Alþýðublaðið - 16.09.1927, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
| íslendingar
H íslendingar
[(] ísiendingar
styðja ísienzkan iðnað.
flytja vörur sínar á íslenzkum skipum.
sjó- og bruna-tryggja hjá Sjóvátryggingafélagi ísiands
stræti til breikkunar „b'otnlangan-
um“. Nánar á morgun.
St. „Skjaldbreíð“.
Fundur í kvöld á venjulegum
staö og tíma. - Ólafur Friðriks-
son taiar. Fjölmenni^!
Nýja smíðakerfið
„herbergið mitt“, sem notað er
mikift við smíðakenslu í barna-
og unglinga-skólum í Banmörku,
er til sýnis i smíðasalnum í
barnaskóla Reykjavikur á morg-
un kl. 3—7 e. h. og á sunnudag-
inn kl. 1 —6 e. h. Þess skal getið,
að [retta er fyrsta kerfið af þess-
ari tegund, sem kornið hefir til
landsins. -- Allir velkomnir. Ó-
keypis aðgangur.
Togararnir.
„Tryggvi gamli“ kom af veið-
(Um í gær með 900 kassa ísfiskjar
og fór til Englands með aflann.
Enskur togari kom hingað í. gær
og- skilaði af sér fiskileiðsögu-
manni.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 7: Veöurskeyti. Kl. 7 og
10 mín.: Barnasögur. Kl. 71/2;
Upplestur (Tómas Guðmundsson).
Kl. 8: Fiðluleikur (Þórarinn Guð-
mundsson). Kl. 8ió: .Upplestur
(Reinh. Richter). Kl. 9: Tímamerki
og endurvarp.
ísfisksala.
„Karlsefni" seldi afia sinn í
Énglandi fyrir 818 stpd.
Knattspyrnumóti
3. aldursllokks lyktaði þannig
j gær, að „K. R.“ vann „Val‘‘
með 1:0 og „Víkirigur“ „Fram"
með 1 : ().. Veðrið var fremur and-
stætt til leiks. „K. R.“ bar sigur
úr býtum á mótinu og fékk að
launum nýjan bikar, er knatt-
spyrnuráðjð gaf. Afhenti Erlend-
ur Péturson því hann að leiks-
lokum.
Aðalfundur Sundfélags Reykja-
víkur
var haldinn í gærkveld-i í Iðnó.
Þar var samþykt i einu hljóði!
svofeld tillaga: „Aðalfundur
Sundfélags Reykjavíkur skorar á
bæjarstjórn Reykjavíkurbæjar að
veita nú þegar ríflegan styrk til
sundhallarbyggingar í Reykjavík
og vinna að }>vi í sambandi viö
alþingi og í. S. i., að sundhöllin
verði að fullu byggð í'yrir 1930.“
— Stjórn félagslns var endurkos-
in með öllum greiddum atkvæð-
um. Eru T henni þessir: Erlingur
Pálsson formaður, Vaidimar
Sveinbjörnsson ritari, Jóhann Þor-
láksson féhirðir, Ingibjörg Brands'
varaformaður og' Ólafur Pálsson
meðstjórnandi. Sundfélagið er
ungt félag, ekki nema ársgamalt.
lleíir það þó afrekað allmikið til
eflingar sundíþróttirini hér í bæn-
um. Starfrækti það sundskálann
í Örfiriseyju í sumar og hef.ir ank
þess á ýmsan hátt örvað menn
til sundiðkana, enda er félagið
vinsælt meðal bæjarbúa, og fjölg-
hr félögum stcðugt. Hefir félag-
ið nú byrjað að taka við æfifé-
lögum gegn 25 króna gjaldi. Hafa
þegar gerst æfifélagar: Jón Þor-
láksson fyrr forsætisráðherra.
sendiherra Bana og Ingibjörg
Brands. Margir fleiri hefir heyrst
a‘ð ætli að gerast æfifélagar, og
ættu þeir sem fyrst að snúa sér
t'ii einhvers. úr stjórninni. Málefn-
ið er gott og starfssviðið óend-
anlegt. Þutía því allir að leggja
sitt iið.
Veðrið.
Hiti 7— 1 stig. Víðast norðlæg
átt. Víða hvöss og allhvöss. Snjó-
konna á Grímsstöðunl. Sums stað-
ar regn. Djúp loftvægislægð um
Færeyjar á suðausturleið, en hæð
yfir Norður-Grænlandi. Útlit:
Hvöss norðanátt hér á Suðvest-
urlandi í dag og allhvöss norð-
austanátt í nótt. Þurt vt^iur.
Hvassviðri og kraparegn i dag
á Austurlandi og allhvast ann-
ars staðar. Veðrið mun lægja
vjða. í nótt.
Einar E. Markan,
sörigvarinn góðkunni, heldur
síðustu söngskemtun sína á
sunnudaginn kemur í Gamla Bíó
kl, 4 síðdegis. Hann er nú á för-
um héðan til Þýzkalands til fram-,
haldsnáms og mun því ekki koma
hingað aftur að sinni. Þó að Ein-
ar sé einn af yngstu söngmönn-
um vorum, þá er hann mjög efni-
legur og hefir getið sér hirin bezta
oröstír, t. d. í Noregi, þar sem
hann hefir numið söng og söng-
fræði. Aðgöngumiðar að þessari
söngskemtun Einars fást í bóka-
verzlun S. Eymundssonar og í
hljóÖfæraverzlun K. Viðar, og
mun réttara að tryggja, sér þá í
tíir.a.
Hlutaveltu
heldur kvenféiagið „Hringur-
inn" að hressirigarhælinu í Kópa-
‘vogi á sunnudaginn kemur. Munu
margir taka sér fari suður eft-
ir, bæði til að skoða hælið og
skemta sér á staönum.
Nýkomið
mikið úrval aS iimrðmm-
uðum speglum.
Lndvig Storr,
sími 333.
Einkaleyfi
hefir Englendingur einn í Lund-
únum, John Templer að nafni,
nýlega fengið á íhvolfum eða
ho r n b ey gðum b o tn v ör p uh 1 era.
„Tennis“-mót fyrir konur.
, K. R.“ hélt innanféiags-„tenn-
is“-mót fyrir konur. Keppendur
voru sex. Hlutskörpust varðiSig-
ríður Símonardóttir verzlunarmær.
Hjálpræðisherinn.
Kveðjusamkoma fyrir adj. og
frú Johnsen verður kl. 8V2
í kvöld. Inngangseyrir er 25
aurar. Fjölmennið á samkomuna
og sýnið með j)ví, að þér kunn-
ið að meta starf þeirra hjóna í
[rarfir þjóðarinnar. G.
Qengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund........kr. 22,15
100 kr. danskar . . . . — 121,94
100 kr. sænskar .... — 122,55
100 kr. norskar .... — 120,29
Dollar...............—’ 4,56 *
100 frankar franskir. . . — 18,05
100 gyllini hollenzk . . — 182,91
100 gullmftrk pýzk ... — 108,46
Smásöluverð
í ágúst hefir samkvæmt Hag-
tíðindunum verið 239 í byrjun
mánaðarins miðað við 100 i júlí
1914. Eftir því hefir verðið hækkt
að um l»/o í júlí, en um rúma
4% síðan í júníbyrjun. Verðið er
þó um 40/0 lægra. en í ágúst í
fyrra. Búreikningsvísitalan sýnir
nær sömu dýrtíð og í fyrra og
meiri í ágúst en í j-úlí í ár.
OWllMÓ
Bestu rafgeymar fyrir bíla,
sem unt ,er að fá. Willard
lefir 25 ára reynslu.
Willard smiðar geyrna fyr-
ir alls konar bila, margar
stærðir. Kaupið jiað be2:ta,
kaupið Willard. Fást hjá
Eiríki Hjartarsyni,Laugav 20 B,
Klapparstigsmegin.
Van Hoitens
konfekt.og átsukkulaði
er annálað um all-
an heim fyrir
gæði.
í heildsöju hjá
Tóhaksverzl. islands h.f.
Munið eftir hinu fjölbreitta
úrvali af veggmyndum ís-
lenzkum og útleudum. Skipa-
myndir og fl. Sporöskjurammar.
Freyjugötu 11, sími 2105. Myndir
innrammaðar á sama stað.
Smídud kjöt- og slátur-ílát og
gert við gömul. Freyjugötu 25 B.
Hólaprentsmiðjan, Hafnarstræti
18, prentar smekklegast og ódýr-
ast kranzaborða, erfiijóð og alla
smáprentun, sími 2170.
Til sölu hefi ég enn nokkur
hús með lausum ibúðum 1. okt„
bæði hálfar og lieilar eignir,
mismunandi að verði og gæðum.
Útborganir frá 4 til 15 þús. krón-
ur. Semja þarf sem allra fyrst.
Viðtalstími til 1. okt. frá 5—7 og
eftir ki. 8 á kvöldin. — Sími 327.
Jönas H. Jónsson.
Tvær litlar eikartunnur og not-
uð eldavél til scfu. A. v á.
Kenmraskölapilhlr (3. bekkjar)
óskar eftir aö kenna börnum í
góðu húsi í vetur gegn fæði. A.
v. á.
Skólatöskur, pennastokkar, stíla-
bækur, pennar og blýantar er
sem fyrr ódýrast í Bókabúðinni,
Laugavegi 46.
, Ritstjóri og ábyrgðarinaður
Hallbjörn Halldórsson.
Alþýðuprentsmiðjan.
I