Tíminn - 05.02.1959, Blaðsíða 6
6
L
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargðtu
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304.
(skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn>
Auglýsingasimi 19 523. - Afgreiðslan 12323
Prentsm. Edda hf. Síml eftir kl. 18: 1394«
Stjórnarblöðin og verðlækkanir
ÞEG-AR Framsóknarflokk
urinn lagði það til í fyrrv.
ríkisstjórn, að vísitalan
yrði bundinn í 185 stigum,
m.a. meo nokkurri niður-
færslu hennar, var honum
það vel ljóst, að því fylgdi í
bili nokkur kjaraskerðing
miðað við, að launþegar
fengju fullar vísitöluuppbæt-
ur. Hins vegar myndi það
verða þannig, þegar frá liði,
að launþegar töpuðu meira á
vísitö).ukapphlaupinu en sem
svaraði umræddri skerðingu
vísitölunnar. Þegar allt kæmi
til alls, væri því vísitölubind
ing til hagsbóta launþegum,
enda væri með bindingu
hennar í 185 stigum hægt að
tryggja sama kaupmátt
launa og var í febrúar
eða október siðastl. ár.
Núverandi ríkisstjórn hef
ur farið inn á þá braut að
reyna að festa vísitöluna í
175 stigum. í bili mun þetta
reynast meiri kjaraskerðing
en binding hennar í 185 stig
um, þrátt fyrir þær verðlækk
anir, sem eru taldar koma á
móti þessum 10 stiga mun.
Þrátt fyi'ir það gildir hiö
sama um festingu vísitölunn
ar i 175 stigum og í 185 stig-
um, aö þegar frá líður, mun
þetta reynast launþegum
heppilegra en áframhald-
andi kapphlaup vísitölunnar.
EIGI þær ráðstafanir,
sem nú er verið að gera í
sambandi við vísitöluna að
ná tilætluðum árangri, skipt
ir það miklu máli, að menn
fái strax réttar upplýsingar
um eöli þeirra. Alltof marg-
ar efnahagsráðstafanir hafa
einmitt misheppnazt vegna
þess, að mönnum hefur verið
sagt rangt til um þær. Það
hefur verið sagt, að þeim
fylgdi engin skeröing; menn
hafa svo fyllzt vonbrigðum,
er þeir reyndu annað, og það
skapað jarðveg fyrir áróður
kauphækkunarpostulanna.
Því miður virðist eitthvað
svipað þessu ætla að gerast
nú. í stjórnarblöðunum, —
Morgunblaðinu og Alþýðubl.
— er nú reynt að gera sem
mest úr þeim verðlækkunum,
sem fylgja vísitölulækkun-
inni, og er þannig reynt að
gefa í skyn, að henni fylgi
ekki nein kjaraskerðing í.
bili. í Mbl. er jafnvel reynt
að gefa í skyn, að 5% lækk-
un álagningar sé sama og
5% lækkun á vöruverði,
enda þótt hún i mjög mörg-
um tilfellum lækki vöruverð
minna en um 1%. Alþýðu-
blaðið gengur jafnvel lengra
og útmálar jafnvel lækkun
húsaleigu, er í flestum til-
fellum mun reynast óraun-
hæf.
TÍMINN varar við þess-
um áróðri stjórnarblaðanna.
Hér er bezt að segja sann-
leikann. Annars kunna síð-
ar að skapast vonbrigði, er
geta ýtt undir kaupkröfur og
verkföll. Þessum ráðstöfun-
um fylgir óneitanlega nokk-
ur kjaraskerðing í bili. Samt
eru þessar ráðstafanir óhjá
kvæmilegar vegna þeirra
kauphækkana, sem knúðar
voru fram á síðastl. sumri.
Annars hefðu þær leitt til
nýs kapphlaups, er hefði
stöðvað atvinnuvegina. Það
er betra að "færa nokkrar
fórnir i bili, en að eiga yfir
höfði sér enn meiri kjara-
skerðingu síðar af völdum
atviniiustöðvunar og verð-
bólgu.
Fyrirspurn svarað
ALÞÝÐUPÍ-GKKURINN
spyrst nýlega fyrir um það,
hvernig Framsóknarflokkur-
inn hafi viljað haga af-
greiðslu efnahagsmálanna
■að þessu sinni. Þessu er auð
velt aö svara, þvi að varð-
andi þetta atriði, lagði flokk
urinn fram ákveðnar tillög-
ur í fráfarandi ríkisstjórn.
Þessar tillögur voru í megin
atriðum þær, að reynt yrði
að festa vísitöluna í 185 stig
um, bæði með beinni lækk-
un hennar og takmörkuðum
niöurgreiðslum. Jafnframt
væri svo svo lagt höfuðkapp
á það, að rekstur ríkissjóðs
og Útflutningssjóðs yrði
hallalaus, enda er það frum
skilyrði þess að verðbólgan
verði stöðvuð.
Núverandi ríkisstjórn hef
ur tekið upp einn þátt þess-
ara tillagna, niðurfærslu vísi
tölunnar um vissan stiga-
fjölda, Enn hefur hún hins
vegar ekki tekið upp þann
þátt tillagnanna, að stefna
að hallalausum rekstri ríkis
sjóðs og Útflutningssjóðs. —
Þvert á móti virðist nú stefnt
þar að stórfelldum halla-
rekstri. Um þetta er þó enn
ekki fullkomlega vitað, því
að stjórnin hefur enn ekki
lagt fram ákveðnar tillög-
ur um það atriði. Meðan ó-
víst er um þetta meginat-
riði, taldi Framsóknarflokk-
urinn sér ekki fært að greiða
atkvæði með vísitölulögun-
um, því að með því hefði
hann tekið ábyrgð á stjórnar
stefnunni. Hins vegar vildi
hann ekki bregða fæti fyrir
vísitölulækkunina, þar sem
hann taldi hana stefna í
rétta átt, og sat því hjá við
atkvæðagreiðsluna. Það fer
hins vegar alveg eftir því,
hvort tryggöur verður halla-
laus rekstur rikissjóðs og Út
flutningssjóðs, hvort vísitölu
lækkunin ber tilætlaðan ár-
angur eða ekki.
Þess vegna leggur Fram-
sóknarfiokkurinn slíka höf-
uð áherzlu á það, að rekstur
þessara sjóða verði hallalaus.
Þetta sama gerði líka Al-
þýðufl. áður en hann bjóst
við kosningum á þessu ári,
eins og flokksþingsályktun-
T í M I N N, fimmtudaghui 5. febrúar 1959.
ERLENT YFIRLIT:
Hylli Macmillans minnkandi
Reynir hann aíi vinna upp fylgistapití meí feríalagi til Moskvu?
ÞAÐ ÞYKIR nú orðið ó-
sennilegt, að þingkosningar fari
fram í Bretlandi á vori komandi,
eins og yfirleitt hafði verið spáð
um skcið. Kjörtímabilinu lýkur
að vísu ekki fyrr en vörið 1960,
en það er venja ríkisstjórna í
Bretlandi að i'júfa þingið og efna
til kosninga nokkru áður en kjör-
tímabilinu lýkur, ef þær telja
flokk sinn sigurvænlegan í kosn-
ingunx. Framan af vetri þóttu
kosningahoi'fur ihaldsflokksins
mjög sæmilegar og var því búizt
við, að Macmillan myndi efna til
kosninga þá og þegar. í öllum
skoðanakönnunum, er þá fóru
fram, bar íhaldsflokkurinn slgur
úr býtum, eða öfugt við það, sem
verið hafði fyrir ári síðan, Yfir-
leitt var þessi breyting skýrð með
því, að Macmillan hefði unnið sér
aukið traust almennings, þótt erf-
itt væri að sjá rökréttar forsend-
ur fyrir því. Ein skýringin er ef
til vill sú, að Macmillan hefir
getað leikið nokkuð á þjóðernis-
tilfinningar ýmissa, því að hann
hefir verið.að revna að láta Bret-
land haga sér eios og heimsveldi
á 19. öld, en aðallega hefir það
þó bitnað á smælingjum eins og
Kýpurbúum, Möltubúum og ís-
lendingum. Hitt virðist brezkur
almenningur hafa síður komið
auga á, að undir forustu Macmill-
ans fer áliti Breta mjög hrakandi
út á við, einkum þó í Asíu og
Al'riku. í stjórnartíð Attlees benti
margt til þess, að Bretar myndu
geta orðið áhrifamiklir áfram með
því að takast á hendur eins konar
andlega og siðferðilega forustu
eftir að þeir misstu aðstöðuna
sem heimsveldi, er byggðist á
vopnavaldi og yfirgangi, líkt og
var á 19. öld. Þessar vonir dofn-
uðu nokkuð eftir að þeir Chure-
hill og Eden tóku við, og
hrundu svo alveg til grunna, er
Bretar og Frakkar gerðu ái-ásina
á Egvptaland haustið 1956. Siðan
hafa Bretar stöðugt verið að tapa
áliti á alþjóðlegum vettvangi,
einkum þó meðal þjóða Asíu og
Afríku.
Macmillan
AUKAKÖSNING, sem fram
fór 29. f.m. í. einu - kjördærni,
Southend West, er talin hafa ýtt
undir þessa ákvörðun Macmillans.
Þetta kjördæmi hefir lengi verið
öruggt vígi íhaldsfiokksins. í sein
ustu reglulegum kosningum fékk
flokkurinn þar 18.480 atkv. meiri
hluta. Nú varð meirihluti hans
ekki nema 8.179 atkv. Að vísu
var þátttakan minni nú en þá.
Hlutur íhaldsflokksins af greidd-
um atkvæðum féll hins vegar úr
66,2% í 55,6%. Úrslitin urðu því
\ erulegur ósigur fyrir íhalds-
flokkinn.
Úrslitin urðu hins vegar ekki
r.eitt fagnaðarefni fyrir Verka-
mannaflökkinn. Frambjóðandi
hans fékk færri atkvæði en fram-
bjóðandi Frjálslynda flokksins,
en í seinustu þingkosningum hafði
þelta verið öfugt. Að vísu hélt
Verkamannaílckkurinn svipuðu
hlutfalli nú og þá. Atkvæðin, sem
Ihaldsflokkurinn tapaði, virðast
öll hafa lent hjá Frjálslynda
fíokknum.
Þessi niðurstaða þykir bcnda til,
að Fx-jálslyndi flokkurinn muni
verulega auka fvlgi sitt í næstú
kosningum. í því getur falizt
m.esta hættan fvrir íhaldsflokkinn,
því að Frjálslyndi flokkurir. . virð-
ist einkum taka fylgisaukningu
sína frá honum. Verkamannaflokk
urinn virðist betur halda s u, en
standa hins vegar í stað. Fyrir í-
baldsflokkinn er þetta erm alvar-
legra vegna þess, að Frjálslyndi
flokkurinn hefir til þessa aðallega
ákveðið framboð i þeim kjönlæm-
um, þar sem íhaklsmenn geta átt
á hættu að rnissa þingsæti
Ýmsar ástæður virftast hjálpa
til þess, að Frjálslyndi flókkurinn
á nú vaxandi fylgi að fagna.
Margir efnilegir ungir .nenn
skipa sér nú undir merki hans,
svo að hann á kost álitlegrá frani-
bjóðenda. Hann virðist óhræddur
við að hreyfa ýmsum nýjum hug-
mynduin og gagnrýnir óhikað á
báða bóga. Hin nýi forir.gi hans,
Jo Grimmond, er talinn eixma
geðþekkastur . og glæsilegastur
yngrt stjórnmálanfanna í Bret-
iandi. Má í þessu sambaridi geta
þess, að á flokksþingi Frjáls-
lynda flokksins siðast liðið haust,
gagni’ýndi harm harðlega vald-
beiti.ngu brezku stjórnarinaar á
íslandsmiðum.
ÝMSAR getgátur eru nú.uppi
um það, hvað Macmillan taki
til bragðs til að bæta aðstöðu sína
?.ð nýju. Vafalaust þvkir, að fjái'-
lögin, er verða iögð fram I apríl,
verði kosningafiárlög. Þá eegja
ensku blöðin frá þvj, að Macmill-
an íhugi nú að fara til Moskvu
til þess að vek.ia athvgli á sér og
látast vera málamiðlari milli aust-
urs og vest urs. Þetta gæti vel
verið áróðiirsbragð, sem kæmi
jafnaðarmönnum illa, bví að þeir
hafá deilt á síjómina fvrir að
reyna ekki málamiðlun í deilumái
um Evrópu. Hingað til er þessi
ráðagerð um Moskvuför Macmill-
ans talin hafa strandað á því, að
Rússar hafi enn ekki viljað gefa
honum fyrii'heit um einhvern ár-
!sngur af ferðinni, en Macmillan
vill helzt ekki koma alveg tóm-
hentur til baka.
Þ.Þ.
SKOÐANAkajinanlr, sem hafa
farið fram alveg nýlega í Bret-
landi, virðast benda til þess, að
dýrðarkárónan. sem mjsnn h,afa
séð á höfði Macmillans, sé heldur
að missa ljóma sinn. í seinustu
skoðanakönnun ,,The News' Cron-
icle“, sem talin er áreiðanleg-
asta skoðanakönnunin í Bretlandi,
hefir Verkamannaflokkurinn farið
fram úr íhaldsflokknum í fyrsta
sinn um alilangt skeið. í skoðana-
könnun, sem fram fór á vegum
„Daily Express" um líkt leyti
voru flokkarnir hins vegar hér
um bil jafnir, en í næstu skoðana
könnun blaðsins á undan hafði
íhaldsflokkiu'inn ríflegan meiri-
hluta.
Skoðanakannanir þessar eru yf-
irleitt taldar gefa rétta mynd af
breyttu viðhorfi alm.ennings. Eink
xun er talið, að íhaldsflokkurinn
hafi misst fylgi vegna þess að und-
anförnu, að ekki hefir dregið úr
atvinnuleysinu, heldur hefir það
þvert á mpti aukizt í.sumum lands
hlutunx. Úr þessu hyggst ríkis-
stjórnin nú að bæta með því að
draga heldur úr hömlum á fjár-
festingu. Það er hins vegar talið
vafasamt, að þær ráðstafanir
komi, að fullu gagni.
Það þykir nú nokkurn veginn
víst, að vegna þessa breytta við-
horfs almennings, muni Macmill-
an hætta við kosningar í vor og
muni a.m.k. draga þær til hausls-
ins. Tímann þangað til m\uni hann
nota til að revna að bæta aðstöðu
flokks síns að nýju.
in hans ber merki um, en þar
er svo langt gengið, aö lagt
er til að hækka yfirfærslu-
gjölcl til að komast hjá halla
hjá Útflutningssjóði.
Menntamálanefnd flytur ýtariegan
frumvarpsbálk um kirkjugarSa
Fram hefir verið lagður á
Alþingi mikill frumvarpsbálk
ur um kirkjugarða. Er frum-
varpið ílutt af mentitamála-
nefnd samkvæmt beiðni
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins.
Greinargerð frv. er svo hljóð-
andi:
Gildandi lög unx kirkjugarða eru
frá 1932 með áorðnum breytingum
og eru því nær 25 ára gömul. Á
þessurn aldarfjórðungi hafa orðið
ailverúlegar breytingar á skiptilagi
kirkjugarða, bæði hjá nágranna-
þjóðunx vorum og víðar. Hér á
la.ndi er skipulagi og hirðingu
kirkjugarðanna mjög ábótavant,
og hefir svo lengi verið, Nú vii'ð-
ist vera að vakna nokkur áhugi
nnanna víðsvegar á því, að sýna
kirkjtigörðunurn meiri ræktarsenii
en áður, girða þá sóntasamlega,
skipuleggja grafstæði og gang-
brautir og prýða þá þeim gróðri. er
bezt hentar. Þetta hafa nágranna-
þjóðir*vorar gert. þegar rrieð þeim
árangri. að kirkjugarðnrnir í mörg
um bæjum og þorpum eru orðnir
þar fegurslu reitirnir, sem unun er
að ganga um og skoða.
Þær brcytingar á gildandi lög-
um um kirkjugarða, sem hér er
farið fram á, ntiða einkum að því,
að kirkjugörðum landsins verði
hér eftir meiri eómi sýndur en
hingað til og skipulagi þeirra og
hirðingu komið í betra horf.
Frv. þetta e.r santið af nefnd, er
kirkjumálaráðherra skipaði : árið
1955 til þess að endurskoða gild-
andi lög og tilsicipanir um inál-
efni kirkjunnar. En í henni eiga
sæti: Ásmumlur Guðmundsson,
biskup, Gústaf Jónasson, ráðuneyt-
isstjóri og séra Sveinn Víkingur,
skrifstofustjóri.
Samningar STEFs
og Bandaríkjastj.
í fyrradag voru undii’rit-
aðir samníngar milli varnar-
liðsins á Keflavíkurvelli og
STEP'S, en um sjö ára skeið
hafa staðið allmiklar deilur
milli þessara aðila vegna flutn
ings íslenzkra tónverka í
bandaríska útvarpið á Kefla
víkurflugveili.
Jafnframt þ\i að samningar hafa
nú tekizi hefur STEF fállið frá
kröfum sínum til Bandaríkjasljórn
ar og fellt níður skaðabótamál það,
sem STEF höfðaði gtegn ríkisstjórn
íslands.
Sarnningar þessir gera ráð fyrir,
að Bandarík.iastjórn eða fulltrúum
hennar sé heimilt að flytja öll þa«
listaverk eða skemmtiatriði, sem
eru á verkaskrá STEFS og gildt
þessir samningar til miðnæltis
hinn 30. júni 1961.