Tíminn - 21.06.1959, Qupperneq 6

Tíminn - 21.06.1959, Qupperneq 6
6 T í M I N N, sunnuuaginn Tl. júní 11959, Skrifstofur í Eddúhúsinu viO Lindargðí* Símar: 18 300, 18 301, 18302, 1»*08, 18 894. (skrifstofur, ritstjórnin og blaSamena) Auglýsingasíml 19 523. - AfgrelOsUn 12838 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 18849 Dreifibréf Sjálfstæðisflokksins til Reykvíkinga SEINUSTU dagana hefur Mbl. verið að auglýsa eftir sjálfboðaliðum til að brjóta bréf og láta inn í umslög. Auglýsing þessi hefur verið birt undir stórri fyrirsögn og verið feitletruð, svo að mik- íð virðist standa til, en sjálf- boðaliðarnir hiris vegar látið eitthvað á sér standa, því að ella hefði ekki þurft að aug- lýsa svona fjálglega eftir þeim. Það bréf, sem hér er um að ræða, er frá Sjálfstæðis- flokknum og mun eiga að sendast til kjósenda í Reykja vik. Undir það skrifa allir þeir, sem eru á lista flokksins í Reykjavík. HVERT er svo efni þessa bréfs, sem Sjálfstæðisflokkur inn leggur slíkt kapp á að koma til Reykvíkinga og aug lýsingarnar í Mbl. bera merki um? Er þar kannske verið að leiða kjósendurna í allan sannleikann um það, hvað kosið sé um og Sjálfstæðis- flokkurinn hyggist fyrir, ef völdin falla honum í skaut? Mbl. hefur verið furðu hljótt um þetta síðan kosningabar áttan hófst, svo að þar er vissulega þörf frekari upp- lýsinga. Bréf þeirra frambjóðenda Sjáifstæðisfl. er næsta þög- ult um þetta. Að svo miklu leyti, sem það fjallar um þetta er það að mestu leyti falsanir og blekkingar. Þykir því rétt að athuga efni þess nokkuð nánar, en það hefur nýlega borizt til Tímans frá einum kunningja hans á skrifstofu Sjálfstæð- isflokksins. í BRÉFINU segir, að kjör dæmamálið sé annað aðal- mál kosninganna, en hitt sé viðskílnaður vinstri stjórnar innar og efnahagsmálin. Hér er alrangt sagt frá. Kjör- dæmamálið er aðalmál kosn inganna samkv. beinum fyr- irmælum stjórnarskrárinnar. Þingið er rofið og efnt til kosninga, svo að þjóðin geti lagt dóm sinn á þá breyt- ingu, er seinasta þing sam- þykkti. Ótti íhaldsleiðtoganna við verk þeirra i kjördæmamál- inu, lýsir sér bezt í því, að þeir reyna að draga þannig önnur mál inn í kosninga- baráttuna, þar sem þeir von ast til áð menn kjósi frekar um þafl eftir flokkslínum en um kiördæmamálið. Vissu- lega ætti þetta að vera mönn um aukin hvatning til þess þess að íhuga enn betur hvers eðlis kjördæmabreyt- ingin er. ÞÓTT frambjóðendurnir segi að kjósa eigi um störf vinstri stjórnarinnar og efnahagsmálin, verða þeir, sem bréfið fá, jafnnær um stefnu Siálfstæðisflokksins í efnahagsmálunum. Um hana segir ekki annað en það, að „allt veiti á að valin verði frambúðarleið, sem liggur til fjárhagslegs jafnvægis, fram leiðsluaukningar og atvinnu öryggis“. Um það er ekki eitt orð, hver leiðin sé. Bréfið er bersýnilega skrifað í öðrum tilgangi en að fræða Reyk- víkinga um stefnu Sjálfstæð isflokksins í efnahagsmálun- um. Hana er reynt að fela í umbúðir, sem eru áferðarfal- legar, en segja hins vegar ekki neitt. ÞÁ er í bréfinu vikið að kjördæmamálinu, og sagt um þá breytingu, sem er fyrir- huguð, að hún sé aðeins „lág marksbreyting“. Það kemur hins vegar ekki aiveg í Ijós, hvað átt er við með þessu orðalagi, en helzt virðist þó mega skilja það á þann veg, að kosningarétturinn sé ekki nægilega j afnaður með henni, Fullkomin breyting yrði samkvæmt því að gera landið að einu kjördæmi. Samstarfsflokkar Sjálfstæðis flokksins í kjördæmamálinu fara ekki dult með að það sé lokatakmark þeirra. Fram- angreint orðalag bendir þann ig til, að Sjálfstæðisflokkur- inn hugsi sér einnig, að breyt ingin nú sé aðeins áfangi að því marki. ÞÁ er komið „að rúsínunni í pylsuendanum“ eða loka- orðum bréfsins. Þau eru á þá leið, að kjördæmabreyting in ,,sé notuð til fáheyrðra æs inga víðs vegar um land gegn Reykvíkingum og valdi þeirra.“ Hér er farið með vísvitandi ósannindi og er furðulegt um suma þeirra, er skrifa undir bréfið, að þeir skuli láta hafa sig til þess. í umræðum, sem um þetta mál hafa orðið, hefur því aldrei verið haldið fram, að kjördæmabreytingin auki ó- eðlilega vald reykvískra kjós enda, heldur miklu fremur sé það enn oflítið. Hinu hefur hins vegar verið haldið fram með fullum rökum, að kjör- dæmabyltingin auki úr hófi fram vald hinna fámennu flokksstjórna í Reykjavík og skapi þeim aðstöðu til að ráða vali frambjóðendá, er strjálbýlið hefur hingað til haft í sínum höndum. SJÁLFstæðisflokknum mun ekki takast að æsa Reyk- víkmga til andstöðu gegn strjálbýlinu með þvi að rugla saman reykvískum kjós endum og flokksstjórnunum í Reykjavík. Fjöldi Reykvík inga gerir fullan greinarmun á þessu tvennu. Fjöldi Reyk víkinga hefur einmitt svo sterkar rætur i dreifbýlinu, að þeir munu í þessum kosn- ingum kjósa heldur að styðja það en flokksstjórn- irnar í Reykjavík, hvað sem öllum áróðri og blekkingum Sjálfstæðisflokksins líöur. Margar heiðarlegar vinnukonur og piparmeyjar eru komnar á sakaskrá Sextugur er í dag maður- inn, sem fylgist með afbrot- um almennings, sá sem fær- ir sakaskrána og gefur vott- orð um gott eða ilit fram- ferði eftir því sem skrifað stendur, syndaskrásetjarinn Guðmundur lllugason, títt- nefndur af vildarmönnum „illi", þótt maðurinn sé hið mesta Ijúfmenni. Starfssetur Guðmundar er í húsakynnum sakadómaraembættis ins að Fríkirkjuvegi 11, nánast til. tekið í vinnukonuherbergi frá dög um Thors Jensens, vinstra megin við uppgönguna innst i horni. — Hvenær fæddur í þennan synduga heim? spyr Guðmundur, þegar maður á við hann erindi. Svo lítur hann í nafnaskrána og gá ir hvort viðkomandi hafi komizt á blað, dregur fram syndaregistrið ef maðurinn nafngreinist í skránni ritar vottorð með löglegu skila. haldi, stimplar það og tekur -15 j krónur fyrir. Talað vií Giiðmuná IHugason, sakaskrárritara Líf og hræring í annarra manna syndum eru bundin sakarvottorði, meira að segja innganga í Sjómannaskólann. Og svo þarf isakarvottorð til að end urnýja þessi réttindi. Á sakarvottorð viðvíkjandi öku- skírteini eru eingön.gu skráð brot gegn bifreiða. og umferðarlögun- um, en þau brot fyrnast á 5—10 árum. Til dómara eru lögð fram vottorð um öll brot, en til vél- stjóra og annarra slíkra réttinda þarf aðeins vottorð um að mað. ur njóti borgaralegra réttinda. Fyrir kosningar — Svo er það endurheimt borg- aralegra réttinda, en slíkt tíðkast aðallega fy.'ir kosningar. Þá kem. ur fjöldi manna, sem hefir verið sviptur kosningarétti ‘og kjörgengi, en langar til að kjósa. Þá verður að leggja fram vottorð um allar sakir, ef mönnum eiga að veitst Guðnuindur Illugason 36 þúsundir þessi réttindi. Svona fyrirgefning- ^ ar eru veittar eftir að tvö til fimm — Já, ég á að passa það, að synd eru dómi. ir borgaranna séu skráðar, sagði _ 0g hvað finnst þér> þegar þú Guðmundur, þegar fréttamaður iitur yfir aiit þetta syndaregistur, leit inn til hans í vikunni. þykir þér ekki heimurinn vera — Og þetta er langur listi? ,f spilltur? Bílfarmur á ári — Hvað geymir þú hér fleira en sakaskrána? — Það eru dómabækur, dómar og málskjöl. Dómarnir eru geymdir hér þangað til þeir eru ársgamlir. Þá eru þeir sendir upp á tuikthús- loft og geymdir þar. Það er venju. le.ga bilfarmur á ári, sem ég .sendi uppeftir. Og skjölin, sem vitna um glæpi og refsingar eða vanrækslusyndir 38 þúsunda eru allt í kringum Guð mund Illugason. Skáparnir og hilL urnar fullar frá gólfi til lofts og sífellt bætist við. Skáparnir taka nú orðið yfir svo mikið af herberg. inu, að gólfplássið þætti lítill skeiðvöllur fyrir vinnukonu. — En svo við brjótum upp á öðru umtalsefni, Guðmundur, þú ert mikill félagsmálamaður. — Já, það virðast hafa verið á- lög á mér frá f\Tstu tíð, að vas. ast eitthvað í félagsmálum. Þegar ég var strákur uppi í Flókadal, þá stofnuðum við, sem vorum of ungir til að ganga í ungmenna- félagið, með okkur félagsskap. Og svo gekk maður í ungmennafélag. ið, þegar maður hafði aldur til. Eg komst í stjórn Eldborgarinnar í Kolbeinsstaðahreppi, og varð fyrsti formaður Ungmennasam- bands Snæfellsness og Hnappa- dalssýslna. — Og Borgfirðingafélagið? — Með frá upphafi, 1945, o,g for maður síðastliðin þrjú ár. — En Kvæðamannafélagið? — Þar er ég varaformaður. Svo var ég í stjórn verkamannafélags. ins Hlífar í Hafnarfirði og í góð- templarareglunni hefi ég starfað lengi og er þar þingtemplar. — En hvað um ættfræðina? — Hún er tómstundagaman. — Fleira sem þú gamnar þér við í tómstundum? — Fjallgöngur. — Og kveðskapur? — Óprenthæfur kveðskapur. — Láttu mig heyra vísu. — Kemur ekki til mála, ég sa.gði þér, að hann væri ekki prenthæf. ur. Og með það fór undirritaður. Guðmundur var ófáanlegur til að fara með neinn kveðskap og sat fastur við sin keip. Hitt er alkunna að hann er hagyrðingur góður og að ættfræðin kemur honum að drjúgum notum í starfinu þótt hann kalli hana tómstundagaman. En Guðmundur er sextugur í dag og er þess að vænta, að honum berist margar stökur í tilefni_ af. mælisins. B.Ó. — Á sakaskrá er komið 36000 manns af öllu landinu. — Og þú hefir alla þessa skrá undir höndum? — Bæjarfógetar og sýslumenn um land allt eiga að senda þessi plögg hingað um leið og þeir dæma menn og taka sektir. Marg- ir sem hér eru nefndir, hafa feng ið eina sekt eða svo, en til eru vottorð upp á 17 síður. Nokkrir eru með 10 síður og þar yfir. Guðmundr bendir á skápana. — í þessum skáp er nafnaskrá og hvert nafn hefir sitt númer. Þeir sem ekki hafa gerzt brotleg- ir, eru ekki á skrá . . . það er nú það, sem sumum þykir hálf skítt að vera ekki nefndir, en ég er nú að reyna aö koma þeim í skilning um, að það séu engin hlunnindi að vera skráður hér. En sakarvott orð þurfa menn nú til flestra hluta. Bílstjóraréttindi, vélstjóra. I réttindi, meistararéttindi í öllum iðngreinum, iðnaðarréttindi og ■ réttindi til að stofna hlutafélag — Það má nú segja, að maður lifi og hrærist í annarra manna syndum. Annars býst ég við, að allur fjöldinn á þessari skrá sé nú bara. venjulegt fólk. Það er ekki allt af illmennsku þótt menn kom. ist á skrá hér. Svo er alltaf verið að fjölga lögum og reglum og gera fólki erfiðara að lifa án þess að komast á sakaskrá. Á síðustu ár- um hefir til dæmis rignt niður kær um frá Hagstofunni fyrir vanrækt ar tilkynningar um bústaðaskipti og það hefir haft í för með sér, að fjöldi af vinnukonum og pipar. junkum, sem aldrei hafa haft neina glæpi í huga, er kominn hér á sakaskrá. Og fyrir svona van. rækslusyndir verður að greiða 50 króna sekt. Sakaskráin er alltaf að öðlast meiri þýðingu, og nú eru sumir atvinnurekendur farnir að koma hér til að forvitnast um menn, sem þeir ætla að ráða til sín. Eg hefi sagt þeim, að þeir skuli bara krefjast sakarvottorðs því við meg um ekki gefa slíkt upp til óvið. komandi manna. Mikhibrautar- tíðindi Þeir, sem leið eiga um Miklu. braut þessa (taga, ver’ða að beygja fyrir gryf ju mikla rétt við Lönguhlíð. Menn taka varla eftir þessu, því að menn eru farnir að gera ráð fyrir, að þetta séu eilífð- arframkvæmdir. En svona til að svala hugsanlegri forvitni má geta þess, að þarna er verið að brjóta upp hluta af því, sem steypt var í fyrra eða fyrr á þessu ári í undirgangi Miklubrautar. — Snilling'arnir mundu nefnilega allt í einu eftir því, þegar jarð. húsinu var lokið, að þarna áttu að vera salerni, en hafði gleymzt. Og aftur var ráðizt niður í jörð. ina til þess að brjóta upp og Koma fyrir náðhúsum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.