, sem vit hafa á, að megi lækka hann niður í 25 stig, en það er tal- inn hæfilegur hit'i til þess að vinna L Göngin verða útbúin nxeð sér- slakri loftræstingu og holræsakerfi svo að þau verði opin alla 12 mán- uði ársins, en eins og kunnugt er, hafa fjallvegir í Ölpunum hvað eftir annað teppzt vegna mikilla snjóa eða snjóflóða. Mönnum verð- ur ekki ieyft að leggja bílum sín- um í göngunum, né stoppa þar nema þá til þess að taka benzín, til þess að umferðin gangi sem greið- ast. Hver bifreið mun þurfa að greiða gjald fyrir að fara um göng- in, og er reiknað með því, að tekj- ur af þessum gjöldum hrökkvi til til þess að standa straum af rckst- urs- og viðhaldskostnaði. Frakkar byrja senn Frakkar hafa fyrir skemmstu óskað eftir tilboðum í gröft þess hluta ganganna, sem þeim ber að gera, svo að gera má ráð fyrir því, að ekki muni líða á löngu þar til hafizt verður handa frá þeim enda ganganna. Þegar lokið verður við þetta fyrirtæki, mun leiðin milli Frakklands og Ítalíu styttast til muna í kílómetrum, fyrir utan það hver t'ímasparnaður verður í því er menn þurfa ekki lengur að leggja á vafasama fjallvegi í tvísýnu veðri. ViV.V.WW.W.V.V.ViV.Vi AUGLÝSING Tilboð óskast í Internat- ional jarðýtu af gerðinni T.D.-6, í því ástandi sem hún nú er. Tilboðum sé skilað fyrir 15. nóvember til Þórólfs Guðjónssonar, Fagradal, sími um Neðri- Brunná, eða Bjarna Finn- bogasonar, Búðardal, sem gefa nánari upplýsingar. Áskilinn er réttur til að taka tilboðum, eða hafna öllum. %IW.*JAflA%V%VMWÓW.VAVUW.V.WV\WAWUWJ avAVUVwvwwwwW.V.W^^VAV.*^iWV//.WíV iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui]iiiiiiiunimiiiiiiui«iiiiiiimiiiii i 1 | Húsmæður athugið! | | Hvítöl í iítratali f Þó svo að kaupmenn hafi tekið við allri dreifingu i á átappaðri framleiðsluvöru vorri. þá er þó sú und- i antekning þar á gerð, að sem áður seljum vér | 1 HVfTÖL í LÍTRATALI | beint frá verksmiðju vorri að Frakkastíg 14 B. | 1 H.F. ÖLGERÐIN 1 ! EGILL SKALLAGRÍMSSONI imiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiitriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiMi Læknaskipti 5 Þeir meðlimir Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar, sem I óska að skipta um heimilislækni frá næstu ára- I mótum, þurfa að tilkynna skrifstofu samlagsins I það fyrir nóvemberlok. . j§ Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar. 5 S S s ■ «* iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiimiiiii Innilegt þakklæti færum vi'ð öllum þeim, sem auösýndu okkur samúð og veitfu okkur aöstoS á einn eða annan hátt við andiát og jarðarför móður okkar og tengdamóður, Þórunnar Þórarinsdóttur, Höfn, Hornafirði. Börn og tengdabörn. iBWiWii'iMiniwiiui i«iiiiwnMygiginr»rMiii.n tewaimá... § .■.v.vv.v.v.v.v.v.vv.v.v, Við þökkum auðsýnda samúð við andfát og útför bróður míns og föðurbróður, Gunnlaugs Jónssonar kaupmanns, Freyjugötu 15. Við þqkkum einnig hjúkrunarkonum og læknum Bæjarsjúkra- hússins, ágæta hjúkrun í veikindum hans. Sigríður Jónsdóttir. Gunnlaugur Guðmundsson. Elsku litli sonur okkar Einar Sverrir lézt af slysförum þ. 28. þ. m. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Ágústína og Sverrir Ágústssoni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.