Tíminn - 06.11.1958, Blaðsíða 2
2
T í MI N N, fimmtudaginn 6. nóvember 1958,
Sýning á myndlist írá Ráðstjórnar-
ríkjunum, opniið í dag
Fyrsta sinn sem myndirnar eru sýndar fyrir
utan Rússland
í dag verður opnuð í húsi Þjóðminjasafnsins sýning á
nyndlist frá Ráðstjórnarríkjunum. Þetta er skiptisýning og
er í ráði að senda svipaða sýningu til Ráðstjórnarríkjanna
að vori. Sýning þessi samanstendur af 186 myndum, sem
flestar eru unnar úr grafít. Sýningin verður opnuð fyrir
gesti kl. 4 og mun menntamálaráðherra opna hana, en sendi
herra Ráðstjórnarríkjanna flytja ávarp um sýningu þessa
)g gildi hennar.
Togarakaupin
■Þetta er í fyrsta sinn, sem þessar
inyndir eru sýndar utan heima-
tands síns, en að öllum líkindum
menn frá Moskvu og Leningarði,
heldur einnig frá Úkraníu, Grúsíu,
Aserbad, Lettlandi, Eistlandi og
mörgum fleiri ríkjum. Margar
yerður hún sýnd víðar. HingaS til myn^irnar> sem ,eru á sýningunni,
and komu með symngunm fru Na- eru meistaralega gerðar, og sýnir
ali Sokolava listfræðingur og Or-
rst Vereiskij listmálari, en hann
og faðir hans, sem einnig er list-
nálari, eiga báðir myndir þarna.
Lisfamenn frá nokkrum
iríkjum
tíér eru ekki eing'öngu lista-
það að í Ráðstjórnarrikjunum þró-
ast mikil myndlist. Ekki er að efa
það, ef myndir þær, sem þarna
eru, væru til sölu, myndi mikill
hluti þeirra seljast upp. Sýningin
verður opin í hálfan mánuð, og
verður hún opin daglega frá 1 til,
10, en á sunnudögum frá 10 til 10.
Selfoss hinn nýi fullgerður og
aRientur Eimskipafélagi Islands
SkipiÖ er á stærð vití Tröllafoss, Kemur
hingaÖ til lands undir lok mánatiarins
M.s. „Selfoss", hið nýja 3500
tonna skip Eimskipafélags ís-
iands fór reynsluför sína í
Limafirði í Danmörku í fyrra-
dag, og var að henni lokinni
ifhent félaginu.
Ganghraði í reynsluför reyndist
'.5,38 sjómílur. Skipt var um fána
kl. 4 síðdegis, og hélt forstjóri
: ikipasmíðastöðvarinnar, Aalborg
Værft, S. Krag ræðu um leið og
fiann afhenfi skipið. Jón Guð-
.Drandsson fv. skrifstofustjóri Eim
,'ikipafélags.ms í Kaupmannahöfn
'luííi einnig ræðu, en hann tók
við skipinu fyrir hönd félagsins.
■ fjv." -
M.s'. „Selfoss“ fer frá Álaborg
8. þ.m. og fermir vörur í Kaup-
manahöfn og Hamborg. Skipið er
væntanlegt hingað til Reykjavík-
ur síðari hluta mánaðarins. Lengd
skipsins er 334’10” eða 102,05 m
(álíka og m.s. Tröllafoss“), en
brúttó-tonnatala þess er 2339
tcnn. Burðarmagn skipsins er um
3500 tonn. Nánari lýsing á skip-
inu mun verða gefin eftir að
skipið er komið hingað til Reykja
víkur.
Skipstjóri á m.s. Selfossi er
Jónas Böðvarsson, I. stýrimaður
er Magnús Þorsteinsson og I. vél-
stjóri Jón Aðalsteinn Sveinsson
Tillögur um nokkra vegi í þjóðvega-
tölu í N.-Þing. og N.-Múlasýslum
Fram hafa komið eftirfarandi
illþgur um breytingar á vega-
öguin.
Frá Páli Zóphóníassyni og
Sjörgvin Jónssyni, að eftirtaldir
/eg'ir verði teknir í þjóðvegatölu:
Selárdalsvegur: Af Strandavegi
^jorðan Selárbrúar inn Selárdal
tð Fagurhól.
Sunnudalsvegur í Vopnafirði:
Af Strandavegi nálægt Syðri-Vík
:m Borgir, Síreksstaði og að
Vopna-fjarðarvegi innan við Hof.
Jökuldalsvegur eystri: Af Aust-
irlandsVegi í Dimmadal í Heiðar-
endr inh' Jökuldal, yfir ■ Hákonar-
staðabfú og að Jökuldalsvegi hjá
dákoriarstöðum.
í stað orðanna „að Hóli í Fljóts-
lal“ komi: áð Kleif í Fljótsdal.
Loðmundarfjarðarvegur: Frá
Vestdalseyri um Brimnes. Stakka-
r.ljð-og Húsavík til Borgarfjarðar.
Frá Halldóri Ásgrímssyni um
ati leknir verði í þjóðvegatölu:
Gtinnarsstaðavegur: Af Stranda-
veg| áustan við Hölknárbrúí
Jufinarsstaði
Sélárdalsvegur: Af Strandavegi
jorðan Selárbrúar um Fagurhól,
Ljótsstaði á Strandaveg hjá Torfa-
íitöðum.
Af Kirkjubæjarvegi og þaðan á
j.Iróarstunguveg nyrðri nálægt
Geirastöðum.
Af Fjallabaksvegi og þaðan á
Ijaltastaðaveg nálægt Iljaltastöð-
jm.
Frá Gísla Guðmundssyni: Fyrir
irðin „yfir Sandárbrú" komi: um
Sandárbrú og Austur og Vestur-
;;and að Lindarbrekku.
Frambæjarvegur: Af Axarfjarð-
írheiðar- og Þistilfjarðarvegi hjá
Svalbarðsárbrú um Sválbarðssel
og Fjallalækjarsel að Kúðá.
Utanríkisráð-
herra beðinn
um skýrsiu
Fundur var í gær í Sameinuðu
þingi. Voru 8 mál á dagskrá. En
áður en gengið var. til dagskrár,
kvaddi Bjarni Benediktsson sér
hljóðs og mælti efnisfega á þ'essa
leið:
Eins og kunnugt er, fór utan-
ríkisráðherra á þing Sanieinuðu
þjóðanna til þess að vinna þar að
framgangi íandhelgismálsiris, Hann
er nú -fyrir nokkru kominn heim,
hefir fíutt rséðu í útvarpið á minn-
ingardegi Sameinuðti þjóðanna og
talað á sámkomu hjá Alþýðuflokkn
um. Við bæði þessi tækifæri lét
hann þess getið, að ekki væru horf-
ur á, að málið fengist afgreitt á
yfirstandandi þingi Sameinuðu
þjóðanna eins og fulltr.úar íslands
hefðu þó flutt till. um. Eðlilcgt, að
utanríkisráðherra hefði gefið
skýrslu um inálið á fundi utanríkis-
málanefndar, en þar sem að hún
væri ekki starfhæf lögum sam-
kvæmt, eins og stæði, gæti dregizt,
að fundur yrði haldinn í henni.
Sjálfstæðisflokkurinn óskar því
eftir að utanríkisráðherra gefi þing
inu skýrslu á lokuðum fundi eða
opnum eftir því, sem ástæða þykir
til, því ekki má dragast, að stofnað
sé lil samráðs við þingheim um
málið.
Utanríkisráðherra var ekki mætt
ur á fundinum, en forseti Samein-
aðs þings, Emil Jónsson, kvaðst
mundu koma ósk þingmannsins á
framfæri við ráðhenrann.
(Framhald af 1. síðu)
stæ'ð lán. T.d. hefðu Bretar gerzt
erfiðir í þeim efnuni. Málið væri
nú í höndum aðalbankastjóra
seðlabankans, sem ynni að því
að íitvega lán með viðhlítandi
kjörum.
Magnús Jónsson þakkaði upp-
lýs'ingarnar. En fróðlegt væri að
vita, hvort það væri rctt hjá Þjóð
viljanum að fyrir hefði legið til-
fcoð um hagstætt lán, en þeir
Eysteinn Jónsson og Guðm. í.
Guðmundsson ekki, fengist til að
sinna því.
Sjávarútvegsmálaráðherra kvað
það einkennilegt háltalag í sam-
bandi við svona fyrirspurn að vera
að lesa upp úr blöðum. Mætti
svara því me'ð upplestri úr Mbl.
Blaðið hefði verið með skæting út
aí þvj, að tekið væri lán í til-
teknu landi. Uppi væru ýmsar
skoðanir á því, hvort rétt væri að
efla togaraflotann. Einn þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins hefði lýst
því yfir í uniræðum á Alþingi,
að það væri röng sfefna. Væru
þingnienn Sjálfstæðisflokksins
reiðubúnir til að fallast á að leit-
að ýr'ði eftir láni hjá sömu þjóð
og veitti lán lil kaupa á togbát-
unum 12, ef leiðir lokuðust ann-
ars staðar?
Sigur'ður Bjarnason vildi álíta
aö allt væri enn í óvissu með tog-
arakaupin, ekkert hefði verið gert
nema skipa nefndir. Forsætisráð-
herra hefði sagt þegar umræður
fóru fram í þinginu um kaup á
varðskipi, að byggingarkostnaður
skipa færi nú lækkandi. Héldi
sjávarútvm.ráðherra að svo væri
einnig með togarana? Hvað hækk-
uðu skipin mikið vegna 55% yfir-
færslugjaldsins? Hvað kostar hver
þeirra 12 togbáta, sem nú eru
væntanlegir?
Sjávarútvegsmálaráðlierra upp-
lýsti að hvert hinna 250 smál.
skipa mundi kosta um 4 millj.
Þar við bættist svo 55% yfir-
færslugjaldið og mundi því end-
ar.legt verð til kaupenda verða
5,7—5,8 millj. Nokkur hluti kaup-
verðsins hefði verið yfirfærður
áður en yfirfærslugjaldið kom til.
Verð á skipum erlendis færi lækk-
andi. Villandi væri hjá Sig. Bj.
ao setja dæmið þannig upp, að
vegna yfirfærslugjaldsins hækk-
uðu skipin í verði, þ.jóðhagslega
séð. Jafnhliða lögfestingu þess
hefði verið ákveðið að hækka stór
kostlega tekjur útgerðarinnar.
Undirbýiningi að skipakaupun-
um væri lokið. Á stæði að fá nógu
hagstæð lár, til kaupanna. þar,
se-m gert væri ráð fyrir að skiþ-
in yrðu smíðuð. En hvað segði
þingmaðurinn um lántöku í Aust-
ur-Þýzkalandi?
Umr. vár nú frestað og málið
tckið út.af dagskrá.
2. Almannatryggingar, þáltill.
hvernig ræða skuli. Var ákvéðin
ein umr.
Önnur mál voru tekin út af
dagskrá.
Gamanleikur sýnd-
ur í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar frum-
sýndi gamanleikinn Gerfiknapinn
eftir John Chapmann s.l. þriðju-
dagskvöld við húsfylli og ágætar
viðíökur. Klemens Jónsson er leik
stjóri en raes aðalhlutverk fara
Steinunn Bjarnadótlir, Guðjón
Einarsson, Sigurður Kristinsson,
Eiríkur Jóhannesson, Ragnar Magn
ússon og Katla Ólafsdóttir.
Þetta er mjög léttur leikur,
farsi. — Næsta sýning er annað
kvöld.
Síðasta bindi af
verkum Hallgiíms
í dag kemur út þriðja og síðásta
bindið af verkum Hallgríms Pét-
urssonar í útgófu Tónlistarfélags-
ins. Er þeirri útgáfu þar með lok-
ið. í þessu síðasta bindi eru sálm-
ar og hugvekjur, og er það jafn-
framt stærsta toindið. Séra Bjarni
Jónsson, vígslubiskup skrifar for-
mála og Lárus Blöndal bókavörð-
ur eftirmála. Bókin er öll prentuð
í tveimur litum eins og fyrri bind
in. Bækur þessar eru aðeins til
sölu í Unuhúsi og Tónlistarsk.
Sigur friálslyndra
(Framhald af 1. síðu)
meirihlutaaðstaða Demokrata á
þingi er og miklu sterkari, en
nokkru sinni fyrr í stjórnartíð
Eisenhowers, og þar við bætist, a<5
áhrif hans hljóta að fara dvínandi,
þar eð hann á að'eins tvö ár eftir
af kjörtímabili sínu og verður
ekki endurkjörinn.
Verður Duiles að víkja?
Sambúð hans og hins nýkjörna
þings lilýtur því að verða mjög
erfið. Foringjar Demokrata
reyna vafalaust að greiða götu
forsetans í mörgum málum, cn
þó er óhjákvæmilegt, að næstu
tvö árin verði gerðar niiklu liarð
ari árásir á stefnu stjórnarinnar
bæði í utanrikis oig innanlands-
málum. Það er og sennilegt, að
Demokratar krefjist þess að
Dulles víki úr embætti utanríkis
ráðherra, en á því hafa þeir áður
klifað.
Forsetakjör 1960
Menn horfa fram til forseta-
kjörs 1960 og athuga horfurnar
í ljósi kosningaúrslitanna nú. .—
Mesta hættán, sem steðjar að
Demokrötum í sambandi við þær
kosningar, er áhugaleysi á þeim
forsendum, að þeim sé sigurinn
vis. En Republikanar hafa þó
fengið geisiöflugan frambjóðenda
til forsetakjörs 1960, þar sem er
sigurvegarinn frá New York,
milljónamæringurinn Nelson
Rockefeller. Sigur hans, sem hann
vann að mestu einn og óstuddur
af flokksvélinni, hefir mjög veikt
aðstöðu Nixons til framboðs, en
hingað til hafa menn litið á hann,
sem hinn sjálfkjörna frambjóð-
anda Repuihlikana 1960.
Nixon hljóp á sig
í kosningabaráttunni greip hann
til illvígra bardagaaðferða, sem
einkenndu feril hans áður fyrr og
spillti þannig toæði fyrir sjálfum
sér og flokknum. Seinustu vikuna
tókst honum að fá Eisenhower til
að'beita samskonar vinnubrögðum;
Með hörku sinni mun Nixon hafa
unnið fá atkvæði, en hrakið marga
frá Republikönum, sem vilja fara
bil beggja. Kosningaósigur Repu-
blikana í Kaliforníu, hefir ekki að
eins eyðilagt með Öllu vonir Know
lands um fonsetaframboð, því hann
var foringi flokksins í öldunga-
deildinni, heldur einnig að nokkru
kippt fótunum undan Nixon sjálf-
um, sem er ættaður úr fylkinu.
Áhrif kreppunnar
Mestu kosningasigra sína unnu
Demokratai' í iðnaðarfylkjunum,
þar sem kreppan s.l. vetur olli
atvinnuleysi. Þeir unnu einnig
sæti frá Republikönum í landbún-
aðarhé'ruðunum, þar sem bændur
eru hræddir og reiðir yfir stefnu
stjórnarinnar að lækka stöðugt
verð landbúnaðarafurða.
Sigur hinna frjálslyndu
Annað höfuðeinkenni kosn-
ingaúi'slitanna er sigur frjáls-
lyndi'a írambjófenda úr báðum
flokkum. Frjálslyndir frambjóð-
ehdiir eins og Nelson Rockefell-
ar af hálfu Republikána og Jolin
Kennedy öldúr.igadeildarþingma'ff
ur Demokrata, drógu til sín mest
atkvæðamagn. Sama gilti um
aðra frjálslynda frambjóðendur
flokkanna beggja. Þessi stað-
reynd mu« ábyggilega hafa sín
álirif á val forsetaefna 1960.
Kosningasigur Demokrata
(Framhald af 1. síðu>
manni, en þeir þörðust um fylkis-
stjóraembættið í New York fylki.
Sigur 'Roekefellers er vafalaust
mesti kosningasigur einstaks fram
bjóðanda í þessum kosningum,
ekki sízt, er þess er gætt, að flokk
urinn studdi hann slælega framan
af að minnsta kosti. Er hann nú
talinn líklegasta forsetaefni flokks
ins við kosningarnar 1960.
Demokratar 'unnu mikla sig'ra
í þessuni kjördæmum sem flest
hafa verið örugg vígi Republik-
ana: Minnesota, Winconsin, Kali
fornía og Oliio. Jafnvel í Verm-
ont var Demokrati kjörinn til
fulltrúadeildarinnar, en fylkið
hefir aldrei sent Demokrata á
þing fyrr.
Verkalýðsfélögin
Atvinnuleysifl s.l. vetur varð
'Republikönum þungt í skauti. —
Urmu Demokratar mjög á í iðnað-
arhéruðum Norðurfylkjanna. Þeir
eru og að ná tangarhaldi á mið-
og vesturfylkjunum, sem hafa
! fylgt Repitblikönum. Fréttaritarar
ifullyrða, að áhrifa verkalýðssain-
j takanna muni nú gæta á þingi
stórum meira en áður.
Önnur afleiðing þeirra verður
| sú, að hinir íhaldssömu Suðurríkja
menn í flokki Demokrata, munu
nú verða áhrifalitlir, en þeir hafa
oftast ráðið flokknum. Á þessu er
að verða varanleg breyting.
Utanríkisstefnan
Nixon varaforseti sagði í dag,
að Demokralar ættu sigur sinn að
þakka góðri skipulagningu og
dugnaði. Eisenwer vildi lítið um úr
slitin segja, en játaði að Demo-
kratar hefðu unnið mikinn sigur.
Hann tók sérstaklega frani, að
úrslitin myndu engin áhrif hafa á
utanríkisstefnu Bandaríkjanna. —
Þaff er þó grunur margra, að svo
muni fara, að minnsta kosti sé
sennilegt ,að Demokratar geri nú
alvöru úr þeirri kröfu sinni aS
Dulles verði vikið úr embætti.
L>.
530 býli
Togarsjómenn
í sanibandi við fréttir dagblað-
anna um kauphækkun logarasjó-
manna, er rétt að benda á eftir-
farandi:
Sagt er að togarasjómenn hafi
fengið 22% kauphækkun. En sú
hækkun kemur aðeins á fastakaup
ekki á aflahlut, sem er svo til ó-
breyttur.
Aflahlutur nemur hins vegar um
og yfir helmingi launa togarasjó-
manna. Er því raunveruleg hækk-
un á kaupi þeirra 9—11% eftir
aflabrögðum.
1 Þá ber að benda á það, að þegar
(Framhald af 12. síðu).
1,8 millj. útá jarðabætur á býluin,
sem féllu undir 38. grein land-
námslaganna um aðstoð til jarða,
sem eru afturúr. Voru ræktaðír-á
þessum býlum 1006 hektarar. í
því sambandi má geta þess, að
töluvert af ræktunarframkvæmd-
um frá i fyrra hefur ekki hlotið
afgreiðslu, þar sem túnmælingar
skorlir.
12 byggðahverfi
12 byggðahverfi haía verið stofn
uð ög athuganir um það 13. hafa
verifí gerðar í Dalasýslu. í sumar
var unnið ;(ð ræktun í 10 byggða-
hverfum. Aðal fra m k væm d i riiar
voru í Álftaneshreppi á Mýrum.
Þar var unnið að framrækslu, jarð
vinnslu og vegagerð, og í Kaldrana
nesi á Ströndum, en þar var unh-
ið að jarðrækt og girðingum. í
Hjaltastaðaþinghá á Fljótsdalshér-
aði var unnið að raektun og vega-
gerð. í öðrum byggðahverfum var
aðeins um fullnaðarræktun að.
ræða. ys,....
Aðstaða ti! að stofna
100 býli
Víðimýrarhverfi er nú fullbyggt,
þar eru 4 býli ,og auk þess 2 full-
byggð í ‘Lýtingsstaöahr.eppi. f
byggðahverfinu í Ölfusl eru 6 býli
byggð og 2 í byggingu. 4 býli eru
byggð á Hvolsvelli og 4 í Þinga-
nesi í Ilornafirði. í öðrum hverí-
um eru 1—3 býli fullbyggff og
önnur í byggingu.
Alls er búið að útliluta löndurm
undir 50—60 býli í byggðahverf-
um, en aðstaða er til að stofna
um 100 býli í þeim hverfum, sem
fyrir eru.
samið var við togarasjómenn
júní s.I. fen'gu þeir eingöngu lö
boðnar hækkanir (þ.e. 5% au
lífeyrissjóðs), en síðan hafa fle;
stéttarfélög önnur fengið allmik
ar kjarabælur umfram þær er lc
boðnar voru.
(Frá Fél, ísl. botnvörp;
skipaeigenda).