Tíminn - 30.11.1958, Qupperneq 7

Tíminn - 30.11.1958, Qupperneq 7
TÍMINN, sunnudagiim 30. nóvember 1958. 2 SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ Komið í veg fyrir eru lagðir vegna alþjóðar. - undan sauðargæru. - Þögn búnaðarafurða. - Furðulegí isflokksins. » A1 Miklar framkvæmdir Hin sí'ðustu ár hafa framkvæmd- ir verið mjög miklar hér á landi. Það er yfirlýst stefna núverandi ríkisstjórnar að kosta kapps um að koma í veg. fyrir atvinnuleysi m. a. með því að dreifa atvinnu- tækjum í alla landsfjórðunga. Ennfremur að stuðla að því með dreifingu fjármagns og fleiri ráðstöfunum, að haldið sé uppi miklum framkvæmdum í mörgum greinum. Sá árangur hef- air orðið af þessari stefnu ríkis- stjórnarinnar, að mjög mikið hefur •dregið 'úr búferlaflutningi fólks úr þremur landsfjórðungum til kaup- staðanna við Faxaflóa, en það er frumskilyrði fyrir jafnvægi í byggð landsins. Vegna hinna miklu fram- Ikvæmda hefur verið fengið all- niikið lánsfé erlendis að tilhlutun ríkisstjómarinnar og einkum fyrir ötula forgöngu fjármálaráðherra. En mjög mikið hefur þó þjóðin lagt fram af eigin fé í þessu efni. Fróðir menn telja, að um þrjá fjórðu hluta af hinni gífurlegu fjár- festingu eftir stríð hafi íslendingar ikostað af eigin fé. Við athugun, sem gerð hefur verið á því, hve miklum 'hluta af þjó'ðartekjum í nokkrum löndum Evrópu hefur verið varið til fjárfestingar á und- anförmwn árum, hefur komið í ljós, að ísland leggur meira fram til fjárfestingar í hlutfalli við þjóðar- tekjur en flest eða öll nágranna- löndin. Talið er, að fjórði hluti til þriðjungur þjóðartekna íslendinga hafi árlega farið t'il ýmissa fram- kvæmda hin síðari ár. Vegakerfií Það orkar ekki tvímælis, að vegagerð hér á landi hefur fleygt mjög.fram á síðustu áratugum. Það er langt síðan að sú skoðun var látin í ijós á Alþingi, að hinar erf- iðu samgöngur væri ein hin þyngsta þraut þjóðarinnar. Vega- málin voru ofarlega á baugi þegar á fyrsta þingi eftir að Alþingi fékk lög'gjafar\Tald, þótt þau vegalög, <sem þá voru sett, næðu skammt á nútíma mælikvarða. Þegar vegalögum var gjörbreytt fyrir rúmum fimmtíu árum, var talið, að akfærir vegakaflar alls í landinu væru um 240 km. Fyrir tuttugu árum voru akfærir vegir samtals 445.0 km. Nú eru þjóðvegir í landinu samtals yfir átta þúsund km. og er mestur hluti þeirra ak- fær. Hér við bætast sysluvegir, svo að alls eru akfærir vegir í landinu oi’ðnir um níu þúsúnd km. Eftir því sem vegakerfið lengist, umferð vex og farartækj stækka, hækkar að sönnu viðháldskostnað- ur vegann í heiíd. En þess ber að gæta í þvi sambandi, að bifreiðum fjölgar stöðugt og umferð um veg- ina eykst gífurlega. Það er eftir- tektarvert, að þegar tillit er tekið til bifreiðafjöldans í landinu, þá hefur viðhaldskostnaður þjóðveg- anna raunverulegá fárið lækkandi upp á síðkastiÖ hluHállslega á hvern km., sem bifrel.ð ekur. Vegir eru lagðir vegna albjótíar Sú skoðun kemur furðu oft fram hjá ýmsuiu, að þáu fjarframlög, sem fara til samgöngumála, séu veitt einungis végna þeirra byggð- arlaga, þar seni framkVæmdir eru gerðar. Þetta er mikill niisskilning- ur. Það er að sönnu böfuðnauðsyn hverri byggð að hafa góðar sam- göngur og þá ekki sízt að komast í viðunandi vegasambahd. Aukning ga. - Akfærir vegir helmingi lengri en fyrir 20 árnm. - Vegir ViShorf Sósíalistaflokkslns í raforktimálnm. - Úlfseyrú koma. ÞjáSviljans nm þýðingarmikil atriði. - Vísitala og verð lancl fyrirhærið í íslenzkum stjornmálum. - Köld ráð Sjáífstæð- þýðusamhandsfiing neitar sanngjörnu® tilmælum. 26. þing AlþýSusambands íslands hefir setið á rökstólum í KR-húsinu við Kaplaskjólsveg undanfarna viku. ^.Myndin er tekin yfir salinn og sýnir fulltrúa á þinginu. og viðhald vegakerfisins er því veigamikill þáttur í þeiri’i viðleitni að viðhalda jafnvægi í byggð iands- ins. En hér kemur fleira til. Vel- megun þjóðarinnar grundvallast á blómlegu at.vinnulífi og fjölþættu. Þar kemur hvort tveggja til greina mikil framleiðsla og margbrotin verkaskipting. Góðar samgöngur eru undirstaða fullkominnar verka skiptingar. Þess vegna verður þró- un í samgöngumálum að haldast í hendur við þróun atvinnulífsins. Flutningar á afurðum milli lands hluta er ekki sérmál framleiðenda, heldur jafnframt í þágu neytenda. Heimilin í Reykjavík og annars staðar við Faxaflóa, verða þess vör, þegar samgöngur teppast við mjólk ursölusvæðið. Þessu er svipað far- ið um gjörvallt land. Með hverju ár sem líður, batnar, og aðstaða fólks í þéttbýli til að ferðast' æ meira um landið. Þau fjárframlög, sem varið er til samgöngumála, valda miklu um það. Þess eru dæmi, að gerðar hafa verið kröfur um það, að byggðar yrðu brýr á fjallvegum, fyrst og fremst til þess . að gera ferðir til skemmtunar og kynningar á landinu auðveldari en ella. Með góðu vegakerfi sparast einnig stórfé árlega með minna við- haldi bifreiða. Nú eiga landsmenn 17—18 þús. bifreiðar, og hefur ver- ið gizkað á af þeim, sem bezt yfir- iic hafa um vegamál og samgöng- uí á landi, að rekstrarkostnaður ailra bifreiða, sem nú eru í eigu L'lendinga sé í heild tim 250 millj. kr. árlega. Er þá til mikils að vinna að stuðla að sparnaði á þeim lið. Eitt af því sem. takmarkar lífs- kjör þjóðarinnar og velmegun er það, hve atvinnuvegir hennar eru einhæfir og hve erfitt er um öfl- un erlends gjaldeyris. Margir telja, að ísland hafi góð skilyrði til þess, sökum fegurðar og fjöl- breytni íslenzkrar náttúru, að laða ti; sín mikinn fjölda erlendra ítrðamanna, ef af þjóðarinnar hálfu er sæmiiega búi'ð í haginn á því sviði_ Gæti þá orðið um nýja atvlnnugrein að ræða, sem skilaði crlendum gjaldeyri í þjóð- arbúið. En eitt, af frumskilyrðum þess, að svo geti orðið, er það, að lialdið sé við góðu samgöngu- kerfi og það sífellt aukið og end- urinn hyggst framfylgja jafnrétti, uibætt. dæmi um það, hvernig það jafn- rétti er, sem flokkurinn hefir ætlað íbúum sveitanna gagnvart þeim lífsþægindum,, sem rafork- Jaínrétti í ortSi, en ekki á boríi Sósíalistar telja sér það til gildis, að þeir vilji stuðla að miklum framkvæmdum í landinu og jafnrétti meðal þjóðarinnar. — Og á sínum tíma tóku þeir undir nýsköpunarsönginn, eftir því sem raddstyrkur þeirra leyfði. Hér í blaðinu hefir verið frá því skýrt, a'ð formaður Sósíalistaflokksins hafi réttilega á það bent í um- ræðum á Alþingi, að menning ís- lenzku þjóðarinnar og ýrhis þjóð- leg verðmæti væri í nánum .tengsl rm við atvinnuhætti þjóðarinnar og hina dreifðu búsetu hennar um allt iand. En af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. Það, sem gildi hefir, er ekki fagurgali í orði, heldur hver alvara fylgir í fram- kvæmd. Þegar frumvarp til raforkulaga var til umræðu á Alþingi, gaf einn af þáverandi þingmönnum Sósíal- istaflokksins eftirtektarverða yfir lýsingu, að því er virðist fy-rir fiokksins hönd. Honum fórust þsnnig orð: „Þegar Sósíalistaflokkuriun átti þess kost að tilnefna mann (í nefnd þá sem undirbjó raf- orkulögin), þótti honnm rétt að taka því, þó að hann liti svo á, að það væru fjarstæðukenndir draumórar að ætla sér að koma nægilegri raforku til suðu og hitunar um ailar byggðir lands- ins. Flokkurinn tildi það ennfrem- ur óeðiilegt, að afláð væri fjár til þessara franikvæmda sérstak- lega, framkvæmda, sem vitað er að þurfa að fylgja annarri þró- un í atvinnulífi landsmanna og væru henni svo nátengdar, að ekki má gera þar upp á milli. Loks Ieit flokkurinn svo á, að ekki næði nokkurri átt a'ð ætla að binda verð raforkunnar þann- ig, að raforka verði ekki seld hærra verði í sveitum og dreif- býli en í stærstu kaupstöðum."' Þetta er eitt dæmi af mörgum um það, hvernig Sósíalistaflokk- an veitir. Þar mér er úlfs von, er ég eyru sé Undanfarna dag3 hafa greini- lega sézt úlfseyru undan sauðar- gæru Þjóðviljans. Þar er lýst þeirri skoðun, að það sé mein- semd í þjóðarbúskap íslendinga, að of miklar framkvæmdir séu gerðar í sveitum landsins. LandbúnaSur og sjávarútvegur hafa í margar aldir verið aðal- atvinnuvegir þjóðarinnar og veitt henni lífsskilyrði fram á þennan dag. Það er mikil sjónskekkja og furðuleg að geta ekki horft á sjáv- arútveginn án þess að ljta land- búnaðinn hornauga um leið. Ef meta á hlut landbúnaðarins ann- ars vegar og hlut sjávarútvegsins hins vegar kemur fleira til greina en í frásögn Þjóðviljans felst. Hvort skyldu hafa orðið meiri vanskil á fjármagni, sem lánað hefir verið, frá landbúnaði eða sjávarútvegi? Skyldi það fjármagn, sem lagt hefir verið fram vegna Faxaverk- smiðjunnar og Hærings, svo að dæmi séu nefnd, hafa bætt meira þ.ióðarhag en það fé, sem fer til ræktunar i sveitum? Er þessi þáttur inálsins, að dómi Þjóðviljans, einkamál auð- kýfinga? „Hin heiíbrigtia vinstri stjórnarstefna“ Þjóðviljinn hefur kvartað yfir því, að Framsóknarflokkinn skorti viija til þess að framkvæma „heil- brigða vinstri stjórnarstefnú*. En það er eftiríektarvert, að blaðið lætur undir höfuð leggjast að skýra það, hvað í þessu feist. Er það heilbrigð vinstri stjórn arstefna, að dómi Þjóðviljans, að hækka sífellt á víxl kaupgjald og verðlag án tillits til afkomu at- vinnuveganna? Er það hin heil- brigða vinstri stjórnarstefna, að dómi Þjóðviljans, að lækka ein- ungis afurðaverð bænda, og rjúfa samræmi það, sem nú er íiiilií tekna bænda og verkamanna, Er það sú jafnréttis'hugsjón, sem bær ist í barmi sósíalista? Hvað hefur Alþýðúbándálagið gert til þess að 'tryggja það, að eigendur fiskvinnslustöðva skili út gerðarmönnum og sjómönnum. sannvirði fyrir aflann? Hvað hefur Alþýðubandalagið gert til að draga úr byggingav- kostnaði, m.a. með því að koma " fram breytingum á tekjuöfiunar- aðferðum iðnlærða manna, í byggingariðnaði? Sá kostnaðar bitnar þó á leigjendum í formi hárrar húsaleigu. Vísitala og ver<$ Iandbúnaíarafur<Sa í lögum um framleiðsluráð iand búnaðarins segir svo: „Söluverð landbúnaðarvara á innlendum markaði skal niiðast við það, að heildartekjur þéirra, er landbiinað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur ann arra vinnandi stétta“. Þessi lagaákvæði hafa verið í gildi síðan 1947 og eftir þeim farið við ákvörðun verðs á framleiðslu- vörum bænda. Við verðlagningu á þessum vörum er byggt á verð grundvelli, sem feng'inn ér sam- kvæmt lögunum með samkomu- lagi milli fulltrúa framleiðenda og neytenda. Þegar kaup bænda var ákveðið með verðákvörðun landbúnaðai- vara í byrjun september sd- var miðað við kaupgreiðsluvísitölu 185. Grunnkaup í verðlagsgrund- vellinum var reiknað með hækkun þeirri, sem þá hafði orðið hjá ýmsum verkalýðsfélögum og var 6%. Grunnkaup hækkaði skömmu. síðar hjá Dagsbrún í Reykjavík um 9% %. í umræðum og ákvörðunum unx efnahagsmálin kemur m.a, til at- hugunar hjá verkalýðssamtökun- um að falla frá kauphækkun vegna vísitöluihækkana að einhverju leyti. í því sambandi má vekja »t- hygli á því, að ef iaunamenn sleppa visitöluuppbótum á kaup að einhverju leyti, kemur pað af sjáifu sér, að bændur fá pa ekki. heldur þá vítf;ltöluhækkun, þar sem kaup þeirra er ákveðid eftir á, eftir lekjum annarra viunandi stétta. Þannig hafa ákvaroairir um greiðslu vísitöluúppbótar á kaup á- hrif á verðið á landbúnaðarvörun um. Verði vísitöluuppbótin a kaup manna í stéttarfélögunum tak mörkuð, hefur það í för með sér lægra verð á landbúnaðarvörum við ákvörðun þess á næsia ari. „Gvmnastik“ Sjálfstæ<Sisflokksins Það er í minnum haft, ai' greind ur þingmaður og mikils metinn, sem árum saman hafði átt höggi við íhaldsöflin í landim , ' -æði á Alþingi og í héraði, lél svp. um- mælt, er hann í senn ier: fir, far- inn veg og til framtíðariunar, að allra furðulegasta fyrirbæriú í ís- lenzkum sfjórnmáluhi væri „gymnastik“ Sjálfstæðisfloiksins. Þetta furðulega fyrirbæri birtist m. a. í því, að Sjálfstæðisíi.okkur | inn þættist vera orðinn vyrkalýðs ! flokkur. Síðan hinn reynfii þing- 1 maður og glöggskyggm ga. > essar j bendingar, hefur þetta iurðulega fyrirbæri -— „gymnasíik Sjálf- (Framh. á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.