Tíminn - 12.04.1959, Page 3

Tíminn - 12.04.1959, Page 3
TÍMINN, sunnudaginn 12. apríl 1959. 3 Heimsókn í upptökustudio í Kaupmannahöfn - Haukur Morthens syngur með Four Jacks og Jörn Grauengard - kunnir hljóðfæraleikarar - gömul lög endurvakin Einn —- tveir — þrír, heyrum við hljómsveitar- stjórann segja, og hljóm- sveitin og söngvararnir byrja. Við erum nefnilega staddir í „Roklubben Kvik“ við Svanemöllen í Kaup- mannahöfn en þar hefir plötufyrirtækið Odeon ,,stúdió“, þar sem plötur fyrirtækisins eru teknar upp. Við höfðum nefnilega fregnað að Haukur Mort- hens væri staddur í Höfn þeirra erinda að syngja inn nokkur lög á plötur með hljómsveit Jörn Grauem gaard, sem hefir eins og kunnugt er leikið með Hauki á mörgum plötum áður. Við förum þess á leit að við fáum að vera inni í upp- tökusalnum meðan verið er að taka þar upp eitt laganna, og veröum í staðinn að lofa því að gefa ekki svo mikið sem hóstakjöitur á meðan. Frægir söngvarar Upptökusalurinn í „Róör- arklúbbnum" er mjög stór, en mjög vel hljóðeinangrað- ur. Við setjumst út í horn og reynum að láta fara sem • allra minnst fyrir okkur. Umhverfis hljóðnemann standa margir söngvarar, og við berum þegar kennsl á Four Jacks, sem eins og kunn ugt er komu til íslands í vet- ur og sungu við miklar vin- sældir. Þarna eru ennfremur tvær stúlkur og einn karl- maður, sem við berum ekki kennsl á, enda varla von, þar sem okkur er tjáð' að hér sé um fólk úr danska útvarps- kórnum að ræða. Stúlkurnar tvær eru auk heidur í söng- tríóinu „Lördagspigerne", en tríó þetta er mjög vinsælt og þekkt i Danmörku. Önnur þeirra, Birthe Buch hefur þess heldur sungið inn á HAUKUR MORTHENS með fyreta eintakið af „Simba“ fjölmargar plötur ein, fyrir Polydor. „Heima" Veriö er aö taka upp lagið „Heima“, eftir Oddgeir Kristjánsson, en þetta lag var þjóðhátíðarlag í Vest- mannaeyjum fyrir allmörg- um árum síðan. Haukur Mortliens tjáir okkur að þegar hafi verið gerðar marg ar upptökur á laginu, en Grauengaard sé ekki enn á- nægður með upphafið og endann á laginu. ,Jíér eru saman komnir margir af beztu hljóðfæraleikurum í Evrópu,“ segir Haukur við okkur. „Það þarf sennilega ekki að kynna Four Jacks fyrir ykkur, en annar gitar- leikarinn, þessi þarna“ — hann bendir á ungan hvat- legan mann, „heitir Jörn Ingeman. Hann spilar að staðaldri með Svend As- mundsen, og hefur verið hægri hönd hans í fjölda- mörg ár. Trompetleikarinn er kallaður „Perri“ og hann þekkið þið vafalaust — af trompetleiknum — þvi að það er hann sem spilar á tromp- etinn í laginu Mama, sem Gitta syngur, og er mjög vin sælt heima, ef ég man rétt. Hann er sennilega einn bezti trompetleikarinn, sem Danir eiga.“ — Við samþykkjum það, eftir að hafa heyrt „Perri". taka nokkra tóna á trompetinn. /^Eins konar rokkstíll" Nú kailar Grauengaard á Hauk, og við setjumst aftur, spenntir að sjá og heyra hvernig „alvöru'* plötuupp- taka fer fram. Nokkrir kaflar úr „Heima" eru nú æfðir, og Grauen- gaard kallar fyrirskipanir á báða bóga, en við skiljum minnst af því sem fram fer. Eklci líður þó á löngu þar til algjör þögn er fyrirskipuð í salnum og rautt ljós kvikn- ar. Haukur, Four Jacks og Lördagspigerne hefja upp raddir sínar, og Ingeman ÉEí. Haukur Morthens og nokkrir söngvaranna umhverfis hljóðnemann. Myndin er tekin í gegnum glugga á upptökusainum. leikur nokkra fyrstu taktana einn undir á gítarinn. Ekki liður þó á löngu þar til öll hljómsveitin er „komhi í spilið“ — og við þekkjum vart lagið „Heima“ aftur.Það er nefnilega leikið í einskon- ar rokkstíl, og Haukur syng- ur aðeins nokkrar fyrstu lín- urnar í textanum — og viti menn: siðan lætur Haukur ekkert til sín heyra i laginu! Tvær upptökur Þegar þessum hluta upp- tökunnar er lokið náum við í Hauk og spyrjum hann hverju það sæti, að hann hafi ekki sungið nema lítið eitt af textanum. „Þetta gengur þannig fyrir sig,” seg ir Haukur, „að fyrst syng ég byrjunina, eða svonefnan „kóda“ — við lítum hver á annan — og þetta er allt tekið upp á segulband. Síð- an tekur hljómsveitin við og heldur áfram með undirleik- inn, án þess að ég sé með. Þegar lagið er búið er segul- bandið spilað aftur, og það er ekki fyrr en þá, sem ég syng textann við lagið — með segulbandinu auðvitað! Þetta fyrirkomulag er haft svo (Framhald á 8. síðu). Jsienzku dægurlögín eru prýðisgóð Þegar hlé verður á upp- tökunni, notum við tæki- færið og náum tali af hljómsveitarstjóranum, Jörn Grauengard, til þess að inna hann eftir áliti hans á íslenzkri dægurlaga gerð o. fl. „Mér finnst það merkast um íslenzk dægurlög", segir Grauengaard, „að þau eiga það flestöll sammerkt að vera í moll, eins og það heitir á fag máli og fremur dapurleg eru þau velflest. Á hinn bóginn hefi ég rekið mig á að enda þótt íslenzku lögin virðist ekki vera mikið fyrir ayrað fyrst í stað, þá verða þau skemmtilegri eftir því sem maður heyrir þau oftar. Það íslenzkra laga, sem mér finnst bezt, er Simbi sjómaður, en það vorum við að taka hér SpJaSlað við Jörn Grauengaard um dægurlaga- gerð á íslandi, söngvara og Heira upp í gærdag. Simbi er prýðis gott lag og ég er viss um að það mundi ná miklum vin- sældum hér, ef við það yrði gerður danskur texti óg það sent á Danmerkurmarkað". Beztu upptökurnar — Hvað um íslenzka söngv- ara? „Af eðlilegum ástæðum þelcki ég ekki mikið til þeirra yfirleitt, vegna þess að ég hefi aldrei til íslands komið. Ann- ars langar mig mjög til að skreppa þangað við tækifæri, sjá landið og kynnast fólkinu. Það, sem ég hefi haft af ís- lenzkum söngvurum að segja, er ekki nema gott eitt. Ég lék nokkur lög inn á plötur með Erlu Þorsteinsdóttur á sínum tíma. Erla var mjög efnileg söngkona, en nú er hún harð- gift og hætt að syngja. Um Hauk Morthens hefi ég það að segja, að hann er frábær dægurlagasöngvari, svo ekki verði meira sagt. Rödd hans er sérlega góð og ég hefi haft mikla ánægju af því að vinna með honum. Ég hugsa að þess ar upptökur sem við erum að vinna að núna komi til með að verða þær beztu sem við höfum gert saman. Annars var upptakan á „Heima“, sem þið heyrðuð áðan óvenju erf- ið, en nú held ég að við séum búnir að ganga endanlega frá því lagi“. Hefir komið víSa við sögu Við þökkum Grauengaard fyrir greið svör. Þessi hávaxni, dökkleiti maður hefir víða komið við sögu áður, varðandi plötuupptökur, en hann er einn af fremstu mönnum Dana í þeirri grein. Hann hef ir meðal annars stjórnað upp tökunum á öllum plötum þeirra Nínu og Friðriks, svo og hjá Gittu og George Brown sem er heimskunnur kalypsó- söngvari frá Jamaica, en hef ir sungið inn á nokkrar plötm* í Höfn. Plötur þær, sem Hauk ur Morthens söng inn á að þessu sinni, munu koma út hér heima á vegum Fálkans, og ef allt gengur að óskum ættu þær að vera komnar á markaðinn hér eftir mánuð eða svo. JÖRN GRAUENGAARD — Simbi beztur —

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.