Tíminn - 06.11.1958, Side 5

Tíminn - 06.11.1958, Side 5
T í MI N N, f immtiulaginn 6. nóvcmber 1958. r, UígcfandíK Samband aiigra FramsökJigrffiáwna Rihtjérar: Hjertör HjartarsJn, Sibji Urbaacic / Svæfingar, styrkir og Stúdeníaráð Spjallaíí vi<S Kristján Þ. Baldvinsson, stud. med.j, fulltrúa Félags frjálslyndra stúdenta í Stúdenta- rátSi Háskóia íslands Námsgrein hefir gleymzt Þaíí ber alltof oft við, ag sá, sem hefir eitthvað inarkvert til málanna og leggja, t. d. í almenn um fundarumræðum, þorir ekki . að taka til máls af hræðslu við að tala frammi fyrir fjölda fólks. Hvers vegna á allur þorri manna svo ákaflega erfitt með að taka þátt í umræðum á fundum, út- skýra fyrir hópi félaga sinna, hvernig á að nota eitthvert verk- færi, — að gefa á einfaldan og eðlilegan hátt hópi manna munn- lega skýrslu — að kynna gestkom- andi ræðumann á félagsfundi? Stórir og sterkir karlmenn dauð- kvíða fyrir þessum verkefnum vik um saman og svitinn brýzt fram á enni þeirra, þegar þeir standa frammi fyrir áheyrendum og kreista handritið. Margir forðast beinlínis að lcnda í þeim aðstæð- um að þurfa að koma fram opin- berlega, enda þótt þeir séu e. t. v. mjög færir og fróðir í sinni grein og veitist auðvelt að leggja út fextann í brengri kunningjahópi. En það, að standa frammi fyrir áheyrendum, fleiri eða færri, und- an því hörfa menn og hugsa eða segja eitthvað á þessa leið: Ætti ég, venjulegur, óbreyttur maður (eða kona) að fara að standa upp og tala frammi fyrir fjölda fólks, — ég, sem er enginn ræðuihaður! Nej, ekki aldcilis! ' Ég er enginn ræðumaður, segja menn. Sannleikurinn er sá, að ræðumaðurinn er engin sérstök manngerð, og ekki endilega mað- ur með einhverja sérmenntun eða mildar gáfur. Hver maður, sem er heima á sjnu sviði og getur tjáð sig í daglegu tali, hefir sömu möguleika og sama rétt til þess að skýra frá skoðun sinni og þekk ingu á málefninu fyrir áheyrend- um. Er ekki hið frjálsa orð og frjáls' skipti á skoðunum ein af meginstoðum nútíma lýðræðis? Við umræður á fundum og öðr- um mannamótum eru það hinir málgefnu og háværu, sem mest ber á, en margir aðrir, sem hafa þekkingu og athyglisverðar skoð- ar:ir á málefnunum koma sér ekki að því að taka þátt í umræðunum, af því að þeim finnst þeir vera svo óöruggir með að koma fyrir sig orði. Þeir verða e. t. v. vitni að því, að spurning er rangskýrð eða misskilin, en grípa ekki fram í til þess að leiðrétta atriðið. Það eru margar snjallar hugsanir og merkar skoðanir, sem, aldrei hafa verið tjáðar, af því að sá, er það hefði átt að gera, ,,er ekki neinn ræðumaður“. Við gefum öðrum að verulegu leyti hugmynd um hvers konar menn við erum með því, hvernig við tölum. Sá er talar lágt, slitrótt og hikandi er ekki traustvekjandi. En sá, sem kann að haga orðum sínum með rólegum, skýrum rómi, hann'vekur traust og fellur áheyr endum í geð. En hvernig á maður þá að læra þetta? Mörgum er það vandalaust; ræðumennskuhæfileiki þeirra þró- ast með persónuþroska þeirra. En flestir þyrftu að fá tilsögn, þeir þyrftu að hafa einhvern, sem gæti gagnrýnt þá af þekkingu og gefið þeim góð ráð um hvernig þeir ættu að þroska með sér hæfileik- ann að tala. Hér komum við að þeirri ein- kennilegu staðrevnd, að þær stofn anir, sem vitaskuld ættu að sinna þessum, vandamálum — þ. e. skól- arnir — láta þau mjög ljtið til sjn taka. Þau ,,erindi“, sem nemend- ur kunna að vera látnir halda ein- stöku sinnum í skólanum, eru jafnan heimaskrifaðar ritgerðir, sem eru lesnar upp af blöðum og dæmdar eftir efninu. Tiflsögn í að flytja erindið er mjög sjald- gæf. Vafalaust er hér því að nokkru um að kenna, að kennara vantar þá menntun, sem þarf til þessa, og að nokkru því, að þeir taka fyrirbærið „erindi“ of hátíð- lcga. Vissulega væri það mikil framför, ef kennarar og þá eink- um íslenzkukennarar fengju menntun til þess að geta leiðbeint í framsögn. Með orðinu framsögn er venju- lega átt við raddbeitingu, skýr- leika í tali, rétta öndun o.þ.h. En þessi atriði eru aðeins hluti af meiru. Að sjálfsögðu er gott að geta andað með magayöðvunum í stað brjóstvöðva, en hvað stoðar ef menn vita ekki hvernig þeir eiga að koma í búning orðum að þvf, sem þeim liggur á hjarta? Missi maður þráðinn, þegar maður stendur í ræðustól, kemur að Jitlu iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiH í’j haldi þó að maður hafi lært að segja orðin skýrt fram. Kennsla í framsögn nýtist ekki nema mað- ur geti jafnframt æft sig í að tala: að segja það, sem manni liggur á hjarta á einfaldan og auðskilinn hátt, að tala fyrir einhverri hug- n;ynd, að lýsa atburði ljóslega, að taka hiklaust þátt í umræðum, hafa á hendi fundarstjórn, kynna einhvern mann fyrir áheyrendum eða halda dálitla afmælisræðu. Menn vænta þess reyndar, að þeir, sem hafa átt þess kost að stunda nám í menntaskólum geti tjáð sig munnlega á óþvingaðan hátt. Málfundafélögin í mennta- skólunum og nokkrum fleiri skól- um gera vafalaust mikið gagn, en aðeins lítill hluti nemenda koma sér að því að tala á fundum félag- anna. Hinir segja aldrei orð í um- ræðum. Oftast eru þeir, sem fengið hafa æfingu í ræðumennsku og kapp- ræðum í félagslífi, t. d. í ung- mennafélögum og góðtemplara- reglunni, vanari og öruggari í ræðustóli en hinir skólagengnu. — ■ Flestir kannast við skelk og óstyrk í hnjáliðunum frammi fyr- ir áheyrendaskara. Þennan tauga- óstyrk, sem kemur mönnum til að stama, tala of hratt og í belg og biðu og stara eins og dæmdir í gólfið. Þetta hefði mátt venja af mönnum í skóla. Hér er óvananum um að kenna í því að standa aug- liti til auglitis við áheyrendur, en ef menn hata orðið að standa frammi fvrir bekksögn eða náms- fiokk 5—6 sinnum og gera skil stuttum og óbrotnum verkefnum, er hið versta venjulega afstaðið. Meinið er, að flest okkar hafa ekki átt þess kost að venja sig af skelknum og taugaóstyrknum á yngri árum. Og stundum á fullorð insaldrinum lenda menn svo skyndilega í þeim aðslæðum að þurfa að halda ræðustúf fyrir hópi manna. Þá kemur sér illa að hafa ekki notið æfingar í ræðumennsku á fyrri árum, Hér er verkefni fyrir skólana. Bandaríkjamenn hafa tekið þetta mál föstum tökum. Ræðu- mennska (speech) er sjálfstæð námsgrein við ameríska skóla og er 'hægt að velja þá grein þegar í gagnfræðaskólum. Þegar á 12—13 ára aldri eru amerísk skólabörn látin koma fram fyrir bekkjar-, Framhald á 8. síðu Hörðyr Helgason form. F.U.F. i Fyrir endaaum á auðum gagninum opnast livítmálaðar dyr hljóðlega til hálfs, og inni- fyrir sést, hvar hvítklæddar verur standa umhverfis hvít- línað rúm og ræða við þann, sein þar liggur. Ein af hvítu verununi lítur andartak upp og gefur mér merki um að bíða, síðan lokast dyrnar jafn liljiáð- lega aftur. Stundarkorni síðar tekur Kristján sér hvíld frá því að „journalisera*1 og vísar mér inn í svokallaða skipti- stofu, þar sem úir og grúir af allskyns tækjum og krukkum og tóluin, sem venjulegt dauð- legt fólk eins og ég kann eng in skil á. — Það er ekki laust við, að ég öfundi þig dálítið að fá að komast í snertingu við þennan dularfulla heim, — eða hvernig kannt þú við þig í starfinu? — Mér fellur það prýðilega. Það má eiginlega segja, að menn fái fyrst einhverja hugmynd um, 'hvað læknisfr. er, þegar komið er í miðhluta námsins og tekið til vig að starfa á sjúkrahúsum. Eg hef nú verið hér á Hvítabandinu síð- an í septeniber, og þessi tími hefur liðið ótrúlega fljótt. Það gerist svo margt, scm fróðlegt er að fylgjast með, og hér er tækifæri til að kynnast mörgu, þar sem ég er eini stúdentinn hér og má því ekki aðeins taka þátt í flestöllum aðgerðum, sem hér fara fram, heldur verð það raunar. Þar af leiðir að vísu, að vaktirnar eru langar, ég er svo að segja all-tf á vakt, eðP aldrei skemur en frá 8 að morgni til 8 að kveldi, en þeim tíma er ekki varið til einskis. Það gerir starf mitt enn ánægjuríkara, hve góð ur starfSandinn hér er, það má segja, að hé rríki nokkurs konar fjölskyldubragur, vegna þess hve lítijl spítalinn er. — Hvað er það helzt, sem þú ert látinn gera? — Það er mjög margt. Eg er látinn svæfa við marga upp- skurði, og aðstoða við ýmsa. Uppskurðirnir standa yfirleitt yf ir frá 8 framyfir hádegi. Svo „punktera“ ég, glukósa og blóð og annað, sem um er að ræða. Eg tel mig hafa verið heppinn að komast hingað, því að hér gefast manni svo mörg tækifæri, sem fleiri eru um á stærri sjúkrahús um. -— Ráðið þið því sjálfir, hvar þið takið „kúrsusana“? — Að miklu leyti, já. Það eina, sem í rauninni er skylda, er tveggja mánaða „kúrsus“ á E E E * E Horður er fæddur í Reykja-f vík 30. ágúst 1931, og er sonurl Helga Hannessonar blikksmiðs| ag Gíslínu Jónsdóttur, konu| hans. Að lokinni skólavist í Ingi| marsskólanuin hóf hann nám í| blikksmíði, 17 ára ag aldri. Hann f lærði og starfaði síffan hjá J.| B. Péturssyni, fór til sjós uni| tíma, en vanii að því loknu hjái Vélsmiðjunni Héðni þar til hanni stofnsetti eigin blikksmiðju með| föður sínum, Helga, í maí 1957. |. Er það blikksmiðjan Sörli s. f.i Kvæntur er Hörður Maríu i Gröndal og eiga þau þrjú börn.i KRISTJÁN BALDVINSSQN Kleppi. En nú hafa þeir prófess • or Snorri og prófessor Sigurður víst í hyggju að láta þar verðr breytingu á, þegar viðbygginy Landspitalans hefur verið tekin notkun, — þ. e. a. s. að láU alla „kúrsusa" fara fram á Lanc. spítalanum, sem í sjálfu sér ei ofur eðlilegt, þar sem hann ei háskóla-spítalinn. En það kem ur í veg fyrir, að menn geti faric á sjúkrahús úti á landi, sen. mörgum hefur þótt mikils virð af sömu ástæðu og mér líkar svc vel hér, sem raun ber vitni. •— Svo verðið þið auðvitað ac lesa af kappi milli „kúrsusa“ Læknanemum er sennilega ó kleift að vinna fyrir sér mef fram námi? — Það má segja, að svo sc orðið, síðan námstóminn var tak markaður. Og því er það, sem é| tel það eitt af brýnustu hagS' munamálum stúdenta og í raur og veru Háskólans sjálfs, að íaa; veitingar verði auknar og st.yrl: veitingum verði komið á ti læknanema fyrst og fremst,' þar sem þeir hafa versta aðstöði. allra stúdenta til að sjá sér far borða sjálfir, og það má okk henda, að við Háskóla fsland; fari það aðallega eftir fjárhags aðstæðum síúdenta, hvort þeii geta lagt út í það nám, sem hug ur þeirra stendur til. Læknis fræðin er langt nám, og allur þorri læknanema toefur orðið fyj i fjölskyldu að sjá, áður en nám er lokið, svo að allir ættu ai geta séð, hversu brýn nauðsyi læknanemum er á utanaðkom andi aðstoð. Þetta finnst mér, af ætti að verða aðal-málið á dag skrá Stúdentaráðs í vetur. (Sjálfur er Kristján kvæntur og: á tvö börn, en á eftir margra ár; nám). — Hveð geturðu annaðs sag? mér af fyrtrhuguðum störfun: Kramhald á 8. síði- Svo sem skýrt var frá á Vett- vangi æskunnar fyrir tveim vik- Um sjðan, var Hörður Heígason blikksmiður kosinn formaffur Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík á síðasta aðalfundi þess. Hörður tók að gefa sig áð fé-! lagsmálum strax sem lærlingur, sat þá í stjórn Félaigs blikk- smíðanema og varð síðar ritari í stjórn Félags blikksmiffa. í_ stjórn Félags ungra Framsóknar= manna í Reykjavík hefur lianng setið síðan 1956. Hörður var í= 4. sæti á framboffslista Fram-= sóknarflokksins við bæjarstjórnj§ arkosningarnar í fyrravetur. = Fullfiúar í Stúdentaráði, talið frá vinstri: Bernharour Guðmundsson, Þorvaldur Búason, Magnús Stefánsson, Benedikt Blöndal, Ólafur Egilsson, Finnur T. Hjörleifsson, Guðmundur Steinsson, Bolli Þ. Gústafsson og Kristján Baldvlnsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.