Tíminn - 03.04.1959, Qupperneq 8

Tíminn - 03.04.1959, Qupperneq 8
8 T í MIN N, fostudagínn 3. apríi 19581 -sssr Dánarminning: Si f dag er til moldar borin í Eeykjavík vestfirzk alþýðukona, Sigríður Gísladóttir frá Hóli í Bakkadal við Arnarfjörð, ein þess- ara hógværu, hjartahlýju kvenna, sem gera heimilin að sönnum griðastað fyrir eldri og yngri. Sigriður Ólafía Gísladóttir var fædd í Austmannsdal í Arnarfirði 25. apríl 1896 og var því tæpra 63 ára, er hún lézt 27. marz s. 1. í'oreldrar hennar voru hjónin Gísli Árnason og Ragnhi'ldur Jens- dóttir. Gísli var sonur Árna bónda á Öskubrekku í Fífustaðadal, Árna sonar hreppstjóra á Neðrabæ í Selárdal, Gíslasonar prests í Sel- árdai, Einarssonar. Ragnhildur var dóttir Jens bónda í Feigsdal, Þor- vaidssonar á Tjaldanesi, Ingitnund arsopar, en móðir Jens í Feigsdal var Itagnheiður Jensdóttir prests á Laugabóli á Langadalsströnd, Jóossonar sýslumanns í Reykjar- firði, Arnórssonar. SigríSur ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í Austmannsdal, en síðar á Krók í Selárdal. Þau þóttu jafnan hin mestu stemdarhjón, sern hvarvetna komu fram til góðs, en ekki voru þau auðug, enda áttu við mikla ómegð að búa. Sigríðar var næstelzt systkinanna, •þeirra sem ólust upp heima, og má því nærri geta, að hún kynnt- ist snemma amstri og erfiði al- þýðukonunar, sem barnmörgu jheimíli þarf að sinna. Hinn 22. ma£ 1.918 giftist Sigríð- lir Finnboga Jónssyni, syni Jóns Jónssonar og Guðbjargar Halldórs dóttur á Granda í Bakkadal. Þau voru fyrsta hjúskaparárið á Granda, en reistu síðan bú á Hóli í Bakkadal og bjuggu þar í sam- Juýli við Þorvald, bróður Sigríðar, en hann átti síðar Theódóru, syst- ttr Finnboga. Finnbogi er um margt fágætur tnaður. Hann hefir alla ævi verið iðjumaður mikill og áhugasamur um jarðrækt, enda vann hann jarð sinni margt til bóta. Hann er greindur maður og athugull, bók- hneigður og fróðleiksfús. Hann er svo vandaður til orðs og æðis, eð af ber, góðgjarn og velviljaður. Voru þau hjónin, hann og Sigríð- ur, mörgum sömu kostum búin og wn flest samvalin, enda samlíf þeirra til fyrirmyndar og þeim toáðuia til gæfu. Þau Finnbogi og Sigrlður eign- uðust 7 börn, sem öil eru á lífi og hafa þegar sýnt, að þau eru af góðu bergi brotin. Þau eru: Guð- íður Gísladóttir bergur, verzlunarmaður í Reykja- vik, kvæntur Huldu Guðmundsdótt ur, á 3 börn; Jóhanna, skrifstofu- stulka í Reykjavík, ógift; Vigdís, gift Bjarna Hannessyni bónda á Litlueyri í Arnarfirði, á 10 börn; Ragnhildur, gift Bjarna Kristófers syni bónda í Fremri-Hvestu í Arn- arfirði, á 10 börn; Elín, gift Valdi- mar Helgasyni trésmið í Reykja- vík, á '1 bam; Sigrlður, gift Stefáni Vilhelmssyni flugvélavirkja í Reykjavík, á 2 börn; og Marínó, sjómaður á Bíldudal, kvæntur Jónu Guðmundsdóttur, á 2 börn. — Yngstu börnin tvö eru tvíburar og ólst Sigríður upp hjá Bjarna Árnasyni og Kristjönu Ólafsdótt- ur í Laufási í Bakkadal (nú í Keykjavík), en hin-sex ólust öll vpp hjá foreldrum sínum á Hóli. Þegar aldur tók að færast yfir þau Finnboga og Sigríði, en börn þeirra flest horfin að heiman, brugðu þau búi og settust að á Bíldudal (1947). Áttu þau þar heima síðan, þar til fyrir tæpum tv'eim árum, að heilsu Sigríðar var svo komið, að hún gat ekki lengur séð um heimili og þurfti að staðaldri að vera undir læknis- hendi. Þá fluttust þau til Reykja- víkur og settust að hjá Elínu dótt- ur sinni og manni hennar, sem allt gerðu til þess að þungur sjúk- dómur mætti verða Sigríði sem léttbærastur, en hún var að sínu leyti þolinmóður og þakklátur sjúklingur. Það lundarfar, sem hafði einkennt hana alla ævi, fylgdi henni til síðustu stundar. Sigríður v-ar starfsöm kona og vel verki farin og taldi aldrei á sig erfiði, ef hún hélt, að það gæti orðið einhverjum að gagni. Hún KJÖRDÆMAMALIÐ (Framhald af 7. síðu) en þeir sem nú ganga gegn þeim. Hefir þrásinnis' verið vitnað tii orðréttra ummæla þeirra um þau málsatriði, og er ástæðulaust að endurtaka þau hér. Hins vegar er tilefni til að rifja upp tillögur og röksemdir um kjördæmaskipun- ina, .sem Morgunblaðið flutti, án nokkurra athugasemda, fyrir rúmu ári síðan (þ.e. í nóvember 1957), eftir góðan og gildan Sjálf stæðismann, sr. Jónas Gíslason í Vík. í grein þeirri sem hér er vitn- að til reynir höf., af mikilli kost- gæfni að finna milliveg milli ein- menningskjördæma og stórra kjör svæða, með þann tilgang þó í fyrir rúmi, að einmenningskjördæmin haldi núverandi réttindum og sjálfstæði um sérstök framboð fyrir sig og kosningaúrslit. Tillög- urnar um þennan milliveg eru of margbrotnar til þess, að fyrir þeim verði gerð grein í stuttu máli, en forsendur höf. fyrir því, sem fyrst og fremst virðist vaka fyrir honum, þ. e. einmennings- kjördæmi í nokkrum innbyrðis tengslum í hverjum landshluta, eru í fullu gildi til vitnis um það íhugarfar sem hjá honum og mikl- um hluta þjóðarinnar hefir ríkt gagnvart þvíl. kollsteypum sem afnámi kjördæmanna — alveg án tillits til þess hvort sjálfar til- lögurnar gæti reynzt framkvæman legar eða ekki. Höf. segir m.a. til skýringar og meðmæla með til- lögunum: „... Hin persónulegu tengsl milli frambjóðandans og kjósend- átti þátt í uppeldi þriggja kyn- slóða; fyrst yngri systkina sinna, síðan sex barna sinna og að síð- ustu rétti hún dætrum sínum hjálparhönd eftir mætti við um- önnun ungra barna þeirra. Og það mun henni hafa fallið þyngst í síðustu veikindum sínum að geta nú ekki lengur hjálpað öðr- um. Sigríður Gísladóttir var kona fríð sýnum, eins og fleira af fólki hennar, og bauð af sér einkar góð- an þokka. Hún var viðfelldin í umgengni, jafnlynd og dagfars- prúð og fyllti heimili sitt hljóð- látri, hlýrri gleði, sem öllum var tii yndis, gestum og heimamönn- um. Hún var góð kona. Ólafur Þ. Kristjánsson. anna í viðkomandi kjördæml munu haldast. Flokksvaldið verð- ur minna en ef um listakosningu væri að ræða, þar eð enginn kjós andi þarf að kjósa frambjóðanda, sem hann er óánægður með, en getur kosið annan frambjóðanda flokksins“ (þ.e. innan hins stærra kjörsvæðis) „ Þá er einnig komizt hjá þeim erfiðleikum, sem það myndi hafa í för með sér, ef ákveða þyrfti einn framboðslista fyrir mjög stórt landssvæði. Slíkt listaframboð myndi hafa í fcr með sér, að mest yrði hugsað um framboð manna, sem fengi íylgi í mesta þéítbýli kjörsvæðisins, en hin strjálbýlli IiéruS yrði afskipt (Auðkennt hér) Alger jöfn- un (þ.e. atkvæðatölu bak við full- trúa), með því að gera landið' allt að einu kjördæmi, er hins veg ar ekki heldur réttlátt a‘o mínum dómi, meðan við teljum það ein- hvers virði að byggð1 'sé haldið við sem víðast á landinu. Það er ekki einhlítt að taka aðeins tillit til mannfjölda. Eins og áður segif flutti Morg- unblaðið þessar lafdráttariausu yfirlýsingar klerksins í Vík fyrir rúmu ári síðan, án þess að gera við þær nokkrar athugasemdir. Um leið og hann ineð tillögum sínum sýnir viðleitni til að bæta úr þeim annmörkum kjördæma- skipunarinnar, sem hann finnur mest til, án þess þó að fórna fyrir það þeimr undirstöðuatriði um núgildandi, sem hann telur mestu skipta að haldist, flytur hann fram þær röksemdir fyrir viðhaldi þeirra, sein fleiri vildu sagt hafa, hvar í floklc sem þeir standa. Það er því með ólíkind- um, ef forkólfum þeirra stjórn- málaflokka, sem tekið hafa upp baráttuna fyrir afnámi núver- andi kjördæma, tekst að snúa flokksmönnum sínum úti um land til fylgis við þá athöfn, að grafa grunninn undan þeirra eigin húsi. Hins vegar er eðlilegt að á kjör- dæmaskipuninni þurfi að gera breytingar, innan þess ramma, sem hún hefir haft, einkum vegna tilfærslu fólksfjöldans í Iandinu, og má búast við að það leiði til nokkurrar fjölgunar þing manna. Fer bezt á því, að slíkar breytingar séu undhbúnar og af- greiddar í sambandi við aðrar breytingar sem ætla má að fram komi við endurskoðun stjórnaír- skrárinnar, sem lengi hefir staðið fyrir dyrum. Samsæri flokks- stjórna í þessu stórmáli er goðgá. Gefið góðar bækur í fermingargjöf Landsins mesta úrval af harmomkum og alls konar hlióðfærum NÝKOMIÐ Westminster harmonlkur Model 1959. Píanóharmonikur 32 bassa, 2 hljóðskiptingar. — Verð kr. 1885.00. 48 bassa, 2 hljóðskíptingar. — Verð kr. 2045.00. 48 bassa, 5 hljóðskiptingar. — Verð kr. 2520.00. 80 bassa, 8 hljóðskiptingar. — Verð kr. 3970.00. 120 bassa. 16 hljóðskiptingar. 4 kóra. — Verð kr. 6.900.00. Vönduð taska innifalin í verðinu. Við höfum einnig mjög fjöl- breyít úrval af lítið notuðum ítölskum og þýzkum harmonik- um. Margar sem nýjar. Seljast með miklum afslætti. T. d. BORSINI (ítölsk), 120 bassa, 4 hljóðskiptingar í diskant, 2 í bassa. Verð áður kr. 5.92Ó.00 nú 3900.00. Sabatírti: 120 bassa. 4 hljóðskiptingár í diskant, 2 í bassa. Verð áður kr. 5865.00 — nú 3975.00. Acordina ExceSsior sem nu með 10 hljóðskipting- um, 120 bassa, verð kr. 5200.00. Serinefti 120 bassa, 10 hljóðskiptingar. Verð kr. 5250.00. SerineEti 120 bassa seni nú. 4 hljóðskipt- ingar. 2 á bassa. Verð kr. 4750. Scandaíi 24 og 32 bassa. Westminster Verð frá kr. 1000.00. Einnig margar aðrar úrvalsteg- undir fyrirliggjandi, t. d. Honher, Scandaíi, Sóprani, Artisti, Frontahini o. fl. Þetta er. aeins lítið sýnishorn af því, sem við höfum fyriríiggj andi. Ný sending væntanleg. Við höfum einnig alls kónar önnur hljóðfæri, svo sem mandólín, gítara, blokkflatitur (10 tég.), trompeta, trompet- kassa, írommur, tromniustóla, nótnasíóla, munnhörpur, tvö- faldar og krómatískar, svþná- flautur, harmonikutöskur, ein- faldar og tvöfaldar hnappa- harmonikur, signalhórn, klarin- cttur, trommukjuða, trommu- -bursta, harmonikuskóla, har- monikunótur, VænfanEegt næsfu dlaga: Trommusett, rafmagnsgítárar, saxófónar, rumbukúluri hí-happ píanó o. m. fl. ' Alls konar skipti á hljóðfærum möguleg. : Við tökum notaðar harmoitikur sem greíðslu upp í nýjar. Látið fagmenn hjá okkur aðstoða yð- ur við val á hljóðfærum. HljómEistin eykur beimEfisánægjuna. Verzlunin RÍN Njálsgötu 23. — Sími 17692.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.