Tíminn - 31.10.1958, Page 8

Tíminn - 31.10.1958, Page 8
8 T í M I N N, föstudagiim 31. október M58. Sjötugur: Brynjólfur Haraldsson Brynjólfur Haraldsson, Hvai- gröfuin, er fæddur 12. okt. 1888 að höfuðbálinu Skarði, Skarðsströnd. Er hann einn af 6 börnum hjón- anna, Septemborgar Loftsdóttur, Jónssonar, bróður Saura-Gísla, og Haraldar Brynjólfssonar, Jónsson- ar frá Breiðabólsstað á Fellsströnd. .Haraldur Brynjólfsson ólst upp hjá frú Ingibjörgu Ebernesardóttur og Kristjáni Magnúsen, kammerráði, og giftist þaðan og byrjaði búskap á Manheimum, hjál'eigu frá Skarði, bjó svo nokkur ár í Frakkanesi og Á, einnig hjáleigu frá Skarði. Flyt ur svo að Hvalgröfum og bjó þar æ síðan, en lifði hin síðustu ár í skjóli Brynjólfs sonar síns. Ferða' hringur Brynjólfs er því ekki stærri en þetta, og á Hvalgröfum hefir hann alla tíð búið og dvelst þar enn. Árið 1910 giftist Brynjólf- ur hinni ágætustu konu, Ragnheiði Jónsdóttur, Finnssonar, bónda á Géirmmidarstöðum. Er hún réttur þremenningur að skyldleika við hinn þekkta þjóðskörung Guðjón Guðlaitgsson frá Ljúfustöðum. Móð- ir Ragnheiðar var Magðalena Bjamadóttir, Jónssonar, alkunn, an'erk sjómannaætt úr suðureyjum Breiðafjarðar. Hafa þau Ragnheið- ur og Brynjólfur lifað saman í far- sælu hjónabandi í 48 ár. Þeim hefir orðið tveggja barna auðið: Magða- lena, gift' Sæmundi Björnssyni, Klúku, Miðdal í Steingrímsfirði, búsett að Reykhólum. Gísli, giftur Herborgu Hjelm, færeyskrar ætt- ar, búsettur að Hvalgröfum. Tók við oddvitastörfum úr hendi föður síns s. 1. vor. í fóstur. tóku þau dreng, Svein Jónassori að nafni og ólu upp sem eigið barn, en urðu fyrir þeirri sorg að missa hann á bezta aldursskeiði. Brynjólfur á Gröfum, eins og hann er jafnan nefndur í daglegu taii, hefir alið allan sinn aldur hér í sveit. Ef nokkur maður er sam- gróinn sveit sinni þá er það hann. í uppvexti aðeins flutzt milli fjög- wrra bæja og hafnað á þeim fimmta, Hvalgröfum og búið þar æ sáðan. Brynjólfur er með öllu sjálfmennt'aður maður, er prýði- lega greindur, bókamaður, skýr í (hugsun og skrifari ágætur. Eflaust hefði hann Verið gott efni í lang- skólamann, ef sú hlið hefði að honum snúið þegar í æsku. Honum er létt um mál og hann kann vel að orða hugsanir sínar í ræðu- Erlent yfirlit (Framhald af 0. síðu). er, að hann sækist ekki eftir að Ikomast í framboð þá, heldur vílji fá það tækifæri síðar. Að Rockefeller frágengnum, virðist Nixon ekki hafa neinn keppinaut. Þar sem Knowland verður þá vafalaust úr sögunni sem slíkur. Hjá demókrötum gegnir þetta allt öðru máli. Þar hefir enginn nnaður komið fram í kosningabar- óttunni, er hefir vakið.á sér sér- staka athygli. Kennedy öldunga- deildarmaður hefir að vísu ferð- azt mikið og hann er öruggur um endurkosningu, en framganga Ihans í kosningabaráttunni hefiir ek-ki neitt aukið Veg hans'. Stev- enson hefir komið talsvert fram og ræður hans vakið athygli að vanda, en bersýnilegt er, að hann telur sér heppilegast að vera hlé- drægur og láta ekkert á því bera, að hann sé fáanlegur í forseta kjör í þriðja sinn. Honum er Ijóst, að hann kemur bví aðeins til greina, að flokkurinn hafi eKki völ á neinum nýjum manni, sem sé ólitinn sigurvænlegur. Að því leyti hefir kosningabaráttan nú verið Stevenson hagstæð, að ekki Ihefir komið fram neinn nýr mað- ur, er skari fram úr öðrum sem forsetaefni fyrir demókrata. Með- an svo er, getur niðurstaðan orðið sú, að Stevenson verði fenginn til framboðs í þriðja sinn Sá foringi demókrata, sem mest ihefir borið á í kosningabaráttunni, hefir verið Truman forseti. í gamni og alvöru hefir verið ympr að á því, að hann ætli að vera forsetaefni demókrata 1960. Margt bendir til þess, að Truman myndi reynast sigursæll, ef aldurinn væri •ekki talinn honum til foráttu. Þ.Þ. I formi. Hann er hreinn í hugsun og djarfur í máli. Brynjólfur er hugsjónamaður, sem vill láta Ijós sitt skína, fræða og hvetja til fé- lagslegra samtaka. Það sýnir bezt hvert hugurinn stefndi, er hann á unga aldri, tók að sér barnatilsögn á ýmsum heimilum, og mun víða hafa verið aufúsu gestur. Ásamt búskap kenndi 'hann á v'etrum, ým- ist ráðinn 'eða þess utan allt frá 1918 af og til ársins 1930, en þá var hann settur kennari í Skarðs- skólahverfi og gegndi því starfi óslitið til 1957, er hann sagði því lausu. Þess utan hefir hann haft á hendi fjölmörg sveitastörf, setið í hreppsnefnd frá 1914, í sýslunefnd 6 ár í skólanefnd og safnaðar- fulltrúi um tugi ára og oddviti frá 1930 til 1937. Stofnandi Búnaðar- félags Skarðhrepps 1926, og for- maður þess frá upphafi og er það enn. í búnaði hefir Brynjólfur og sýnt framfara hug. Reist íbúðar- hús úr steinsteypu, sléltað og rækt- að og á allan háít stórbætt jörðina. Skilar því framtíðinni betri og arð- gæfari bújörð 'heldur en hann tók við. Það er óhætt að segja, að Brynjólfur hafi ávaxtað sitt léða pund vel, bæði efnislega og and- lega séð. Brynjólfur er ótrauður samvinnumaður, tileinkaði sér snemma þá lífsstefnu og þess stjórnmálaflokks Framsóknar- flokksins, er traustast hefir slaðijs vörð um hana á löggjafarsamkomu þjóðarinnar, Alþingi. Nú getur hinn aldni fyrrverandi bóndi, odd- viti og kennari sinnar sveitar litið með gleði um öxl, því mörg hans hugsjóna og áhugamál eru farsæl- lega komin í höfn, eða eru á góðri leið fyrir mátt Samvinnuhugsjón- arinnar og óhvikullar baráttu for- ystumanna Framsóknarflokksins, er hann foatt sínar lífsvonir við. Brynjólfur stendur á þeim sjónar- hóli Mfsins, að honum er fært að vega og meta alla okkar miklu framfaraþróun allt frá aldamótum til dagsins í dag. I Sunnudaginn 12. þ. m. var gest- kvæmt að Hvalgröfum. Vel flestir bændur og annað búandlið sveit'ar- innar heimsótti afmælisbarnið á- samt nokkrum öðrum úr nálægum sveitum. Undu menn þar gengi nætur við glaðværð og góðar veit- ingar. Margar ræður voru fluttar, söngur og dans stiginn. Hófið í alla staði mjög ánægjulegt. Sveit- ungar, skyldulið, vinir, utan sveitar og innan, sendu góðar gjafir. Brynjólfur á Gröfum er maður vel á sig kominn og ber aldurinn óvenjuvel. Beinn á velli og léttur í spori. Kr. M. Breiðdal. I AW.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V Áðalfundur KnattspyrnuféL Vals AÐALFUNDUR knattspyrnufé- lagsins VALS var haldinn 27. októ ber s.l. í félagsheimilinu að Hlíðar- enda. Fundarstjóri var Sigurður Ólafsson og ritari Jón Þórarinsson. Formaður VALS Sveinn Zoéga flu'tti stutta yfirlitsræðu um störfin á liðnu ári. En skýrslur og reikn- ingar stjórnar og starfandi nefnda lágu fyrir í fjölriti. Starfsemi félagsins á s.l. ári var mikil. Félagið tók þátt í öllum knattspyrnumótum sumarsins. Einnig tóku flokkar frá félaginu, bæði kvenna og 'karla, þrátt í hand- knattleiksmótum. Nokkur knatt- spyrnumót vann félagið á árinu, í yngri flokkunum, og var í úrslit- um I öðrum bæði yngri og eldri. Aðalþjálfarar félagsins á starfs- árinu voru þeir Elnar Halldórsson og Árni Njálsson, en Árni þjálfaði aðallega yngri flokkana og hand- knattleiksflokkana. Haldið var áfram á árinu, með byggingu hins mikla og vandaða íþróttahúss, og miðaði því svo vel, að það mun verða tekið í notkun innan skamms. Formaður íþrótta- hússnefndar er Úlfar Þórðarson læknir, og hefir hann verið það frá upphafi. Starfsemi meðal yngri i’lokkanna var endurskipulögð á árinu, og stofnað unglingaráð og því sett sérstök reglugerð. Formaður ráðs- ins er Sigurður Marelsson kennari, sem er unglingaleiðtogi félagsins. Þá var fulltrúaráð félagsins einn- ig endurskipulagt og því sett ný reglugerð. Eiga nú sæti í því rúm- lega 30 eldri félagar. Valsblaðið, sem legið hefir niðri Tilhæfulaus fregn í tilefni af fregn í einu af dag blöðum Revkjavíkur um að danska ríkisstjórnin hafi fengið t.ilboð frá ríkisstjórn íslands varðandi fisk- veiðiréttindi Færeyinga við ís- land og gagnkvæm réttindi ís- lendinga við Grænland, óskar utan ríkisráðuneytið að taka fram, að fregn þessi er með öllu tilhæfu- laus; engar slíkar viðræður hafa farið fram og ekkert slíkt komið til tals innan ríkisstjórnarinnar. (Frá utanríkisráðuneytinu). undanfarin ár, hóf göngu sína að nýju á árinu, og hafa komið út af því á starfsárinu 4 tölublöð. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Sveinn Zoega formað- ur, Sigurður Marelsson unglinga-’ leiðtogi, Valgeir Ársælssen, Guð- mundur Ingimundarson, Baldur Steingrímsson, Gunnar Vagnss. og Einar Björnsson. í varastjórn voru kjörnir: Friðjón Friðjónsson, Ægir Ferdinandsson og Elías Hergeirs- son. Fundurinn var írijög fjölmennur, og mikill áhugi ríkjandi um að efla starfsemi Vals sem mest og nýta sem bezt þá miklu og margþættu möguleika til aukins félags- og íþróttalegs árangurs, er skapast með tilkomu nýja íþróttahússins. '.W.V.V.V.V.V.V.VAV.V.', >■■■■■! VJ CrVÍfr VUuísZs. v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiu; Tilkynning Nr, 29/1958. | Innfutningsskrifstofan hefir ákveðiS nýtt hámarks § verð á smjöríki sem hér segir; Heidsöuverð, pr. kg. Kr. 9,17 Kr. 14,00 I Smásöluverð, pr. kg.— 10,20 — 15,20 i Reykjavík, 28. október 1958. Verðagsstjórinn = Kaupmenn! Kaupfélög! Við höfum jafnan fyrir- liggjandi frá KOYO Tékkóslóvakíu SJONAUKA ýmsar stærðir. Rifflasjónauka SMÁSJÁR fyrir skóla og rannsóknarstofur. j*. Einnig hin þekktu DOLONIT Og POLOX sólgleraugu. i /z,\mqLg>(8llf7l (p iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiniiiiimmiiiui w.v.w.v.w.w.w.-.v.vt 3. síðan ir.n framundan, og tekur alls ekk- crt cftir vegfarendum. Kvenbílstjórar hafa löngum verið skotspónn skopteiknara og annarra háðfugla um heim allan og má segia að nú sé það ekki lengur orðið að ástæðulausu. í Bandarikjunum er orðið „woman- driver“ hið versta skammaryrði. Karlmönnum að kenna? Ef umferðastatistikin er athug- uð frá sjónarmiði konunnar, kem- ur það í ljós að hún er tekin sam- an af karlriiönnum eingöngu og margt kvenfólk heldur dauðahaldi í þá staðreynd. „Karlmennirnir eru að svíkja okkur", er viðkvæð- ið, þar til einn góðan veðurdag er komið heim með bíl húsbónd- ans beyglaðan eftir árekstur. — við annan kvcnbílstjóra. En slik atvik ske ekki á degi hverjum. En kvenfólk verður að beygja sig fyrir opinberum skýrslum, og gerir það raunar þótt það vilji ekki láta það uppi. Staðreyndin stendur óhagganieg: Kvenfólk er ekki jafn öruggifr bílstjóralr og karlmenn, það sanna skýrslur! ByggSasafn Þingeyinga iFramhald af 4. síðu; geymslu á Stóru-Laugum. Guð- mundur Þorsteinsson frá Lundi foef ir unnið að viðgerðum á munun- um. Safnvörðitr. er Ólafur Gísla- son, bóndi á Kraunastöðum. Fréltamaður heimsótti safniö og sá þar margt fagurra og sögulegra gripa, meðai annarra tréreku þá, sem myndin er af, en hún, er úr eigu Fjalla-Bensa. Gekk hann við rekuna, þegar hann var að leita fjár og er sagt, að oft hafi hún bjargað lífi hans, 'en Bensi þuri'ti oft að grafa sig í fönn. Arbók Þingeyjarsýslu Sýslumaður skýrði svo frá, að fy-rsta hefti Árbókar Þingeyjar- sýslu væri nú í undirbúningi. Að útgáfunni standa báðar sýslurnar og Húsavíkurkaupstaður. Ritstjóri er Bjartmar Guðmundsson á Sandi. Þá hefir sýslan nýlega stofnað sýsluskjalasafn og verður það lil geymslu í kaupfélagshúsinu á Ilúsa vík. Skjalavörður er Þórir Frið- geirsson, gjaldkeri kaupfélagsins, en hann sér einnig um Bókasafn Suður-Þingeyinga, sem er mikið að vöxtum. Reistur hefir verið nýr sýslu- mannsbústaður á Húsavík. Sýslu- skrifstofurnar eru í vinkiláiniu hússins, sem er mjög stórt og varid að. Næringargitdi ísíenzkra fóðurjuria r ramriald af 7. síðu). ir. 'Nú er hægt að framleiða „aet ivated" fóður við verði, sem er mjög 'hagstætt miðað við annað áþekkt fóður á markaðnum. Rannsókn ísl. fóðurjurta D. R. Tullis vann á Atvinffu- deild Háskólg íslands að rarni- sóknum á íslenzkum fóðurjurtum • til að ganga úr skugga um, hvort unnt væri að beita sömu aðferðuin við innlendar fóðurjurtir eða þ:ér, sem hér eru ræktaðar. I-Iac.i rann sakaði fimm tegundir jurta óg komst að raun um, að tvær jurtir voru sérstaklega vel fallnar til þessarar meðferðar. Var það stor- in annars vegar, en „tiinote" hins vegar. Þetta efni á ef til vill eftir að spara fóðurkaup til landsins, og myndi af því verða margs konár hagur bæði bænda og ríkisins. Aðallega hafa verið gerðar rannsóknir á notagildi fóðursins til eldis alifugla, en þó mun nýt- ingin vera enn betri, þegar uin jórturdýr er að ræða eða aílt að 97—98%. Efni þelta, sem hér hefur vef.ið rætt um, er látið í grasið bun t og verður biandan bezt, þegar í henni eru 0,1—0,3% af „activator“. Blandan er síðan gefin skepnun- um eins og venja er með annað fóður.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.