Tíminn - 10.01.1959, Qupperneq 7

Tíminn - 10.01.1959, Qupperneq 7
IÍMI.NN, laugardaginn 10. janúar 1959. HALLDÓR KRISTJÁNSSON: Góðtemplarareglan á íslandi 75 ára Þegar liSnir eru þrír ald- arfjórðungar síðan merki Góðtemplarareglunnar var fyrst hafið á loft hér á landi er ástæða ti! að hlöðin birti eitfhvað í tilefni þess af- mælis. h'ér verður hvorki rakin saga Reglunnar né rit- uð skýrsla um ástand henn- ar og hag, en aðeins reynt að gera lauslega grein fyrir sögulegri þýðingu hennar og framtíðarverkefnum. Góðtemplarareglan nemur land Sjötíu og fimm ár eru liðin síðan fyrsta stúka Góðtemplara- reglunnar var stofnuð hór á landi. Norskur skósmiður, sem dvaldist á Akureyri nokkur ár, Ole Lied að nafni, gekkst fyrir félagsstofnuninni. Tóíf menn S'tofnuðu stúkuna ísafold á A'k- ureyri 10. janúar 1887. Þriðjung- fur stofnendanna voru útlending- ar, — Norðmenn — og þrír þeirra höfðu skamma dvöl hér á landi. Einn af stolnendum þessarar fyrstu stúku var Ásgeir Sigurðs- soh, síðar kaupmaður og ræðis- maður, kenndur við verzlun sína Edinborg í Reykjavík. Hann var þá kornungur maður, fæddur 1864, en hafði dvaiizt í Skotlandi og verið þar í barnastúku. Hann varð strax umboðsmaður hátcmpl ars og' þar með fulltrúi alþjóða- hreyfingarinnar í félagsskap tempiara hér á landi. Ásgeir Sig- urðsson stofnaði strax á sama ári aðrar stúkur við Eyjafjörð. Hann fór líka til Eyjafjarðar vor- ið 1884, 'en þar átti þá heima faðir hans Sigurður Andrésson. Þeir feðgar gróðursettu Regluna á Vestfjörðum. Sumarið 1885 scndi stúkan ísa- fold Björn Pálsson ijósmyndara til Reykjavíkur. Hann stofnaði þar fyrstu stúkuna syðra, Verð- andi í RÆykjavík. Þar með hafði Góðtemplara- reglan náð fótfestu í þremur landsfjóröungum og breiddist til- íölulega ösrt út. Þjóðin tók þessum félagsskap faghandi. Hann reyndist vera mjög vel tímabær. Nýir fímar Hér verður ekki rakin saga Góð templarareglunnar á íslandi, en stofnun hennar og landnám er svo mierkur atburður að hans mun jafnan minnzt í sögu þjóð- arinnar. Því er rétt að gera sér grein fvrir áhrifum og þýðingu hennar í aðalatriðum. FélagsSkapur eins og þessar stúkur var fullkomin nýjung í menningarlífi landsmanna. Strax 27. janúar 1884 gengu tvær kon- ur í stúkuna ísafoid. Það er merkisatburður í sögu kvenrétt- indanna á íslandi. Þarna var kominn félagsskapur, sem í verki viðurkenndi jafnréíti kven'na. Þarna var frjáls og opinn vett- vangur, þar sem íslenzka konan gat gengið til starfa í þjónustu Hús Friðbjarnar Steinssonar á Akureyri. A kvistinum í húsi þessu var st. ísafold nr. 1, stofnuð 10. janúar 1884, og þar með Góðtemplarareglan á íslandi við menningarmál og hundruð kvenna notuðu sér það. Góðtemplarareglan átti sér 30 ára sögu að baki, þegar þetta var. Að formi til byggði hún að öðr- um þræði á fornum arfi frá regl- um miðaldanna,. en var að öðr- um þræði mótuð og sldrð af rót- tækustu frelsishugsjónum og lýð- ræðiskröfum aldarinnar. Hún er stofnuð í Bandaríkjunum, sem þá og lengi síðan voru draumaland og fyrirmynd róttækra manna og uppreisnargjarnra. Ilún er byggð á öruggri trú á guðlega vernd og þann mátt, sem ekki er af þessum heirni en kom.ið getur mönnum til hjálpar og frelsunar, en bindur sig ekki að öðru leyti við neinar trúarskoðanir, en við- urkennir í verki fullt trúfrelsi og jafnrctti allra manna hvað sem líður þjóðerni, stétt eða trú. Bræðralag allra manna er grund- vallarhugsjón Góðtemplara. HStt var svo í samræmi við lýðræðis- skipulag aldarinnar, enda nauð- syn, þar sem mikið var starfað, að Reglan átti sér fullkomin fund arsköp og félagsreglur, sem voru mikil nýjung. ■ j í fyilingu íímans Saga bindindismála c-r ekki löng m.eðal vestrænna þjóðta. Hér á lándi má segja að aðdragandi hennar hefjist á 18. öld með bar- áttu Jóns biskups Árnasonar gegn ofdrykkju og innflutningi brenni víns. Snemma á nítjándu öid voru mynduð öflug og áhrifamikil bind indissa.mtök í Bandaríkjum Am- eiúku. Það var fyrsti þáttur-mik- illar sóknar gegn áfenginu. Það- an bárust áróðursrit til Norður- álfu. Þessi bindindíshreyfing mun að nokkru leyti hafa átt rætur að rekja til Benjamíns Franklíns. Hann var að sönnu mi'kils metinn meðan hann lifði cg gegndi lengi sendiherrastöðu fyrir Ba'ndairíkin í F-rakklandií. Hann var alla tíð bindindismiað- ur og þótti aldrei lclegur mál- svari þjóðar sinnar, þó að hann sæti ekki að sumbli með hirðinni frönsku. En svo mikils sem Benja- mín Franklín var virtur og met- inn meðan hann lifði, þykir ýmis- legt benda til þess, að áhrif hans hafi verið mest eftir að hann var fallinn frá: Bindindisfélögin am- erisku eru eitt af þvi, sem spratt upp í anda Benjamíns Franklíns. Bindindi Fjölnismanna, sem að vísu hófst úti í Danmörku, var runnið frá áhrifum amerísku bindindisfélaganna. Ahrif Fjölnis manna náðu um allt ísland og síðar voru öðruhvoru stofnuð bindindisfélög víðs vcgar um ís- land. Flest urðu þau skammlíf FRiÐBJÖRM STEINSSON, bóksali á Akureyri Skipulag þeirra og form var laust í reipum. Þjóðin var ekki félagsvön. En hún -var að vakna. Og þessi vaknandi þjóð þreifaði fyrir sér. i samræmi við hugsjónir og gæfu þjóSarinnar Þjóðfrelsisbarátta íslendinga var orðin býsna víðtæk þegar Góð- templ 'raveg’jt.n nam land á í's- landi. Jón Sigurðsson hafði fýri-r fáum árum runnið skeið sitt á enda. Undir forustu hans var los- að um ýmsa hnúta. Verzlunin var Núverandi framkvaemda- nefnd: Fremri röð, frá vinstri: Jens E. Nielsson, Ólafur Þ. Kristjánsson, Ragnhildur Þorvarðard., Benedikt S. Bjarkiind, Gissur Pálsson, Jóhann Ögm. Oddsson, — Aftari röð frá vinstri: Haraldur S. Norðdal, Gísli Sigur- geirsson, séra Arelíus Níelsson, [ndriði Indriða son, séra Kristinn Stef- ánsson, Jón Hafliðason. frjáls. Fjárveitingarvaldið var komið í hendur Alþingis' og lög- gjafarvaldið að mestu. Þjóðin hafði eignazt ýmsa góða skóla í verklegum og andlegum efnum, þó að flestir væru ennþá ekki nema vísirinn einn. Nýir atvinnu hættir ruddu sér til rúms. Inn- lend, frjáls og almenn félagssam- tök voru að myndast um verzlun- ina. Þetta var sá jarðvegur, sem gerði þjóðina móttækilega fyrir Góðtemplarar.egluna. Gildi hins einstaka manns, þýðing hans og ábyrgð, var viðurkennd undirstaða þjóðfrelsis og velmegunar. Jón Sigurðsson þreyttist aldrei á því að brýna fyrir mönnum að efna- legt sjálfstæði væri skilyrði þjóð frelsis og sjálfstæðis og einhver versíi þröskuldur efnalegs sjálf- stæðis taldi hann og fleiri að væru brennivínskaup og drykkju- skapur. Bindindisstarfsemin fóll því inn i sjálfstæðisbaráttuna sem j þýði.ngarmikill þáttur hennar, i auic þess semi jafnrétti og aðrar 1 lífshugsjónir Reglunnar voru sem hressandi svölun vaknandi alþýðu, sem þyrsti eftir að bæta íand sitt og þjöðfólag. Þetta er skýring þess'. hve út- breiðsla og stárfsemi Góðtempl arareglunnar var mikil og glæsi- leg, strax.á fyrstu árunum. Sóknin mikla Baráttan við áfcngið var háð ai' meiri festu og með meiri ár- angri en nokkru sinni eftir að >amtök templara tóku að eflast. Snjallir baráttumenn ávörpuðu þjóðina á þann hátt, að menn tu að taka eftir því og muna. Björn Jónss'on, síðar ráðherra, ritaði grein sína um mannskað- ann railda í lærða skólanum, þar sem hann benti á, svo að ek'ki varð hrakið að af h.u.b. 300 stúd- entum síðustu 35 árin áður en Góðtemplarareglan nam land í Reykjavík, 1851—1885, hefðu 110 —130 or'b\l3 ofdrykkjumenn, en þar flokkaði hann ,,þá eina, sem alkunnugt er, eða hefir verið um, þeir lifa varla nokkurt misseri svo, að þeir drekki ekki þrásinn- is frá sér ráð og rænu eða þá lendi í sjónlausu drykkjudrabbi tímum og dögum saman. hér um bil hvenær sem færi býðst.“ A£ þessum, ofdrykkjumannahópi tepptust 27 frá að ná fyrirhug- aðri stöðu, 10 misstu embætti og 2 urðu vitskertir. Þriðjungur af hópnum var dáinn þegar greinin birtist 1892, allt ungir menn. Enginn þorði að mæla móti þessari skýrslu opinbevrlega og vantaði þó hvorki vilja né löng- un. Guðmundur Björnsson, land- læknir síðar, flutti fyrirlestur, sem síðan var prentaður, þar sem hann svipti sundur blekking um áfengisnautnárinnar af frá- bærum skarpleika og með skír- skotun til læknavísindanna. Slíkir menn voru ómetanlegir til forustu og vakningar, en það var lika mikið lið og áhugasamt sem að baki þeim stóð. Bindindis- semi varð líka meiri með þjóð- inni en noklcru sinni fyrr. Ný menning — nýtt þjóSfélag Þó að saga Reglimnar kringum aldamótin sé bæði merkileg og glæsileg segir hún þó ekki allt um áhrif hennar í þjóðlífinu þá ná langt út fvrir íélagsskap templ ara. Það hefir oft verið sagt og má heita alkunnugt að templara- húsið í Reykjavík var um skeið helzta samkomuhús höfuðstaðar- ins. Það er vitanlegt, að innan Regl- unnar hófst leiklistarlíf til þroska í Reykjavík, og þar liggja rætur.n ar að Leikfélagi Reykjavíkur. íþróttahreyfingin nærðist af starfi templara. Glímufélagið Ár- miann var t.d. angi, sem óx frá einni stúkunni í Reykjavík. iFramh. á 8. síðu Á víðavangi Fall vinstri stjórnarinnar Forystugrein Ilags 7. þ. m. fjallar um seinustu atburðí ;t sviði stjórnniálmma. í uppliaft segir svo: „Þáttaskil hafa orðið í stjórn málum landsins, ný stjórn tekin við völdum og framundan hal- röm átök í tvennum alþingi - kosningum í sumar vegna þeirra breýtinga á kjördæivi::- ! skipun laudsins, sem hin nýja j stjórn Emils Jónssonar fo - j sætisráðherra hefur boðað. Or- svikirnar til stjórnarslitanna og fráfarar vinstri stjórnarinnar má fyrst og' freiiist rekja til tveggja andstöðuflokka 'ríkis- stjórnarinnar sjálfrar, þar sei voru íhaldssinwiðir Alþýðu- flolcksmenn og Moskvukoinmún istar. Þessir flokkar báðir sveigð ust æ meira til andstöðu viffi ríkisstjórnma og til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn Uiii aö koma henni frá völdum.“ Dag'ur rekur síðan, að smiðs- hög'gið ivrfi verið reki'ð á verk- ið, er Alþýðusambandið hafnaði að veita frest til að stöðva verð- bólguna og Alþýðubandálagiffi gérði hinar ómunhæfústu tillög ur þingsins í efnahágsriialununi að tillögum sínuni í ríkisstjórn- inni. Við það varð stjórnin ó- starfhæf og' ekki arinað fyrir hana að gera en biðjast: lausn- ar. Olafi mistókst. Dagur segir síðan: „Eftir fall vinstri stjórnarinn ar reyndi Ólafur Thors að íriýhda stjórn með kommúriistuin, ' em mistókst. 1 þeim tilmunum var Sjálfstæðisflokkurinn neydduE til að gefa út stefnu Síria í efna hagsmálum og kom hún nlönn- um undarlega fyrir sjónir. Meðal. annars taldi liann nauðsynlegl, að LÆKKA kaupið og þurftu. sumir að lesa tvisvar, því a,ð síffi an sá flokkur varð stjómarand- stæðingur gekkst hann bæði leynt og' ljóst fyrir kauphækkum um, iét meira að segja flokks- menn sína í hópi atvinnurekenda bjóða kauphækkanir til aði'ögra Iaunastéttunum.“ Samstarfi slitið_ Dagur ræðir síðan um stjórn- arsamstarf Sjálfstæðisflokksins og' Alþýðuflokksins. Hann segii m.r.: „Það vakti nokkra furðu og enn fremur sársauka, að Alþýðu flokkurinn skyldi á þann hátl upphefja liið nána samstarf við Framsóknarflokkinn, sem mynd að var fyrir síðustu kosningar, sérstaklega þar sem Framsókn- armenn höfðu fylkt sér fastasl uni frambjóðendur samstarfs- flokksins eins og til dæniis héi á Akureyri. Alþýðuflokkurinn var svo illa kominn fyrir síðustu kosning'ar, ,að það var öldungis óvíst, að hann hefði komið nokkrum manni á þing án hjálp ar. Þessi fiokkur þykist nú þess umkominn að stjórna Iandinu og lætur sig ekki muna iim það að boða breytta kjördæiraskipun til að tryggja íhaldinu völd á kostn a'ð Framsóknarflokksiris. Stéfna" íhalds og krata er sú, að skérða rétt hinna dreifðu byggða frá því sem nú er og' þarf nokkur brjóstheilindi til þessa tiltækis. Má niikið vera ef landsfólkinu líka þær fyrirætlanir hinnat nýju ríkisstjórrnr og Sjálfstæðis flokksins, að setja upp slíka ’ref- skák einhverra reiknimeista a pólitískra foringja í Reykjavík, sem sumir hverjir eru berir að því, að vita ekki einu sinni um harðindi í heilum Inndshlútiiin, samanber ummæli forsætisráð- lierra.“ Kiördæmamáltð. Að lokum segir Dagúr: „Margir ókostir fylgja því að skipta landinu í stór en fá kjör- dæmi, svo sem nú er ætlað, og vi'ðhafa hlutfnllskosningar. Sá málflutningur, að með hlutfalls kosningum í stónun kjördæriunri náist hið æskilega jafnvægi og (Framb á 8. siðuj

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.