Tíminn - 12.11.1958, Blaðsíða 12
Lægir og léttir til.
1—3 stig um land allt.
MiSvikudagur 12. nóv. 1958.
Orðrómur um að börn hefðu verið
stungin var tiihæfulaus með öllu
Annaí kvetSst hafa dottií af reiíhjóli fyrir
hálfum mánuði, hitt var í mjólkurbuð, þegar
átti að grennslast um ástand þess
Blaðið frétti í gær, að fólk í Ilerskálakamp við Suðurlands-
braut hefði verið felmtri slegið nú um helgina vegna manns,
sem talið var að hefði stungið tvö börn með hnífi. Fylgdi
sögunni, að annað barnið lægi á sjúkrahús' með stóran skurð.
Mun hafa verið hringt til lögreglunnar út af þessu máli á
laugardaginn.
urinn yrSi gripinn. Á sunnudags-
morguninn mátti svo heita, að
skelfing ríkti í hverfinu, þar sem
börn voru talin í hættu.
Lögreglan mun svo hafa kynnt
sér þetta þá um kvöldið. i Her-
skálakamp héldu fullorðnir menn
því fram, að rétt væri hermt frá
hnífstungunum og töldu þeir sig
jafnframt þekkja þann skaðræðis-
mann, sem, valdur væri að þessu.
Munu einhverjir borgarar þar á
staðnum hafa ákveðið þá um
Datt af reiðhjóli
Blaðið leitaði staðfestingar á
þes'sari frétt j gærkveldi. Kom þá
í ljós, að lögreglumaður hafði far-
ið inn í Herskálakamp á sunnu-
Dúnþurrkunarvélin sundurtekin.
Dúnþurrkunarvé! Baldvins Jónsson-
ar þurrkar 10 kg á 2-3 klst.
Baldvin Jónsson, læknir, sem fundið hefir upp og smíðað
dúnhreinsunarvél, hefir sýnt fréttamönnum nýtt tæki, sem
liklegt er til að ryðja sér til rúms meðal þeirra, sem fást við
dúnhreinsun. Þetta nýja tæki er notað til að þurrka dúninn
og kallar Baldvin það dúnþurrkunarvél.
Baldvin seldi fyrstu dúnhreins
unarvélina 1954. Síðar hefur hann
flutt út 6 vélar, og 11 eru í notk
Un hér á landi. Afköst dúnhreins
unarvélanna voru minni en skyldi
vegna þess, að ekki var hægt að
þurrka dúninn nógu ört.
Baldvin hefur lengi haft þessa
nýju vél í athugun. í fyrra eyddi
hann 50 þús. kr. í tilraunir og
nú er árangurinn kominn í -ljós,
vélin fullunnin og tilbúin til
framieiðslu. SÍS keypti fyrstu vél
ina og nokkrar pantanir hafa bor
kvöldið að leita að náunganum og ' daginn . til að rannsaka frekar
handtaka hann og færa lögregl- hvað þarna væri á seiði. Var farið
heim til þess barns, sem átti að
liggja í sjúkrahúsi. Stóð það
htima, að barnið lá í sjúkrahúsi,
en hafði haldið því fram, að
meiðsli sín hefði það hlotið af því
að detta af reiðhjóli. Móðir barns-
ins skýrði hins vegar frá þvj, að
skurðurinn hefði verið það mikill
unni.
Sterkur og vopnaður
Nokkrir menn tóku sig nú sam-
an og hófu leitina að skaðvaldin-
uni. Töldu þeir sig hafa tvisvar (
komizt í færi við hann þá um
kvöldið, en treystu s'ér ekki til að ,
ieggja til atlögu við hann, þar I
sem þeir vissu að hann var sterk-
ur, og þó sem meira var, töldu að
hann hefði enn þann hníf með
höndum, sem hann hafði átt að
slinga börnin með. Varð því ekki
af því þarna um kvöldið, að mað
(Framhald á 2. slðu)
r-
Mælt fyrir vegi f rá Ar
nesi til Djúpuvikífi -
Trékyllisvík, 5. nóvember. Síðast
liðifí sumar voru sendir hingað
tveir sérfróðir menn til að ákveða
og mæla fyrir vegi frá Árnesi til
Djúpavíkur. Um tvær leiðir var
að velja. Skarðaleið og Kjörvogs
h'l'íð. Var Kjörvogshlíð fyrir val
inu og var mæl-t fyrir vegi að
Naustavík. Ekki kom þó til frek
ari framkvæmda, þar sem jarð-
ýta rækíunarsambandsins er í al
geru lamasessi og varahlutir hafa
ekki fengizt ennþá. Ai' þessum sölc
um féllu einnig niður jarðabætur
á þessu hausti.
Er þetta tvennt glöggt dæmi um
það, hve háðir mennirnir eru orðn
ir tækjum þessum með fram-
kvæmdir sínar.
En þörfin fyrir veginn er knýj
andi fyrir þá bæi, sem enn eru
ekki komnir í vegasamhand, því
aðdrættir á þungavöru á sjó eru
orðnir úreltir og nær óframkvæm
anlegt fyrir marga eins og nú er
háttað fólkshaldi á heimilum.
Lán úr Rjargráðasjóði kemur í veg
fyrir fækkun búpenings á Ströndum
Á sumum bæjum brugtiust túnin nær alveg, og
þar aí auki hröktust heyin mikiÖ
Breiðfirðingafélagið tvítugt - Afmælis
hóf í Félagsheimili Framsóknarmanna
en ekki er fullráðið hvernig því
starfi verður hagað. Ennfremur
er mikill áhugi fyrir byggðasafni
við Breiðafjörð og-'kvikmyndatöku
þar vestra.
Gerð vélarinnar.
Dúninum er komið fyrir í stál
tunnu, en rafmótor sogar heitt loft
upp í gegnum tunnuna. Hitakerf
ið er skammí ofan við botninn
á tunnunni, en speglar á botni
og loki kasla hitanum fram og
t:! baka. Gataðir málmhólkar úr
alumíni eru innan í tunnunni og
sogast loftið gegnum þá.
Þegar búið er að setja vélina
við rafstra-um, stígur hitinn upp
í 100 stig. Þá fer loftsugan í
gang. t>e'tta stjórnasí af sjálf-
virkum rofa. Rofinn rýfur hit-
ann við 140 stig, en kveikir aftur
við 120 stig. Um 10 kg. af meðal
hreinum dún komast í vélina í
einu. Þurrkunartíminn er breyti-
legur eftir rakamagni dúnsins og
heibergishita. Meðalþurrktími á
10 kg. af meðalhreinum dún eru
2 -^3 klukkustundir.
Áfengisvarnar-
nefnd kvenna
Áfengisvarnarnefnd kvennu í
•Keykjavík og Hafnarfirð: heklur
.fund í kvöld, miðvikudagi’in 12.
,þ. m. i Aðalstræti 12, kl. 8.30 síðd.
iStjórnin biður nefndarkonur að
:fjölmenna á fundinn.
Heyskapur á þessu sumri
var meS eindæmum lélegur.
Kom þar til bæði léleg
sprettá og ótíð, sem hélzt
hér lengi sumars eins og svo
víða annars staðar. Á sum-
um bæjum brugðust túnin
nær alveg, svo að töðufeng-
ur var ekki nema þriðjung-
ur þess, sem er i meðaiári.
| Alls staðar er hevíengur
minni en i fyrra og ofan i
kaupið mikið hrakinn, en
I það, sem bjargaði frá algerri
eyðileggingu var votheys-
j verkunin.
Um tíma leit út fyrir, að ekki
yrði komizt hjá því að fækka hú-
peningi stórlega. Ekki varð þó svo,
því að nú hefir fengizt loforð fyr-
ir verulegu láni úr Bjargráðasjóði
lil kaupa á heyi og fóðurbæti fyr-
i*- þá, sem þess þurfa. Af þessum
sökum verður fækkun minni en
orðið hefði, en þó er við búið að
full djarft verði sett á þær fóður-
birgðir, sem fyrir hendi eru.
Fé fjölgar
I Norðurfirði mun hafa verið
slátrað um 3000 fjár, og er það
meira en nokkru sinni áður. Staf-
ar þetta af því, að fé hefir heldur
f.lölgað hin síðari ár og lambahöld
vcru ágæt á s. 1. vori þrátl fyrir
kulda og hagleysi.
Dilkar voru nú miklum mun
rýrari til frálags en í fyrra. Nem-
ur það 1 til 2 kg. hjá flestum
bændum. Hæst meðalvigt var hjá
Jóni Valgeirssyni í Ingólfsfirði,
14,75 kg. G.P.V.
Framsóknarvist
í Keflavík
FramsóknarfélÖgin í Kefla
vík eru nú aS hefja vetrar-
starfsemi sína, og munu í!
sameiningu gangast fyrir
Framsóknarvist einu sinni í
viku. Vistirnar hefjast með
þriggja kvölda keppni í nýj-
um veitingasal í ASalstöð-
inni á fimmtudagskvöldið
kl. 8,30. Salurinn er hinn
vistlegasti og verði á veiting-
um stillt mjög i hóf.
Aðalfundur Framsóknarfélagsins
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur verður
haldinn í Framsóknarhúsinu föstudaginn 14, nóvember
kl. 8,30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Fundur í Félagi
Framsóknar-
kvenna
Féiag Framsóknarkvenna í
Iteykjavík heldur félagsfund á
venjulegum stað næstkoinandi
fimnitudagskvöld kl. 8,30. Rætt
verður um félaigsmál, en aðal-
imiræðuefiii fundarins verður
uiiigengnisiiienning æskufólks.
Framsögu í því máli hafa Alda
FétursdóUir og Valborg Bents-
óttir. Félagskonur fjölmennið.
BreiðfirSingafélagið, eitt
fjölmennasta átthagafélag
landsins mun halda ívítugs-
afmæli sitt hátíðlegt með
veglegu samsaéti í íelags-
heimili Framsóknarmanna
við Fríkirkjuveg 22. þ. m.
Þar verði fluttar ræður og
minni, sungið og dans stiginn.
Kalypsóparið Nína og Friðrik
syngja þar og skemmta.
Breiðfirðingafélagið hefir slarf-
ac að ýmsurn menningarmálum
og leitast við að treysta böndin
milli þeirt-a, sem heima eru og
heirnan eru fluttir. Félagið hefir
gefið út tímaritið Breiðíirðing,
sem flytur margs konar fróðleik
og minningargreinar um merka
Breiðfirðinga. Tvo sjóði hefir fó-
lagið stofnað, Minningars'jóð Breið
í'irðinga og Minningarsjóð breið-
i'irzkra mæðra við hina nýju Móð
urkirkju Matthfasar Jochumsson-
av á Reykhólum.
Eitt af aðaláhugamálum fólags-
ins er Byggðasafn Breiðafjarðar,
Aðalíundur Fram-
sóknarfélags
Mýrarsýslu
í
Framsóknarfélag Mýra-
sýslu heldur aðalfund sinn (
samkomuhúsinu í ■ Borgar-
nesi næst komandÞ laugar-
j dag, 15. nóv og hefst hann
kl. 2 e. h. Eysteinn Jónsson,
ráðherra, mun mæta á fund-
i _
! inum og ræða stjórnmálavið-
horfið ásamt þingmanni
kjördæmisins, Halldóri E,
Sigurðssyni.
Frækilegt Grænlandsflug
SíðastliSinn sunnudag fór
Sólfaxi Flugfélags ísiands
leiguflugferð til Thule á
Grænlandi fyrir danska
heimskautaverktaka. Á leið-
inni norður átti að fijúga yí-
ir Danmarkshavn og Dane-
borg á 'austurströndinni og
kasta þar niður vörum, er
flugvélin hafði meðferðis.
Er Sólfaxi átti skammt ófarið
til fyrrnefndra staða, barst skeyti
um að hætta við að kasta vörun-
um útbyrðis. Hélt flugvélin því
áfram ferð sinni til Thule og
lcnti þar á sunnudagskvöld.
Fárviðri
Aðfaranótt mánudags skall á
fárviðri í Suður- og Mið-Græn-
landi. Venjuleg flugleið frá Thulc
til Reykjavíkur um Syðri-Straum-
fjörð varð ófær vegna veðursins,
cn s'extán farþegar í Thule, sem
þurftu að komast sem fvrst til
Kaupmannahafnar.
Norður fyrir
Flugstjórinn ákvað að fljúga
fyrir norðan óveðrið og á hádegi
á mánudag var lagt af slað frá
Thule. Flogið Var í norðaustur og
koniið til Slation Nord á auslur-
ströndinni cftir fjögurra stunda
flug. Eftir aö hafa tekið eldsneyti
var enn lagl upp og flogið suður
með ströndinni í áft tiL íslands.
Til Réykjavíkur kom flugvélin kl.
2.30 á aðfaraiiótt þriðjudags og
hélt áfram til Kaupmannahafnar
næs'la niorgun. Flugstjóri í þessu
frækilega Grænlandsflugi var
Aðalbjörn Kristbjarnarson, að-
stoðarflugmaður Karl Schiöth,
flugleiðsöguinenn Eiríkur Lofts-
son og Frosli Bjarnason og véla-
menn Gunnar Valdimarsson og Ás-
mundur Daníelsson.