Tíminn - 09.05.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.05.1959, Blaðsíða 7
T í M I N N, laugardaginn 9. maí 1959. 2 Kjördæmabreyting sú, sem and- stöðuflokkar Framsóknarflokksins hafa nú stofnað til, hefir vakið meiri ólgu í landinu en átt hefir sér stað um nokkurt annað mál í Janga tíð. Mótmæli gegn þessu til- ræði við rétt héraðanna hafa bor- izl hvaðan æva að af landinu, eins og mönnum er kunnugt. En á vör- um fiutningsmanna þessa máls heitir þessi kjördæmabylting samt réttlætismál og einn flokkur, Sjálf stæðisflokkurinn hefir mikla til- burði í frammi til þess að eigna sér sérstaklega réttlætið í málinu. Það er í þriðja sinn á 26 árum, sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur sér fyrir hendur með aðstoð ann- arra flokka að koma fram réttlæt- ismáli í kjördæmaskipan landsins. Og í öll skiptin hefir hann and- istæðin.ga Eramsóknarflokksins með sér til þess að móta og fram- kvæma réttlætið. 1942 eru bæði Alþýðuflokkurinn og kommúnist- ar með honum og að þessu sinni Alþýðuflokkurinn og Alþýðu- bandalagið. Hvert er „réttlætið“, sem vakir fyrir þríflokkunum í kjördæmamálinu? n • ri» ] • irj • 1 um hefir Sjálfstæðisflokkurinh Kæöa bigurvms Lmarssonar, þ lH^MSLflIlS ISðirdstrfílld- Þráfaldlega fengið meiri hluta^bæjj ö arfulltrua en verið 1 minni hluta inga við 1. umræðuum kjördæmamálið í efri deild 31 vaÍTaf Skuínn1- 5 kunnað þessu „réttlæti" neitt illa. „Réttlætið“ Þetta er orðið nokkurs konar hlutafélag á Alþingi, ef um kjör- dæmabreytingu á að ræða. Og þar hefir forustuna og ræður mestu slærsti hluthafinn, Sjálfstæðis- flokkurinn. En hvernig stendur á því, að fyrst að þessir flokkar komu fram réttlætismáli sinu 1942 þurfa þeir að gerbreyta öllu því réttlæti með nýju réttlætismáli nú? Var réttlætismálið 1942 ekk- ert nema blekking? Eða er rétt- lætið í kjördæmabyltingunni núna blekking? Það er ekki hægt að flytja tvö réttlætismál um sama efni, sem hvort stríðir gegn öðru nema annað hvort þeirra sé blekk- ing, ef þau eru það þá ekki bæði. Þeir kunna að segja það, for- svarsmenn þessa máls, að vegna fólksflutninga í landinu síðan 1942 sé þessi kjördæmabylting réttlæt- ismál nú. Þeim verður þó ekkert hald í þessari röksemdarfærslu, því að hér á hæstvirtu Alþingi, er enginn ágreiningur um fjölgun þingmanna í þéttbýlinu. "Flutnings menn þessa frumvarps gera ekki tillögu oxm fleiri þingmenn í þétt- býli en Framsóknarmen gera í sín ium tillögum. iEf þeir ætla' að sýna fram á réttlætið í tillögum sínum vegna fólksflutninganna, þá verða þeir að leita einhverra annarra ráða. Þegar menn berjast fyrir réttlæti, þá hljóta þeir um leið að vera að útrýma einhverju rang- læti. Hvaða ranglæti sögðust Sjálf- ’stæðismenn vera að útrýma 1942? Þeir sögðu, að Framsóknarflokk- urinn hefði of marga þingmenn, en Sjálfstæðisflokkurinn of fáa, og því væri réttlætismál að taka upp hlutfallskosningar í tvímennings- kjördæmunum og fjölga um tvo þingmenn í Reykjavík og gera Siglufjörð að sérstöku kjördæmi. Þarna ætlaði Sjálfstæðisflokkur- inn að vinna sex þingsæti af Fram sóknarflokknum í tvímennings- kjördæmunum. Það voru steiktu gæsirnar, sem þeir töluðu um og þeir ætluðu sér að vinna tvö þing- sætin af þeim þremur, sem bætt var við með þeirri stjórnarskrár- breytingu. Hver varð svo árangur- inn? Fjölgaði þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins um þessa átta þá? Nei, það varð ekki. Þeim fjölgaði aðeins um þrjá, en þingmönnum ikommúnista fjölgaði um 67%. — Þannig fór um réttlætismálið að því sinni. * ! „Þetta er sann- leikur ,u Hvernig má það vera, að þannig skuli takast til fyrir flokki, sem flytur réttlætismál, mótar það frá byrjun og kemur því heilu í höfn að eigin ósk? Getúr það viljað til í annað sinn, að réttláetismál Sjálf stæðismanna leiði til andstæðrar niðurstöðu, en þeir -segja sjálfir, að það eigi að gera. Getur svo far- ið að kjördæmabylting þeirra nú reynist jafnmikil blekking og hún var 1942? Fer ekki að verða full þörf á því fyrir þjóðína að vara sig á réttlætismálum þeirra Sjálf- stæðismanna af þessu tagi? Það var einu sinni maðwr vestur á fjörðum, scm hafði jafnan frá mör.gu að segja, en þótti ekki sem áreiðanlegust heimild. Ilann varð þess var, að menn treystu ekki sögusögnum hans, svo að hann tók upp þann hátt að enda aliar sögur sínar á þessum orðum: „Þetta er sannleikur.“ Eftir það vöruðu sig allir á honum. Þegar Sjálfstæðis- menn urðu þess varir 1942, að þjóðin tortryggði röksemdir þeirra í kjördæmamálinu, þá tóku þeir upp sama hátt og maðurinn fyrir vestan. Þeir hömruðu á slag- orðinu ,.réttlætismál“. í þessu máli veltur mest á því fyrir þjóð- ina, að hún geri sér grein fyrir því svo sem kostur er, hvort hér er réttlætismál á ferðinni eða hvort hér eru hliðstæðar blekking- ar viðhafðar og 1942. Til þess verður þjóðin að gera sér ljóst í fyrsta lagi: í hverju ágreiningurinn li.ggur milli flutn- ingsmanna þessa máls annars veg- ar og Framsóknarmanna hins veg- ar. í öðru lagi með hvaða hætti þeir flokkar ,sem þetta mál hafa nú tekið upp, hafa fylgt réttlæti og lýðræði hingað til í þessu máli. í þriðja lagi hvort þessir sömu flokkar vilja virða meir sjálfs- ákvörðunarrétt fólksins í kjördæm unum eða flokksræði þeirra sjálfra og í fjórða lagi, hvort núverandi kjördæmi og einstakir kjósendur þeirra hafa betri eða verri aðstöðu á gang mála á Alþingi eftir að bú- ið er að leggja niður núverandi kj ördæmi. Þingmannatalan Það er ekki neinum vanda bund ið fyrir hvern sem er, að gera sér grein fyrir ,hvað á milli ber í til- lögum þríflokkanna og tillögum Framsóknarmanna í þessu máli. Eg nefni þá fyrst Reykjavík. Þrí- flokkarnir ætlast til, að þar verði 12 þingmenn. Framsóknarmenn leggja líka til, að Reykjavík hafi 12 þingmenn. Ekki er ágreiningur þarna um tölu þingmanna. í hinu fyrirhugaða Vesturlandskjördæmi, Borgarfjarðarsýslu, Akranesi, iMýrasýslu, Snæfells- og Ilnappa- dalssýslu og Dalasýslu ætlast flutningsmenn þessa máls til að verði 5 þingmenn. Framsóknar- menn leggja líka til að 5 þing- menn verði á þessu landssvæði. Ekki er heldur ágreiningur þarna um tölu þingmanna. Alveg eins er þessu háttað í fyrirhuguðu kjör- dæmunum, Vestfjarðakjördæmi, Norðurlandskjördæmi vestra, Norðurlandskjördæmi eystra og Suðurlandskjördæmi, að á hverju þessu Jandssvæði fyrir sig er sami fjöldi þingmanna fyrirhugaður í tillögum þríflokkanna og tillögum Framsóknarmanna. Það er hið fyr irhugaða Austurlandskjördæmi eitt, sem á að hafa færri þing- menn en Framsóknarmenn leggja til að verði á því landssvæði. Þar eru þríflokkarnir með 5 þingmenn en Framsóknarmenn með 6 í til- lögum sínum. Samkvæmt þessu vilja flutningsmenn þessa frum- varps að kjördæmakosnir þing- menn í landinu öllu verði 49, en Framsóknarflokkurinn leggur til, að þeir verði 50. Þetta er þá allur munurinn á tillögum þríflokkanna og Framsóknarmanna um tölu kjördæmakosinna þingmanna í landinu. Það munar einum manni. Um uppbótarmennina er það að segja, að flutningsmenn frum- varpsins vilja hafa þá 11, hvort sem nokkur þörf er á uppbótar- þingmönnum til jöfnunar milli þingflokka eða ekki. En Framsókn armenn leggja til, að þeir skuli vera allt að 10 og fer þá tala þeirra eftir því, hvort þörf er á SIGURVIN EINARSSON þeim til jöfnunar, eins og verið hefir. Flutningsmenn kjördæma- frumvarpsins nú vilja því, að 60 þingmenn verði fyrir landið allt, Framsóknarmenn hafa lagt til, að þeir verði allt að 60. Fyrst nokk- ur munur var á annað borð á þess um tvenns konar tillögum, með þingmannafjölda þá gat hann varla verið minni en þetta. Enda er það ekki þessi munir, sem veldur þeim átökum, sem nú eru um þetta mál. Byltingin En hvað er það þá, sem veldur átökunum? Það er sjálf byltingin í tiilögum þríflokkanna. Það er réttindasviptingin, sem fram- kvæmd er með því að leggja nið- ur öll hin fornu kjördæmi utan Reykjavíkur. Það er þetta, sem Sjálfstæðisflokkurinn og hjálpar- flokkum hans er svo mikið hjart- ansmál, að þeir virða ekki viðlits samkonuilags tillögur Framsóknar manna. Og þegar þeir heyra and- mælin utan úr kjördæmunum gegn þessu tilræði, þá hrópa þeir bara hærra „réttlætismál". Það er eitthvað meira en lítið innifal- ið í þessu fyrirkomulagi, stóru hlutfallskjördæmunum og sem þríflokkunum geðjast svo vel að, að þeir skuli leggja þetta ofur- kapp á að koma því fram. Það er ekki þingmannafjöldinn í landinu. Um það má nú heita samkomulag. Það er ekki þingmannafjöldinn í þétlbýlinu. Um það er fullt sam- komulag. Það er ekki þingmanna- íjöldinn í hverjum landshluta út af fyrir sig. Um það má heita sam- komulag. Það eru ekki uppbótar- sætin, þar munar mjög litlu, en það er afnám kjördæmanna. Það er kjarninn. Það er réttlætismálið. Með hverju rökstyðja þríflokk- arnir það, að þessa hyltingu þurfi að gera? Þeir rökstyðja það ekki allir á sama veg. En þó er það einna helzt, að Framsóknarflokk- urinn hafi fengið svo marga þing- menn kjörna í einmenningskjör- dæmunum, að það sé í ósamræmi við kjörfylgi hans í landinu. Hvers vegna hefir Framsóknarflokkur- irin unnið sigur í einmennings- kjördæmunum fremur en aðrir flokkar? Hvers vegna hefir t. d. SjálfstæðÍ3flokkur:nn ekki unn- ið sigur í þessum kjördæmum? Hver hefir hannað honum það? Hefir hann ekki sömu aðstöðu til að afla sér fylgis í þessúm kjör- dæmum, eins og hver annar flokk- ur? Á að svipta einmenningskjör- dæmi tilverurétti sínum af því að sum þeirra kusu ekki Sjálfstæðis- mann á þing? Það er til önnur að- ferð fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að jafna þetta misrétti, sem hann kallar svo. Það er að vinna af meiri.heilindum að hagsmunamál- um héraðanna á Alþlngi, svo að hann hljóti kjörfyigi í þessum kjördæmum og sigrast þannig á Framsóknarmönnum. Uppgjöfin Nei, þetta telja þair sig ekki geta. Að eiga að vinna þsssum kjördæmum meira .gagn á Alþingi en Framsóknarmenn gera, það telja þeir sér um megn. Þá veija þeir heldur hina leiðina að leggja kjördæmin hreinlega niður. Þessi kjördæmabylting er því ótvíræð uppgjöf Sjálfstæðisflokksins í því að geta aflað sér viðunandi kjör- fylgis í einmehningskjördæmun- unum á móts við Framsóknarflokk inn. En er það ekki ósanngjarnt hjá mér eða öðrum að viðurkenna ekki þetta réttlætismál Sjálfstæðis flokksins og hjálparflokka hans? Hefir það nokkurn tíma verið ann að en heilög réttlætiskennd hjá Sjálfstæðisflokknum að minni hluti kjósenda fái ekki meiri hluta fulltrúa? Hafa þeir Sjálfstæðis- menn ekki alltaf og alls staðar reynt að fylgja þessari réttlætis- reglu? Hafa þeir nokkurn tíma lát ið afstöðu til flokka ráða gerðum sínum í þessu réttlætismáli? 1937 myndaði Sjálfstæðisflokkurinn hræðslubandalag með Bænda- flokknum, til þess að ná meiri hiuta á Alþingi í kosningunum þá. Engin von var til þess að þaita bandalag fengi meiri hluta at- kvæða í landinu. En þeir ætluðu sér þetta samt. Að reyna að fá meiri hluta þingmanna á Alþingi. í bæjarstjórnarkosningum, bæði í Reykjavík og öðrum bæjarfélög- „RéttIætio“ 1953 En gleggsta dæmið á afstöðú Sjálfstæðisflokksins til réttlæth- málsins er í alþingiskosri&i-gutni.: 1953. Þá fékk Sjálfstæðisflokkur- inn 37% af atkvæðamagninu í landinu, en hann fékk kosinn 21 þingmann eða 42,3% af þingmönn um. Nú hafði flokkurinn lengi heldið því fram í áróðri sínum fy ir breyttri kjördæmaskipan,’ afi flokknum bæri þingmannafjöldi í samræmi við atkvæðamagn þeirra við kosningar. En í kosnirigunrim 1953 gerðist það fyrirbaeri,: ac Sjálfstæðisflokkurinn fékk tveim ur þingmönnum fleiri en hpnum bar samkvæmt þessari höfðalölu- reglu flokksins sjálfs. Ekki kvai'l- aði flokkurinn undan því, aö hann hefði fengið of marga þing- menn. Hins vegar kvartaði hann' undan öðru. Hann kvarta.ði. und- an því, að hann skyldi ekkj þafa fengið 344 atkvæðum fleira í viss um kjördæmum, því að þá 'hefði hann fengið meiri hluta á Alþingi. Og þeir löldu, Sjálfstæðismenn þá, að þjóðinni hefði varla getað hlotn ast meiri hamingja en ef svo’ hefði farið. Það var því að dómi Sjálf- stæðismnna hámark réttlætis. .í al- þingiskosningum, ef þeirra flokk- ur hefði fengið yfir 50%. þirig- manna út á 37% af atkvæðámagiii í landinu. Þegar Sjálfstæðismenn þóttust sjá fram á það 1953, aö þeir gaíi.u e. t. v. náð þessari tegund réttlætis í kosningum að óbreyttri kjör- dæmaskipan með örfárra atkvæða viðbót í vissum kjördæmum, þá var það sem formaður stjórnar- skrárnefndar, háttvirtur 1. þing- maður Reykjavíkur, Bjarni Bene- diklsson, var ekki lengi að snúa við blaðinu. Ilann lét stjórnar- skrárnefnd hætta störfum, en> hóf undi.búning að þessu marki, Þar með var fengin skýringin á, því, hvers vegna stjórnarskrárnefnd hætti störfum einmitt á árinu 1953. Enginn íslenzkur stjornmála flokkur hefir eins oft talað um lýðræði og Sjálfstæðisflökk'urinn, enginn flokkur talað eins ðft nm réttlæti og jafnrétti og hann. Fn þegar hefir átt að framkvæma þetta lýðræði, þetta jafnrétti og réttlæti, þá hefir útkoman yilj.ið verða hjá þessum flokki Ííkt því, sem hún varð í málflutningnum eftir kosnin.garnar 1953. Sameinuðu þjóðirnar Þegar þessi flokkur . telar um réttlætismál og jafnrétti kjósenda þá meinar hann 37% réttlæliS írá 1953 og bæjarstjórnarjafnréttið, bæði í Reykjavík og annars st'aðar, sem ríkt hefir stundum árSCúgrim saman, ef það hefir verið honuro í hag. Forsvarsmenn þessarpr. -kjör- dæmabyltingar leggja sig., mjög fram um að sýna réttlætið. i hlut- fallskosningum í stórum kjordæm um. Þeir hafa verið mihntiv á, að ekki eru hlutfallskosnirigkr í ýras um almennum féTagssáftVtökum manna, bæði innan lánds og-utan, ekki í veikalýðsféltígum, tkki i kosningum til sýslunefnaa meira segja það eru ekki hlutía.iskosn- ingar til Sameinuðu þjóðamia. Það hefir orðið litið um svör viö þessu, en þó hefir aðalritstjóri ívihl, h.Ut virtur 1. þin.gmaður ReyKjávíkur reynt að svara þessu um súmein- uðu þjóðirnar í Mbl. 12. apr i. Þar segir svo orðrétt með leyii uæst- virts forseta. „Tal um styrkleika Sameinuðu (Framhald á 8. síðul.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.