Tíminn - 21.04.1959, Síða 4
4
T í M I N N, þriðjudaginn 21 api íl 195f
„Kalda strí(Síð“ úr sögunni:
fslenzka landsliðið leikur í Kaup-
mannahöfn 28. júní og í Osló 2. júli
Danska íandsli^iÖ kemur hingaÖ til iands
um mánaðamótin júlí—ágúst
Duuks blöð skrifa nú um það,
að samkomulag liafi náðst í
„kalda stríðiiiu“ í knattspyrnu
milli íslands og Danmerkur og
leikirnir í undankeppni Ólympíu-
leikanna séu endanlega ákveðn-
ir. íslenzka landsliðið leikur fyrst
erlendis, en síðan koma danska
og norska landsliðið liingað um
mánaðamótin júlí—ágúst.
Eins og kunnugt er, stóð „stríð-
ið“ um það, að Danir vildu að leik-
irnir færu fram á tímabilinu 25.
júní til 10. júlí, en íslendingar
vildu hins vegar helzt að þeir færu
fram í ágúst og munu Norðmenn
einnig hafa lagzt á sveif með því.
1
En nú hefir Danska knattspyrnu-1
sambandið, segja dönsk blöð, feng-j
ið skeyti frá íslandi, þar sem seg-|
ir að íslendingar fallizt á að
leika fyrri leikinn við Dani í Kaup
mannahöfn liinn 28. júní, og fyrri
leikinn við Norðmenn hinn 2. júlí
í Osló. Segja dönsku blöðin, að
stjórnarmeðlimir í danska knatt-
spyrnusambandinu hafi andað iétt-
ar, er þeim barst þetta skeyti, og
þar með sé „kalda stríðið11 úr sög-
unni.
Þá mun einnig vera ákveðið hve-
nær seinni leikirnir í undankeppn-
inni fara fram, en Danir munu
koma hingað um mánaðamótin júlí
—ágúst, þó það henti þeim illa,
eftir því sem dönsku blöðin segja,
en sennileg'a verða Norðmenn eitt-
hvað fyrr á ferðinni.
Því má bæta við, að ráðstefna
knattspyrnuleiðtoga þessara 3ja
landa var í Kaupmanna-
höfn um síðustu helgi, og átti þar
endanlega að ákveða daga fyrir sið-
ari leikina. Blaðið hefir hins vegar
ekki fengið fréttir af þeim fundi
enn. Þess má geta, að Björgvin
Sehram, formaður KSÍ, sótti fund-
inn, en hann var ekki kominn
heim laftur í gær.
Skíðamót Strandamanna
Skíðamót Strandamanna fór
fram í Bjarnarfirði í byrjun marz
s.l. Sundfél. Grettir sá um mótið
fyrir hönd Héraðssamb. Stranda-
manna.
Keppendur voru 26 frá 3 sam-
bandsfélögum.
Veður var ágætt keppnisdagana,
en færi óhagstætt og brautir frekar
erfiðar.
, í svigi karla bar Ármann Ifall-
dórsson (N) sigur úr býtum.
Svig drengja innan 16 ára:
Guðjón Torfason (N). Jón Arn-
grímsson (Gr).
5 km ganga drengja 12—14 ára:
Hinir fræknu skíðamenn, Hauk-
ur og Jón Karl Sigurðssynir á ísa-
firði, höfðu gefið gönguskíði til
keppninnar svo kapp var í drengj-
um, að láta nú ekki hlut sinn.
Keppcndur voru 10 og göngutími
5 þeirra fremstu:
Ingimundur Ingimundarson (Gr)
.28:40 mín., Guðjón Torfason (N)
28:55, Bragi Sigurðsson (Gr) 29:25,
Sigvaldi Ingimundarson (Gr)
29:27, Jóhann K. Benediktsson (N)
33:41.
3x5 km boðganga karla 14 ár,a og
eldri:
Ein sveit var frá Neista og tvær
frá Gretti.
Keppnin var.spennandi að vanda
hjá þessum rösku skíðamönnum.
A-sveit Grettis vann á 1 klst.
23:40 mín. Sveit Neista var 1 klst.
24:32 min.
í A-sveit Grettis voru: Magnús
Ingimundarson, Baldur Sigurðsson
og Halldór Tr. Ólafsson.
Beztan i)rautartíma hafði Sævar
Guðjúnsson (N) 26:55 mín.
Keppt var um farandbikar, fag-
urlega útskorinn af hagleiksmann-
inum. Jörundi Gestssyni hrepps-
stjóra að Hellu.
Áhugamenn í Bjarnarfirði gáfu
bikarinn til keppni í þessari grein
fyrir 10 árum. Þetta er í annað
sinn í röð, eða í 4 sinn samtals,
sem Grettir vinnur bikarinn.
3 km ganga drengja 10—12 ára:
Af 8 keppendum voru þessir
fyrstir: I
Stefán Benediktsson (N) 17:58
mín. Jón Arngrímsson (Gr) 18:23,
Guðmundur Gr. Bjarnason (N)
18331, Guðbrandur Kristvinsson
(Gr) 19:00.
15 km ganga karla 17 ára og cldri:
Keppendur voru 7. auk finnska
skíðakennarans, Ale Laine, sem
kenndi hér um viku tíma og keppti
sem gestur.
Baldur Sigurðsson (Gr) 1 klst.
17:15 mín., Halldór Tr. Ólafsson
(Gr) 1 klst. 20:01 mín, Sævar Guð-
jónsson (N) 1 klst. 21:25 mín.,
Rögnvaldur Pétursson (L) 1 klst.
21:43 min.
Ale Laine hafði 24 sek. betri
tíma en Baldur, sem var ræstur
síðast, en kom fyrstur í mark.
msfi
4x4 km smala-boðganga drengja
12—16 ára:
Keppt var um svokallaðan Srnala
bikar, sem fulltrúar og stjórn Bún-
aðarsambands Strandamanna gáfu
fyrir 13 árum, til minningar um
smalastarfið.
Að þessu sinni voru aðeins sveit-
ir frá Gretti, A- og B-sveit.
A-sveitin vann á 1 klst. 25:07
sek.
'Súndfélagið Grettir vann nú
gönguna í 3ja sinn í röð, eða í
4ða sinn samtals og lilaut bikarinn
fil fullrar eignar.
Beztan brautartíma hafði Ingi-
mundur Ingimundarson 20:13 mín.,
en hinir í A-sveitinni voru: Guð-
mundur Einarsson, Sigvaldi Ingi-
mundarson og Brag Sigurðsson.
8 km ganga drengja 15 og 16 ára:
Guðmundur Einarsson (Gr)
44:15 mín.
30 km ganga karila 20 ára og eldri:
Halldór Tr. Ólafsson (Gr) 2 klst.
09:46 mín., Baldur Sigurðsson (Gr)
2 klst. 13:14 mín., Magnús Ingi-
mundarson (Gr) 2 klst. 22:09 mín.,
Rögnvaldur Pétursson (L) 2 klst.
22:30 min.
Halldór var ræstur fyrstur og
gaf engum færi á, að ógna tvímæla-
lausum sigri.
Þessi félög tóku þát í mótinu:
Umf. Leifur Jieppni (L) í Ái-nes-
hreppi, 1 keppandi, Neisti (N) í
Kaldrananeshreppi, 10 keppendur,
Sundfél. Grettir í Kaldrananeshr.,
15 keppendur.
Mercedes Benz Unimog
Til sölu. — Ýmis tæki fylgja bifreiðinni. —
Uppl. í síma 35116.
tm««mmnTOnunmcm>m««mmam»«iKmnKiin;mw;a»iiirf
Begoniulaukar
Síðasta sending nýkomin.
Gieðilegt sumar!
R Ó S I N Vesturveri
Sími 23523
mmtmmtmmmmmmmmmmmmnmtnmmmmmmmmmmmtm!
INNILEGT ÞAKKLÆTI fyrir auðsýnda samóð við andiát og
jarðarför
Kristófers Helgasonar
frá HeggsstöSum.
Sérstelclega þökkum viö læknum og hjúkrunariiöi Bæjarspítai-
ans hjúkrun og aðhlynningu í veikindum hans.
Aðstandendur.
.TÓNAS JÓNSSON frá Brekkna-
koti, hefur skrifað baðstofunni
eftirfarandi bréf:
„Sæl og blessuð í baðstofunni!
Mér er sem ég sjái þær hér ó
rúmstokk, Ásdísi og Jóhönriu, —
ánægjulegt —, Andrés Kr., Sig-
urð sjálfan «. fi., sem nýskeð
hafa „Spurt og spjailað" „Um
daginn og veginn" og á einn eða
annan liátt gert okkur grein fyrir
spillingu hinna eldri og sið-
igæði unglinganna — eða öfugt.
Margt var þar vel sagt og sköru-
lega og hefur liver til síns ágætis
nokkuð, og ber það að þakka,
fyrst og fremst.
Það er nú bæði fornt og nýtt
fyrirbrigði, að eidra fólkið sé
margmálugt um spillingu æskunn-
ar. Hitt er nýrra og fátíðara, að
unga fólkið segi því eldra til
syndanna, — svona opinberlega.
Hvort tveggja gietur átt rétt á
sér og 'leitt til einiivers góðs, ef
með sannqirni og góðvilja er á
málum haldið.
SVO ERU hinir og til — á miðj-
um aldri og igamlir með, — sem
viija lialda iiyili ungu kynslóðar-
innar og lýsa því yfir, að hún sé
sízt spilitari en fyrri kynslóða
jafnaldrar — og í því sambandi
minnist ég Andrésar síðar. En er
þar ékiki heldur lauslega ó málun-
um tekið? Munum við ekki öll
sammála um það, að fyrh- œsk-
una a. m. k. megi ölæði, reyking-
ar, innbrot og þjófnaður kallast
spiliing? Og ætli nokkrum bland-
ist hugur um, að allt þetta sé
miklu tiðara hjá æskuiýðnum nú,
e.n var t. d. fyrir 50 árum, því
miður. — En hinu má bara ekki
ganga fram hjá þegjandi, þegar
þessi anái eru á dagskrá, — að á
þessu tímabili, er vaxandi spiiling
aiveg eðlileg, vegna hinna breyttu
viðhorfa, og svo 'hins, að eldri
kynslóðin hefur sofið á verðinum,
eða a. m. k. alls ekki gætt vöku
sinnar sem skyldi.
Það mó vel vera að eðlið sé ið
sama fyrr og nú; munurinn ligg-
ur vissulega aðallega i hinu,
hvemig með er farið, hverjar að-
stæður eru á hverjum tima.
ÞAÐ skeði hér í Akureyrarbæ
fyrir 50 árum, að unglingur einn
úr „betri fjölskyldu", (sem kallað
er), vildi láta eittbvað að sér
kveða. Hann greip „kjaftastól" úr
eidhúsi móður sinnar og ferðaðist
á honum efitir aðalgötu bæjarins!
Jafnöldrum þótti þelta „sniðugt"
og strákurinn „kaldur", en fjöl-
skyldunni þótti sér skömm gerð!
í ór tekur strákur á sama reki
bíi nágrannans og ekur með fé-
laga út í sveit — og Iþar á hvolf í
skurðinn, en afflt sleppur án stórra
sl'ysa. Nú þvkir bæði jafnöldrum
og fjölskyldustrákurinn „sniðug-
ur" og „kaidur" að „redda“ öílu
saman!
ÞJD kannizf e. t. v. við söguna
um skemtnda .eplið: Róbert 1UU,
12 ára, var kominn í slæman fé-
lagsskap og faðir hans sá og
heyrði þess mörg merki í favi
drengsins og reyndi að vara hann
við, fá 'hann úr hópnum, en varð
élcki ágengit. Dag einn kom faðir-
inn svo með 6 falleg epli og gaf
syni sínum. En þeim kom saman
um, að þau myndu verð'a enn
betri, ef þau yrðu geymd í
nofckra daga. Þeir létu þau því í
skál inn í skáp, en um leið koni
faðurinn imeð 7. eplið og settl
saman við. þótt það iværi bæði
rotið og 'Skemmt. ,Þetta lízt mér
ékki á“, sagði Róbert, „betta epli
eyðileggur öll hin'!" „Ætli það",
sagði faðirinn, „getur ekki ver-
ið að góðu enlin bæti það
skemmda?", — og svo lokaði hann
skápnum. — Viku síðar vitjúðu
þeir feðgar aftur um eplin, en
þá gaf ekki á að Mta: — — 611
skemmd og rotin! „Þetta sagði ég
þér!,“ hrÓDaði drengurinn. ,Ró-
bert minn", sagði faðir ltans,
.„þannig fer líka fvrir góðum
dreng, sem velur sér slæma fé-
laga." — Þetta hafði tilætluð
áhrif.
HINNI uppvaxandi æsku íslands
eru sköpuð einkar glæsileg skil-
yrði — í aðra röndina, ©n mjög
enfið í hina. Hún er vanin á að
gera miklar kröfur til annarra,
liefir frjálsræði og flest lífsins
gæði í uppvexti. Hún getur að
kvöldinu séð „hazard"-mynd 1
bíó, fengið sér sígarettur, tuggu-
gúmmí og .Jkóka kola" méð glæpa
sögu-vfirliti f „sioomtnni", farið
á ball 'í húsi albýðunnar eða fé-
lagsheimilinu fengið sér „eina" af
„svarta dauða" i einhverjum
glæsihílnum, . sem úti bíður til
þjónustunnar reiðubúinn, þ. e. a.
.s ef strákarnir eru til að
„splæsa", — annars er í grennd-
inni nærri ODin leið inn að pen-
ingaskúffu náungans, og „nóg af
þessum skitnu peningaseðlum 1
heiminum, allt einskisvirði bráð-
um, hvort sem er!" Og hvarvotna
et'u félagar, „sv-ellkaldir" strákar,
viija vera með, leiðbeina, ýta jjnd-
ir. Og góðu ávöxtunum er Iiætt.
FYRIR 50 árum var margt á ann-
an veg, „Iiáttað í björtu í mið-
góu, — eius og Andrés var að
segja —, (áreiðanlega margt gott
fylgjandi þeirjr reglu að hátta
snemma), engar hrollvcikjur eða
glæpasýningar i bíó, -engar „sjopp-
ur" með tilheyrandi , opnar fratn
undlr miðnætti, engum bíium að
hnupla og varla peningum að
stela Iieldut'. — á þeim tógu þessir
fáu, sem áttu, eins og ortnar á
gulli," enda gullsgildi þá, — sam-
komur ungs fólks ékiki daglegir
viðburðir, og þar engin tækífærj
að sóa fé.
ÞAÐ ERU feðut' og mæður, afar
og ömmur, frændur og vinir eldra
fólkið, sem ræður því, að æsku-
félkið, börn okkar, eru nú látin
þræða — eða fla-na — -þessa freist-
inganna 1-eið. Það er eldra félkið,
sem líður og leyfir útivistina fram
á dimmar nætur, „sjoppiirnai’''
um allt, hroðaleg-ustu ikvikmyndir,
opna híla, líttvarða peninga 1
lúúgum, — oq þnð, sem verst er
af öliu: áfenqissölu nótt og dag |
skúmaskotum og á almannafæri. f
því efni eru ekki allir elns vel?)
settir og Akureyringar, þar sem
aðeins einn fannst selkur um 6-
fengisbrot árið 1958. „Bara einn",
segja menn svo sán á milli, Jtvar
eru hinir 9? (eða 29?)!
JÁ, -svona er nú óstatt með þjóð-
inni — og hefir verið um skeið
undanfarið, svo að engan þarf að
uudra, þótt reiðilestur yrði Itjá
Ásdísi og Co. frammi fyrir hljó'ð-
ÍFramhald á 8. síðu).
STALTUNNUR
Til sölu eni nokkur hundruð gallaðar stáltunnur
(gjarðatunnur) á olíustöð okkar í Skerjafirði.
Upplýsingar gefnar á staðnum.
Olíuféiagið SKELJUNGUR h.f.