Tíminn - 12.11.1958, Síða 9

Tíminn - 12.11.1958, Síða 9
TÍMINN, míðvikudagiim nóvember 1958 Vijtt Ufi tb l$t. Ciapip; 37. dagur in í gröfina. Hún heyrði há vært samtal alla leið upp í herbergi sitt, en þangað hafði hún farið er hún hafði boriö fram kaffi og kökur handa gestunum. Fólkið settist inn í stof- una, og lögfræðingurinn sett ist við borðið og opnaði skjala tösku sína. Hann ræskti sig, og jafnskjótt datt á dúnalogn. Aldrei hefir nokkur ræðumað ur fengið slikt dauðahljóö eða átt athygli áheyrenda sinna eins óskipta. Uss, þei, þei, sagði ein- hver alveg að nauðsynjalausu. —Hér vantar eina mann- eskju, sem ætti aö vera við- *stödd, sagði lögfræðingurinn, er hann hafð'i iitið yfir hóp- inn- — Það er ungfrú Venn- er, starfstúlka hér í húsinu. — Hún hefir arfleitt hana að einum skartgrip eða ein- hverjum öðrum smáhlut til minja, býst ég við, hvíslaði frú Lyle-Lynn að einni frænku sinni. — Auðvitaö, þaö er ekki nema sanngjarnt. Eg hefi heyrt, að hún hafi verið mjög nærgætin við Súsan frænku. — Ungfrú Venner, er hún ekki viðstödd? spurði lögfræö ingurinn aftur. — Jú, hún er einhvers stað ar í húsinu. — Vill ekki einhver vera svo góður aö kalla á hana fyrir mig. Sjálfsagt. Einhver hringdi bjölltmni, og Oissy stóti Katharine upp í her- bergi hennar. — Þú verður aö koma niður í stofuna, sagði hún. Sú gamla hefir vist ánafnaö þér eitthvað. Lítilli stundu siðar gekk Katharine inn i stofuna, sem var full af fólki, sem henni fannst horfa fjandsamlega á sig. Hún settist úti í horni, og gat ekki ímyndað sér hvers vegna verið væri að kalla á hana. Líklega hafði frú Stone ánafnað henni silfurstokk- inn me ðhárlokkum látinna ættingja. Henn kom varla 1 hug-annar hlutur. Frú Stone haföi þótt eink ar vænt um þennan stokk. Eg þykist viss um, að þetta fólk sér ekki eftir honum til mín. Lögfræðingurinn tók aö lesa erfðaskrána. Nú var svo liljótt í stofunni, aö unnt hefði verið að heyra saumnál detta. Það var sem allir héldu niðri 1 sér öndinni. Og síðasta ákvörðun frú Stone í lifanda lífi, kom sann arlega eins og reiö'arslag yfir þetta fólk. Þaö missti blátt áfram stjórn á sér og varð að geltandi og æpandi óvitum. — Óhugsandi, smánarlegt, hneyksli, kvað við um alla stofuna. — Hún getur ekki hafa verið með réttu ráö'i. — Jú, hún var það' áreiöan- lega, sagði lögfræðingurinn. Frú Stone haföi arfleitt Bræðralagið að meginhluta eigna sinna, og hún fór viðul kenningarorðum um þann söfnuð. „Þetta er álvörupefinn og guðhræddur hópur.fólks, þótt við næðum sjaldan því marki sem við' settum okkur. Við vor um táknrænt dæmi um sann- leika r-itningarorðanna: „Andinn er að söiinu reiðu- búinn, en holdið er veikt“, en við reyndum jað' tileinka okk- ur orð Guðs, Eg læt söfnuð- inum eftir þessa fjármuni í trausti þess að þeir verði not að'ir til þess að útbreiöa krist indóminn og orð heilagrar ritningar. Starfsstúlku minhi Katha- rine Venner, ánafna ég skart gripi mína og árlega fjárhæð sem nemur 50 þús. kr. — vona að það dugii henni til framfæris meðan hún lifir. Eg hefði gjarnan viljað gera hana auöuga og hefði getað það, en aúðæfi éru þung byrði. Vinnukonu minni, Cicely Jones ánafna ég 5 þús. kr. Frú Lyle-Lynn' frænku minni ánafna ég silfurstokk- inn með hárlokkum ættingja okkar. — Þetta er svívirðing, hróp aði einn karlmannanna. — Þessi kvensa hlýtur að hafa beitt gömlu konuna brögðum, sagði annar. Allir, sem þekktu frú Stone vissu, aö hún lét engan hafa áhrif á ákvarðanir sínar eða gerðir, sagði logfræðingurinn j rólega. Hún var æinráð og jsjálfstæö í skoðunum, jafnvel þverlynd og eigingjörn. Frú Lyle-Lynn róigði sig og ’ sveiflaði loöfeldinum betur aö | sér. Hún rétti fram hanzka- klædda hönd og stöovaði Katharine, sem ætlaði að ganga út úr stofunni. Katha- rine ofbauð svo, að hún vildi j um fram allt kómast sem 1 fyrst brott frá þessu haturs- fulla fólki. Hún skildi raunar hvorki upp né niður í þessu ; enn og trúði varl'a því, sem sagt hafði veriö. Hún var kaf rjóð i vöngum. Granir fingur frú Lyle- Lynn klemmdust5 um hand- legg hennar, og atigú hennar loguðu undir svörtum, máluð um hvörmum. Hún talaði fast og lágt: — Arfleiðslusvik og mök við kvænta menn virðist vera sérgrein yðár, ungfrú Venner. Yður hefir tekizt þetta enn, en það er ekki víst aö þér sleppið næ.st svoná auö veldlega. Þér ættuð að fara varlega. — Mér gezt ekki að dylgjum yðar, frú, sagði Katharine. Eg er aðeins fákæn ög einmana kona, sem reyni að afla niér viðurværis meö viimu minni. Eg er ekki gædd kostum yðar, hvorki efnalegri velmegun eða líkamsfegurð, en ég hefi reynt að gera skyldu mína gagnvart fólki, einnig við gömlu konuna, sem nú er dá- in, án þess að þiö sýnduð’ henni nokkurn ræktarvott. Eg hefi heldur ekki lagt það í vana minn að aívegaleiða .kvænta menn. Þér hljótið að hafa fengið. rangar upplýsing ar um mig, frú. Katharine hristi höndina af sér og gekk út. Hún titr- aði frá hvirfli til ilja, og hjart að barðist ákaft í barmi henn ar. Hún gat ekki enn gert sér fulla grein fyrir því undri, sem skeð haföi og mundi nú gerbreyta lífi hennar. Nú gat hún horft áhyggjulaus fram á leið, hvíit sig og hugsaö ráð sit í þeirri framtíð, sem fyrir stuttri stundu hafði virzt svo dapurleg og tilgangslaus. En hún mundi samt verða að finna sér einhverja vin í þess ari eyðimörk, vin sem hún gæti lifað í án Philips Mason. Hvað varðaði hana um á- girnd og mannvonzku fólks ins þarna niðri? Henni hafði tekizt að mýkja hið haröa og kalda hjarta frú Stone, og þangað hafði hún einnig sótt lítils háttar ástúöarvott sjálfri sér til handa. — Já, blessuð, gamla frú Stone, þetta va,r fallega gert af þér, sagði Katharine lágt við sjálfa sig og horfði fram fyrir sig rökum augum. 32. kafli. Fregnin um erfðaskrá frú Stone flaug sem eldur í sinu milli safnaðarfólksins, og nú tók það að spjalla um dóttur Bartons Venner. — Þaö var slysni að hún skyldi fara úr söfnuðinum, sagði Binns bróðir. — Þetta er aðlaðandi stúlka, sem auð- sjáanlega annaðist frú Stone vel. Drottinn hefir launað henni það miskunnarverk. — Fimmtíu þúsund á ári. Þaö er hreint ekki svo lítið, Bertha frænka, hvíslaði Rutli, er þær gengu af safnaðar- fundi. I —Já, sagði ég ekki, átti ég ekki kollgátuna, sagði Bertha áköf. Sumt fólk hefir ætíð heppnina með sér. Hún fer nú vafalaust til útlanda, en við verðum að vafra hér á sama blettinum. — Þetta er ekki réttlátt. Hún fékk líka meginhiutann af eignum pabba — og svo i þetta í ofanálag. ' — Þaö er líklega bezt að ég heimsæki hana, sagði Bertha frænka. — Það er bezt að ég fari strax á morg- un, þvi að hún dvelst varla lengi í húsinu. — Mér fyndist nú vel við eiga, að hún rétti bróður sín j um og systur hjálparhönd, ' sagði Ruth. — Skartgripirnir einir eru mörg þúsund króna virð'i. — Það er satt. Já, ég ætla að heimsækja hana á morgun. En það er samt 'bezt aö fara að öllu með gætni. — Mér finnst það nú ekki standa þér næst að fara til hennar, Bertha frænka. Eg á þó aö heita systir hennar. Ruth var dálítiö hvassyrt. — Jæja, við getum svo sem farið báðar. Eg kæri mig ekki um aö trana rnér fram. Eg vii aöeins gera það sem er gott og rétt. Ruth lét sér þetta lynda, -þótt henni gæt-ist ekki ails kostar vel að þessu. Henni var satt að segja ekki sérlega hlýtt til frænku sinnar þessa stundina. Þær voru allt í einu orðnar keppinautar, fannst henni. Katharine, sem þær höfðu litla virðingu sýnt til þessa, var allt í einu orðin mik ilsverð persóna i þeirra aug- um. Og daginn eftir heimsóttu þær Katharine. BfniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiiiininmiffiaimBiHiBinraniffliH® I ÞÝZKIR | I SKÍÐASKÓR | EE S 1 Stærðir: No. 36—40 kr. 317.00 Stærðir: No. 41—46 kr. 376.00 | Einnig mjög vandaðir tvöfaldir skíðaskór. | Stærðir: No. 38—45 kr. 654.00 | 1 Verzl. HANS PETERSEN H.F. = Bankastræti 4. — Sími 13213. 17llUIUlUllUI!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllillllllllllllilllllllllll|||||||IIIIII|||||||l[|||||||||i|||||||||||||||||||||||||j||||i|||||i Hríseyingar Fyrirhugað er að halda mót Hríseyinga á næst- 1 | unni, ef næg þátttaka fæst. Eru þeir, sem taka 1 | vilja þátt í mótinu beðnir að hringja í síma 32092 I I (Árni Garðar), 33328 (Jörundur Oddsson), 33375 §j (Svavar Pálsson), 15564 og 17093 (Jóhannes Jör- | | undsson). | = 2 ijliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiura Síyrktarfélag vangefinna | óskar nú þegar eftir konu, til þess að annast gæzlu vangefinna barna í litlum leikskóla. — Umsóknir sendist eigi síðar en 15. þ.m. til Sig- ríðar Ingimarsdóttur, Njörvasundi 2, sími 34941, sem gefur allar nánari upplýsingar. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinuimB Hiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiiiifiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiniiiin Skrifstofumaður Fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða mann til skrifstofustarfa. Kunnátta í meðferð skrifstofu- véla nauðsynleg. — Tilboð merkt .,Skrifstofa“ f sendist blaðinu fyrir föstudagskvöld. 1 a 1 auiiuumiiuimuiiiiiiimiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii í: 5 Innilega þakka ég öllum þeim, sem heimsóttu mig «C ■I og glöddu á áttræðisafmæli mínu. 5 % í 2« Jóhann Bjarnason 5 "* frá Patreksfirði. 5* i »- W.V.V.V^V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.’.WJ í ,5 t Ollum þeim mörgu nær og fjær, sem sýndu mér I* vinsemd á sextugsafmæli mínu með heiðursgjöf- Ij um, heimsóknum og heillaskeytum, þakka ég ’• hjartanlega. :• £ Pál! Björgvinsson, ^ Efra-Hvoli. W.W.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'/ZMP Hjartans þakkir færi ég börnum mínum, tengda- börnum og öðrum vinum, sem glöddu mig með gjöf- um og nærveru sinni á 70 ára afmælisdaginn og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Guðhjörg Gunnarsdóttir, Lambalæk ViS þökkum ykkur öllum af hcilum hug, sem sýnduð mér sam- úð og hluftekningu vlð fráfall og jarðarför Sigurbjargar Ámundadóttur. Eins viljum við þakka læknum og hjúkrunarkonum Sjúkrahúss Hvitabandsins þá líkn, sem þau veittu hinni látnu í þrautum hennar. Faðir, eiginmaður, börn, tengdabörn og barnaböm.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.