Tíminn - 16.06.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.06.1959, Blaðsíða 6
6 T ( M I N N, þriðjudagirin 16. júní 1959. Útgefandl s FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu viB Lindargðtn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18304. (skrifstofur, ritstjómin og blaCamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgrelðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Síml eftir kL 18: 13948 Ummæli Ríkarðs Jónssonar um Kjördæmablaðið í KJÖRdæmablaðinu, sem Jtom út um helgina, birtist m. a. stutt viðtal við hinn þjóð kunna listamann, Ríkarð Jónsson. Hann lætur þar ummælt á þessa leið: „I»að skiptir ekki miklu máli núna, hvaða stjórnmála flokki ég fylgi. Eg er stórhrif inn af hinu ramíslenzka and lega véöurfari Kjördæma- blaðsins og er hlynntur því og stefnu þess.‘ Það, sem Ríkarður Jóns- son segir hér, er áreiðanlega mælt fyrir munn þúsunda þjóðlegra manna um land allt, — þótt þeir hafi áður fylgt, ::að málum einhverra þeirra þriggja flokka, er standa að kjördæmabylting- unni. Allmargir manna úr öllum þessum flokkum hafa þegar látið þetta álit sitt uppi í blaðinu sjálfu, en hinir eru viíssúlega mörgum sinnum fípirij sem enn hafa ekki haft gðstöðu til að gera það vegna þess, hve rúm blaðsins er takmarkað. Margir' láta sér. lika nægja að lýsa þess um vllja við Kjördæmablað- ið, enda vissara fyrir þá menn, er Sjálfstæðisflokkur inn hefur aðstöðu til að beita harðræði og kúgun. Svo ofsa full hefur verið framganga forkólfa hans að undan- förn,u. ÞAÐ er ekki neitt undar- legt, þótt málstaður Kjör- dæmablaðsins hafi hlotið slíkar undirtektir og ummæli Ríkarðs Jónssonar benda til. Öllu þjóðlegu fólki er ljóst, aö með niðurlagningu allra núv. kjördæmanna, nema R.vikur, er verið að vinna liið mesta glapræði. Það er verið að slíta fornhelg tengsli við söguna og landiö og kollvarpa skipan, sem þjóðinni hefir reynzt vel frá fyrstu tíð. Það er verið að veikja landsbyggðina óeðli- lega og stuðla þannig að hættulegu ójafnvægi í byggð landsins. Það er verið að út færa og efla það kosninga- fyrirkomulag, hlutfallskosn- ingamar, sem hvarvetna hef ur leitt til flokkafjölgunar og meiri sundrungar, en smáþjóð eins og íslending- ar má þó sízt við því að dreifa þannig kröftum sín- um og gera jafnvel stjórnar kerfi sitt óstarfhæft með öllu. Þetta er öllum þjóðlegum og hugsandi mönnum ljóst. Alltof margir láta þó flokks böndin enn aftra sér frá því að gera það, sem þeir vita er rétt. Þó fjölgar þeim óð- um, sem láta flokksböndin Víkja, enda er eingöngu efnt til þessara kosninga vegna kjördæmamálsins eins sam- kv. beinum fyrirmælum st j órnarskrárinnar. KJÖRdæmablaðið hef ur ótt mikinn og góðan. þátt í því, að hin þjóðlega alda, sem hafist hefur gegn kjör dæmabyltingunni, rís nú hærra og hærra með hverj- um degi. í stað þess að taka þessu mannlega, hafa for- ingjar Sjálfstæöisflokksins gripið til aðferða sem minn ir á ekkert frekar en vinnu brögð Hitlers. Mbl. hefur gefið í skyn að fordæma beri öll rithöfundarverk Gunnars Dals vegna þess, að hann hef ur þorað að gerast hér merk isberi þjóðlegs málsstaðar. Síðan hann gerðist ritstjóri Kjördæmablaððsins hefur hann sætt hinum furðuleg- ustu ofsóknum. Reynt hefur verið að nota hina minnstu tylliástæður til að rangfæra og mistúlka málflutning Kjör dæmablaðsins og er þar skemmst áð minna á, að reynt hefur verið að gera hinn mesta úlfaþyt út af því, að blaðið birti nokkur al kunn ummæli Sigurðar Nor- dals um strjálbýlið, án þess að nefna ártalið hvenær þau voru skrifuð. Ummælin voru hins vegar nákvæmlega birt og ekkert í þeim fjallaði um afstöðuna til kjördæmamáls- ins, svo að með þeim var ekk- ert verið að gefa í skyn um afstöðu Sigurðar til bess, allt tal um fölsun í þessu sam- bandi er því tilbúningur einn. Samt ber Mbl. þetta nú á borð fyrir lesendur sína dag eftir dag. Þá hafa margir þeirra manna, sem hafa skrif að í blaðið, verið hundeltir af erindrekum Sj álfstæðis- flokksins og reynt að fá þá með góðu eða illu til að taka aftur ummæli sín. Þetta hef- ur þó yfirleitt ekki tekizt, en þá hafa smalarnir í sumum tilfellum ekki vílað fyrir sér að grípa til hreinna falsvott orða. Þessi vinnubrögð munu á- reiðanlega ekki bæta mál- stað kjördæmabyltingar- manna. Til þess minna þau alltof mikið á hugarfar ein ræðis og kúgunar, enda mun það emmitt markmið sumra, að slíkir stjórnarhættir rísi úr rústum þeirrar sundrung ar, sem kjördæmabyltingin mun magna. Þess vegna mun þessar aðfarir hjálpa til að efla þá þjóölegu vakningu, er gert hefur menn eins og Ríkarð Jónsson að stuön- ingsmönnum Kjördæma- blaðsins. Forkólfar Sjálfstæðisflokks ins munu fá að reyna það, að það er ekki ráðið, að fara að <|æmi Hitlers og kalla mál flutning andstæðinganna falsanir og ætla að beygja þá til hlýðni við sig með kúgun. Þvert á móti minnir það menn á það enn betur en ella, að gegn kjördæmabylting- unni þarf ekki sízt að standa, til að afstýra þeim glund- roða hlutfallskosninganna, er lyfti Hitler til valda á sín um tíma. Gunnar Leistikow skrifar frá New York: Verður unnt að komast hjá veru- legu mannfalli í styrjöldum? Ef beðtt verðnr hugargasi virðist allf benda þá átt, aS hægt verSi að komast h|á tortím- ingu mannsiífa og mannvirkja Er það hugsanlegt, að í framtíðinni verði unnt að heyja styrjöld, án þess að af hljótist verulegt mannfall? 1 Það mun verða kleift, ef marka má ummæli nokkurra bandarískra hershöfðingja. Það er kannske fullmikið sagt, að hægt sé að heyja heila styrjöld án mannfalls, en í einstökum orrustum má án efa lækka tölu hinna föllnu með hjálp splunkunýs vopns: „hugargass". Fyrir nokki-u runnu í gegnum heimspressuna nokkrar myndir, sem skýra. tilraun, er efnafræði deild bandaríska hersins hafði gert með þetta nýja vopn. Þær skýrðu athafnir og viðbrögð katt ar fyrir og eftir að hann hafði Verið beittUr „hugargasi". Fyrst sáu menn köttinn stökkva á mús í vígahug miklum, eins og góðuín ketti isæmir. Svo sáu menr, sama kött verða miður sín af hræðslu, er hann sá nokkrar hvítar mýs, sem menn höfðu sett inn til hans, og gera örvæntingarfullar til- Myndin sýnir kjarnorkusprengingu. Ef beitt verður kjarnorkuvopnum i raunir til að fjarlægjast mýsnar, styrjöldum, er tortíming gjörvails mannkyns á næsta leiti. — Hugargasið ems og pær væru risvaxnar o- freskjur, sem vildu éta köttinn. kemur hins vegar í veg fyrir manntjón. Engar eftirstöðvar Þetta gas hefur verið framleitt sem vopn og bindur bandaríski herinn miklar vonir við það. Og í mótsetning við önnur nútíma vopn er það skref til varnar tor tímingu mannsins. "Gasið hefur að eins tímabundin áhrif og það læt ur ekki eftir sig neinar eftirstöðv ar eða skaða. En svo lengi sem það verkar getur það sett heila herdeild út af laginu og úr leik. Menn hafa enn aðeins reynt gas ið á sjálfboðaliðum, og hafa því enga reynslu um það, hvernig það mundi verka á flokk manna eða heila borg, en það getur hver og einn gert sér í hugarlund sjálf ur, hvernig hópverkun yrði. Gasið verkar mjög mismunandi á fólk, en hefur þau áhrif, að umturna venjulegum hátternisvenjum manna.Hugaðir verða blauðir, deig ir ganga herserksgang, félagslynt' fólk verður mannafælur og leitar einveru. Það undirfurðulega við gasið er, að fórnardýrin merkja alls ekki, að þau séu undir á- hrifum þess, og þeim finnst ekk ert óeðlilegt eða óvenjulegt við hátterni sitt'. Þau lifa sem næst í dra.umaheimi, þar sem hinar fár ánlegustu athafnir verð,a sjálfsagð ar. Herlæknir nokkur, sem lét beita sig gasinu, var spurður að því, hvað hann mundi gera við sjúkling, sem þjáðist af gigt' í vinstri öxl. Hann svaraði grafal varlegur: „Við verðum að taka af manninum vinstri fótinn, það er hið eina sem getur bjargað manninum.“ Ringulreið í hernumdri borg, þar sem and rúmsloftið væri mengað gasinu, myndi án efa þrjótast út hið fer legasta öngþveiti og ringulreið. Foringjarnir myndu gefahinar fár ánlegustu fyrirskipanir og her mennirnir mvndu flýja félaga sína. Það mundi án efa. verða mikið um umferðarslys og mannskaði yrði nokkur af öðrum sökum. En mann skaðinn yrði ekki svipaður því og cf hærinn yrði fyrir sprengjuárás um. Og áður en herinn næði fullu ráði aftur, væri búið að taka hina óskemmdu horg og afvopna hinn gasdrukkna her. Gasæði William Creamy, hershöfðingi, sem nýlega hefur tekið við yfir- stjórn efnafræðideildar hersins, sagði i blaðaviðtali: „Þið mynduð varla trúa mér, ef ég segði ykkur, að á morgua gætum við gengið upp í öldungaráðið og fengið öld ungadeildarþingmennina til að dansa í hringi upp á borðum s'ín um velta sér kollhnís á göngunum lenda í hörkuáflogum hver við annan og halda kommúnistískar æsingaræður, aðeins ef maður kæmi inn í salinn með lítið hylki sem innihéldi hugargas. í raun inni væri ónauðsynlegt að ganga inn í hygginguna, það væri nóg -að tæma geyminn frá bíl á götunni og nægjanlegt gasmagn myndi smjúga inn í þingsalinn. Hristingur Sumar tegundir hugargasís verka á vöðvana. Ein tegund gerir mönn um ókleift að spenna þá, svo her mennirnir falla i einskonar dvala og geta sig hvergi hreyft. Önnur tegund skýtur loku fyrir, að menn geti slakað á vöðvunum. í báðum tilfellum eru hermennirnir einsk isnýtir til hernaðar, svo lengi sem gasverkunin varir. Þriðja. tegund in kemur þeim til að hristast' án afláts, svo þeir eru ófærir að miða byssu, stjórna bíl eða flugvél. Fjórða tegundin lamar hæfileika mannsins til að hugsa eða tala. Þriðja leiðin Efnafræðideild hersins er sann færð um, að huggasið hefur geysi mikla hernaðarlega þýðingu. Venjulega hefur herstjórnin val ið milli tveggja leiða til að 'her taka borgir og mannvbki. Ann að hvort að gera loftárásir á borg ina, þar til hún gefst upp, eða að beita deyðandi efnum og loft tegundum, en báðar þessar leiðir hafa í för með sér óbætanlegan skaða á íbúum og iðnaðarmann virkjum. Hugargasið býðux upp á þriðju leiðina, að taka bo'rgina óskaddaða og íbúana í fullu fjöri. Óskadraumur Það hefur ætíð vei'iS óskadraum ur herforingja að taka borgir án þess að þurfa að grafa hina föllnu gera að hinum særðu ogiseðja hina hungruðu. Ef hugai-gasi væri beitt gæti þessi draumur rætzt. i í seinni heimsstyrjöldinni, voru ' engar gast'egundir notaðar, en eit urgasið, sem alræmt varð í fyrri heimsstyrjöldinni, isamþykktu strí'ðsaðilar að nota ekki. Hvorki Þjóðverjar eða Japanir þorðu að beita gastegundunum í seinni heimsstyrjöldinni vegna þess að þeir óttuðust að banda- menn hefðu yfirburði á því sviði. Eiturgas barrnað Þetta hafði viss áhrif á þróun (Framh. á 11. 6Íðu.) Framsóknarílokkurinn og launamálin Launamál ríkisstarfsmanna Fyrir forgöngu Framsókn. arflokksins var á sl. ári skip- uð fastanefnd til þess að fylgi ast með þróun kaupgjaldsins almennt í landinu og gera tiL lögur til ríkisstjórnarinnar um breytingar á grunnlaun. um starfsmanna ríkisins, þeg ar ástæða þykir til. í nefncl þessari eiga sæti fulltrúar tilnefndir af Banda- lagi starfsmanna ríkis og bæja og fulltrúar skipaðir af ríkisstjórninni. Starfsmenn ríkisins fögn. uðu þessari nefndarskipun og gera sér vonir um, að það fyr irkomulag, sem þar var tekið upp, komi í veg fyrir, að þeir dragist langt aftur úr öðrum stéttum í launum, eins og hvað eftir annað hefir komið fyrir á undanförnum áratug- um. Þeir hafa stundum þurft að bíða í mörg ár eftir launa hækkunum til samræmis við aðrar stéttir. Framsóknarflokkurinn vill vinna að því, að þjóðartekj. unum sé skipt réttlátlega ntilli þjóðfélagsþegnanna. Það er veiganiikið atriði fyr ir þjóðfélagið að opinberir starfsmenn sétt þeim vanda vaxnir, sctn á þeirra herðum hvílir. Þeir eiga einnig kröfu á’því að laun þeirra séu sam- bærileg við laun annarra stétta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.